Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 3
VtSIR Föstudagur 12. ágúst 1977 L)ósm.: LA Niels litli tritlaöi viö hliö móöur sinnar og mátti ekki vera aö þvi aö tala viö okkur. Hann var aö flýta sér á leikvöllinn. Ungur maöur kom ábúöar- fullur út úr bilskúr meö hamar i hendi og hugöist aögæta hvort ekki þyrfti aö dytta aö einhverju meöan pabbi væri aö vinna. Litil stúlka stóö viö öskutunnu, mjög hugsandi á svip eins og hún væri aö velta þvi fyrir sér hvaö væri nú i þessari stóru tunnu. Hún hélt á mátulega stórum strá- kústi i hendi og vildi halda stétt- inni viö hús sitt hreinni. A öörum staö sátu tvö börn upp við búöarvegg og ræddu lifið og tilveruna i mestu mak- indum og máttu rétt vera aö þvi aö lita upp um leiö og viö ókum burtu úr bænum. __SG Þrjú leikrit Kjartons unum í haust „Ég er með eitt leikrit í smiðum sem ég hef unnið við í sumar, en það verð- ur ekki tilbúið strax", sagði Kjartan Ragnars- son leikari, leikstjóri og síðast en ekki síst leik- ritaskáld í stuttu spjalli við Vísi. Fyrsta verkefni Þjóöleikhúss- ing i haust verður frumsýning á nýju leikriti eftir Kjartan og heitir þaö Týnda teskeiöin. Leikstjóri er Briet Héðinsdóttir og þekktir leikarar fara þar meö aöalhlutverkin. Leikfélag Reykjavíkur heldur áfram sýningum á Saumastof- unni eftir Kjartan og er þaö eitt vinsælasta verk sem sýnt hefur verið i Iönó og auk þess hefur það veriö sýnt viöa út á landi. Þá veröur einnig framhaldiö sýningum á Blessaö barnalán eftir Kjartan og verður þaö að likindum sýnt i Austurbæjar- biói. Það veröa þvi þrjú leikrit eftir Kjartan Ragnarsson á fjölunum samtimis i haust og geri aörir betur. I spjallinu viö Kjartan kom fram, aö hann hefur unnið að samningu nýja leikritsins i sumar og kvaöst hann hafa van- iö sig á að vinna reglubundið frá þrjú daglega. Hann vildi engu spá um hvenær það leikrit yröi tilbúið til sýn- ingar, en greinilega hefur Kjartan öðlast öruggan sess meðal islenskra leikritahöf- unda. —SG Kjartan Ragnarsson. á f jöl- Ttlukkan 10 til Meðallaun sjómanna hafa hœkkað mest Meðallaunahækkanir sjómanna voru mestar af þeim þremur starfs- greinum sem Þjóðhags- stofnunin hefur gert könnun á milli áranna 1951 og 1975. Meöallaunahækkanir sjómanna voru 18,2% en sambærileg tala hjá verkamönnum er 17,2% og 17,4% hjá iðnaðarmönnum. Þessi mismunur kemur einkum fram á árunum 1971-75 en þá var meðallaunahækkun sjómanna 35,5% á ári en iðnaöar- og verka- manna 31,5%. Til gamans má geta þess aö meöallaun sjómanna árið 1951 voru 35,940 krónur, áriö 1972 voru þau orðin 562,454 krónur og 1,612.000 áriö 1975. —H.L. Borgarstjórn samþykkti 217.6 milljón króna niðurskurð á framkvœmdum A aukafundi borgarstjórnar i fyrradag voru teknar fyrir og samþykktar breytingar á fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1977. 1 ræðu sinni á fundinum geröi borgarstjóri Birgir Isleifur Gunnarsson grein fyrir tillög- unni um 217.6 milljón króna niðurskurð á framkvæmdum borgarinnar, en það er mismun- urinn á tekju- og gjaldahækkun- um borgarinnar. Helstu samdráttartillögurnar eru 120 milljón króna niður- skuröur á gatnageröarfram- kvæmdum, 97,6 milljón króna lækkun á framlögum til bygg- ingaframkvæmda, 10 milljón króna lækkun á framlagi til æskulýðsmála, 16.9 milljóna lækkun til iþróttamála og 8.6 milljón króna lækkun á fram- lögum til heilbrigðismála. Aðeins 13.5% W Islendinga starfa við fiskveiðar og vinnslu Heildar vinnuafls- notkun þjóðarinnar var 5,4% i fiskveiðum og 8,1% i fiskvinnslunni á árinu 1975 að þvi er segir i nýjasta tölublaði Sjávarfrétta. Aðeins 13,5% íslendinga starfa þvi við þessa mikilvæg- ustu undirstöðuatvinnu- grein efnahagslifsins. Fjöldi mannára (þ.e. 52 slysa- tryggöra vinnu vikna) var 5103 við fiskveiðar árið 1975 en 7.772 i fisk vinnslunni. Þegar aöeins fiskvinnslan er tekin með i reikninginn, kemur i ljós mjög mismunandi vinnuafls- þörf i hinum einstöku kjördæm- um. Skiptingin á mánnárum milli kjördæma var þannig áriö 1975: Reykjavik 629, Reykjanes 1611, Vesturland 761, Vestfirðir 1389, Norðurland vestra 574, Norður- land eystra 1006, Austurland 838 og Suðurland 914. —H.L Einn þeirra 13,5 prósent landsmanna, sem starfa aö fiskvinnslu. —Ljósm.: Guömundur Sigfússon Prinsinn glímdi við stórlax í tvo tíma ,/Prinsinn átti i harðri viðureign við 17 punda stórlax i gær, og það var ekki fyrr en eftir rúma tvo klukkutíma að honum tókst að koma laxinum á land" sagði Brian Booth við Vísi í gærdag. Brian er ensku auömaöurinn sem haft hefur Hofsá í Vopna- firöi á leigu nokkur undanfarin sumur og boöiö Karli Breta- prins til sin i laxveiði, en þeir eru góöir kunningjar. „Veiöin var þó aö ööru leyti ekki mikil i gær, en i heild hefur fiskast vel og dvölin veriö mjög ánægjuleg” sagöi Brian. Brian sagöi ennfremur aö veörið i gær heföi veriö nokkuö gott, en þaö heföi rignt dálitiö i fyrrinótt. —H.L. Rokkið í Vísisbíó Visisbió veröur á morgun, laugardag klukkan eitt i Laugarásbió. Þá verður sýnd myndin heimsfræga, 1 American Graffity, eöa „Ameriskt veggjakrass” eins og hún hefur verið kölluö. Myndin er um unglinga og gerist á rokktimabilinu mikla i Bandarikjunum, árið 1962. Allir sem selt hafa VIsi eöa boriö hann út eru velkomnir á sýninguna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.