Vísir - 04.08.1977, Page 13
13
' .
Fimmtudagur 4. ágúst 1977 VISIR
VISIR Fimmtudagur 4. ágést 1977
Þarna er Ingi Björn aö komast i eftirlætisstööu sina, tilbúinn aö láta skotiö riöa af á mark andstæöings-
ins. i þetta skipti fór þó boitinn framhjá, og sennilega hefur Magnús Steinþórsson, sein er aö berjast viö
Inga Björn á myndinni, andaö léttar. Ljósm.Einar.
KR-ingar komnir
með Ameríkana!
— Þó hafa tvö lið í 1. deildinni í körfubolta ráðið til
sín bandarískan leikmann - ÍS og KR
Þaö er nú ékveðiö aö
tveir bandaríkjamenn leiki
hér á landi næsta vetur í
körf uboltanum. Liö IS
gekk fyrir nokkru frá
samningum við Dirk Dun-
bar/ afar skemmtilegan
bakvörð sem mun jafn-
f ramt því að leika með lið-
inu stunda nám við Há-
skólann.
Nú um helgina var svo endan-
lega gengið frá þvi að Andrew
Piazza, Bandarikjamaður af
itölsku ættum leiki með KR næsta
vetur, auk þesssem hann mun
þjálfa alla flokka hjá félaginu.
Mennea tapaði
- og sigraði!
Bandariski spretthlaupar-
inn Steve Kiddock sigraöi i 100
metra hlaupinu á frjáls-
iþróttamóti sem fram fór i
Viareggio á italiu i gærkvöldi
— hljóp á 10,23 sekúndum og
sigraði italann Pietro Mennea
sem fyrr i vikunni sigraði
Hiddick á inóti i Siena. Menn-
ea liljóp á 10.30 sekúndum.
En Mcnnea lét ósigurinn
ekki á sig fá og sigraði nokkuö
örugglega i 200 metra
hlaupinu sem hann hljóp á
20.20 sekúndum. Bandaríkja-
mennirnir Clancy Edwards og
Steve Williams urðu i öðru og
þriðja sæti, Edwards hljóp á
20.5:isekúndum, cn Williams á
20.54 sekúndum.
A móti sem haldiö var i
Lausanne i Sviss í gærkvöldi
stökk Earl Bell USA 5.40
metra i stangarstökki, Nic
Itose frá Bretlandi hljóp 3000
melrana á 7:44.33 sekúndum,
Samson Kimombwa frá
Kenya liljóp 10.000 m á
27:59.0)! minútum, John
Walker sigráði i 1500 metrun-
um á 3:34.31 minútu og i há-
stökki sigráði Dwight Stones
— stökk 2.2« metra. —BB
Piazza þessi er mjög skemmti-
legur körfuknattleiksmaður,
stórhættuleg skytta, mikill „mat-
ari” fyrir aðra leikmenn og frá-
bær varnarleikmaður.
Hann hefur talsvert fengist við
þjálfun, og hefur góð meðmæli
sem slikur. Hann hefur talsverða
menntun sem þjálfari, eða tals-
vert meiri en islenskir iþrótta-
kennarar, auk þess sem hann hef-
ur mikla reynslu sem leikmaður
þótt hann sé ekki nema 23 ára að
aldri.
Piazza er um 1.95 metrar á hæð,
og leikur fyrst og fremst i stöðu
bakvarðar, en leikur einnig oft i
stöðu framherja. Hann hefur
leikið með bandarisku háskólaliði
i Michigan og getið sér þar góðan
orðstir, og er „skoðunarmaður”
frá KR fór til Bandarikjanna á
dögunum til að lita þar á 60 leik-
menn sem áhuga höfðu á að fara
til Evrópu og leika þar, setti
Piazza i efsta sæti. Ekki bara
vegna þess að þar er góður leik-
maður, heldur og vegna þess aö
þar fær liðið góðan þjálfara fyrir
alla flokka.
Það er vitað að fleiri félög eru
að hugsa sér til hreyfings i þess-
um efnum, t.d. Armann og Valur.
Verið getur einnig að önnur félög
séu i þessum hugleiðingum þótt
okkur hafi ekki borist af þvi
spurnir, enda verður mikil harka
i 1. deildinni næsta vetur, liðunum
fækkað úr 8 i 5.
gk—•
Hart skal mæta höröu! Hér berjast þeir um boltann Magnús Steinþórsson (nn2), Guömundur Kjartansson og Magnús Bergs. Sigurjón Rand-
versson fylgist meö af áhuga.
Ljósmynd: Einar.
Valsmenn þokuðu sér
feti nœr titlinum!
— Þeir unnu Breiðablik 3:0 í gœrkvöldi og hafa nú tvö stig í forskot
á nœsta lið í 1. deildinni
Valsmenn tóku forystuna i 1.
deild i gærkvöldi þegar þeir unnu
Breiðablik 3:0 á Laugardalsveili i
afspyrnuslökum og leiöiniegum
leik, einum þeim leiöinlegasta
sem fram hefur farið um iangan
tima. Valsmenn voru reyndar
sterkari aðilinn i leiknum og sigur
þeirra veröskuldaöur, en 3:1 eöa
2:0 heföi gefið betri mynd af þvi
sem fram fór.
Talsvert margir lögðu leið sina
á völlinn i gærkvöldi til að sjá
skemmtilegan leik, en fyrri leikur
liðanna var mjög skemmtilegur
og þá vann Breiðablik 4:3. Þessir
áhorfendur urðu fyrir vonbrigð-
um, og það má taka undir með
einum valsáhangendanum sem
tautaði fyrir munni sér um leið og
hann yfirgaf stúkuna: „Þeir unnu
3:0 en hafa ekki leikið verr i
sumar”.
En hvernig voru þá Blikarnir i
gær? Þvi er fljótsvarað. Þeir voru
eins og „dúkkur” um allan völl,
náðu að visu upp sinu netta spili
úti á vellinum en þegar upp að
markinu kom virtust þeir ávallt i
vandræðum með hvað gera
skyldi. Þetta á sér ósköp eðlilegar
skýringar. Allir framlinumenn
liðsins léku ákaflega slakan leik i
gærkvöldi og reyndar stóð enginn
upp úr meðalmennskunni nema
e.t.v. Einar Þórhallsson i öftustu
vörninni.
Ingi Björn færði Val forustuna á
18. minútu leiksins i gærkvöldi
með ákaflega vafasömu marki.
Hann stjakaði illilega við einum
varnarmanni Breiðabliks og náöi
siðan af honum boltanum á Vita-
teigslinu. Þar var Ómar
Guðmundsson markvörður kom-
inn út, og eftir að hafa komið
honúm úr jafnvægi,, skoraði Ingi i
autt markið. Gott framtak hjá
Inga, en dómarinn illa á verði
samt sem áður.
Fjórum mínútum siðar skoruðu
Valsmenn aftur, nú Albert Guð-
mundsson eftir mjög skemmti-
lega sóknarlotu Vals. Boltinn
gekk frá manni til manns upp
undir vitateig, þar sem Atii Eð-
valdsson renndi boltanum þvert
fyrir markið. Ingi Björn og Jón
Einarsson létu boltann báðir fara
framhjá sér og hann barst til Al-
berts sem var á auðum sjó og
hann skoraði með þrumuskoti.
Þriðja markið var svo skorað rétt
fyrir leikslok. Þá gaf Jón Einars-
Guðmund Þorbjörnsson sem tók
boltann með hælnum og gaf á
Inga Björn sem var einn fyrir
opnu marki, og hann skoraði af
öryggi.
Blikarnir áttu þó sín tækifæri i
leiknum, flest eftir hrikaleg
varnarmistök hjá Val Sigurjón
Randversson átti skot rétt fram-
hjá markinu úr góðu færi, og i
annað skiptið stóð hann skýndi-
lega einn og óvaldaður á mark-
teig, en Sigurður Dagsson náði þá
að reka stórutána i boltann þegar
hann var búinn að skutla sér i öf-
ugt horn. Og einnig má nefna skot
Jóns Orra i þverslána eftir auka-
spyrnu i fyrri hálfleiknum.
En Valsmönnum nægði einn af
sinum slökustu dögum til að
sigra, og það virðist sem einhver
meistaraheppni fylgi Val þessa
dagana. Mér sýnist að það fari
ekki á milli mála hverjir sigra i 1.
deildinni, en þó má ekki mikið út
af bera hjá Val. Ef þeir eiga
svona slakan leik á móti sterkara
liði, þá missa þeir forskot sitt i
deildinni.
Besti maður Vals i leiknum var
Dýri Guðmundsson. Dómari var
Ragnar Magnússon og dæmdi
sæmilega, en ekki sýndist mér
linuverðir hans væri ávallt með á
nótunum.
gfe- '
Keegan var
sínu gamla
liði erfiður
Enski knattspyrnumaðurinn
Kevin Keegan sem nú ieikur meö
vestur-þýska knattspyrnufélag-
inu SV Hamburg leiddi sitt nýja
félag tilsigurs gegn sinum gömlu
félögum i vináttuleik sem fram
fór i Hamburg i gærkvöldi aö við-
stöddum 55 þúsund áhorfendum.
Leiknum lauk með sigri Ham-
burg 3:2 eftir aö staöan i hálfJeik
hafði veriö 1:0.
Keegan, sem kostaði Hamburg
500 þúsund sterlingspund, skoraði
fyrir sitt nýja félag þegar á 19.
minútu leiksins og i upphafi siðari
hálfleiks bætti Magath öðru
marki við eftir að hafa fengið
góða sendingu frá Keegan.
Leikmenn Liverpool voru ekki
á því að gefast upp þó að á
móti blési og þeim tókst að jafna
metin á næstu sex minútum.
Fyrst skoraði David Johnson og
siðan David Fairelough. En
þegar^u minútur voru til leiks-
loka tóKst Ferdinand Keller að
skora sigurmark Hamburg.
—BB
Macdonald
ófram hjá
Arsenal!
Markakóngurinn mikli í ensku
knattspyrnunni, Malcoim Mac-
donald sem leikur með Arsenal,
hefur nú verið tekinn af sölulista
hjá félaginu og allt útlit virðist
fyrir aö hann leiki áfram með Ar-
senai.
Macdonald var sendur heim frá
Ástraliu ásamt Alan Hudson þar
sem þeir voru á keppnisferðalagi
með Arsenal fyrir agabrot og
C
STAÐAN
—“v---
Staöan i 1. deild tslandsmótsins
i knattspyrnu er nú þessi:
Valur— Breiðablik
Vaiur
Akranes
Vikingur
tBK
tBV
Breiðabl.
Fram
FH
KR
Þór
voru siðan báðir settir á sölulista
hjá félaginu. Macdonald sagðist
vera saklaus af öllu i viðtali við
enska blaðið Sunday Mirror — og
þetta mál væri allt á misskilningi
byggt.
Eftir langan fund með for-
manni Arsenal, Denis Hill-Wood
og framkvæmdastjóranum Terry
Neil, var ákveðið að Macdonald
yrði áfram hjá félaginu.
„Ég er ánægður með að Mac-
donald verður áfram hjá Arse-
nal”,sagði Neil — „og hann hefur
verið tekinn af sölulistanum. Allt
er óráðið um framtið Hudson hjá
félaginu, en hann kostaði 180 þús-
und pund þegar hann var keyptur
frá Stoke.
— BB
FH - Fram og
Valur - ÍBV
t gærkvöldi var dregiö um þaö hvaöa lið
leika saman i undanúrsiitum Bikarkeppni
Knattspyrnusambands tslands. Beöiö haföi
veriö meö mikilli eftirvæntingu eftir þessari
athöfn, en svo fór að það verða FH og Fram
sem mætast i Hafnarfirði og Valur og Vest-
mannaeyjar á Laugardalsveilinum.
Sýndist sem allir yndu vel þessum drætti,
Framarar, FH-ingar og Valsmenn aö
minnsta kosti, en sennilega eru Eyjamenn
ekki jafn ánægöir.
Leikirnir i undanúrslitunum eiga aö fara
fram i næstu viku, en viö höfum ekki fengið
nákvæma dagsetningu.
KSÍ fœr gesti
Næstkomandi laugardag 6. ágúst, eru
væntanlegir til landsins góðir gestir. Þaö eru
þeir dr. Artemio Franchi, forseti Knatt-
spyrnusambands Evrópu (UEFA) og hr.
Hans Bangerter, aðalframkvæmdastjóri
UEFA. Koma þeir hingað i boði stjórnar
Knattspyrnusambands Islands og er þaö i til-
efni af afmæli KSÍ, en það er 30 ára á þessu
ári.
Me"ðan þeir dveljast hér, munu þeir kynna
sér starfsemi KSÍ og alla aðstööu til fram-
kvæmdar stórleikja á vegum þess. Þeir
munu halda fund meö forystumönnum knatt-
spyrnumáia hér, gera þeim grein fyrir
ýmsum starfsþáttum UEFA og stöðu smá-
þjóða innan þcss sambands. Þá munu þeir og
svara fyrirspurnum. Til þessa fundar hefur
verið boðið fréttamönnum blaða, útvarps og
sjónvarps.
//
i
I
Strompur
Höggi"1
Allir kylfingar eiga se'r draum, nefnilega
þann að fara holu i höggi einhvern tima. Þeir
sem ekki ná þeim mikla áfanga skemmta sér
hins vegar viö það að segja sögur frá þvi
þegar þeir fengu „draumahöggið góöa”,
settu niður lengst utan af braut o.s.frv.
En skyldi einhver hafa farið „stromp i
höggi”? *
Sennilega eru þeir ekki margir, en þó
gerðist sá atburður á Nesvellinum í gær. Þá
var sá er þetta ritar að sveifla kylfunni þar á
2. braut, og tókst ekki betur til en svo að
„uppáskotiö” fór upp á golfskálann og þaðan
skaust boltinn upp undir hlif sem er yfir
strompinum og síðan niður i strompinn!
Undirritaöur labbaði sig siöan inn í skál-
ann.og gekk beintaö boltanum þar sem hann
lá i eldstæðinu!!
Já, það gerist ýmislegt skemintilegt i golf-
inu. gk.—
Næsti leikur i 1. deild er i kvöld.
Þá leika KR og ÍBV á Laugar-
dalsvelli og hefst leikurinn kl. 19.
LIIHI) MITT
Atkvœðaseðill í kosningu VÍ5I5 um vinsœlasta
knattspyrnuliðið sumarið '77
LIÐIÐ MITT ER:
NAFN
HEIMILI
BYGGÐARLAG
SÝSLA
StMI
STB.'IX IPOST
Sendu seðilinn til VíSIS Síðumúla 14, Reykjavík
strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr
nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni
og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna
úttekt á sportvörum hjá SPORTVALI, Hlemm-
torgi, Reykjavík.
Aukavinningurinn er dreginn er út i lok kosning-
arinnar úr atkvæðaseðlum þéirra, sem greiddu
vinsælasta liðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna
úttekt á sportvörum i Sportvali, Hlemmtorgi,
Reykjavflí.
VINNINGAR HALFSMANAÐARLEGA
Ermasundiö hefur freistaö margra Igegnumárin og menn eru alltaf ööru hverju aö
setja ný heimsmet i þessu sögufræga sundi. A meöfyigjandi mynd er eitt slikt I uppsigl-
ingu, hún er af Bretanum David Morgan þar sem hann er aö leggja af staö frá Dover I
Englandi til Frakklands. Morgan þessi er þrettán ára og niu mánaða og hann synti til
Frakklands á 11 klukkustundum sléttum og er sá yngsti I heiminum sem þaö hefur gert.
Fyrra metið átti stúlka frá Egyptalandi — Abla Adel Khairi sem synti á 12 timumog 30
minútum þá 13 ára og 10 mánaba.