Vísir - 12.08.1977, Page 6
6
Fösfudagur 12. ágúst 1977 VISIR
Spáin gildir fyrir laugardag.
Hrúturinn,
21. mars-20. april:
bað gengur allt sinn vanagang I
dag og fátt mun lifga upp á
tilverúna. Þér tekst að koma ár
þinni vel fyrir borð.
Nautið,
21. april-21. mai:
Þú skalt trúa varlega þvi, sem
sagt verður við þig i dag, og þær
ráðleggingar,'sem þú færð, eru
ekki sem skynsamlegastar.
Tvibutarnir,
22. mai-21. júni:
ÞúTærð góða hugmynd i dag
viðvikjandi þvi, hvernig þú get-
ur sparað meira. Farðu yfir
gamlar skýrslur, og þú munt
finna þar upplýsingar, sem þig
vantar.
Krabbinn,
22. júni-23. júli:
Þetta er hentugur dagur til að
ræða mikilvæg mál, og taka þátt
i ráðstefnum. Maki þinn eða
félagi kemur með frábæra
uppástungu.
Ljónið,
24. júli-23. ágúst:
Þú færð snjallar hugmyndir við-
vikjandi starfi þinu i dag.
Framkvæmdu þær eftir nánari
umhugsun. Faröu vel með heils-
Meyjan,
24. ágúst-23. sept:
Þú nýtur þess að framkvæma
það sem þér dettur i hug i dag.
Láttu sköpunargleði þina njóta
sin. Einhver leitar ráða hjá þér.
Vogin,
24. sept.-22. növ:
Aflaðu þér meiri upplýsinga um
hvernig fjármálin standa og
fylgstu vel með öllu, sem gerist
heima við. Gefðu þér tima til að
hlusta á maka þinn eða félaga.
Drekinn
24. okt.-22.nóv.
Þú færð eitthvert heimboð, sem
mun gleðja þig mjög. Þú skalt
nota daginn til að selja það sem
þú þarft að losna við.
Bogmaðurinn,
23. nóv.-21. des.
Reyndu að koma i framkvæmd
einhverjum breytingum á hög-
um þinum. Treystu ekki um of á
vini þina. Stundaðu útilif i dag.
Steingeitin,
22. des.-20. jan.:
Leggðu sérstaka áherslu á að
njóta dagsins með ástvini þin-
um það er ýmislegt sem þú get-
ur gert til að betrumbæta um-
hverfið.
Vatnsberinn
21. jan.-19. feb.:
Reyndu að laga þig betur að
umhverfi þinu og aðstæðum, og
taktu þátt i vandamálum ann-
arra. Heimsæktu vini þina og
skemmtu þér.
Fiskarnir,
20. íeb.-20. mars:
Það er alltaf gott að tala um
hlutina og vera ekki að byrgja
allt inni i sér. Þetta er hentugur
dagur til smá ferðalaga.