Vísir - 13.06.1977, Blaðsíða 24
86611
bílakaupum
P. STEFÁNSSON HF.
SÍÐUMÚLA 33 SÍMI 83104 83105 (
m m
niNH sparar L i J W- - w THORNYCROFT bátavélar b— d
rannsóknir í Kópavogi
— svonefnt „Hafsteinshús" ó að vera 1200 fermetrar
Ahugamenn um sálarrann-
súknir eru nú I þann veginn að
ráöast i byggingu sálarrann-
sóknarmiöstöövar eöa ööru
nafni Hafsteinshúss, viö
Smiöjuveg i Kópavogi. Þegar er
byrjaö aö grafa fyrir húsinu, en
þaö á aö vera 1173 fermetrar aö
stærö.
Bæjarráö Kópavogs sam-
þykkti aö leyfa byggingu Haf-
steinshúss viö Smiöjuveg þann
18. janúar siöastliöinn. Þegar
fundargerö bæjarráðs um málið
kom til kasta bæjarstjórnar, var
borin fram tillaga um að ekki
yröi fallist á byggingu hússins á
lóðinni viö Smiðjuveg nema til
kæmi veruleg minnkun þess frá
þeim hugmyndum sem þá væru
uppi, en sú tillaga var felld.
Þann 10. febrúar var fjallað
um bygginguna i byggingar-
nefnd Kópavogsbæjar og var
hún samþykkt með fyrirvara
eldvarnareftirlitsins. Raf-
magnsveitunnar og heilbrigöis-
nefndar. Eigendur hússins
munu sleppa viö aö greiöa öll
gatnageröargjöld og er þaö, aö
sögn Björgvins Sæmundssonar
bæjarstjóra f Kópavogi, venja,
þegar f hlut eiga samtök sem
þessi.
Mjög fullkomin aöstaða
Hafsteinshúsið verður á einni
hæð, en undir hálfur kjallari
vegna þess að byggingin mun
standa i hæð, en undir veröur
hálfur kjallari vegna þess að
byggingin mun standa i hæð. í
kjallaranum verða meöal ann-
ars tveir salir, Haraldar Niels-
sonar saiur og Jónasar Þor-
bergssonar salur. Þá verður þar
einnig einhver rannsókHaraö-
staöa fyrir sálarrannsóknar-
menn.
Uppi verður svo að eitthvaö sé
nefnt stór samkomusalur, salur
Einars Kvaran og húsvarðari-
búð. Einnig verða þar herbergi
og fbúðir fyrir gesti sálarrann-
sóknarmanna, svo sem miðla,
sem koma þangaö utan af landi
eða frá útlöndum. Auk þess
verður i húsinu fundarsalur,
upptökuherbergi og loks veit-
ingasalur sem liklega verður að
einhverju leyti opinn almenn-
ingi.
— AHO
OLL OKUTÆKI
SMÁOG
STÓR
s P. STHFÁNSSON HF .
N) HVERFISGÖTU103 SÍMI 26911 (0,
Fimm konur
í hópi
ölvunor-
bílstjóra
Margir tóku áhættuna
um helgina og settust
undir stýri eftir að hafa
smakkað vin. Lögreglan
i Reykjavík tók 15 öku-
menn vegna meintrar
öivunar við akstur frá
föstudagskvöldi til
sunnudagskvölds.
ökumennirnir voru misjafn-
lega mikið ölvaðir, af sumum
fannst aöeins dauf vínlykt, en
aðrir áberandi drukknir. Af þess-
um 15 voru fimm konur.
Lögreglan f Kópavogi tók þrjá
ökumenn vegna njeintrar ölvunar
við akstur og Hafnarfjarðarlög-
reglan tvo. A Akureyri voru einn-
ig tveir menn teknir af sömu or-
sökum. —SG
SLASAÐ-
IST í
ÁFLOGUM
Ungur maður höfuð-
kúpubrotnaði i áflogum i
Kópavogi á laugardag-
inn. Hann var þegar
fluttur i sjúkrahús og
mun liðan hans vera góð
eftir atvikum.
Atburður þessi átti sér staö við
verslun,sem er viö Hjallabrekku.
Þrir piltar um tvftugt voru þar á
göngu er að bar ungan mann sem
býr þar skammt frá. Atöikhófust
af einhverjum orsökum milli éins
þremenninganna og piltsins. Hin-
ir tveir höfðust ekki að um sinn,
en blönduöu sér sfðan f slaginn í
þeim tilgangi aö stöðva átökin.
Pilturinn misskildi tilganginn
og hörðnuöu átökin.Fór svo, aö
hann reiddi stein f höfuö þess, er
hann haföi byrjað að kljást viö,
með þeim afleiðingum, að sá hné
niður með brotna höfuðkúpu.
Máliö er f rannsókn.
—SG
Landslið islendinga i knattspyrnu undir forystu Tony Knapps gerir það ekki endasleppt. Á laugardag bætti lið-
ið enn einni skrautf jöður í hatt sinn með því að sigranorður-ira á Laugardalsvellinum að viðstöddu miklu
fjölmenni. Sjá íþróttafréttir bls. 13 til 14.
Úrsfít handtökumálsins
ekki fyrr en í haust?
Handtökumafiö veröur ekki
afgreitt frá embætti rikissak-
sóknara á næstunni. i samtali
við Visi sagði saksóknari, að
fyrst yrði athugað, hvort það
tengdist öðrum málum þar sem
Haukur Guðmundsson kemur
við sögu.
Eins og Vlsir skýrði frá fyrir
nokkrum dögum, hefur Stein-
grimur Gautur Kristjánsson
lokið rannsókn sinni á hand-
tökumálinu og sent það rfkis-
saksóknara.
Þórður Björnsson rikissak-
sóknari sagöi i samtali viö Visi
að hann gerði ráð fyrir, aö
kannað yröi, hvort þaö tengdist
fleiri málum. Þau mál eru kæra
Arnar Clausen hæstaréttarlög-
manns á hendur Hauki og
Kristjáni Péturssyni vegna
meintrar ólöglegrar handtöku
tveggja varnarliðsmanna.
Rannsókn lauk fyrir skömmu i
þvi máli, og það er komið til
saksóknara. Siöan er beiðni
Hauks og Kristjáns um
opinbera rannsókn vegna skrifa
dagbláðsins Timans fyrir all-
nokkru þar sem þeir voru bornir
þungum sökum. Sú rannsókn fór
fram í Sakadómi Reykjavfkur
og niðurstaða hennar var send
saksóknara. Siðast er það svo
hið svokallaða tékkamál Hauks
Guðmundssonar, sem ekki hef-
ur veriö rannsakað.
Þykkar bækur.
Þegar siöast-nefnda máliö
hefur borist til saksóknara
verður tekin ákvörðun um,
hvort málin verða öll tekin i
einu eða hvert fyrir sig. Má þvi
alveg eins búast við að ákvörð-
un liggi ekki fyrir fyrr en með
haustinu. Þegar byrjaö var á
rannsókn handtökumálsins var
lögð mikil áhersla á að hraða
henni en siöar dró mjög úr hrað-
anum eftir því sem á leið.
Rikissaksóknari sagði
málskjöl i þessum málum vera
einar 500 blaðsiður, nánast
þykkar bækur og það tæki tima
að lesa þetta alit.
—SG
Prófkjör sjálfstceðis-
manna í Rangárþingi:
EGGERT HAUKDAL
HLUTSKARPASTUR
Eggert Haukdal, bóndi, varð
efstur i prófkjöri sjálfstæðis-
manna IRangárþingium heigina.
Hlaut hann 367 atkvæði. Annar
varð Jón Þorgilsson með 317 at-
kvæði, Sigurður Óskarsson þriðji
með 133atkvæði, og Hálfdán Guð-
mundsson varð f jórði með 130 at-
kvæði. Auðir seðlar og ógildir
voru 23.
A kjörskrá voru 1037 manns,
þ.e. flokksbundnir og yfirlýstir
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, og atkvæði greiddu 970. Er
það nálægt 93% þátttaka, en
kosningin er ekki bindandi, þar
sem enginn frambjóðanda hlaut
45% atkvæða eöa meira.
Enn er því ekki endanlega ljóst
hver verður arftaki Ingólfs Jóns-
sonar sem frambjóðandi sjálf-
stæöismanna úr Rangarþing við
næstu alþingiskosningar.