Tíminn - 19.11.1968, Qupperneq 5
Hús í smíðum, — verið er að steypa upp þriðju hæðina.
Erfíðleíkar einkaframtaks-
ins í byggingariðnaðinum
Hugtakið byggingariðnað
ur getur verið nokkuð víðtækt,
en í því yfirliti sem hér fer
á eftir verður yfirleitt aðeins
gerð grein fyrir þeim þætti
þess iðnaðar sem felur í sér
íbúðariiúsabyggingar. En þær
einar eru auðvitað mjög um-
fangsmiklar.
Það sýnir sú staðreynd, að
fjármunamyndun í íbúðarhúsa-
byggingum mun hafa verið
um 1900 milljónir króna á síð-
asta ári á verðlagi þess árs.
Þess má geta, að það ár mun
fjármunamyndun í byggingum
og mannvirkjum hins opinbera
hafa numið 2490 milljónum
króna, og gefur það nokkra
hugmynd um stærðina. Ann-
ars er talið, að árið 1966 hafi
verið unnin um 6500 vinnuár
í byggingariðnaðinum hér á
landi.
Þróun húsgerðar í íslandi.
Þar sem við fslendingar
byggjum kalt land, þar sem
von er á öllum veðrum, er eðli
legt að mikil áherzla sé lögð
á gæði þess húsnæðis er við
höfumst við í. Má segja, að
velferð og vellíðan lands
manna sé að mjög miklu leyti
undir því komin, að þeir búi
í góðum, hlýjum og vist-
legum húsakynnum.
En ,hin almenna fátækt fs-
lendinga og skortur á góðu
innlendu byggingarefni var
þess valdandi, að húsagerð hef
ur hér á landi verið á mjög
frumstæðu stigi til skamms
tíma.
Það mun hafa verið allt
'fram á síðari hluta síðustu ald
ar, að íbúðarhús voru hér á
landi byggð þannig, að veggir
voru úr torfi og grjóti og með
torfþaki en reft og klædd að
innan með rekavið eða að-
fluttu timbri. Nokkrar kirkjur
voru þó byggðar úr timbri og
sömuleiðis voru timburhús
byggð í bæjunum er þeir tóku
að vaxa. Þó voru tortflbygging-
ar algengastar langt fram á nítj
ándu öldina. Er talið, að um
1880 sé almennt farið að
byggja úr timbri í bæjunum,
og verða timburbús upp úr
því algengustu byggingar þar.
Þótt fáein íbúðarhús muni
hafa verið gerð úr höggnum
steini á átjándu öldinni, þá er
talið, að 1880 hafi aðeins 5
slík íbúðarhús verið til í land-
inu. Það ár var Alþingishúsið
byggt, og mun það hafa átt
sinn þátt í því, að steinhús
tófcu að ryðja sér til rúms.
Aukning steinhúsa.
En það er ekki fyrr en upp
úr aldamótunum að bera fer
á steinhúsum að ráði, en þá
var farið að nota sement til
bygginga. Til er yfirlit yfir
tegundir íbúðarhúsa 1910—’50,
Og sýnir það vel þróunina.
Árið 1910 voru skráðar
10.213 íbúðir í landinu. Þar af
voru langflest húsin úr torfi,
eða f. 354. Því næst komu
timburhús, 4.488 talsins, en
steinhús voru 371 talsins.
10 árum síðar, 1920 voru
timburhúsin orðin flest eða
5196. En torfhúsin voru svip-
uð að tölu, eða 5.007 talsins.
Steinhúsum hafði fjölgað veru
lega og voru alls 1.061.
Tuttugu árum síðar, árið
1940, hafði veruleg breyting
orðið, en samt voru timburhús
in þá enn flest, eða 7.570 tals-
ins, en næst komu steinhúsin
voru þá orðin 6146. Torfhús-
in voru þá 1744,
En 1950 höfðu steinhúsin
loks orðið flest eða 1.511,
timburhúsin voru 8.033 tals-
ins og torfhúsin aðeins 702.
Segja má, að frá 1950 hafi
flest hús verið byggð úr steini.
íbúSarbyggingarnar.
Það er að sjálfsögðu nokk-
uð misjafnt eftir árum, hversu
mikið af íbúðum hefur verið
byggt að undanförnu. Er í því
sambandi forvitnilegt, að líta
á tölur um fullgerðar íbúðir á
síðustu árum.
Árið 1957 voru fuUkláraðar
1618 íbúðir á öUu landinu, en
nokfcru minni næstu ár á eft-
ir, 1431 íbúð árið 1958 1526
árið 1959 1484 íbúðir 1960,
1209 árið 1961, 1272 árið ‘62,
1303 íbúðir 1963, 1331 árið
1964 og 1518 árið 1965.
Árið 1966 komst tala full-
gerðra íbúða að nýju í há-
mark. Það ár voru um 1680
íbúðir fuUgerðar, og árið eftir,
í fyrra tæpar 1800 á öliu land-
inu að því er talið er.
Hver er íbúðaþörfin?
Á síðasta ári gerði Efna-
hagsstofnunin áætiun um í-
búðaþörfina hér á landi á ár-
unum 1967—1971. Hefur stofn
unin gert ráð fyrir tveimur til
vikum í þessu sambandi. í báð
um tilvikum er gert ráð fyrir
að íbúðarbyggingarnar sam-
svari að fullu aukinni fjöl-
skyldumyndun. í fyrra tilvik-
inu er síðan gert ráð fyrir að
hlutfall þeirra einhleypinga,
sem geta ráðið yfir íbúð, geti
aukizt jafnmikið og á árunum
1960—1966, eða um 1.3% á ári
hverju. En í síðasta tilvikinu
gerir stofnunin ráð fyrir. að
hækkun þessa hlutfalls verði
heldur minni á þessum fimm
árum heldur en á árunum
1960—‘66, eða aðeins um 1%.
Ástæðurnar fyrir þessu segir
stofnunin vera, að rök eru
fyrir því að reikna með hægari
vexti hlutfalls þeirra einhleyp
inga sem ráða yfir íbúð, þeg
ar þetta hlutfall er orðið til-
tölulega hátt, heldur en með-
an það er lágt. Þar við bætist
að á næstu árum verður fjölg-
un einhleypinga nær eingöngu
í yngstu og elztu aldurs-
flofckunum, en einhleypingum
á aldrinum 30—50 ára fækkar
en einhleypingar í þeim
aldursflokkum eru þeir, sem
telja má, að helzt vilji eignast
eða leigja ibúð“.
Miðað við fyrra og hærra
tilvikið í þessari áætlun Efna-
hagstofnunarinnar var þörf
íbúða árið 1967, 1700 íbúða á
þessu ári og árinu 1969 og
1800 ibúða hvort áranna 1970
og 1971.
Ráðamenn telja að hingað
til hafi þessi áætlun staðizt.
Fjármálaráðherra, Magnús
Jónsson, sagði þannig í ræðu
fyrr á árinu, að „í reynd er
talið, að fjármunamyndun um
reiknuð í fullgerðar íbúðir
hafi verið um 1800 árið 1966
og 1900 árið 1967, og muni
verða um 1800 árið 1968“. En
eins og áður kemur fram, þá
er tala fullgerðra íbúða lægri
en þessar tölur Magnúsar.
þannig var hún innan við
1700 íbúðir 1966, innan við
1800 í fyrra og er áætlað um
1700 á yfirstandandi ári.
Staðan í dag.
í dag er mikið af íbúðum í
smíðum, einkum hér í Reykja-
vík, þannig var hafin smíði á
1247 íbúðum á síðasta ári —
einkum í Fossvogi og Breið-
holti, en framkvæmdir á þess-
um byggingarsvæðum hófust á
því ári. Mestu heildarfram-
kvæmdirnar eru að sjálfsöðgu
íbúðahúsabyggingarnar á veg
um Framkvæmdaneíndar
ibyggingaráætlunar en fyrsta
áfanga, 312 íbúðir í 6 fjölbýl-
ishúsum fer að Ijúfca og verð-
ur væntanlega hafizt nanda
um næsta áfanga á næsta ári
Er nánar gerð grein fyrir þess
um framkvæmdum annars
staðar.
„En þrátt fyrir þessa
framkvæmdir var í síðastliðn-
um vetri nokkurt tímabundið
atvinnuleysi hjá einstökum
stéttum byggingariðnaðar-
manna' einkum hjá múrurum
og málurum. Er bent á þetta
vandamál í skýrslum stjómar
Landssambands iðnaðar-
manna til Iðnþings íslendinga
sem haldið var fyrir skömmu.
Þar er bent á að fjárfesting
í byggingariðnaðinum hafi
aukizt verulega árið 1967.
En þrátt fyrir þessa
miklu heildaraukningu fram-
kvæmda urðu margir sjálf-
stæðir byggingarmeistarar og
aðrir iðnmeistarar varir við
samdrátt eftirspurnar sem
stafaði af því að vaxandi hluti
framkvæmda færist úr hönd
um þeirra til annarra aðila. Á
þetta einkum við um bygging-
arframkvæmdir Framfcvæmda
nefndar byggingaráætlunar
innar í Breiðholti í Reykjavík.
Framkvæmdir við Búrfells-
virkjun eru í höndum norræns
verktaka fyrirtækisins sem AI
menna byggingafélagið h.f
stendur að. Þessar framkvæmd
ir hafa þurft á miklu mann-
afli að halda og því komið í
veg fyrir atvinnuleysi í bygg-
ingariðnaðinum sem búast má
við að orðið hefði ef þessar
framfcvæmdir ftefðu ekki verið
til staðar. Sama máli gegnir
með byggingaframkvæmdir
við álbræðsluna í Straumsvík
en þær framfcvæmdir hafa að
nokkru leyti verið boðnar út
og látnar til innlendra verk-
taka einkum í byggingariðnað
inum. Á s.l. sumri störfuðu
225 manns við framkvæmdir
FB í Breiðholti 780 manns
við byggingu Búrfellsvirkjun-
ar og 870 manns við álbræðsl-
una í Straumsvík og hafnar-
gerðina þar“ segir í skýrsl-
unni
Verulegur samdráttur?
í skýrslunni er ekki beinlín-
is uppörfandi spádómur um
framtíðarástandið í vetur en
vissulega raunhæfur spádómur.
Þar segir að líkur eru á að
nú í vetur verði enn meira
Framhald á 15. síðu.