Vísir - 29.06.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 29.06.1977, Blaðsíða 2
 Mi&vikudagur 29. júni 1977 VISIR yiSIR ?pyp SOLUKEPPNI BLAÐSOLUKRAKKA VISIS HEFJAST: ( í Reykjavik ) " 'Y Hvað finnst þér um unga fólkið í dag? GuOny Uuomundsdóttir. Það er latt i vinnu. Ég held þó að þaö sé að mestu leyti miðaldra fólkinu að kenna þvi að það stjórnar unga fólkinu ekki nógu vel. Annars er misjafn sauöur i mörgu fé hjá unglingunum eins og öðrum og ég held að þaö sé ekkert verra en hér áður fyrr. Rannveig Einarsdóttir. Mér finnst margt af þvi ágætt. Margt æskufólk er mjög fallegt og skemmtilegt. Þó finnst mér alltof mikill drykkjuskapur á unga fólk- inu og mikið meiri en þegar ég var ung. Þá drakk unga fólkið mjög litið og aldeilis ekki kven- menn. Bergljót Bjarnadóttir. Mér finnst það mjög misjafnt og flest af þvi ágætt. Þaö er afskaplega fallegt og vel af manni gert. Unga fólkiö nú til dags á svo óskapiega góða framtið og möguleika til alls, sem viö höfðum ekki. Mér finnst það ekki fara eins vel með þá og það gæti. Helgi Pálsson, fyrrverandi verk- stjóri: Þaö er nú ákaflega elsku- legt fólk. Mér finnst það þó ekki fara rétt með sinar gáfur og þekkingu. Unga fólkið notfærir sér ekki hæfileika sina sem skyldi. Óskar Arnason, fyrrverandi sjó- maöur: Unga fólkiö er alveg eins og þaö var þegár ég var ungur. Þetta hleypur um og skemmtir sér. Þaö held ég aö maður hafi verið i siglingum i gamla daga og haft það fjörugt. Unglingarnir hafa það nú samt miklubetraen viö höfðum. Þaö er liklega eim munurinn. Sölukeppni meöal blaösölu- krakka Visis hefst um næstu mánaöamót og stendur I tvo mánuöi. Að sögn Siguröar R. Péturssonar dreifingarstjóra VIsis veröa verðlaunin til sölu- hæstu krakkanna mjög rlfleg, eöa alls um þaö bil 160 þúsund króna virði. „Fyrstu verðlaun fyrir hæstu sölu i júli verða Sharp ferðaút- varpstæki með kasettu frá Karnabæ, en það er um það bil fjörutiu þúsund króna viröi” sagði Sigurður. „Þessi tæki eru framleidd hjá hinu geysistóra Sharp fyrirtæki, sem Karnabær hefur umboð fyrir á Islandi.” „önnur verðlaun veröa Sharp vasatölva, sem kostar i kringum fimmtán þúsund krónur, einnig frá Karnabæ. Tvær plötur verða veittar i þriðju verðlaun og enn er það Karnabær sem útvegar verö- launin. Þau börn sem lenda i fjórða og fimmta sæti i sölunni fá eina plötu frá Karnabæ hvort. I ágúst hefst svo hringurinn aftur og þá verða fimm sölu- hæstu börnunum veitt sams- konar verðlaun og I júli. Útburöarbörnin fá líka sinn skerf. „Þá veröur dregið vikulega þessa tvo mánuði um plötur úr Karnabæ handa þeim útburöar börnum á Reykjavikursvæ&inu, sem bera blaðið út óaöfinnan- lega og fá engar kvartanir” hélt Siguröur áfram. „Aður voru útburðarbörnum i Reykjavik veittar fimm þúsund krónur ef þau báru blaðið út án þess a& nokkur kvartaði, en þau verö- laun eru nú á ferð um landið og voru veitt á Akranesi i siöasta mánuði”. Nánar veröur greint frá sölu- keppninni, gang mála i henni og verðlaununum, siðar. —AHO. Páll Steinarsson sýnir okkur þarna I Karnaoæ þá hluti sem sigurvegarar I sölukeppni blaösölukrakka VIsis fá I verölaun. Fyrstu verölaunin, fjörutiu þúsund króna Sharp feröaútvarpstæki meö kasettu úr Karnabæ, eru fyrir miöri mynd, en auk þess veröa veitt 1 verölaun Sharp vasatölva og fjöldinn allur af hljómplötum. Ljósm. Loftur. FrostDÍnni inni eða svo Vísir hefur alltaf lagt mikla áherslu á að launa þeim börnum sem duglegust eru að selja blaðið# og er það gert með ýmsum hætti. Sigurður R. Pétursson dreifingarstjóri blaðsins tjáði okkur að í hverjum mánuði fengju þrjú sölu- hæstu blaðsölubörnin verðlaunapeninga til eignar. „Á hverjum degi er svo þeim sem ötulastir eru við söluna gefinn is að loknu erfiðu rölti og kalli um allan bæ" sagði Sigurður. „Börnin fá frostpinna fyrir að selja tuttugu blöð, fspinna fyrir að selja þrjátíu og toppa ef þau komast upp i f jörutíu blöðog þar yfir." ókeypis aðgöngumiðar að þeim landsleikjum sem leiknir verða hér á landi i knattspyrnu í sumar falla í skaut þeim tuttugu krökkum sem söluhæstir eru dag- inn fyrir landsleikina. Vísiskrakkarnir láta þó ekki við það sitja að horfa á landsliðsmennina sparka bolta. „Nú eru bla&sölukrakkarnir hjá VIsi meira aö segja búnir aö stofna knattspyrnuliö” segir Siguröur R. Pétursson' dreifingarstjóri blaösins. Visismynd: L.A. Knattspyrnulið, skipað sölustrákum Vísis. Nú er búið aö koma á fót knattspyrnuliöi, sem aöeins veröur skipaö sölustrákum VIsis. Stelpurnar hafa ekki enn sýnt knattspyrnunni mikinn áhuga, en ef nógu margar stelpur fást mælir ekkert gegn þvi aö þær sparki líka af lífi og sál. Þegar hefur veriö útvegaöur þjálfari og búningar handa strákunum og er ætlunin aö æft veröi einu sinni I viku. Æfi liöiö vel og dyggilega er • ekkert þvi til fyrirstööu aö þaö keppi seinna viö önnur liö og fari jafnvel út á land til aö keppa viö jafnaldra sína þar. Auk fótboltaæfinganna er svo bló i Laugarásbiói annan hvern laugardag fyrir sölu- og útburðarbörn. Um páskana fengu öll útburðarbörn og föst sölubörn send páskaegg frá Visi og I sumargjöf fengu þau risa- stóran penna. Ekki má heldur gleyma visis húfunum, pennunum, buddunum og visis- þrautunum. Þaö er augljóst af þessu aö visiskrakkarnir hljóta aö vera mjög dugleg aö selja og ekki er að efa aö þeir munu leggja sig alla fram um aö standa sig vel i sölukeppninni fyrirhuguöu sem greint er fra hér á siöunni.f —AHO.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.