Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 17

Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 17
VISIR Föstudagur 12. ágúst 1977 17 VtSIR Gengi og gjaldmiðlar FALLA NORÐUR- LANDAGJALD- MKMARIHAUST? Gjaldeyriskaupinenn I Lundúnum spá nú gengisfellingu gjaldmiðla Noregs, Uanmerkur og Sviþjóðar i september. Ástæðan fyrir þessum spá- dómum er, að stjórnir Sviþjóðar og Danmerkur hyggjast leggja fram tillögur um úrræði i efna- hagsmálum um það leyti og þrátt fyrir tiltölulega sterkan efnahag Norðmanna er lalið að þeir muni fylgja dæmi grannþjóða sinna og fella norsku krónuna um svipaða hlutfallstölu. Sviar og Danir eiga við um- talsverða efnahagsörðugleika að striða og er töluverð vantrú rikjandi hvað varðar gjaldmiðla þessara landa. Talið er að þessi gengisfelling, ef af henni i erður muni veröa framkvæmd sam- ráði við aðrar þjóðir sem hluti af uppstokkun gengismála i Evrópu,sem ýmsum þykir fylli- lega timabær. Rætt er um hugsanlega gengishækkun marksins innan hins sam- tryggða gengiskerfis sex Efnahagsbandalagslandanna sem kallað er „snákurinn”. Sænska krónan felld um 6% Reuters fréttastofan I London gerði könnun meðal banka- manna þar i borg og meðal starfsbræðra þeirra i höfuð- borgum Skandinavlsku land- anna og kom i ljós að flestir búast við að sænska krónan verði felld um 6% I haust. Sömu aðilar töldu eilitið minni gengis- fellingá gjaldmiðlum Noregs og Danmerkur likiega. Talið er af þessum aðilum, að markið verði hækkað um 2% eða svo um svipað leyti og gengi sænsku krónunnar verði fellt. Sviþjóö er aöili að sam- try ggingarkerfi gjaldmiöla Efnahagsbandaiagsiandanna, sem sterkust eru efnahagslega, „snáknum”, en talið er að löndin sex viiji halda sænsku krónunni innan samtryggingar- kerfisins þrátt fyrir veika stöðu hennar en skilji nauðsyn meiri- háttar breytingar á gengi hennar með haustinu. Astæðan fyrir stöðugt veikari stöðu sænsku krónunnar er ört vaxandi viðskiptahalli við út- lönd. Hallinn skánaöi litið eitt fyrst eftir sfðustu gengisfeilingu krónunnar en umskiptin f efna- hagslifi Svia tii hins verra eru meiri en flesta grunaði þá. Dollarinn seig á ný Eins og skýrt var frá i þessum þætti I gær var búist viö, að slakaö yrði á reglum um þenslu á peningamagni I Vestur Þýska- landi, sem hefði i för með sér veikari stöðu marks gagnvart doilar. öllum á óvænt var ákveðið I gærkvöidi aö breyta þessum reglum ekki og féll þvi doliarinn aftur á gjaldeyris- mörkuöum í gær. Bandarikjamenn versla meira Sala á vöru og þjónustu óx um 1,5% i Bandarfkjunum i siðasta mánuði. t mánuðinum á undan féll heildarsala verslana og þjónustufyrirtækja litið eitt. Verð á vörum frá framleiö- endum - •'iý litið eitt en féll I mánuðinum á undan. Nokkur timi Hður aö jafnaði áður en þróun á heildsöluveröi hefur áhrif á smásöluverð, sem er grundvöllur verðbólgumælinga. Mikil aukning i bila- framleiðslu Vestur Þjóðverja Bilaframleiðsla I Vestur Þýskalandi hefur vaxiö um 9% frá fyrra ári og er nú meiri en nokkru sinni. Þjóðverjar fram- leiða nú 16.600 fólksbila á dag. Aukning hefur verið I eftirspurn á þýskum bilum innan lands sem utan og er VoiksWagen Golf söluhæstur. i bilaiðnaði Þjóðverja vinna nú yfir 600.000 manns og er búist við, að allt aö 20.000 ný störf bætist við i þessum iðnaöi þaö scm eftir er ársins. Bilaiðnaðurinn er undirstaða margra annarra iðngreina og þessi iðnaður nú ein helsta von Þjóðverja i baráttu þeirra við vaxandi atvinnuleysi en um 1 milljón Þjóðverja eru skráðir atvinnulausir um þessar mundir. Staða sœnsku krónunnar fer versnandi Samið víð V-Þjóðverja um samstarf í tollamólum Gengið hefur verið frá upp- kasti að samningi um gagn- kvæma aöstoö i toliamálum milli V-Þýskalands og tslands. Samningurinn kveður i aðal- atriöum á um gagnkvæma upp- lýsingagjöf samningsaðila meö það að markmiði að vinna gegn brotum á tollalöggjöf landanna. Samningur þessi er jafnframt fyrsti tvihliða samningur sem Islands gerir við erlent rfki um slikt samstarf. Gert er ráð fyrir þvi að samningurinn verði undirrit- aður i Bonn á hausti komanda eftir að hafa hlotið staðfestingu löggjafarþinga beggja land- anna. —H.L. Nýlega var opnað i Reykjavik nýtt bakarf sem nefnist Kökuval, Laugarásvegi 1. t Kökuvali er opiö alla daga vikunnar og þar er að finna ntikið úrval af allskyns kökum og brauðgerðum. Eigendur Kökuvals eru þau hjónin Jón Jóhannesson og Rósa ólafsdóttir og sjást þau hér á meðfylgjandi mynd ásamt starfs- manni sinum Hrafnhildi Arnkelsdóttur t.v. —H.L/Þ.G. NÚ FÁ EINHLEYPIR TEKJUTRYGGINGU Ný ákvæði hafa verið tekin I lög, um sérstaka heimilisuppbót á lifeyri allra einhleypra ein- staklinga, sem búa einir á eigin vegum. Þar er kveöið svo á um aö ein- hleypingi, sem nýtur óskertrar uppbótar (tekjutryggingar) og er einn um heimilisrekstur, án þess að njóta fjárhagslegs hag- ræðis af sambýli eða samlögum viö aðra um húsnæðisaöstöðu eöa fæöiskostnaö, skal greiða heimilisuppbót kl. 10.000 á mánuði. Umsóknir skulu rökstuddar t.d. meö skattframtölum og skýrum upplýsingum um hagi bótaþega, eftir þvi sem spurningar á eyöublöðum veita tilefni til. Lögin gilda frá 1. júli 1977. —GA J: PASSAMYIVDIR feknar í lifum tilbúnar sfrax I barna & ffölskyldu LJOSMYNDIR AUSTURSTRÆTI 6 S.12644 FÉLAGSSTARF OG FUNDIR Borgarbókasafn Reykja- vikur: Aðalsafn — útlánsdeild, Þingholtsstræti 29a, sím- ar 12308, 10774 og 27029 til ki. 17. Eftir lokun skipti- borðs 12308 i útlánsdeild safnsins. Mánud. —-föstud. kl. 9-22,, laugard. kl. 9-16. Lokað á sunnudögum. Aðalsafn — lestrarsalur, Þingholtsstræti 27, simar aðalsafns. Eftir kl. 17 simi 27029. Mánud. — föstud. kl. 9-22, laugard. kl. 9-18 og sunnud. kl. 14-18, til 31. mai. í júniverður lestrar- salurinn opinn mánud. — föstud. kl. 9-22 lokað á laugard. og sunnud. Lokað I júli. t ágústverð- ur opið eins og i júni. 1 september veröur opið eins og i mai. Farandbókasöfn. — Af- greiðsla i Þingholtsstræti 29a, simar aðalsafns. B- 'ókákassar lánaðir skip- um, heilsuhælum og stofnunum. i Sóiheimasafn— Sólheim- um 27, simi 36814. Mánud. — föstud. kl. 14- 21. Lokaö á laugardögum, . frá 1. mai — 30. sept. Bókin heim—Sólheimum 27, simi 83780. Mánud. — föstud. kl. 10- 12. — Bóka og talbóka- þjónusta við fatlaða og sjóndapra. Hofs vallasafn — Hofs- vallagötu 16, simi 27640. Mánud. — föstud. kl. 16-19 Lokaö i júli. Bókasafn Laugarnesskóla — Skóla- bókasafn slmi 32975. Lokað frá 1. mai — 31. ágúst. Bústaðasafn — Bústaða- kirkju, simi 36270. Mánud. — föstud. kl. 14- 21. Lokað á laugardögum, frá 1. mai — 30. sept. Bókabilar — Bækistöö I Bústaðasafni, simi 36270. Bókabilarnir starfa ekki frá 4. júli til 8. ágúst. Viö- komustaðir bókabilanna eru sem hér segir: MINNGARSPJÖLD Minningarkort bygging- arsjóðs Breiðholtskirkju fást hjá Einari Sigurðs- syni Gilsársstekk 1, sími 74136 og hjá Grétari Hannessyni Skriöustekk 3, sími 74381. Minningarkort Sambands dýraverndunarfélaga ts- lands fást I versluninni Bellu, Laugav. 99, versl. Helga Einarssonar, Skólavörðustíg 4, bóka- búðinni Vedu, Kóp. og bókaverslun Olivers Steins, Hafnarf. Minningarkort Barnaspl- tala Hringsins eru seld á eftirtöldum stöðum: Bókaverslun Isafoldar, Þorsteinsbúð, Vesturbæj- ar Apóteki, Garösapóteki, Háaleitisapóteki Kópa- vogs Apóteki Lyfjabúö Breiðholts, Jóhannesi Norðfjörö h.f. Hverfis- götu 49 og Laugavegi 5, Bókabúö Olivers, Hafnar- firöi, Ellingsen hf. Ana- naustum Grandagarði, Geysir hf. Aöalstræti. > • Minningarspjöld óháöa safnaðarins fást á eftir- töldum stööum: Versl. Kirkjustræti, sími 15030, Rannveigu Einarsdóttur, Suðurlandsbraut 95 E, simi 33798, Guðbjörgu Pálsdóttur Sogavegi 176, simi 81838 og Guðrúnu Sveinbjörnsdóttur, Fálkagötu 9, simi 10246. Orlof húsmæðra Seltjarnamesi, Garöabæ og Mosfellssveit verður i orlofsheimili húsmæöra i Gufudal, Olfusi. Fyrir konur meö börn 30.7-6.8 Fyrir konur eingöngu 20- 27. ágúst. Upplýsingar í simum 14528 (Unnur) 42901 (Þuriður 7-8 siöd.) 66189 (Kristin 7-8 siöd.) Kirkjuturn Hallgrlms- kirkju er opinn á góð- viðrisdögum frá kl. 2-4 siðdegis. Þaðan er ein- stakt útsýni yfir borgina og nágrenni hennar að ógleymdum fjallahringn- um I kring. Lyfta er upp I turninn. Asgrim ssafniö, Berg- stæðastræti 74, er opið alla daga nema laugar- daga frá klukkan 1.30-4. tslandsmótið I körfu- knattleik ’77-’78 Islandsmótið I körfu- knattleik hefst I okt.-nóv. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist skrif- stofu Körfuknattleiks- sambands Islands, Box 864, 121 Rvik. fyrir 1. ágúst n.k. Þátttökutil- kynningar verða ekki teknar til greina nema að þátttökugjöld fylgi en þau eru: Fyrir meistara- flokka kr. 20.000, fyrir aöra flokka kr. 10.000. Stjórn K.K.t. Orösending frá Verka- kvenna. Framsókn. Sumarferöalagið er laugard. 6. ágúst. Til- kynnið þátttöku i sföasta lagi fimmtudag. Pantaðir miöar sóttir fyrir fimmtudag. Állar uppl. á skrifstofunni. Opið miö- vikudag til kl. 20. (kl. 8. Fundir AA-samtak- anna í Reykjavík og Hafnarfirði Tjarnargata 3c: Fundir eru á hverju kvöldi kl. 21. Einnig eru fundir sunnudaga kl. 11 f.h., laugardaga kl. 11 f.h. (kvennafundir), laugar- daga kl. 16 e.h. (spor- fundir). — Svaraö er I stma samtakanna, 16373, eina klukkustund fyrir hvern fund til upplýsinga- miðlunar. Austurgata 10, Hafnar- firði: mánudaga kl. 21. Tónabær: Mánudaga kl. 21. — Fundir fyrir ungt fólk (13- 30 ára). Bústaöakirkja: Þriðjudaga kl. 21. Laugarneskirkja: Fimmtudaga kl. 21. — Fyrsti fundur hvers mánaöar er opinn fundur. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. Ath. aö fundir AA-sam- takanna eru lokaðir fundir, þ.e. ætlaöir alkó- hólistum eingöngu, nema annað sé tekiö fram, að- standendum og öðrum velunnurum er bent á fundi Al-Anon eða Ala- teen. AL-ANON, fundir fyrir aðstandendur alkóhó- lista: Safnaðarheimili Grensáskirkju: Þriðjudaga kl. 21. — Byrjendafundur kl. 20. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. ALATEEN, fundir fyrir börn (12-20 ára) alkó- hólista: Langholtskirkja: Fimmtudaga kl. 20.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.