Vísir - 13.06.1977, Qupperneq 3
VISIR ;Mánudagur 13. júni 1977
3
Sparnaður hjó sjónvarpinu:
Stilljmyndin er
ekki send út
fyrir hódegi
Kurr hefur veriö meöal sjón-
varpsviðgeröarmanna aö
undanförnu vegna þess, aö hætt
hefur verið að senda út stilli-
mynd i sjónvarpinu fyrir
hédegi.
Aður var stillimyndin send út
fráklukkanáttaá morgnana, en
eftir breytinguna er ekki byrjað
að senda hana út fyrr en klukk-
an eitt eftir hádegi. Að sögn Ás-
geirs Guðmundssonár, sem rek-
ur sjónvarpsviðgerðarverk-
stæði, géta sjónvrpsviðgerðar-
menn nú ekki hafið viðgerðir
fyrr en klukkan eitt og fá menn
þvi oft ekki sjónvarpstæki sin
viðgerð samdægurs, eða þá að
gera verður við þau i eftir-
vinnu. Þetta er þvi verulegt
óhagræði fyrir viðskiptavinina,
sem vilja oft fá tækin samdæg-
urs sagði hann.
,,Það er mjög dýrt að senda út
stillimyndina, og þegar nýja
stillimyndin kom var ákveðið að
hafa hana átyttri tima en verið
hafði” sagði Andrés Björnsson
útvarpsstjóri, þegar Visir innti
hann eftir ástæðunni fyrir þess-
ari breytingu.
„„Opinberir aðilar hafa
gagnrýnt okkur fyrir að hafa
stillimyndina svona lengi á
hverjum degi og það hefur lengi
staðið til að draga úr útsending-
um hennar i sparnaðarskyni.”
AHO
Liösmenn hljómsveitarinnar Brimkló þiggja veitingar sem bornar
voru fram af föngulegum yngismeyjum á blaöamannafundi er hald-
inn var i tilefni af útkomu nýju plötunnar. Visismynd Jens
Brimkló undir nólinni
„Viö stefnum aö þvi aö fara
hringferö um landiö nú I sumar
til aö fylgja plötunni eftir”,
sagöi Björgvin Halldórsson,
einn liösmanna hljómsveitar-
innar Brimkló I tilefni útkomu
annarrar breiöskifu hljómsveit-
arinnar „Undir nálinni”.
A plötunni eru 12 lög, þar af
helmingur eftir þá félaga sjálfa
og eru öll lögin með Islenskum
textum eftir þá Þorstein
Eggertsson, Jónas Friðrik, Jón
Hjartarson og Hannes Jón
Hannesson.
Brimkló var ein þekktasta
rokkhljómsveit landsins hér i
eina tið en hefur ekki starfað
opinberlega um nokkurra ára
skeiö. Þeir félagar hyggjast nú
endurreisa hljómsveitina,
a.m.k. um stundarsakir nú i
sumar, en hljómsveitina skipa
þeir Björgvin Halldórsson,
Sigurjón Sighvatsson, Ragnar
Sigurjónsson, Arnar Sigur-
björnsson og Hannes Jón Hann-
esson.
Utgefandi plötunnar er
verslunarfyrirtækið Faco og er
hér um að ræða frumraun fyrir-
tækisins á sviði hljómplötuút-
gáfu. Að sögn forráðamanna
fyrirtækisins hefur ekki verið
tekin ákvöröun um áframhald-
andi starfsemi af þessu tagi en
öllum leiöum haldið opnum I
þeim efnum. Sv.G.
Hjúkrunarfélag íslands:
Lokun sjúkradeilda
algjört neyðarúrrœði
Lokun sjúkradeilda er algjört
neyðarúrræði, en þó rétt aðgerð
miðað við núverandi ástand, að
þvi er segir i samþykkt frá
stjórn Hjúkrunarfélags íslands.
Félagið bendir á, að ástæður
fyrir þeim skorti á hjúkrunar-
fræðingum, sem lokun deilda á
sjúkrahúsunum sé sögð stafa
af, séu „m.a. mikið og vaxandi
vinnuálag, óhagkvæmur vinnu-
timi, skortur á barnagæslu,
kennaraskortur i hjúkrunar-
skólunum og svo það sem e.t.v.
vegur þyngst á metunum að
hjúkrunarstarfið er vanmetið til
launa miðað við starfssvið,
ábyrgð, menntun o.s.frv. Má i
þvi sambandi minna á að u.þ.b.
þriðjungur starfandi hjúkrunar-
fræðinga á Reykjavikursvæðinu
höfðu sagt lausum störfum sin-
um fyrri hluta þessa árs af
framangreindum orsökum.”
ESJ