Vísir - 13.06.1977, Blaðsíða 7

Vísir - 13.06.1977, Blaðsíða 7
7 VISIR Mánudagur 13. júni 1977 Ungverjinn, Robert Darvas, var mikill bridgemeistari og jafn- vel enn betri rithöfundur. Hér er skemmtilegt spil, sem hann bjó til. 4^ G-4-3-2 y 9-3-2 4, 9-3-2 4 D-8-5 410-9-8 • 4 7-6-5 VK-G-6 y 10-8-7-4 ♦ G-6-5-4 4 D-8-7 ♦ G-7-3 4 A-K-D 4 K-9-4 V A-D-5 ♦ A-K-10 4 A-10-6-2 Suður var sagnhafi i þremur gröndum og vestur spilaði út spaðatiu. Þrátt fyrir 26 punkta og 3 á móti, á suður aöeins sjö slagi, sá áttundi er spaðagosinn og sé hægt a fá slag á hann, hlýtur innkomu- spilið að vera sá niundi. En hvar er innkoman? Ekki á spaða, ekki á hjarta, ekki á tigul og varla á lauf. Ég segi varla, þvi þar fékk Darvas innkomuna. Sagnhafi tók fyrst þrjá hæstu i spaða og spilaði laufatiu. Vestur varð að setja gosann og austur drap drottningu blinds með kóngnum. Hann spilaði tigli til baka, sagnhafi drap með kóng og spilaði laufasexi. Vestur varð að láta sjöið og austur drap áttu blinds með niunni. Hann spilaði nú hjarta, en suður drap með ás, spilaöi laufatvisti og fékk slaginn á fimmuna i blindum. Nú tók hann spaðagosa og fékk siöan áttunda og niunda slaginn á lág- litaásana. Það er ekki hægt annað en að dást að sllkri spilamennsku. Hvitur leikur og vinnur. S ^ #• i± 1 S • #£> t :4JL & t&&• A B C D E F Hvitur: Tal Svartur: N.N. G H 1. Bb6! Dxb6 2. Dh4+ Hf6 3. Dxb4+ og mátar. Fiaérir Eigum f yrírligg jandi eftirtaldar fjaörir i Volvo og Scania Vöru- bifreiöar. Framf jaðrir í Scania L - 56/ L 76, LB 80/ LB 85, J-B 110, LBT 140, LS 56. Áfturfjaðrir i Scania L 56, L 80, LB 80, LB80, LB 110, LBS 140. Stuðfjaðrir í Scania L 56. Afturfjaðrir i Volvo FB 88, NB 88, G 89. Framfjaðrir í Volvo F 86, FB 86. Augablöð og krókblöð i Scania LB 110. Hjalti Stefánason Simi 84720. Elfsabet önnur drottning kemur til konunglegu kvikmynda- sýningarinnar I Empire leik- húsinu árið 1952. Myndin sem var sýnd hét Because You’re Mine og I aðalhlutverki var Mario Lanza. color og farið var aö setja stereohljóö inn á myndir. Holly- wood var að renna sitt frægöar- skeið á enda og kvikmynda- framleiöendur fóru að leita nýrra leiða. Margar kvikmyndir voru fram- leiddar árið sem Elfsabet sneri heim frá Afríku. Þar má meðal annars nefna Singing In The Rain, Viva Zapata, The Sound Barrier, The Quiet Man, The Snows of Kilimanjaro, Limelight Chaplins, Carrie með Laurence Olivier og Jennifer Jones, Deadline þar sem Humphrey Bogart lék blaöa- mann og töffara — auðvitað —, The Bad and The Beautiful með Kirk Doglas og Pat and Mike með Spencer Tracy og Katha- rine Hepburn, myndir sem nú eru taldar sfgildar. Konungurinn áhugasamur um kvikmyndir Þegar Georg sjötti konungur dó var verið að sýna i London The African Queen, A Streetcar Named Desire með Marlon Brando og A Place In The Sun með Montgomery Clift og Eliza- beth Taylor, Quo Vadis sem var sýnd I tveimur kvikmyndahús- Kvikmyndaheimurinn á fyrstu stjórnarárum Elísabetar drottningar Eifsabet önnur hefur nú verið drottning I tuttugu og fimm ár og rfkisafmæli hennar hefur verið talsvert til umræðu i blöð- um undanfarið. Við rákumstný- lega á frásögn i erlendu blaði um það hvað var aö gerast I kvikmyndaheiminum um það leyti sem hún kom heim til Englands frá Afriku 1952 til þess að taka við krúnunni eftir lát Georgs sjötta. Kvikmyndaiðnaðurinn átti þá I vök að verjast vegna tilkomu sjónvarpsins og fundið var upp á ýmsum nýjungum til þess að lokka fólk aftur í kvikmynda- húsin. Cinemascope og siðar Panavision tóku við af Techni- um I einu og The Card með Alec Guinnes. Lundúnarbúar hafa þvi áreiðanlega haft nóg að gera við að þræða kvikmyndahúsin á milli þess sem þeir syrgðu hinn látna konung. Georg sjötti kon- ungur hafði talsverðanáhuga á kvikmyndum og horfði yfirleitt á þær í einkakvikmyndasal I Buckinghamhöll. Siðasta mynd- in sem hann á að hafa séð áður en hann dó var The Day The Earth Stood Still með Michael Rennie f aðalhlutverki. Rétt eftir að Elisabet önnur hafði sest I hásætiö sló hún Carol Reed, hinn fræga breska kvik- myndaleikstjóra, til riddara. An American In Paris var útnefnd besta kvikmyndir, það ár og Humphrey Bogart, Vivien Leigh, Karl Malden og Kim Hunter fengu Óskarsverðlaun. Kvikmyndatökumenn I Holly- wood völdu tíu fegurstu konurn- ar I bransanum og þær voru Ava Gardner, Ann Blyth, Elizabeth Taylor, Arlene Dahl, Linda Darnell, Joan Crawford, Mona Freeman, Loretta Young, Marlene Dietrich, Rita Hay- worth og Deborah Kerr. James Dean enn alveg óþekktur Roy Rogers var ennþá kon- ungur kúrekanna árið 1952, en Shirley Temple var hins vegar horfin af sjónarsviöinu fyrir fullt og allt. James Dean var alveg óþekktur enn og þetta ár lék hann I Has Anybody seen my Gal? með Rock Hudson og Piper Laurie, en hlutverkið var svo litið að honum sást rétt bregða fyrir i mýflugumynd. Marilyn Monroe var farin aö vekja dá- litla eftirtekt, en þó leiö enn ár áður en hún var oröin mesta kyntákn sem nokkurntima hef- ur skotið upp kollinum i kvik- myndaheiminum. í október 1952 fór Elfsabet á sjöundu konunglegu kvik- myndasýninguna, en það var fyrsta kvikmyndasýningin sem hún sá f drottningartiö sinni. Myndin sem sýnd var hét Because You’re Mine og Mario Lanza var I aðalhlutverki. Arið 1952 var Marilyn Monroe ekki enn orðin það mikla kyn- tákn sem hún sfðar varö. Meðal þeirra kvikmyndastjarna sem sóttu þessa kvikmyndasýn- ingu voru Chaplin, Kirk Dougl- as, Gene Kelly, Rock Hudson, Yvonne de Carlo, Celia Johnson, Evelyn Keyes og James Hayter. —AHO Spencer Tracy og Katharine Hepburn f Pat and Mike VÖRUBIFREIÐASTJÓRAR BRIDGíSTONE VÖRUBÍLADEKKIN hafa lœkkaé í verði BRIDGESTONE undir bílnum BRIDGESTONE hjólbarðar fást um land allt Það er margsannað að BRIDGESTONE DEKKIN Laugavegi 178 — Simi 86700. hafa reynst jafnbest á íslenskum vegum Þessvegna er ávallt öryggi og þœgindi í akstri með

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.