Tíminn - 13.02.1969, Page 1
Augiýsing í Tímanum
feemtrr daglega fjTÍr augu
80—100 þúsund lesenda.
<vV
tMnwn
36. tbl. — Fimmtudagur 13. febr. 1969. — 53. árg.
Gerizt áskrifendur að
Tknannm.
Hringið í síma 12323.
Litla-Hrauns
málið rætt
á Alþingi
í gær
LL-Reykjavík, miðvikudag.
Á fundi sameinaðs Al-
þingis í dag bar Ágúst Þor-
valdsson fram svohljóðandi
fyrirspurn til dómsmálaráð-
herra:
1. Hvað hyggst dómsmála
ráðherra gera viðvíkjandi
kæru, sem honum hefur
borizt frá nokkrum starfs-
mönnum á Litla-Hrauni um
meint misferli forstöðu-
manns vinnuhælisins,
Markúsar Einarssonar?
2. Er það álit fangelsis-
nefndar, sem skipuð var og
falið að rannsaka þessi mál,
að lausn þeirra sé fengin
með því, að Sigurði Krist-
mundssyni, bryta vinnuhæl-
isins, hefur verið sagt upp
starfi, án nokkurra viðhlít-
andi skýringa?
Pramhald á bls. 14.
FIB ítrekar: afnema ber
leyfisgjald, hækka benzín
Sjómannafélag Reykjavíkur hélt fund í Iðnó, þar sem samkomulagið við útvegsmenn var útskýrt. Atkvæða
greiðsla fer fram í félaginu í dag um samkomulagið. (Tímamynd—GE).
Verkfalli sjómanna mun
sennilega aflýst á kvöld
EJ — Reykjavík, miðvikudag.
Klukkan eitt í nótt var undirritaður samningur milli undirmanna á bátaflotanum og útgerðar-
manna, og var samkomulagið lagt undir fundi í nokkrum sjómannafélögum í dag, en í öðrum á
morgun. Er almennt búizt við að það verði samþykkt. Samkoinulag náðist ekki milli yfirmanna og
útgerðarmanna, og lagði sáttasemjari því fram mála iniðlunartiUögu, sem atkvæði verða greidd um í
félögum yfirmanna og útgerðarmanna í dag og á morgun. Verði samkomulagið og málamiðlunartil-
lagan samþykkt af viðkomandi aðilum, ætti verkfallinu á bátaflotanum að ljúka annað kvöld.
Samkomulagið við undirmenn á
bátaflotanum náðist á samninga-
fundi, sem stóð frá kl. 20,30 á
mánudagskvöldið til klukkan fimm
í nótt. Meginatriði þess samkomu-:
lags eru þessi, að því er bezt
verður vitað:
1. Myndaður skal sérstakur sjóð
ur, sem í reimi 1% af útflutn-1
ingsverðmæti, til greiðslu á fæði'
sjómanna. Skal greiða í fæði 851
krónur hvern úthaldsdag á fiski-:
bátum, sem eru innan við 150
tonn að stærð, en 100 krónur á j
dag til sjómanna á bátum, sem j
eru 151 tonn eða stærri.
2. Bátasjómenn skulu fá aðgang
að iífeyrissjóði, en greiðslur í
hann skulu fyrst hefjast á næsta
ári, og þá aðeins vera 40% vænt
anlegra Iífeyrissjóðsgreiðslna. Ár-
ið eftir, 1971, skal greiða 80%
en árið 1972 fullar greiðslur, sem
eru í heild 10 af hundraði — þ.e.
en
atvinnurekendur greiða 6%
launþegar 4%.
Þegar ljóst var, að yfirmenn
töldu sig ekki geta ritað undir
samkomulag þetta, var sáttafundi
slitið, en nýr fundur boðaður með
yfirmönnum og útgerðarmönnum
klukkan þrjú í dag. Var sá fundur
stuttur; sáttasemjari lagði fram
málamiðlunartillögu sína, sem
felur í sér sömu meginatriði og
samningurinn við undirmenn. Mun
málamiðlunartillagan vera upp á
50 vélritaðar síður.
Klukkan 21 annað kvöld á at-
Framhald á bls. 15.
KJ-Reykjavík, miðvikudag
Fyrir nokkru skrifaSi
stjórn Félags íslenzkra bif-
reiðaeigenda f jármálaráðu-
neytinu bréf þess efnis að
innflutningsgjöld af bifreið-
um verði lækkuð eða afnumin
alveg, en í stað þess verði
veggjald af benzíni hækkað,
þannig að meira fé verði til
ráðstöfunar til vegagerðar í
landinu. Er þetta einskonar
ítrekun á samþykkt lands-
þings FÍB frá 1967.
Það sem mun vaka fyrir stjórn-
armönnum FÍB í máli þessu, er
annars vegar að há innflutnings-
gjöld komi ekki í veg fyrir eðli-
lega endurnýjun á bilaflota lands-
manna, en hann mun nú vera eitt
hvað yfir 40 þúsund bflar, og hins
vegar að meira fé fáist til vega-
mála en hingað til.
Á landsþingi FÍB árið 1967,
sem haldið var í Borgarnesi, var
samþykkt eftii*farandi tillaga
undir liðnum: Tillögur í öryggis-
málum:
„Landsþing FÍB 1967 telur að
afnema beri leyfisgjöld af bif-
reiðum, en í þess stað verði veg-
gjald af benzíni hækkað, sem nem
ur árlegum innflutningsgjöldum.
Þetta mun létta á viðgerðarþjón-
ustu bifreiða, þannig að viðgerða
þjónustan yrði betur unnin og
einnig yrði auðveldara að útrýma
úr umferðinni ýmsum gömlum og
ótryggum farartækjum. Ráðstöf-
un þessi væri því samtímis þjóð-
hagslega heppileg og fæli í sér
aukið umferðaröryggi.“
í anda þessarar tillögu, hefur
FÍB farið af stað nú fyrir nokkru
og mun hin gífurlega hækkun á
bifreiðum vegna gengisfellinga
Framhald á bls. 2.
Nú vantar hjúkrunarkonur í
60-70 stöður á landinu!
FB-Reykjavík, miðvikudag.
Oft er rætt um hjúkrunar-
kvennaskortinn í landinu, og
allt bendir til, að hann sé sízt
minni nú en áður. Nú vantar
hjúkrunarkonur í milli 60—70
stöður af um 340 hjúkrunar
stöðum alls við sjúkrahús úti á
landi og á Borgarsjúkrahúsið
og Ríkisspítalana, samkvæmt
þeim upplýsingum, sem blaðið
nefur aflað sér. I marz næst-
komandi útskrifast 19 lijúkr-
unarkonur úr Hjúkrunarskól-
anum, en að meðaltali hafa 38
hjúkrunarkonur útskrifazt ár-
lega undanfarið. Stækkun
Hjúkrunarskólans hefur aftur
á móti staðið yfir og árið 1970
og þar á eftir ætti að verða
hægt að útskrifa helmingi fleiri
hjúkrunarkonur árlega.
Blaðið hafði samband við 12
sjúkrahús úti á landi og auk
þess við forstjóra skrifstofu
Ríkisspítalanna og framkv.stj.
Borgarsjúkrahússins og fékk
þær upplýsingar að nú vant-
aði samtals milli 60 og 70 hjúkr
unarkonur í stöður, sem þegar
eru fyrir hendi samtals um
340, en auk þess er enn eftir
að taka i notkun nokkrar deild
ir í Borgarsjúkrahúsinu, og á
þær vantar þvi einnig hjúkrun
arfólk. Reyndar má geta þess.
að á Ríkisspítölunum eru ljós-
mæður í störfum hjúkrunar-
kvenna, og lækkar það þvi
nokkuð heildartöluna.
Forstöðukona Hjúkrunarskól
ans tjáði blaðinu, að hingað
til hefðu venjutega útskrifast
38 til 40 hjúkrunarkonur ár-
lega, í tveimur „hollum". Nú
hefur Hjúkrunarskolinn aftur
á móti verið stækkaður, og á
þessu ári munu 74 hjúkrunar-
nemar hefja nám við skólann.
og árið 1970 hefja 88 nám og
frá árinu 1970 ættu að útskrif-
ast um helmingi fleiri hjúkr
unarkonur en nú eru útskrifað-
ar árlega. Mikil aðsókn er að
Hjúkrunarskólanuen, og er t.d.
þegar fullskipað í næstu þrjú
„holl“. þ.e. hópa, sem hefja
nám á þessu ári og sömuleiðis
fyrsta hópinn 1970. Reyndar
vill oft einhver heltast úr lest
inni, þegar svo langt er ákveð-
ið fram í tímann, eins og gerist
og gengur, og er þá tekið inn
í aftur, ef umsókmr berast.
Þess má geta að mjög margar
stúlkur leggja inn ucnsóknir
löngu áður en þær hyggjast
hefja nám t.d. stúlkur sem eru
í menntaskólum, en ætla sér
Framhald á bls. 14.