Tíminn - 19.11.1968, Qupperneq 7
iWfilPta »1
'’Wh.öj;
Séð yfir verksmiðjur Sambands íslenzkra samvinnufélaga á Akureyri,
W:
E
Þótt verzlim og viðskipti hafi
apphaflega verið höfuðtilgang-
ur þeirrar samvinnufélaga, sem
stofnuð voru hér á landi, hófu
samtök samvinnumanna fljót-
lega víðtæka þátttöku í atvinnu
Iffhm að öðru leyti. í dag
stunda samvinnufélög víðtækan
atvinnurekstur í verzlun, sjávar
útvegi, landbúnaði og iðnaði
— og er iðnrekstur þeirra ekki
hvað minnsti þátturinn.
Samvinnumenn hafa sótt fram
£ fjölmörgum iðngreinum. Og
þótt hér verði aðeins skýrt stutt
lega frá framleiðslu helztu
verksmiðja Sambands íslenzkra
samvinnufélaga og Kaupfélags
Eyfirðinga á Akureyri, þá er
sá iðnrekstur aðeins hluti af
heildarþátttöku samvinnumanna
í íslenzkum iðnaði.
Má þar til nefna þátttöku
samvinnumanna í fiskiðnaði,
svo sem hraðfrysti-iðnaðinum
og niðursuðu, í skipasmíði og
ýmissri annarri vinnslu búvara,
en fram fer í helztu verksmiðj
unum á Akureyri, og ber þá
ekki sízt að minnast á niður-
suðuverksmiðju, pylsugerð, ull
arverksmiðju og sútunarverk-
smiðju Sláturfélags Suðurlands
en það er sem kunnugt er sam-
vinnufélag.
Framleiðsluverðmæfi SÍS-
verksmiðjanna 250—300
millj. kr.
„Verksmiðjur sambandsins
eru ekki stórar, þó þær séu
það á hérlendan mælikvarða“,
— sagði Harry Fredriksen,
framkvæmdastjóri Iðnaðardeild
ar SÍS í ræðu nýlega. — „Fram
leiðsluverðmæti þeirra nemur
250—300 milljónum króna á
ári, og nemur útflutningurinn
þar af um 50—60 millj. kr.
Þessari framleiðslu hafa verk
smiðjurnar náð á tiltölulega
skömmum tíma; það eru aðeins
um fjórir áratugir síðan Sam-
bandið eignaðist sína fyrstu
verksmiðju á Akureyri, Gefjun.
Frá þeim tíma hefur' jafnt
og þétt verið unnið að nýjum
verksmiðjum, og þær stækkað-
ar eftir því sem aðstæður
leyfðu. Hefur framtak sam-
vinnumanna í þessum efnum
haldizt fyllilega í hendur við
almenna iðnvæðingu þjóðarinn-
ar, og á mörgum sviðum verið
um frumkvæði að ræða.
í samræmi við þessa þróun,
var Iðnaðardeild komið á fót
sem sjálfstæðri deild innan
Sambandsins árið 1949, og hef-
ur starfsemi deildarinnar aukizt
jafnt og þétt.
Verksmiðjur SÍS á
Akureyri
IJllarverksmiðjan Gefjun er
hv&ð þýðingarmest verksmið.i-
anna, en á síðasta ári, 1967.
voru starfsmenn verksmiðjunn-
ar 160 talsins, þar af 100 karl-
menn.
Verksmiðjan framleiðir m.a.
lopa, band, fataefni, teppi, á-
klæði og gluggatjöld, og eins
nokkuð af Dralon-sængum og
koddum.
Iðunn er nafn á tveimur
verksmiðjum, sem þó eru tengd
ar. Er þar annars vegar um að
v ræða sútunarverksmiðju, en
hins vegar skógerð.
Skinnaverksmiðjann Iðunn,
sútun, hafði í fyrra 42 starfs-
menn í þjónustu sinni, aðallega
karlmenn eða 39. Verksmiðjan
framleiðir loðsútaðar gærur og
húðir; hrosshúðir, nautgripahúð
ir og sauðskinn aðallega, fata-
skinn, bókbandsskinn og svo
hvers konar leður fyrir skógerð
og söðlasmíði. Voru til dæmis
framleidd á síðasta ári rúmlega
167 þúsund ferfet af leðri og
skinni í skófatnað.
Skinnaverksmiðjan Iðunn, skó
gerð, framleiðir margs konar
skófatnað á konur, karla og
börn. Mun verksmiðjan hafa
framleitt hátt á sjötta tug þús-
unda para af skóm á síðasta
ári, en starfsmenn voru 55 tals-
ins.
Fataverksmiðjan Hekla er
stórt fyrirtæki ,sem hafði rúm-
!ega eitt hundrað manns í þjón
ustu sinni í fyrra. Verksmiðjan
framleiðir m.a. prjónafatnað á
karla, konur og unglinga. sokka
og leista, vinnufatnað, úlpur
ýmiss konar og ýmislegt annað.
Verksmiðjur SÍS og KEA
Sambandið og Kaupfélag Ey
firðinga eiga tvær verksmiðjur
saman á Akureyri. Kaffi-
brennslu Akureyrar og Efna:
verksmiðjuna Sjöfn.
Kaffibrennslan hefur fátt
starfsmanna, aðeins 10 á síð-
asta ári, en framleiðslan er all-
mikil. Framleiðir verksmiðjan
Braga-kaffi og Santos-kaffi —
á síðasta ári rúmlega 413 þús.
kíló.
Efnaverksmiðjan Sjöfn fram-
leiðir aftur á móti ýmiss konar
málningar- og hreinlætisvörur,
svo sem þvottadaft, sápur ýmiss
konar, og margs konar málning
arvörur.
Á síðasta ári störfuðu 45
manns hjá verksmiðjunni.
KEA-verksmiðjumar
Starfsemi Kaupfélags Eyfirð-
inga er mjög víðtæk sem kunn-
ugt er, og auk þeirra iðnfyrir-
tækja, sem nefnd hafa verið að
ofan, er þekktasta iðnfyrirtæk-
ið Kjötiðnaðarstöð KEA.
Upphaf þess fyrirtækis var
Pylsugerð KEA, sem tók til
starfa árið 1949, 1951 hóf pylsu
gerðin niðursuðu á kjötvörum
í dósir.
Það var síðan fyrir tveimur
árum, 1966, að nafni fyrirtækis-
ins yar breytt í Kjötiðnaðarstöð
KEA um leið og það flutti í
nýja og fullkomna verksroiðju.
Hefur Kjötiðnaðarstöðin mikla
kjötvinnslu með höndum, auk
niðursuðunnar. Sem dæmi roá
nefna, að á síðasta ári fram-
leiddi verksmiðjan 60 tonn af
pylsum.
Á þessu ári hefur Kjötiðnað-
arstöðin framleitt 15 gerðir af
niðursuðuvörum, aðallega kjöt-
vörum, og eru þær vörur þrkkt
ar og vinsælar um allt land.
Nam söluverðmæti síðastliðins
árs um 36 milljónum króna.
FramtíSarútlitið
Þróunin í hinum ýmsu iðn-
greinum hefur verið misjöfn
undanfarin ár og útlitið er einn
ig nokkuð misjafnt. Stefnan í
innflutnings- og tollamálum hef
ur einkum komið illa við skó-
gerðina og fataiðnaðinn.
Kannanir, sem gerðar hafa
verið nýverið, um útilitið í iðn
aði á íslandi almennt í dag,
virðast benda til þess að útlit
í ullarvinnslu og sútun sé nokk
uð gott, og eins í efnaiðnaðin-
um. Mikil eftirspurn er einnig
eftir framleiðsluvörum Kjöt-
iðnaðarstöðvarinnar, en óviss-
ara er um framtíð skógerðar,
sem svo mjög hefur orðið fyrir
barðinu á erlendu samkeppn-
inni síðustu árin.
En iðnaður samvinnumanna
hefur eflzt við hverja raun, og
er vissulega ástæða til að æDa,
að svo verði einnig við hinar
erfiðu aðstæður, sem ríkt hafa
í efnahagsmálum undanfarið,
og munu einkenaa efnahagslífið
um nokkurn tíma enn að
minnsta kosti.
_ E.J.
Frá Grasmjölsverksmiðju SÍS á Stórólfshvoli við Hvolsvöll.