Vísir - 04.08.1977, Page 5

Vísir - 04.08.1977, Page 5
VISIR Fimmtudagur 4. ágúst 1977 Skipafloti heims- ins alltof stór — og smíði umfram þörf er haldið ófram Það eru alltof mörg skip i heiminum og það vandamál mun fara versnandi ef ríkisstjórn- ir halda áfram að að- stoða skipasmiðastöðv- ar sinar, segir i skýrslu sérfræðinefndar Efna- hags- og framfarastofn- unarinnar, sem kom út i Paris i dag. 1 skýrslunni segir að framboð á skipum sé mun meira en e’ftir- spum og samt sé haldið áfram að smiða ný skip, sem auki bilið enn meira. Nokkur aukning varð á eftir- spurn eftir flutningaskipum á síð- asta ári. Aukningin varð fjögur prósent fyrir ,,þurran” farm og sextán fyrir oliu. Sfðarnefnda aukningin varð einkum vegna minnkandi oliuframleiðslu i Bandarikjunum, samfara vax- andi neyslu þar í landi. Útgerðarsérfræðingar stofnun arinnar segja að frá miðju ári 1975 til miðs árs 1976 hafi tank- skipaflotinn vaxið um 13,6 prósent, þrátt fyrir að mörgun skipum væri lagt og mörg n; afpöntuð. bað gerir 60-70 milljó) lestir framyfir þörf. Reiknað er með að floti miðl ungsstórra flutningaskipa stækk um tuttugu og fimm prósent ; næstu tveimur árum, en það e lika langt umfram þörfina. Kisaolluskipin eru orðin svo mörg að framboðið er um sjötlu milljón lestir fram yfir eftirspurn. TEINARNIR ÖFUGU MEGIN Vestur-þýska vísindaráðuneytið hefur greitt mestan hluta kostnað- arins við hönnun þessarar „loftlestar” sem verið er að prófa I tilrauna- stöð Siemens. „Teinarnir” eru i sjö metra hæð yfir jörðu. Hver vagn getur flutt fiinmtiu farþega og það er tölva sem stjórnar öllu saman. Einn kiló- meter af svona loftlinu kostar ekki nema tuttugu prósent af þvl sem það kostar að gera einn kilómeter fyrir neðanjarðarlest. Hœtta strax ef heyrist „bang" Bandarikjaþing hefur sam- þykkt lög sem gera að verkum að útl'Iutningur á úranium og hvers- konar öðru dúllerfi sem þarf til kjarnorkuframleiðslu stöðvast sjálfkrafa ef viðkomandi land sprengir kjarnorkusprengju. Jafnframt áskilja Bandarikin sér rétt til að hafa mjög strangt eftirlit með framleiðslunni hjá öllum þeim sem þau aðstoða við smiði kjarnorkuvera, i friðsam- legum tilgangi. Þetta er liður i tilraunum Cart- er stjórnarinnar til að hindra framleiðslu kjarnorkuvopna. Bandarikin veita nokkra aðstoð á þessu sviði og hafa átt i útistöðum við Vestur-Þjóðverja vegna að- stoðar þeirra við lönd i Suð- ur-Ameriku, sem bandarikja- stjórn treystir ekki um of. UMFERÐARHNÚTAR Óskaplegt umferðaröngþveiti myndaðist I miðri Paris þegar yfirvöld þar reyndu i fyrsta skipti á mánudaginn að hafa „Strik” i borginni,, þ.e. sér- staka göngugötu. Ætlunin var að leyfa parisar- búum og ferðamönnum að þramma áhyggjulausir i kring- um Sigurbogann og fimm kflómetra niðureftir Champs Elysees, að Pont Neuf. Tilraunin hófst á þriðjudaginn og gangandi vegfarendur urðu glaðir við. ökumenn urðu hins- vegar ókvæða við. Þeim var beint i þröngar hliðargötur út frá Champs Elysees og þar fór allt i hnút. Tilraunin á að standa fram i miðjan ágúst og vonast lögregla borgarinnar til að hafa þá greitt úr umferðarhnútun- um. Konungsríki í 100 ór? Karl Gustaf, Svíakon- ungur, er þeirrar skoðun- ar að Svíþjóð geti verið áfram konungsríki næstu hundrað árin. Thorbjörn Falldin, forsætisráð- herra, virðist sömu skoð- unar, því i haust ætlar hann að leggja fram frumvarp þess efnis að drottningar geti ríkt yfir Svíþjóð. t fyrsta viðtalinu sem konung- ur veitir, eftir að honum fæddist dóttir, sagði hann meðal annars: „Þaö er alveg raunhæft að imynda sér að Sviþjóð veröi konungsriki að minnsta kosti næstu hundrað árin. Auðvitaö getur ýmislegt gerst á hundrað árum, en ef þróunin hér i landi verður jafn róleg og núna, er konungsriki raunhæft.” Samkvæmt sænskum lögum getur konungsrikið aðeins gengið i erfðir til prinsa. En með tilkomu litlu prinsessunnar á að breyta þessu og veröur frumvarp þess efnis lagt fram i haust. Karl Gustaf, konungur Esso-nesti — Borgarnesi Auk alhliöa verslunar rekur Ferðamenn Kaupfélag Borgfirðinga Esso-nesti I Borgarnesi Heitir smáréttir, mjólk, brauð, álegg, gos- drykkir, sælgæti ó.fl.. Ennfremur hjólbarðaþjónusta og smur- stöð. Veitingahús að Vegamótum Snœfellsnesi Heimabakað brauð, kökur, gosdrykkir. sælgæti. Benzin, oliur og gasáfyllingar. Veiðileyfi i Hraunsfjarðarvatni, Selvalla- vatni og Baulárvallavatni Verslanir: Hellissandi, Olafsvik og Akranesi Kaupfélag Borgfirðinga

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.