Vísir - 13.06.1977, Blaðsíða 11
VISIR Mánudagur 13. júni 1977
11
„Blóðrautt
sólarlag að
mörgu leyti
góð myníl"
— segir Lýður Hallbertsson ó
Djúpuvík í viðtali við Vísi
//Við d júpvíkingar tókum
okkur upp og fórum til að
horfa á sjónvarp hér i
hreppnum kvöldið sem
Blóðrautt sólarlag var á
dagskránni" sagði Lýður
Hallbertsson á Djúpuvík/
þegar Vísir talaði við hann
fyrir skömmu til að
grennslast örlitið fyrir um
Djúpuvík/ íbúana þar og
afstöðu þeirra til kvik-
myndatökunnar, sem unn-
ið var að þar s.l. sumar.
„Mér fannst myndin að mörgu
leyti góði’ sagði hann. „Samband
heimamanna og þeirra, sem
komu hingað til að vinna að þess-
ari mynd, var mjög ánægjulegt.
Aðkomumennirnir höfðu ibúð hér
á staðnum, en kvikmyndin var
tekin i gömlu sildarverksmiðj-
unni og bröggunum sem tilheyrðu
henni”.
Á Djúpuvik er enn búið i fimm
húsum og eru, þar um þaö bil
þrjátiu manns. Grásleppuveiðar
og landbúnaður er helsta atvinna
ibúanna og Lýöur gerir út tuttugu
tonna bát, ýmist til grásleppu-
veiða eða rækjuveiða. Að sögn
Lýðs er svo til engin fólksfjölgun
á Djúpuvik og núverandi ibúar
hafa flestir búið þar frá fæðingu.
Staðurinn er ekki eins einangrað-
ur og menn gætu haldið af kvik-
myndinni, þvi að þaðan liggur
vegur, og einnig er flugvöllur á
Gjögri. A sumrin er talsverður
straumur ferðamanna, en þeir
dveljast þó yfirleitt ekki nema
mjög skamman tima á Djúpuvik.
„Mikil reynsla að vinna við
þessi skilyrði"
„Dvölin á Djúpuvik og gerð
kvikmyndarinnar Blóðrautt sól-
arlag var liklega engu ómerki-
legri fyrir okkur sem unnum að
Áður en hópurinn, sem vann að gerð myndarinnar, hélt i bæinn aftur var
öllum djúpvikingum boðið i dálitla veislu. Þessi mynd var tekin við það
tækifæri. Lýður Hallbertsson er fjórði maður frá vinstri.
þessu en myndin sjálf” sagði
Egill Eðvarðsson þegar Visir
ræddi viðhann, en Egill var upp-
tökustjóri kvikmyndarinnar.
„Djúpvikingar reyndust okkur
mjög vel og við áttum ágæt sam-
skipti við þá. öll aðstaða á Djúpu-
vík var ólik þvi sem við áttum að
venjast og það var mikil reynsla
að vinna við þessi skilyrði. Þarna
var að sjálfsögðu heldur litið um
þægindin, en þó þurftum við ekki
að koma okkur fyrir i einu af
gömlu ónotuðu húsunum eins og
við höfðum búist við, þvi að Lýður
Hallbertsson og Karl bróðir hans
leigðu okkur ibúð á -meðan við
dvöldumst á staðnum. I för með
okkur var kona sem sá um hús-
hald og eldaði matinn ofan i okkur
og við lifðum á kóngafæði þessar
þrjár vikur á Djúpuvik.”
„Veðrið olli okkur miklum
erfiðleikum við töku kvikmynd-
arinnar” sagði Egill. „Það
breyttist ekki aðeins dag frá degi
heldur einnig frá einni klukku-
stund til annarrar. Við vöknuðum
kannski i sól og bliðu og ákváðum
að taka einhvern hluta af kvik-
myndinni, sem þurfti að taka i
góðu veðri, en svo þegar allt hafði
verið undirbúið og við rétt að
kyngja fyrsta bitanum af morg-
unmatnum var eins vist að veðrið
væri orðið kolvitlaust.”
Myndin á að gerast i algerlega
dauðu þorpi og að sögn Egils
lentu þeir oft i erfiðleikum með að
halda lifinu i Djúpuvik úti. „Þeg-
ar við til dæmis vorum að taka
senuna þar sem Róbert á að segja
við Helga, hvað það sé gott að
vera kominn i svona eyðiþorp þar
sem enginn sé, vissum við ekki
fyrr til en bill kom æðandi beint i
flasið á þeim og við urðum að
byrja aftur. Stundum voru djúp-
visku hænsnin og hundarnir dálit-
ið ódæl við okkur og vildu lata
mynda sig lika.”
„Ég vil ekkert segja um mynd-
ina sjálfa annað en það, að við
höfum góðan aðbúnað og nægan
tima til að gera hana og ég er
ánægður með að hafa fengið tæki-
færi til að vinna að þessu verk-
efni. Margir hafa gagnrýnt ár-
angurinn, aðrir lofað hann og
skoðanir þannig verið mjög skipt-
ar, en þetta var unnið af góðum
hug og fullri einlægni og ég held
ekki að neinn okkar sem að þessu
stóðum sjái ástæðu til að afsaka
sinn þátt i þessari kvikmynd.”
— AHO
œmni, öryggi og sparnaður
er i Sviþjóð) sem gilti þá um leið
sem skoðunarmerki.
Réttereinnig að leiðrétta þann
misskilning, að óbeinn kostnaður
sem svo er nefndur og er annar
rekstrarkostnaður en launakostn-
aður hjá bifreiðaeftirlitinu, sé
óháður umsvifum stofnunarinn-
ar. Að visu er það eðli ýmissa
kostnaðarliða, sem nefndir eru
fastir, að þeir breytast i þrepum,
t.d. kostnaður v/húsnæðis. I út-
reikningum eftirlitsins eru þessir
liðir reiknaðir sem breytilegur af
þeirri ástæðu að við minnkandi
umsvif (vegna niðurfellingar um-
skráninga) minnkar vinnuálag
eftirlitsins og lengri timi liður,
þar til f járfesta þarf i auknu hús-
næði. Hjá biíreiðaeftirlitinu eru
auk þess flestir þeir liðir, sem
flokkast undir óbeinan kostnað, i
beinu hlutfalli við umsvif, t.d.'
fatakostnaður, bifreiðakostnað-
ur, ritföng simakostnaður og
ferðakostnaður.
2.Hluti — „meintur sparnaður of-
áætlaður um 17 miljónir króna”.
Svar við þessari fullyrðingu er
að finna f upphafi þessarar grein-
ar undir „sparnaður”.
FIB kvartar undan að upplýs-
ingar hafi ekki legið á lausu hjá
bifreiðaeftirlitinu. Sannleikurinn
er sá að FIB var látið i té upplýs-
ingar um nefnt bréf til allsherjar-
nefndar Alþingis og hvar hægt
væri að fá af þviljósrit. Óskað var
eftir meiri gögnum og var þá
nefnd skýrsla frá Hannar s.f. lát-
in i té.
3. Hluti — „útreikningar um
sparnað eru byggðir á fölskum
forsendum”.
Hér eru útreikningar FIB”
byggðir á fölskum forsendum”.
Tekjur Bifreiðaeftirlits rikis-
sins af skráningum fara til lög-
reglustjóra i viðkomandi um-
dæmum og koma ekki fram sem
tekjur rikissjóðs frá bifreiðaeftir-
litinu af skráningargjöldum og er
þvi ekki grundvöllur að reikna
fjölda skráninga út frá þessum
tekjum.
Hvernig reynt er að rangfæra
tölur má þó glögglega sjá i grein
FIB þar sem tvitekin er leiðrétt-
ing áeftirfarandi dæmiúr skýrslu
Hannarr s.f. vegna nýbyggingar
bifreiðaeftirlitsins i Reykjavik.
Hannarr FIB
Seldir bilar
10.957 10.957
Umskráöir án sölu
1.672 1.672
Umskráningar og eigendaskipti
12.629 12.629
Umskráningaralls 7.275 7.275
Umskráning af umskr. og
eigendaskiptum
57,6% 66.4%
4. Hluti — „bifreiðaeftirlitið verð-
ur aldrei fært um að fræmkvæma
fullnægjandi skoðun bifreiða”.
Akveðiðhefurverið að gera sér-
staka athugun á skoðun ökutækja
með það I huga að aðrir en Bif-
reiðaeftirlit rikisins annist slika
skoðun. Tel ég þvi ekki rétt að
svara þessum hluta greinar FIB
fyrr en niöurstaða er fengin úr
þeirri athugun
Lokaorð.
Hægt væriað fara nákvæmar út
i leiðréttingar og skýringar á þvi
sem fram hefur komið i f jölmiðl-
um um þessi mál. Hættan er allt-
af sú, aö I umræðum sem þessum
týnist aðalatriðin i smáatriðunum
og þess vegna vil ég leggja á þaö
áherslu að halda umræðunum
málefnalegum.
Ég álit að með breyttu fyrir-
komulagi megi ná fram meiri
hagkvæmni i rekstri stofnunar-
innar, meira öryggi við eftirlit
ökutækja og sparnað fyrir bif-
reiðaeigendur. Hvort sparnaöur
er einhverri miljón meiri
eða minni er minna atriöi en það,
að hér er um aö ræöa árlegan
sparnað, en ekki I eitt skipti fyrir
öll.