Tíminn - 19.11.1968, Blaðsíða 14

Tíminn - 19.11.1968, Blaðsíða 14
\ 14 . HÚSBYGGJENDUR ATHUGIÐ! VELJUMISLENZKT <H> ÍSLENZKANIÐNAÐ veljum punlal OFNINN HEFUR ÞEGAR SANNAÐ YFIRBURÐI SINA: VERÐIÐ HVERGI LÆGRA RUNTALOFNAR HF. mmi PLASTLAKK gljáir llkt og olíulakk þornar fljóit Gljdtcx samcinar kosti olíulakks og plastmálningar, gulnar ckki, er auðvclt í mcðförum, cr auffvclt aff ]>riía «g cndist Ycl. STÓRIÐJA - Framhald ai bls. 9 ur til 20 ára, sem hinir samn- ingarnir. Er áætlað, að fram- leiðslumagn verksmiðjunnar hækki smátt og smátt upp í 30 þúsund tonn á nokkrum ár- uin. Johns-Manville sér um sölu framleiðslunnar, og var sérstakt sölufélag stofnað í því sambandi. Kostnaður við gerð verk- smiðjunnar var áætlaður 142 milljónir, þegar Kísiliðjan tók til starfa í október 1967. Ýmis konar byrjunarörðugleikar komu í ljós á fyrsta rekstrar- árinu, og varð framleiðslan nokkru minni en áætlað var. Forráðamenn Kísiliðjunnar telja nú aftur á móti, að byrj- unarörðugleikarnir séu að mestu yfirstignir og ætti fyrir- tækið því að geta framleitt samkvæmt áætlun. Álbræðslan Samningurinn við Alusuisse, svissneska álfyrirtækið, um byggingu á lbræðslunnar í Straumsvík, var gerður árið 1966, og felur í sér, að sér- stakt dótturfyrirtæki Alusuisse, íslenzka álfélagið, sjái um rekstur álbræðslunnar. Er þetta fyrsti samningur íslenzka lýðveldisins um stofnun fyrir- tækis hérlendis að öllu leyti í eigu erlends aðila, og það atr- iði, og ýmis forréttindi hins erlenda aðila, voru orsakir þeirra miklu deilna, sem um þetta fyrirtæki urðu. Framkvæmdir við álbræðsl- una í Straumsvík hófust á síð- asta ári, en samhliða fram- kvæmdum við verksmiðjuna sjálfa eru einnig í gangi fram- kvæmdir við mikil hafnar- mannvirki vegna verksmiðj- unnar. Álbræðslan á að hefja starf- semi sína á næsta ári — um svipað leyti og Búrfellsvirkj- un hefur framleiðslu raforku — en þá á að vera risin í Straumsvík verksmiðja, sem framleitt getur um 30 þúsund tonn af áli á ári. Full afköst verksmiðjunnar samkvæmt samningunum frá 1966 eru 60 þúsund tonn á ári, og átti upphaflega að auka afköstin úr 30 þúsund tonnum í 60 þúsund tonn í tveimur áföngum. Skyldi miðáfangan- um lokið í september árið 1972, en síðasta áfanganum í júní 1975. Þetta hefur nú breytzt, að beiðni íslenzkra yfirvalda. Eft- ir viðræður íslenzkra aðila við Alusuisse var ákveðið, að tveir síðustu áfangarnir verði sam- einaðir í einn áfanga, og skal þeim áfanga lokið á þremur árum. Mun álbræðslan sam- kvæmt því ná fullum afköst- um, 60 púsund tonnum á ári, árið 1972, og þá kaupa helm- ing raforkuframleiðslu Búr- fellsvirkjunar- Nýjar sfóriðjugreinar Nú hin síðari ár hefur mik- ið verið rætt um möguleikana á nýjum stóriðjufyrirtækjum til viðbótar þeim, sem þegar hafa hafið framleiðslu, eða eru í byggingu, og nefnd hafa ver- ið. Hefur margt verið nefnt, en allar athuganir eru samt á byrjunarstigi. Þannig hefur til dæmis ver- ið minnzt á byggingu vítissóda verksmiðju, og hafið máls á þeirri hugmynd við Alusuisse. Einnig hefur verið rætt um möguleika á vinnslu á silikon og ferrókróm málmum. Er hér um mjög orkufrekan iðnað að ræða. Er talið, að til silikon- vinnslu þurfi 2—40 megavött raforku, en allt að 200 mega- vött fyrir ferrókrómvinnsluna — eða jafn mikla raforku og heildarframleiðsla Búrfells- virkjunar, er hún verður full- gerð. Baldur Líndal, efnaverkfræð ingur, hefur kannað nokkuð ítarlega möguleikana á svo- nefndri sjóefnavinnslu, sem er mjög dýrt fyrirtæki. Þannig er áætlað, að saltverksmiðja myndi kosta nokkur hundruð milljónir, en heilsteypt fram- leiðslukerfi á þessu sviði jafn- ■vel allt að 2000 milljónum króna. Ef allar aðstæður eru full- nægjandi, er þó ekki óhugs- að sjóefnavinnsla verði næsta stóriðjuframkvæmd hér á landi. E.J. BYGGINGARIÐNAÐURINN - Framhald aí bls. 5 atvinnuleysi hjá þessum (þ. e. þeim sem atvinnuleysi var hjá sl vetur; og fleiri stéttum byggingariðnaðarmanna Þá er einnig yfirvofandi væruleg- ur verkefnaskortur í bygging- ariðnaðinum víða utan Reykja víkur og ekki horfur á að úr rætist í náinni framtíð Af þessu er ijóst, að horfur eru á verulegum samdrætti í bygg ingariðnaðinum á næstu mán- uðum, ef efnahagsþróunin og um leið þróun tekna einstak- linga breytist ekki til batnað- ar á næstunni“. Lánamálin. Verri kjör almennings eiga auðvitað verulegan þátt í þess um samdrætti. En erfiðleikar þeirra stofnana, sem lána fé til íbúðabygginga, eiga einn- ig verulegan þátt í honum. Húsnæðismálastofnunin hef ur átt í allmiklum erfiðleik- um síðustu árin einfaldlega vegna þess að hún hefur ekki nægjulega tekjustofna til að veita lán út á allar lánshæfar umsóknir svo fljótt sem æski- legt væri. Hefur þetta valdið fjölmörgum íbúðakaupend- um miklum erfiðleikum, og mörgum byggingarmeistar- anum að sjálfsögðu um leið. Á síðasta ári, 1967, veitti Húsnæðismálastofnunin alls 2519 lán að upphæð 291.4 milljónir króna, en 2452 lán að upphæð 360.4 milljónir króna árið áður. Nema lán Húsnæðismálastjórnar nú um 395 þúsundum króna. en voru 380 þúsundir í fyrra 340 þús- undir árið 1966 og 280 þús- und árið 1965. Efna minni með- limir verkalýðsfélaganna inn- an Alþýðusambandsins eiga einnig rétt á 75 þúsund króna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.