Vísir - 04.08.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 04.08.1977, Blaðsíða 3
VISIR Fimmtudagur 4. ágúst 1977 3 Kolmunninn er aöeins 150-160 grömm að þyngd og vegna smæöar hans þarf að nota aðrar aðferðir viö þuiikun hans en tiðkast hafa varöandi þorsk. Hér sést hvernig kolmunnaskrcið litur út eftir tilrauna- þurrkun hjá Kannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Áforma nýja tœkni við fiskþurrkun — með tilliti til aukinnar nýtingar smœrri fisktegunda en úður Þessi gripur er úr keramiki og á að nota hann við altarisgöngu. sambandsins til að hafa sýningar á verkum sinum, og sýndi hún i Stokkhólmi, Harnögand og Vasteras. Sýningunum var tekið mjög vel og Sigrún fékk pantanir á skreytingum, meðal annars frá bönkum og kirkjum. Sigrún sagði, að það væri henni mikið gleðiefni að tslendingar nytu kennslu þessa fólks, sem væri mjög hæft á sinu sviði. Sagð- ist hún vona, að framhald yrði á námskeiðum sem þessum á næstu árum. ,,Sviar hafa lagt mikla rækt við litafræði á siðastliðnum áratug- um, og eru án efa flestum öðrum lremri i þeirri grein” sagði Sig- rún. „Sennilega má rekja þennan áhuga aftur til ársins 1952, en þá kom út gagnmerkt rit eftir Tryggva Johansson, sem nefnist „Litir”. Það litakerfi, sem Tryggvi setur fram i þessari bók, byggist meðal annars á þvi að taka aðeins þá liti, sem heilbrigt auga skynjar, en sleppa þeim lit- um sem fundnir eru með mæli- tækjum, og er það öfugt við eldri kennslubækur. Á liðnum árum hafa fjölmörg námskeið verið haldin um alla Sviþjóð til að kenna litafræði Tryggva”. —AHO Áhugi er á því að finna arðbærar vinnsluaðferðir á kolmunna og öðrum van- nýttum fisktegundum sem nú fara einungis í bræðslu. Ein aðferðin við betri nýt- ingu þessara stofna er þurrkun, en vegna smæðar fisksins er það mjög kostn- aðarsamt með sömu að- ferðum og til dæmis eru notaðar við þorsk. Kolmunni er til dæmis aðeins 150 til 160 grömm að þyngd, á meöan þorskurinn skiptir nokkr- um kilóum. Til þess að minnka kostnaðinn við þurrkunina er leitast við að finna upp ráö til meiri vélvæðingar. Hefur i þessu sambandi verið gerður samanburður á þurrkun- artilraunum sem gerðar voru með hækkun lofthitastigs i Eng- landi, þurrkun loðnu i Þörunga- vinnslunni að Reykhólum og þurrkunartilraunum sem gerðar voru á loðnu, kolmunna og spærl- ingi i þurrkunarskáp Rannsókn- arstofu fiskiðnaðarins. Hafa þeir Kristinn Vilhelmsson og Trausti Eiriksson unnið skýrslu upp úr samanburði þess- um, auk þess sem þeir hafa gert arðsemisathugun á þurrkstöö sem gæti þurrkað 600 tonn af skreið á ári. Hafa þeir komist aö þeirri nið- urstöðu að framleiða mætti skreið á hagkvæman hátt i slikri stöö, ogyrði hluti fiskins frystur til þess að unnt væri aö vinna að þurrkun allt áriö en ekki eingöngu þegar nýr fiskur væri fyrirhendi. Þurrkararnir ættu að geta framleitt 20 tonn á dag, og yrði unnið i 250 daga væri unnið úr 5000 tonnum af hráefni á ári. Úr þvi kæmu 600 tonn af skreið, þar sem nýtingin er um 12%. Enn hafa ekki borist nein við- brögð frá opinberum aðilum vegna þessarar skýrslu þeirra samkvæmt upplýsingum Trausta. ^ Ef til vill er þess þó að vænta, þar sem tilraunaveiðar á kol- munna standa nú yfir og vegna slæms ástands þorskstofna verð- ur vafalitið lögð aukin áhersla á veiðar og nýtingu annarra fisk- tegunda. — AH EM i bridge í Danmörku: Islenska sveitin í ellefta sœti Flugvél Flugféiagsins Vængja er hún lenti i fyrsta sinn I Grundarfiröi. Visismynd: Bæring Cesilsson. Vœngir með daglegar ferðir ó Snœfellsnes Flugfélagiö Vængir hefur nú tekið upp flugferöir til Grundar- fjarðar á Snæfellsnesi. Var flogið þangað i fyrsta skipti á þriðju- daginn, og verða farnar þangað tvær ferðir i viku. Auk þess er flogiö á vegum Vængja til tveggja annarra staða á Snæfeilsnesi. Stykkishólms og Rifs, þannig að nú er flogið á hverjum degi frá Reykjavik til Snæfelisness. Flugvöliurinn á Rifi er notaður bæði af ibúum ólafs- vikur og Heilissands. — AH Vinnufriður ó farskipunum fram í aprílmónuð órið 1979 Samningar hafa tekist við undirmenn á farskipum og verður iaunahækkunin mest hjá matsveinum eða um 32%. Þern- ur á skipunum náðu samkomu- lagi við vinnuveite'ndur sina um rúmiega 28% launahækkun, há- setar fengu að meöaltali um 30% launahækkun og bátsmenn aukahækkun sem nam sex af hundraði. Allir samningarnirgilda frá 1. ágúst til 1. april 1979 eins og hjá yfirmönnum á farskipum. Samningagerðin fór friðsam- lega fram og er ekki hægt að segja að mikil harka hafi verið i deilunni, að þvi undanskildu að matsveinar hófu verkfall á mið- nætti aðfararnótt mánudags, en það stóö aðeins i um það bil niu klukkustundir, eöa þar til samningar voru undirritaðir. A tk v æða greiös 1 a um samningana hefst I dag, fimmtudag og stendur til 29. þessa mánaðar. tsland tapaði i gær fyrir Svi- þjóð með fimm stigum gegn 15 á Evrópumeistaramótinu i bridge sem fram fer i Ilelsingör i Dan- mörku. t sömu umferð kom það mest á óvart að italska sveitin skyldi tapa fyrir þeirri Isra- elsku. Aður hafði Island tapað fyrir Hollandi, 3:17, i fjórðu umferð, og unnið Belgiu 19:1 i fimmtu umferð. Islenska sveitin er nú i ellefta sæti i keppninni með 57 punkta. Röðin er annars þessi fyrir sjöundu umferð: 1. Sviþjóð, 108, 2. Israel 107, 3. Sviss 88,4. Danmörk 82, 5. Eng- land 82, 6. Italia 77, 7. Belgia 68, 8. Pólland 64, 9. Holland 62, 10. Noregur 58 og Island 11. með 57. Næst þar á eftir koma Júgó- slavia, Ungverjaland og Aust- urriki, en neöstir eru Tyrkir með 6 stig. —AH Skagfiröingabók, 7. árgangur, er komið út, en útgefandi er Söguféiag Skagfirðinga. Meðal efnis i ritinu er grein eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum um Nautabús- hjónin Jón Pétursson og Sól- veigu Eggertsdóttur, og syrpa úr visum Jóns, sem Hannes Pétursson valdi. Einar Bjarnason, prófessor, gerir grein fyrir Þorsteini prestlausa, sem var einn i and- stæðingahópi Jóns biskups Ara- sonar. Birt er ræða Brodda Jó- hannessonar, er flutt var á Hól- um þegar minnst var ellefu ald- Rita um Þorstein prest- lausa og Sigurð stromp ar mannvistar i landi. Hannes Pétursson dregur saman hnyttnar frásagnir er hann kallar ,,úr skúffuhorni”. Sverrir Páll Erlendsson, menntaskólakennari, ritar grein. Hjalti Pálsson frá Hofi ritar um Sigurð Jónsson stromp, og ögmundur Helgason ritar um Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Bókin, sem er prentuö i Odda, er til sölu á Sauðárkróki hjá Gunnari Helgasyni, en i Reykjavik hjá ögmundi Helga- syni og hjá Sögufélaginu. —ESJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.