Tíminn - 03.12.1968, Side 6

Tíminn - 03.12.1968, Side 6
18 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 3. desember 1968. JÖ NYJAR BÆKUR FRÁ GRÁGÁS Estelle Roberts Bókaútgáfan Grágás í Kefilavík sendir þessa dagana frá sér sjö íýjar bækur, þar af eina eftir ís- ’enzkan höfund, Hafstein Snæland 3n bók hans heitir Benni og ,«ýenni finna gultskipið. Hinar ^ækbrnar eru Miðill í fjörutíu ár, líetjur á hú'ðkeipum, Flugvélar forsetans er saknað Laumufar- >eginn, Hamingjan er hverful og stjörnubrautin. MIÐILL í FJÖRUTÍU ÁR, sjálfs svisaga Estelle Roberts, eins iremsta miðils, sem starfað hefur á þessari öld. Hún segir frá öll- um helztu dulrænu fyrirbærum, sem kunn eru sVo sem skyggni- lýsingum, dulheyrn, hlutskyggni, huglækningum og miðilsfundum, þar sem beint samband hefur náðst. Gylfi Gröndal íslenzkaði. HETJUR Á HÚÐKEIPUM, eft- ir C. E. Lucas Phillips. Haustið 1942 tókst 10 brezkum hermönnum á 5 húðkeipum að komast óséðir upp fljótin Gar- onne og Gironde, alla leið til Bordeaux í Frakfclandi, og sökkva eða valda miklum skemmdum á mörgum birgðaflutningasfcipum Þjóðverja. í bók þessari segir frá undir- búningi og framkvæmd þessarar árásar og flóttanum að henni lok- inni. 18 ljósmyndir eru í bókinni af húðkeipunum og mönnunum sem þátt tóku í árásinni. Þýðinguna gerði Ingólfur Aðalsteinsson. FLUGVÉLAR FORSETANS ER SAKNAð, eftir Robert J. Serling. Bók þessi, sem er mjög spenn andi, vakti mikla athygli í Banda- ríkjunum, en hún kom út á síð- astliðnu hausti. Hún segir frá hvarfi fíugvélar Baijdaríkjaforseta og hinni ógnþrungnu spennu, er skapast vegna óvissunnar um af- drif hans. Grétar Oddson íslenzk aði. BENNI OG SVENNI FINNA GULLSKIPIÐ eftir Hafstein Snæ land Skemmtileg og spennandi ung lingabók um tápmikla stráka. Höfundurinn: Hafsteinn Snæ- land er fæddur í Reykjavík 1934. Hann lauk prófi frá Hvanneyri 1953 og hefur síðan stundað alla almenna vinnu til sjávar og sveita. Þetta er fyrsta bókin, sem kemur út eftir hann. LAUMUFARÞEGINN, eftir Ronald Johnsfcon, er spennandi skáldsaga með óvenjulega hraðri atburðarás. Óli Hermannsson ís- lenzkaði. HAMINGJAN ER IIVERFUL, eftir danska skáldsagnahöfundinn Erling Poulsen sem kunnur er víða um lönd fyrir afburða spennandi ástarsögur sínar. Bald- ur Hólmgeirsson íslenzkaði. STJÖRNUBRAUTIN, ástarsaga eftir Mary Howard í þýðingu Önnu Jónu Krdstjánsdóttur. THORVALDSENSHEIMELIÐ AF- IINT REYKJAVIKURBORG 19. uóvember afhenti Thorvald- ensfélagið Reykjavíkurborg ■jarnaheimili tU eignar og rekstr- ir, en hér er um að ræða nýbygg- ngu við Vöggustofu Thorvald- ænsfélagsins við Dyngjuvog. Af- íendingin fór fram í kaffisam- iæti í barnaheimilinu, en félagið itti 93 ára afmæli þennan dag. 5'rú Unnur Ágústsdóttir, formað- ir félagsins afhenti1 Geir Hall- jrímssyni barnaheimilið. Bo.rgar- itjóri þakkaði þessa höfðinglegu íjöf og fórnfúst og heilladrjúgt ;tarf félagsins í þágu Reykvík- nga á 93 ára starfsferli. Afsal fé- agsins fyrir fasteigninni til borg- irsjóðs Reykjavíkur var lagt fram ’ borgarráði í gær. Barnaheimihð er að öllu kost- að af Thorvaldsensfélaginu, en byggingardeild borgarverfcfræð- ings veitti nokkra tæknilega að- stoð. Húsið er rúmir 300 fermetrar að flatarmáli og um 1000 rúm- metrar. Það er mjög vandað að efni og frágangi. Verkið var hafiö í ágúst 1967 og lokið nú nýlega. Arkitekt hússins er Skarphéðinn Jóhannsson, en verktaki var Böðv ar Bjarnason húsasmíðameistari. Formaður byggingarnefndar var ^ frú Steinunn Guðmundsdóttir, en með henni í byggingarnefnd frú Guðný Albertsson og írú Halldóra Guðmundsdóttir. (Frá skrifstofu borgarstjóra.) Hafsteinn Snæland Jnnur Ágústsdóttir afhendir borgarstj. Geir Hallgrímssyui, heimilið. ■ Frumþættir sið- fræðinnar og Ævintýri leyni- félagsins 7 saman Tvær nýjar bækur eru komn- ar út hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Eru það Frum- þættir siðfræðinnar eftir Johan B. Hygen )og Ævintýri Leynifé- lagsins sjö saman. eftir Enid Blytin. Um tilgang bókarinnar Frum- þættir siðfræðinnar segir höfund- ur í forspjalli: Bókin hefur tvenns konar tilgang. Að nokkru leyti snýr hún sér að fólki, sem telur, að það hafi þörf á leiðbeining- um um þessi efni að öðru leyti var það hugmyndin að leggja fram yfirlitsbók til afnota við ýmsa skóla og námskeið, þar sem siðfræöi er meðal námsgreinanna. Upphaflega' var það hjúkrunar skólinn, sem hafður var í huga og hefur það ákveðið stærð bókar innar. Jóhann Hannesoon þýddi bókina með leyfi höfundar. Er hún 205 bls. Ævintýri Leynifélagsins sjö saman er önnur bókin í þessum flokki, sem út kemur hér á landi. Þessar bækur eni eftir hinn vin- sæla barna- og unglingabókahöf- und Enid Blyton, en bækur henn ar hafa notið fádæma vinsælda víða um heim BUNMMRB/VNKINN er ItiinUi loILsins Ur bókinni Hetjur á Húðkeipum BREYTiNGAR A HÚTEL BORG — Nú eru hartnær fjórir ára- tugir síðan Hótel Borg tók til starfa. Hótelið var í byrjun reist af miklum stórhug og myndar- skap eins og gleggst má sjá af því, að enn er að mestu í fullu gildi hin upprunalega húsaskipan gistiherbergja og veitingasala, sögðu fulltrúar hótelsins á blaða- mannafundi. — Hins vegar hefur tímans tönn auðvitað náð að setja mark sitt á eitt og annað á löngum ferli, og því er það, aö undan- farið hafa núverandi eigendur hótelsins vei'ið að betrumbæta óg endurbyggja hótelið lið fyrir lið, Skriðan, eftir Desmond Bagley Suðri gefur nú út bókina Skrið- an eftir Desmond Bagley. Er þessi bók eftir sama höfund og bækurnar Gullkjölurinn, Fjalla- virkið og Fellibylur sem áður hafa komiö út hjá Suðra. Framhald á bls. 23 og nú má heita að fari að sjá fyrir endann á því mikla verki. — Sama er að segja um veit- ingasalina. Á þeim hafa átt sér stáð miklar endurbætur í seinni í tíð, allar í því augnamiði að þeir standist enn fyllilega kröfur tím- ans. Nýjasta og veigamesta breyt- • ingin þar varð nú vikunni, þeg-) ar ný húsgögn voru fengin í alla ' veitingasalina, 'en eins og vænta mátti, breyta þau útliti salanna. mjög. Er hér um að ræða bólstr- uð húsgögn af vönduðustu gerð, [ yfirdekkt með frönsku gobelin-. ofnu áklæði. — Einnig er stutt síðan ráðin j var til að leika í danssölum Hótel Borgar ein þekktasta hljómsveit landsins Sextett Ólafs Gauks, sem ásamt Svanhildi skemmtir þar nú um helgar. —- Hinn gamalkunni og sívin- sæli veitingastaður, Hótel Borg, hefur því sett upp nýtt andlit í takt við tímann, og má því bæði búast við því að gamlir kunn- ingjar hafi hug á því að endur- nýja kunningsskapinn við Borg- ina, og nýir gestir að líta inn, því að enn sem fyrr er Hótel Borg staður fyrir alla. \ I Salurinn á Borgiuni eftir breytíngarnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.