Tíminn - 04.07.1968, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.07.1968, Blaðsíða 6
* 6 TÍMINN FIMMTUDAGUR 4. júlí 1968. ÁRÍÐANDI TILKYNNING Fyrirtæki 1 Englandi hef- ur fyrirliggjandi og flyfcur út: Landbúnaðar- traktora, sem einnig fást með skóflum fyrir s'kurðgröft eða ámokst- ur. — Vegvaltara, loft- pressur, Rafmagnsgen- eratora, Beltatraktora, Kornþurrkara o.s.frv. — Bjóðum góð, notuð og yfirfarin tæki á Iágui verði, með ábyrgð. Skrifið til: A. Portell, 49 Queen Victoria Street, London E.C.4 pIpulagnir Tek að mér viðgerðir, — breytingar, uppsetningu á hreinlætistækjum o.fl. Guðmundur Sigurðsson, pipulagningameistari, Grandavegi 39. Simi 18717 BORÐ FYRIR HEÍMILI OG SKRIFSTOFUR DE LUXE ■■ ■ Hi TT ■ FRÁBÆR gæsi ■ ■ FRÍTT STANDANÐI ■ ■ STÆRS: 90X160 SM ■ ■ VIBUR: TEAK ■ ■ FOLÍOSKÚFFA ■ ■ ÚTDRAGSPLATA MEB ■ GLERI A B SKÚFFUR ÚR EIK ■ HÚSGAGNAVERZLUN REYKJAVÍKUR bRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940 10. þing Sjálfsbjargar, landss ambands fatlaðra Frá ársþingi Sjálfsbjargar 10. þing Sjálfsbjárgar, lands- sambands fatlaðra, var haldið að Jaðri dagana 8.—10. júní s.l. Svo skemmtilega vildi til, að hinn 9. júní var tíu ára áfmælisdagur fyrsta Sjálfsbjargarfélagsins, en það var stofnað á Siglufirði. Mættir voru til þingsins 44 full trúar frá níu félagsdeildum. Reykjavíkurdeildin sá um þing- hald að þessu sinni og ávarpaði Sigurður Guðmundsson formaður hennar, þingfulltrúa af því tiléfni. Lýsti hann ánægju sinni yfir þeim árangri, sem náðst hefur frá stofn un samtakanna og hvatti til áfram haldandi samvinnu og baráttu fyr ir hagsmunamálum fatlaðs fólks. Theodór Jónsson, formaður landssambandsins, bauð síðan full trúa velkomna til þings. Að lokinni kosningu .starfs manna þingsins var gengið til dag skrár. Formaður flutti skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra. Innan Sjálfsbjargar eru tíu fé- lagsdeildir með 873 virkum félög um. Skrifstofa sambandsins er enn- þá til húsa að Bræðraborgarstíg 9 og vinna þar nú fjórir starfs- menn. Starfsemi hefur verið mik- il á árinu og verkefni það, sem hæst hefur borið er bygging Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfs- bjargar að Hátúni 12. Um þessar mundir er verið að ljúka steypu- vinnu við 5. og efstu hæð fyrsta áfanga. Nú hafa alls verið lagð- ar kr. 13.500.000/- í bygginguna. Auk eigin fjár, sem aflað hefur verið með merkja- og blaðasölu og happdrættum, en þau voru tvö á árinu hefur Styrktarsjóður fatl- aðra veitt styrki. Þá veitti Al- þingi á fjárlögum 1968, kr. 1.500. 000/- styrk í sama skyni og Erfðafjársjóður lán, kr. 3.000. 000/-. Einnig er von á styrk frá Svíþjóð. í nóvembermánuði síðast liðn- um var öllum sveitarstjórnum skrifað og farið fram á fjárhags- stuðning. Undirtektir hafa verið ágætar. Eins og sjá má, er reynt að afla fjár til byggingarinnar með ýmsu móti, enda framkvæmd irnar fjárfrekar og er allur stuðn- ingur vel þegin. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur veitt samþykki sitt, til þess að úthlutað verði merkjum, sem veita mikið fötluðum ökumönn- um undanþágu frá gildandi ákvæð um um bifreiðastöður. Merki þessi má festa innan á rúður bif- reiða. Þau verða um 12x18 cm. að stærð, með bókstafnum „P“, hvít- um á bláum grunni, ásamt skrá- setningarnúmeri bifreiðar og nafni ökumanns, sem undanþágan gildir fyrir. Mun þetta koma til framkvæmda nú í sumar og verð- ur merkjunum úthlutað hjá lög- reglustjóra, samkvæmt tillög- um Sjálfsbjargar. Merkin veita, eins og áður seg- ir, undanþágu til að leggja bif- reiðum, þar sem bifreiðastöður annars eru ekki leyfðar, þó svo að ekki stafi hætta af í umferð- inni. Alþjóðadagur fatlaðra var 24. marz. Af því tilefni tók Sjálfs- björg á leigu í eina viku, sýn- ingarglugga verzlunarinnar Málar ans í Bankastræti og voru þar sýnd margs konar hjálpartæki fyr ir fatlaða, ásamt líkani af Vinnu- og dvalarheimilinu. Greinar um málefni fatlaðra voru birtar í dag- blöðum og Haukur Kristjánsson, yfirlæknir flutti útvarpserindi um sama efni. Á síðastliðnu án boðaði biskup til fundar fulltrúa frá ýmsum líknarfélögum, ásamt nokkrum prestum. Var tilgangurinn að ræða á hvern hátt þjóðkirkjan gæti orðið félagasamtökum þess- um að sem beztu liði og eflt sam- band milli kírkjunnar og líknar- og mannúðarfélaga í landinu. Nú hefur að tilhlutan biskups, verið skipuð fimm manna nefnd til að fjalla um þessi mál og er séra Erlendur Sigmundsson formaður hennar. Fyrir jólin kom út bókin „í meistara höndum,“ sem María Skagan tók saman. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. sá um útgáfuna. Sam- kvæmt ósk Maríu Skagan, renn- ur allur ágóði af bókinni til Hjálp arsjóðs Sjálfsbjargar. Landssambandið flytur Maríu Skagan og 'öðrum þeim aðilum, er styrktu útgáfu bókarinnar, al- úðar þakkir. Á undanförnum árum hafa ver- ið kannaðir möguleikar á að fá land undir sumarbúðir fyrir sam- tökin. Það hefur þó ekki tekizt ennþá, en málinu verður haldið vakandi. Sameiginleg skemmtiferð allra félaganna er fyrirhuguð nú í sum ar. Gjaldkeri Landssambandsins, Eiríkur Einarsson, las og skýrði reikninga síðasta árs. Tekjur urðu kr. 1.725.019.48, tekjuafgangur kr. 1.041.422.76 hrein eign í árslok kr. 3.922.553.51. Starfsemi sambandsfélaganna var víðast hvar blómleg á árinu. Húsavíkurfélagið festi fyrir nokkru kaup á húseign og hefur öll aðstaða til félagsstarfsemi batnað mikið við það. Félagið á Siglufirði hefur starf- rækt vinnustofu óslitið síðan ár- ið 1960 og eru þar framleiddir vinnuvettlingar. Vinnustofan hef- ur jafnan verið rekin hallalaust. Akureyrarfélagið er um þessar mundir að hefja rekstur plastverk smiðju og eru miklar vonir við hana bundnar. Þar verður meðal annars framleitt raflagnaefni. Gestgjafar þingsins, Reykjavík- urdeildin, efndu til kvöldvöku á laugardagskvöldið, þar sem góðir gestir skemmtu þingfulltrúum og ennfremur var á sunnudag farið í hringferð um nágrennið og með al annars skoðaðar byggingarfram kvæmdir Sjálfsbjargar. Á mánudag komu fulltrúar Jað- arsstjórnar og þingstúku Reykja- víkur í heimsókn og færðu Sjálfs- björg að gjöf fagran kristals- blómavasa með breyptu merki templara í tilefni af 30 ára afmæli landnáms templara að Jaðri. Þingslit voru að kvöldi 10. júní og þakka fundarmenn starfsfólki Jaðars ágæta dvöl. Helztu samþykktir þingsins eru sem hér esgir: Tillögur tryggingamálanefndar: 1. að endurskoðuð verði 13. grein almannatryggingalaganna og leggur sérstaka áherzlu á að breytt verið tekjuviðmiðun grein- arinnar. 2. að örorkulífeyrisþegar með mjög litla eða enga vinnugetu eigi rétt til örorkulifeyrisauka, sem nemi 60% af hinum almenna örorkulífeyri. 3. að launþegar, sem njóta ör- orkubóta og verða atvinnulausir, eigi rétt á dagpeningum úr at- vinnuleysistryggingasjóði. 4. að lífeyrir verði greiddur með börnum, sem eru svo fötl- uð, að framfærandi þurfi miklu til að kosta vegna fötlunar þeirra þó að um sé að ræða börn, sem að öðrum kosti njóta ekki barna- lífeyris. Einnig verði heimilað að hækka um allt að 100% barnalíf- eyri, þar sem ástæður eru sér- staklega slæmar. 5. að öryrkja, sem er algjör- lega tekjulaus og dvelur á sjúkra húsi eða dvalarheimili, verði sjálf um greitt a-llt að 25% örorkulíf- eyris. 6. að beina því til Landssam- bandsstjórnar og fulltrúa Sjálfs- bjargar í Öryrkjabandalagi fs- lands að leggja áherzlu á eftir- farandi atriði í frumvarpi til laga um endurhæfingu, sem nú er unn ið að á vegum Öryrkjabandalags- ins. a) að fatlaðir fái sem bezta að- stöðu til náms og starfsþjálfunar. b) að tryggður verði fjárhags- legur rekstrargrundvöllur öryrkja vinnustofa og endurhæfingar- stöðva. Jafnframt minnir þingið á drög að frumvarpi til laga um endurhæfingu frá milliþinganefnd er samþykkt var á þingi Sjálfs- bjargar 1964. .. i Tillögur félagsmálanefndar: 1. Að landssambandið haldi á- fram að styrkja fólk til náms í sjúkraþjálfun og öðru því námi, er snertir endurhæfingu, enda njóti það starfskrafta þess að námi loknu eftir samkomulagi, ella verði styrkurinn endurgreidd ur. 2. að unnið verði að því, að öryrkjar njóti betri lánakjara til húsbygginga en nú gerast. 3. að leitazt verði við að hafa samvinnu við arkitekta og aðra þá, er við skipulags- og bygginga- mál fást, um að tekið verði tillit til sérstöðu fatlaðra. Tillögur farartækjanefndar: 1. að á næsta ári verði úthlut- að til öryrkja 350 bifreiðum 4—5 manna,. þar af 250 til endurveit- inga. 2. þingið leggur áherzlu á að öryrkjar hafi frjálst val bifreiða- tegunda og vill um leið vekja athygli á aðstöðumun leigubíl- stjóra og öryrkja. 3. þingið leggur áherzlu á að felldir verði niður allir tollar og gjöld af bifreiðum til öryrkja og mælir eindregið með tillögu Norð urlandaráðs um að ríkisstjórnir Norðurlanda gera samræmdar ráð stafanir um niðurfellingu aðflutn- ingsgjalda og annarra gjalda vegna bifreiðakaupa örýrkja. 4. þingið beinir þeirri áskorun til borgar- og bæjaryfirvalda, að þau hlutist til um að á opinber- um bifreiðastæðum sé eitt stæði merkt og sérstaklega ætlað fötl- uðu fólki, og sé það mun rýmra en önnur, vegna erfiðleika fatl- aðs fólks við að komast í og úr farartæki. í stjórn Sjálfsbjargar, landssam bands fatlaðra, fyrir næsta ár voru kjörnir: Formaður, Theodór Jónsson Rvík., varaform., Zophanías Bene diktsson, Rvík., ritari, Ólöf Rik- arðsdóttir, Rvík., gjaldkeri, Eirík- ur Einarsson, Rvík., meðstjórn- endur Jón Þ. Buch, Húsavík, Ingibjörg Magnúsdóttir, fsafirði, Heiðrún Steingrímsdóttir, Ak.ur- eyri, Sigurður Guðmundsson, Reykjavík, Lára Angantýsdóttir, Sauðárkróki. Framkvæmdastjóri er Traustt Sigurlaugsson. V

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.