Tíminn - 06.11.1968, Blaðsíða 14
■14.
TIMINN
MIÐYIKUDAGUR 6. nóvember 1968.
KOSNINGAR f USA
Framhald ai bls. 1
ville Nottíh varð að sjálfstæðu
sveitarfélagi að demókratar hljóta
atkvæði þar. Árið 1964 fékk Barry
'Goldwater öll 12 atkvæði íbú-
atrna, en við kosningamar nú hlaut
Wallace ekki neitt atkvæði.
Það hendir oft i bandarískum
kosningum að íbúar í smáum kjör
daemum saínist saman upp úr
miðnætti aðfaranótt kjördags og
reyni að vera fyrstir með kiosn-
in-gafúrslit. Dixville Notch hefur
borið sigur úr býtum í þessari
;keppni í síðustu tveim forseta-
kosningum. Allir fbúarnir í Dix-
ville Notch vinna við gúmmíverk-
1 smiðju og lítinn skíðastað.
En Humphrey hafði aðeins yfir
.höndina yfir Nixon í fimm mín-
'útur, því skömmu eftir að úrslit
in í Dixville Notch bárust, var til-
kynnt að í öðru byggðarlagi í
New Hampshire, Elsorth, hefði
Nixon hlotið öll 11 atkvæði ítoú-
anna. Þessi kosningasigur svipti
Humphrey forustunni og nú leiddi
Nixon í kosningunum með 15 atkv
gegn 12.
Tvísýnustu kosningar í 20 ár.
Sérfræðingar voru á einu máli
um að kosningarnar nú væru þær
tvtfsýnustu síðan 1948. Mest kom
á óvart hvað kjörsókn var gífur-
lega mikil, því að alveg fram á
síðustu viku kosningabaráttunnar
var ákaft fullyrt að kosningabar-
áttan v*ri leiðinleg, fólki stæði á
sama um úrslitin- og væri orðið
leitt á hinum gömlu flokkum og
gamalkunnu frambjóðendum. Það
er ekki langt síðan fréttaskýrend-
ur töldu Nixon öruggan um sigur
og að Humphry þyrfti að beina
baráttu sinni gegn Wallaoe til þess
að halda saman leifunum af Demó
krataflokknum. Strax í upphafi
kjördags var ljóst að Humphrey
og Nixon myndu bítast um sigur
en fylgið hrunið af Wallace.
Frambjóðendurnir á kjörstað.
Richard Nixon greiddi atkvæði
sitt í sínu nýja kjördæmi, New
York, utan kjörfundar. Á koss-
ingadaginn flaug hann þvert yfir
meginlandið frá Los Angeles til
New York, þar sem hann í annað
skipti á átta árum mun bíða úr-
skurðar þjóðarinnar.
Humphrey varaforseti var í
skínandi góðu skapi þegar hann
greiddi atkvæði sitt í Waverly í
Minnesota snemmá- á þriðjudags-
morgun að staðartíma.
George Wallace greiddi at-
kvæði sitt í Clayton Alabama en
þar er hans höfuðvígi. Það virtist
liggja vel á Wallace á kjörstaðn
um.
Johnson forseti, sem í fyrsta
skipti í 31 ár býður sig ekki fram
til neins embættis, greiddi at-
kvæði í Johnsons City Texas, og
hugðist hann fylgjast þar með kapp
hlaupinu milli varaforseta síns og
hins fyrrverandk' varaforseta repú
blikana.
t
Sjónvarpsdagskrár
sýndu mismun frambjóðenda.
Hinni eiginlegu kosningabaráttu
lauk seint á mánudagskvöld með
því að tveir höfuðframbjóðendurn
ir, Nixon og Humphrey, sendu út
hvor um sig tveggja tíma sjón-
varpsdagskrá, sem náði um öll
Bandaríkin. Humphrey og Nixon
keyptu sitt hvora sjónvarpsstöðina
upp og kepptu um hylli áhorfend
anna og atkvæði þeirra. Frambjóð
andi „Hins ameríska sjálfstæðis-
flokks“, George Wallace, var einn-
ig með sína sjónvarpsútsendingu
en hún var hvorki eins löng né
víðtæk eins og útsendingar hinna
frambjóðendanna tveggja.
Mismunurinn á tveggja tíma út-
sendingu Nixons og Humphreys
leiddi vel í ljós ólíkan baráttustí!
frambjóðendanna tveggja. Nixon
sat á stól mitt í upptökusalnum,
kona hans var meðal áhorfenda en
dætur hans tvær voru önnum kafn-
ar við að taka á móti símafyrir-
spurnum frá áhorfendum. Vara-
forsetaefni repúblikana Spiro T.
Agnew tók ekki þátt í útsending-
unni.
Humphrey hafði varaforseta-
efni sitt, Edward Muskie við hlið
sér og deildi sviðsljósinu með hon
um. Frú Humphrey og frú Muskie
svöruðu bæði pólitízkum og per-
sónulegum spunningum frá áhorf
endum.
Sjónvarpsáhorfendr sem hringdu
til Nixons töluðu ekki við hann
beint, heldur tóku hinar svoköll-
uðu Nixons-stúlkur við spurning-
unum en útsendingarstjóri fram-
bjóðandans las honum þær. Þetta
gaf náttúrulega hugmynd um að
spurningarnar væru fyrirfram á-
kveðnar og Nixon svaraði aðeins
þeim sem hann kærði sig um.
Þeir sem hringdu til Humphreys
fengu annaðhvort að tala við hann
eða Muskie. Auðvitað voru spui’n-
ingar Humphreys undirbúnar fyr-
irfram en sú staðreynd að sjón-
varpsáhorfendur gátu heyrt raddir
fyrirspyrjanda, gerði dagskrána
sannfærandi.
Stjðrnandi Humphrey-dagskrár-
innar var Paul Newman og meðal
margra þeirra sem spurðir voru í
henni má nefna Kirk Douglas,
Razor Johnson, Inger Stevens,
Danny Thomes, Frank Sinatra og
Burt Lancaster.
Allir frambjóðendurnir kynntu
fjölskyldur sínar, eins og þykir til
hlýða í amerískum stjórnmálum og
allir voru sigurvissir. Eftir að síð
ustu útsendingum iauk til fólks á
Vesturströndinni var ekkert annað
fyrir frambjóðendurna að gera en
að leggja örlög sín í hendur kjós-
enda, því þar með lauk kosninga-
baráttunni formlega.
NIXON
Framhald af bls. 1
an en umdeildan feril — út-
nefndi Eisenhower Nixon vara
forseta sinn.
Áður en Nixon gerðist sam
starfsmaður Eisenhowers, hafði
hann verið kosinn öldungadeild
arþingmaður, eða árið 1950, að
eins fjórum árum eftir að hann
lét fyrst að sér kveða á.vett
i vangi stjórnmálanna.
i Nixon var varaforseti Eisen
I howers tvö kjörtímabil í Hvíta
i húsinu, frá 1952 til 1960. Hann
: ávann sér vinsældir í þessu
i starfi, ferðaðist mikið og víða
um heim og hitti fjölda þjóð
i höfðingja og annarra ráða-
manna að máli.
Meðan Nixon gegndi embætti
varaforseta, var hann tvisvar
nærri því að taka við forseta
embættinu. F.vrst þegar Eisen
hower fékk alvarlegt slag og
varð óvinnufær um tíma á ár-
ÞAKKARÁVÖRP
öllum vinum og vandamönnum, sem fögnuðu með
mér sextugsafmæli mínu með heimsóknum, gjöfum og
kveðjum, færi ég hugheilar þakkir. v
Einar Gestsson, Hæli.
inu 1955, og svo tveim árum
seinna, þegar Eisenhower fékk
heilablóðfall.
Eftir ósigurinn í forsetakosn
ingunum 1960, bauð Nixon sig
fram til ríkisstjóra í Kaliforníu
en beið ósigur fyrir frambjóð
anda demókrata, Edmund (Pat)
Brown, ríkisstjóra. í hugum
margra Bandaríkjamanna stóð
Nixon eftir eins og sá „sem
alltaf tapar kosningum“ (loos-
er), og í forsetakosningunum
1968 lagði Nixon mikla áherzlu
á að sýna sig ekki sem slíkan
og eyða þessari hugmynd úr
hugum manna.
Nixon er góður ræðumaður
og hann er einnig þekktur fyrir
að hafa góða hæfileika við
stjórnarstörf. Hann er talinn
áhrifamikill og duglegur. Það
var álit margra fréttaskýrenda
1960, að Nixon hefði tatpað
kosningunum vegna sjónvarps
kappræðu við hinn unga öld
ungadeildarþingmann, John F.
Kennedy, en í þeim þótti Nixon
fara mjög halloka.
Eftir að Nixon kastaði sér
af fuilum krafli út í kosninga
baráttuna í febrúar s. 1. kom í
ljós, að hann gerði sér mjög
far um að breyta um stíl og
framkomu. Hann var öruggari
reyndi að hafa sein bezt sam-
skipti við fréttamenn, en á
það hafði mjög skort áður, og
mikið var talað um nýjan Nix
on. Nixon hefur þó komið sér
undan því að lenda í kappræð
um við mótframbjóðendur sína.
Strax eftir að frambjóð-
endur demókrata og republik
ana höfðu verið útnefndir, varð
ijóst af skoðanakönnunum, að
Nixon átli meira fylgi að fagna
með þjóðinni, enda þótt hann
hafi þótt óheppinn með val
varaforsetta. Kosningabarátta
hans hefur einkennzt af þessU.
Hann hefur forðazt að binda sig
með of ákveðnum loforðum
eða stefnuskrám, en treyst á
meirihlutann, og hefur lítið ot
að Agnew, varaforsetaefni
sínu, fram.
Eins og áður segir hefur Nix
on ferðazt hvað mest allra;
bandarískra stjórnmálamanna!
um heiminn og á ferðum hans]
um Evrópu, Asíu, Afríku ogj
Suður-Ameríku, hefur hin fal-j
lega kona hans, Patricia, fyrr-j
verandi knneslukona, fylgt honi
um. Þau hafa verið gift síðanj
1940 og eignast tvær dætur.
Fyrir utan ferðalög, hefurl
Nixon áhuga á að spila golf og'
lesa sagnfræði.
Nixon hefur aldrei verið i
sérlega fjársterkur miðað við j
marga aðra frambjóðendur til
forsetakjörs í Bandaríkjunum
um dagana, en honum hefur
gengið vel að afla í kosninga
sjóðinn að þessu sinni.
HUMPHREY
Framhald af bls. 1
seta sinn, og hefur hann gegnt
því embætti síðan.
Humphrey varð landsfrægur
í Bandaríkjunum'árið 1948, er
hann flutti áhrifamikla ræðu á
flokksþingi demókrata um
nauðsyn þess, að tekin yrði upp
ákveðin stefna í borgararéttinda
málum og jafnrétti komið á
milli allra kynþátta í landinu.
Leiödi ræða hans til, að flokk-
urinn klofnaði: svonefndir Dix
iekratar eða Suðurríkjamenn
sögðu sig úr flokknum.
Árið 1960 reyndi Humphrey
að fá útnefningu sem forseta
frambjóðandi demókrata, en
dró sig til baka eftir mikinn ó-
sigur í prófkjörinu í New
Hampshire. Sigurvegarinn þar
var John F. Kennedy.
Þegar L.vndon Johnson gaf
svo ekki kost á sér til áfram
haldandi forsetasetu fyrr á
þessu ári, kom loks tækifæri
fyrir Humphrey til þess að
hljóta hnossið. Hann sigraði á!
flokksþinginu í Chicago í ágúst
en flokkurinn var gjörklofinn
eftir þau miklu læti sem þar
urðu á flokksþinginu og utan
þess.
Framan af kosningabarátt-
unni virtist Humphrey enga
möguleika hafa á að ná kjöri,
en síðustu vikurnar og dagana
vann hann mjög á og sumar
skoðanakannanir sýndu að hann
hafði rétt fyrir kjördag aðeis
meira fylgi en Richard Nixon.
Iíumphrey hefur alla tíð bar
izt mjög fyrir borgarréttinda-
málum blökkumanna í Banda
ríkjunum, og mun hafa átt mjög
mikinn þátt í þeirn lögum, sem
Bandaríkjaþing hefur á síðustu
árum sett um þau efni. Hann
átti einnig hugmyndina að
ýmsum úrbótum í félagsmálum,
og einnig hugmyndina um frið
arsveitirnar, sem komið var á
í stjórnartíð John F. Kennedys.
Ilann hefur um langan tíma
verið helzli talsmaöur frjáls-
lyndra afla í Bandaríkjunum,
þótt þau telji reyndar að hann
hafi svikið málstað frjálslyndra
með áköfum stuðningi sínum
við stefnu Johnsons síðustu ár-
in. Þótt Ilumphreý hafi þannig
verið fremur vinstrisinnaður
um ævina, hefur hann hin síðari
ár unnið stuðning meðal fjár
máiamanna og forystumana stór
iðjufyrirtækja í Bandaríkjun-
um. Ilann nýtur einnig mikils
stuðnings forystumanna verka
lýðshreyfingarinnar.
Humphrey kvæntist árið 1936
Muriel Buck frá Suður-Dakóta,
og hefur hún alla tíð tekið mik
inn þátt í stjórnmálastarfi hans.
Þau eiga þrjá syni.^eina dóttur
og fjögur barnabörn.
Helzta tómstundagaman
Humphreys er að veiða á stöng
en hann hefur einnig gamaiý af
að hlusta á sígilda tónlist og
jazz.
út frá Eyjum í á annað ár. Er
báturinn byggður í Svíþjóð árið
1957. Eins og fvrr segir stundaði
báturinn síldveiðar og telur áhöfn-
in 10 menn. Eru þeir allir ungir
að árum. Þrír þeirra eru kvæntir.
Síðustu fréttir:
Björgunarsveitir Slysavernafé-
í Kangárvalla- og Vestur-Skafta-
fellssýslu höfðu um miðnættið lok
ið við að kanna strandlengjuna allt
vestatn frá Þjórsárósum og austur
að Skaftárós. Á þessu svæði var
géysilegur sjógangur, og var sums
staðar illt yfirferðar fyrir björgun
arsveitarmenn.
M.B. ÞRAINN
Framhaid af bls. 16.
ingarskyldu skipa átti Þráinn að
hafa samband við loftskeytastöð-
ina í Vestmannaeyjum milli kl.
13 og 15 í dag. En aldrei heyrðist
til bátsins. Var þá fljótt brugðið
við og voi-u fyrstu björgunarsveit-
ir Slysavarnarfélagsins í landi
lagðar af stað að ganga á fjörur
fyrir kl. 16. Lóðsinn lagði af stað
frá Vestmannaeyjum á svipuðum
tíma og skip og bátar fyrir Suður-
landi liófu leit. Varðskipið Óðinn
var fyrir austan land og var komið
á leitarsvæðið um kl. 21 í kvöld.
Veður var mjög slæmt í allan
dag og skyggni lélegt. Þegar leið
á kvöldið fór aðeins að rofa til.
ekki var viðlit að leita úr lofti
í dag, en finnist báturinn ekki í
nótt munu flugvélar hefja leit
strax með birtingu í fyrramálið.
í kvöld voru átta bátar frá Eyj
um komnir á leitarsvæðið og Gull
foss, sem er að koma að utan,
svipaðist um eftir týnda bátnum.
Þá voru tveir togarar byrjaðir að
leita í dag. Átta leitarskip röð-
uðu sér upp í dag út frá strönd-
inni og leituðu skipulega og voru
þrjár sjómílur milli skipanna.
B jörgu n ars veitir Sly sa varnarf é-
lagsins á Meðallandi, 'Álftaveri,
Vík, Eyjafjöllum og Hvolsvelli,
gengu á fjörur, og leituðu allt
frá Skaftárósi að Þjórsá.
Bátar hafa leitað allt austan frá
þeim slóðum sem síðast var vitað
um Þráinn og vestur fyrir Eyjar.
En vindur hefur verið austlægur
og ef báturinn er á reki getur
hann hafa hrakið Iangt í vestur
og eins er möguleiki að bátnum
hafi hlckkzt á og skipverjar kom-
izt i björgunarbáta, og geta þeir
rekið með allt að 7 mílna hraða
á klukkustund, svo að svæðið sem
leita þarf er mjög víðáttumikið.
Þótt Þráinn sé skráður á Nes-
kaupstað hefur hann verið gerður
4 LJÓÐSKÁLD
Framhald ut bls. 16.
in, svo að jafnvel hinar nánustu
tilfinningar komu til skila ótrufl-
aðar af málskrafi og sundurgerð.
Þessa sama eiginleika gætir ekki
síður í hinni nýju bók, en nú hef-
ur ljóðsviðið stæk'kað og iagt und
ir sig fjölbreyttari viðfangsefni
en áður. Bókin er 71 bls.
Réttu mér fána, eftir Birgi Sig-
, urðsson. Þetta er fyrsta Ijóðabók
höfundarins. Hann er um þrítugt
, og kennari að menntun, en hefur
; að auki lagt stund á tónlistarnám,
einkum hjá Engel Lund, og henni
tileinkar hann bókina. Þetta er
mjög geðfelldur höfundur, sem tek
ur viðfangsefni sín alvarlegum
tökum og leggur sýnilega rækt
bið vönduð vinnubrögð. Bókin er
62 bls.
Haustmál eftir Hallberg Hall-
mundsson. Þetta er einnig fyrsta
bók höfundarins og senniiega ber
hún einna sterkastan persónusvip
meðal þeirra skáida, sem hér
koma fram. Höfundurinn sem er
38 ára, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskóianum í Reykjavik og
BA-prófi í sögu og íslenzku frá
Háskóla ísiands. Seinna stundaði
hann háskólanóm á Spáni, en hef
ur frá 1960 verið búsettur í New
York og starfar þar hjá stóru
útgáfufyrirtæki að samningu al-
fræðiorðabó'ka. Hann hefur þýtt
ísienzk ijóð á ensku og gefið út
Anlhology of ScandinaVian Litera-
ture, úrval, sem nær til 45 höf-
unda. Kvæði hans bera með sér,
að hann er í senn heimsborgari
og traustur íslendingur, mótaður
gamalli menningu og bundinn
ströngum aga um málfar og stíl.
Bókin er 78 bls.
Mjallhvítarkistan eftir Jón úr
Vör. Þennan höfund er óþarfi að
kynna, svo þekktur sem hann er
meðal íslenzkra ljóðaunnenda.
Hann gaf út fyrstu - Ijóðabók sína
Ég ber að dyrum árið 1937, en
alls eni kvæðabækur hans orðnar
átta talsins og hafa þær með t/5
og tíma áunnið sér æ tryggari
lesendahóp. Mjallhvítarkistan er að,
meginhluta frá síðustu sex árum.
Hún er verk fullþroska manns og
kannski umfram aliar aðrar bæk-
ur höfundarins mótuð af sterkri
innri iífsreynslu. Bókin er 100 bls.
Allar eru þessar bækur prentað
ar í Odda h.f. og bundnar í Sveina
bókbandinu.
IÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
bjargaði tilraun landsliðsnefndar
úr því, sem komið var, en eins
og fyrr segir, vantaði nokkra þýð-
ingarmikla menn í liðið. Ingólfur
átti ágætan dag og skoraði 2
mörk. Gísli Blöndal — sem feng
ínn var frá Akureyri — skoraði
1 mark. Ísömuleiðis skoruðu Ás-
geir, Ólafur J. og Sigurbergur 1
mark hver. Þorsteinn Björnsson
í markinu varði vel. Og það gerði
reyndar einnig Hjalti Einarsson
í pressumarkinu.
Björn Kristjánsson og Sveinn
Kristjánsson dæmdu.