Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 8
Orðsending fró Getraununum o Getraunir hefja starfsemi sina á ný eftir slimarhlé með leikjum ensku deilda- keppninnar hinn 27. ágúst. Seðill nr. 1 hefur verið sendur aðilum utan Reykja- vikur og nágrennis. Félög i Reykjavik og nágrenni sæki seðilinn á skrifstofu Get- rauna i íþróttamiðstöðinni. Garðabœr — Skrifstofuhúsnœði Skrifstofuhúsnæði óskast i Garðabæ fyrir fræðsluskr if stofu Reyk janesumdæmis. Tilboð sendist i pósthólf 133, Garðabæ fyrir 18. ágúst 1977. Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis. -Hótel Borgarnes . Nýja Pelikan: f.v. ólafur Sigurösson, Ómar óskarsson, Jón Ólafsson, Július Agnarsson, Sören Larsen og Magnús Magnússon. Tveir þeir siðastnefndu konu ekki meö til íslands. Nýja veitingabúðin er opin frá kl. 8.00—23.30. V.ið minnum á okkar rúmgóðu og snyrtilegu hótelherbergi. Pantanir teknar i sima 93-7119-7219 ($cvgameð tlNN HRINGUR HJÁ PEIIKAN OG SVO ÚT í PLÖTUGíRÐ ,,Viö vorum að leita okkur að stil. Við teljum okkur hafa fundið hann”, sögðu liðsmenn hijóm- sveitarinnar Pelikan við Visi. Þeir eru nýkomnir frá Dan- mörku, þar sem þeir hafa dvalið i hálft annað ár og leikið. Þeir leggja áherslu á, að nafn hljóm- sveitarinnar sé her eftir meðk, en ekki c eins og áður. Aðeins einn liðsmaður þeirrar gömlu Pelican er enn eftir,'Omar óskarson. „Okkur langaði bara til að breyta um umhverfi”, sagði Ómar um utanförina. „Við vildum verða fyrir nýjum áhrifum. Og við vorum með mikla tilraunastarfsemi á músfk- Hluti af sýningunni I Norræna húsinu. Til hægri eru nokkrar myndskreytingar úr einni bók Runebergs, en til hægri er svo bókin sjálf. Visismynd: EGE Finnskar bœkur í Norrœna húsinu t Norræna húsinu stendur nú yfir sýning á myndskreytingum við bækur finnska þjóðskáldsins J.L. Runebergs. Sýningin var upphaflega sett upp IFinnlandi i tilefni þess, að á þessu ári eru 100 ár liðin frá dauða Rune- bergs. J.L. Runeberg hefur skilið minna eftir sig en hinn 33ja ára skáldaferill hans gæti gefið til kynna. En hann ruddi á mörg- um sviðum nýjar brautir i finnskum bókmenntum, og myndskreytingar verka hans marka timamót á þvi sviði þar i landi. Gildi J.L. Runebergs sem skálds felst e.t.v. einkum i þvi, að hann vakti i kveðskap sinum ást Finna á þjóðerni sinu og landi. Hann naut mikillar hylli landa sinna frá 1854 og til dauðadags, og jarðarför hans var mjög fjölmenn. Og árið 1899 seldust um 75.000 eintök af striðsljóðasafninu „Fanrik Stals sagner”. Er það e.t.v. eitt besta dæmið um vinsældir Runebergs, sem enn eru miklar. Bók Runebergs, „Dikter”, var fyrsta tagurbókmenntalega verkið, sem gefið var út mynd- skreytt i Finnlandi. Það kom út 1830. Þar var hins vegar ekki um að ræða hreina myndskreyt- ingu bókarinnar, heldur eldri litógrafiu eftir P.O. Goden- hjelm. Merkust allra myndskreyttra útgáfa á verkum Runebergs er skrautútgáfa á „Fanrik Stals sagner”, sem kom út i 10 heftum 1898-1900. Þar eru 120 málaðar eða teiknaðar myndir, 66 vinjettur og 55 skrautupphafs- stafir eftir Albert Adelfelt. Listamenn frá Finnlandi, Sviþjóð, Noregi og Danmörku hafa myndskreytt bækur Rune- bergs, og vitað er um eina franska myndskreytingu við ljóð eftir hann. Sýningin i Norræna húsinu verður opin til 22. ágúst, og auk hennar verður þar jafnlengi sýning á finnskum bókum i eigu safnsins og annarra aðila. —HHH.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.