Vísir - 04.08.1977, Blaðsíða 9
VISIR Fimmtudagur 4. ágúst 1977
9
BREIÐAR
BYGGÐIR
BORGAR-
FJARÐAR
Loks má svo minna á, a& tekiö
er til starfa elliheimili á Skagan-
um, og er ný hygging þess við
sjávarsiðuna á fallegum stað.
Bilaleiga, bifreiðavið-
gerðir.
A Akranesi starfar ein bila-
leiga, er það Bilaleigan Brautin
sem er starfrækt i sambandi við
samnefnt bifreiðaverkstæði.
Fleiri verkstæöi eru á Akra-
nesi, og einnig er þar að finna
hjólbarðaviðgeröastofu, þannig
að hættulaust ætti að vera þótt
svo óliklega skyldi vilja til að eitt-
hvað bilaði i faraskjótanum!
Eitthvað að gera, eitthvað
að sjá?
Já, já, fullt!
Bió, böll, barir, minjasafn i
Görðum, sundlaug, spennandi
knattspyrnuleikir, og svo iðandi
mannlif hvert sem litiö er!
Reynið til dæmis að ganga á
Akrafjall (Vegurinn er ófær), þar
fáið þið stórkostlegt útsyni yfir
allt Suðvestur- og Vesturland.
Borgarnes.
Borgarnes er kauptún i Mýrar-
sýslu, og eins konar miðstöð hér-
aðsins, til dæmis er þar aðsetur
sýslumannsins, þar eru helstu
verslanir og aðrar þjónustustofn-
anir Mýramanna, þar er sjúkra-
hús svo að eitthvað sé nefnt.
Borgarnes heitir eftir sam-
nefndu nesi sem kauptúnið
stendur á, og er Borgarnafnið
komið frá Borg á Mýrum, land-
námsjörð SkallaerimsKveldúlfs-
sonar og bújörð Egils og afkom-
enda hans.
Borgnesingar hafa aðalatvinnu
af vinnslu landbúnaðarafurða,
örum iðnaði og þjónustustarfsemi
ýmiss konar.
Ferðir til Borgarness
Gott vegasamband er við
Borgarnes, og mun þó batna enn
á næstu árum þegar byggingu
hinnar umdeildu brúar yfir
Borgarfjörð lýkur.
Auðvelt er þvl fyrir fólk að
komast þangað á einkabilum
sinum, og einnig eru þangaö tiöar
áætlunarbilaferðir. Er farið frá
Umferðamiðstöðinni i Reykjavik
einu sinni til tvisvar á dag. Er það
Sæmundur i Borgarnesi sem
annast þær feröir, auk þess sem
áætlunarbilar á leið til og frá
Snæfellsnesi hafa þar viðkomu.
Hótel, matsölustaðir
I Borgarnesi er eitt hótel, Hótel
Borgarnes. Þar eru nitján her-
á faraidsfœti l Umsjón: Anders Hansen J Vísir kynnir 1 J óningarstaði 1 [ ferðamanna J
Akranes og Borgarnes
bergi, misstór, og rými fyrir
nokkra tugi gesta.
A hótelinu er einnig matsala,
grillsalur, þar sem auk venju-
legra grill-rétta eru framreiddir
réttir dagsins á venjulegum mat-
malstimum kvölds og i hádegi.
Aðrir matsölustaðir eru ekki í
Borgarnesi, nema sjoppur meö
sölu á pylsum og samlokum eins
og viðast hvar annars staðar á
landinu.
Þjónustustofnanir
Nægar verslanir eru i Borgar-
nesi, bæði matvöru- og vefnaðar-
vöruverslanir, og flest þar á milli.
Þá eru þar véla- og bifreiða-
verkstæði, og einnig hjólbarða-
viðgeröir.
1 Borgarnesi er að finna apótek,
og þar er lika læknissetur.
Það ætti þvi ekki að þurfa að
skapa neinn óyfirstiganlegan
vanda þótt eitthvað bjátaði á
smávægilegt hjá mönnum eða
faratækjum.
Skemmtanalif
Skemmtanalifið i Borgarnesi er
varla með þvi fjölbreytilegra sem
þekkist á landinu, en ýmislegt má
þó sér til gamans gera þar ekki
siður en annars staðar.
Félagsheimili eru viöa um
Borgarfjörð og nærsveitir, þar
sem dansinn er stiginn flestar
helgar.
Hvað er að sjá og gera?
Sögustaðir eru sem fyrr sögir
margir á þessum slóðum, og
nægir i þvi sambandi aðminna á
Borg á Mýrum, Reykholt og
fleiri.
Þarna eru margar ár, svo sem
Langá, Hítará, Norðurá og Hvita.
Fagrir staðir eins og Norðurár-
dalurinn og Húsafell, sumarhótel
i fögru umhverfi eins og til dæmis
Hreðavatnsskáli og Bifröst.
Það er sama hvert litið er, all-
staðar er nóg að sjá, og i Borgar-
firði þarf engum aö leiðast.
—AH
■ ■■ vjtfr-v,.-
Þessi mynd er tekin af framkvæmdum viö Borgarfjarðarbruna,
Borgarnes i baksýn. Brúin mun stytta akveginn milli Borgar-
ness og Reykjavíkur verulega.
Akraborgin, helsta samgöngutækið milli Reykjavíkur og Akra-
ness. Eins og sést á myndinni er hún byggð sem bilaferja, og aka
bílar ýmist inn að framan eða aftan, og sfðan út 'hinum rnegin.
Þegar þér komið til Akraness er
Hótel Akranes, Bárugötu, sími 93-2020,
Sjólfkjörinn Alls konar veitingar
óningarstaður allan daginn.
Gisting Veitingabúð
Heitir og kaldir réttir. opin allan daginn
Kaffiterían opin frá kl. 8—22.
VERIÐ VELKOMIN. Hótel Akranes
SELJUM PEYSUR,
JAKKA OG HYRNUR
FRAMLEITT ÚR
ÍSLENZKRI ULL.
ENNFREMUR SELJUM VIÐ
ULLARDLJKA OG AFKLIPPUR
Stillholti 18 Akranesi
simi 93-2080