Vísir - 27.11.1977, Qupperneq 4
„Það var hryllileg
tilhugsun" - b
Dirk Dunbar varð fyrir þvi
óhappi aö slasa sig illa á æfingu
og hefur verið i gifsi i langan
tíma. En nú er þessi snjalli ieik-
maður kominn á fulla ferð aftur
og eins gott fyrir mótherjana að
vara sig á honum.
Dirk Dunbar, leikmaðurinn
sem lið 1S fékk til sin „hefur
ekki átt sjö dagana sæla” sfðan
hann kom hingað til lands. Að
visu gekk allt vel til að byrja
með, og Dunbar setti tslands-
met i stigaskorun i sinum fyrsta
leik hér, skoraði hvorki meira
né minna en 58 stig i leik gegn
Fram. En siðan varð hann fyrir
þvi óhappi að slasa sig illa á æf-
ingu, og allt framundir þennan
dag hefur hann gengið um í gifsi
upp að hné og hvorki getaö æft
né spilað.
„bað var erfið hugsun að
þurfa e.t.v. að fara heim vegna
meiðslanna; ég gat varla hugs-
að þá hugsun til enda. Hér var
mér tekið opnum örmum strax
og ég kom, allir vildu allt fyrir
mig gera. Ég get nefnt sem
dæmi að ég fékk ekki ibúð strax,
en var þá bara tekinn inn á
heimili leikmannanna og þar
borðaði ég og hélt mikið til
fyrstu vikurnar. Ég var yfir mig
hrifinn af öllu sem fyrir augu og
eyru bar, og mig hryllir við
þeirri tilhugsun að ég hefði þurft
að fara heim.
Út að skemmta mér? — Jú ég
hef gert talsvert af þvi, farið
bæði f Óðal og Klúbbinn. Ég
kunni vel við mig á þessum
stöðum, og varð ekki var við
þetta margumtalaða áfengis
vandamál sem ég hafði heyrt
svo mikið talað um. Að visu
drekka Islendingar mikið, og
sérstaklega hratt, en ég tel það
af og frá að hér sé eitthvert gif-
urlegt áfengisvandamál. Svo er
það lika tvennt ólikt hvort menn
eru að sulla i áfengi i tima og ó-
tima eða hvort menn fá sér i
glas um helgar af og til eins og
mér virðist þið Islendingar
gera.
„Standardinn” i körfuboltan-
um hérna er mun hærri en ég
hafði gert mér i hugarl.und. Að
visu hafði ég ekki hugsað mikið
um körfubolta á íslandi, en eftir
að ég ákvað að koma hingað og
hafði rætt við þá Kolbein Páls-
son og Bjarna Gunnar sem
komu i æfingabúðir okkar i
Bandarikjunum fór maður að
gera sér ýmsar hugmyndir um
hvernig körfuboltinn væri
hérna.
Mérhefði t.d. ekki dottið i hug
að breiddin væri svona mikil
sem raun ber vitni, eða að hér
væri jafn góðir leikmenn og þeir
Jón Sigurðsson og Simon Ólafs-
sontþeir eru báðir mjög sterkir.
En við höfum þó tvo bestu mið-
herjana, þá Bjarna Gunnar og
Jón Héðinsson, og ég hlakka
mikib til leikjanna sem i hönd
fara’’
„ALLTAF EINHVERJIR
SiM SKILJA MANN"
— Segir Rick Hockenos þjálfari og
leikmaður Vals
„Ég lít svo á aö ég hafi komið
hingað til þess fyrst og fremst
að hjálpa til við uppbyggingu
körfuboltans, og ef merkja má
framfarir og aukinn áhuga al-
mennings er ég ánægður” sagði
Rick Hockenos þjálfari og leik-
maður með Val.
„Strákarnir i Val hafa gaman
af þvi sem við erum að gera og
leggja sig alla fram á æfingum
og það gerir mitt starf að sjálf-
sögðu mun auðveldara og
skemmtilegra en ella. Mér er
sagt að nú komi mun fleira fólk
á leikina en áður, og það tel ég
vera sönnun þess að við erum á
réttri leiö, enda koma betri leik-
ir strax i kjölfar þess að menn
leggja meira á sig á æfingum en
áður.
Hockenos er sá eini banda-
risku leikmannanna hérna sem
er með fjölskyldu sina með sér,
eiginkonu og 6 mánaöa gamlan
son.
„Við kunnum mjög vel við
okkur, fólkið er vinsamlegt og
hjálplegt i alla staði og okkur er
farið aö finnast að við séum
heima hjá okkur þótt við höfum
ekki dvalið hérna lengi. Við höf-
um ekki farið mikið út á
skemmtanir, förum i göngu-
ferðir daglega og litum i kring-
um okkur og kunnum vel við þaö
sem við sjáum.
Auðvitað söknum við okkar
fólks i Bandarikjunum, en þó er
bót i máli að félagarnir i Val eru
svo vinsamlegir að okkur leiðist
alls ekki. bað kemur þó fyrir að
okkur langar heim, sérstaklega
konuna. Við erum hérna með
ungan son okkar, og við vitum
að afar hans og ömmur eru
spennt að sjá hann, enda er
hann eina barnabarnið þeirra”.
Við víkjum nú talinu aðeins að
körfuboltanum á ný.
„Ég er sannfærður um að Is-
landsmótið verður mjög jafnt og
spennandi og mörg liö eiga
möguleika á sigri, og að sjálf-
sögðu stefna allir á toppinn. bað
verða þó lið Vals, KR, 1S og
UMFN sem ég held að berjist
um tslandsmeistartitilinn.
Jú, ég hef séð marga mjög
góða leikmenn hérna. Ég get
nefnt Jón Sigurðsson, KR, sem
er mjög góður, Kristin Jörunds-
son 1R sem er ákaflega erfiður
andstæðingur, Bjarna Jóhann-
esson KR og Einar Bollason og
fleiri mætti að sjálfsögðu telja”.
Rick Hockenos þjálfari og leik-
maður Vals: „Ég lít svoá að ég sé
fyrst og fremst kominn hingað til
þess að hjálpa til við uppbyggingu
körfuboltans”.
Hockenos sagðist hafa mjög
gaman af þvi að fást við þjálfun
yngri flokkanna i Val, og þrátt
fyrir ungan aldur þeirra yngstu
væru engin teljandi vandræði að
fá strákana til að skilja sig.
„bað eru alltaf einhverjir sem
skilja það sem ég er að segja og
þeir túlka þá bara fyrir hina”
sagði Rick Hockenos að lokum.
Tveir spenntir. KR-ingurinn Andrew Piazza og ArmeB
Wood fylgjast hér spenntir með vitakasti i leik liðanna á»
HVAÐ SEGJA ÞEIR?
Við fengum nokkra
leikmenn og forráða-
menn þeirra félaga
sem hafa bandariska
körfuknattleiks menn
innan sinna raða til að
segja okkur af reynslu
sinni i þvi efni.
Kolbeinn Pálsson KR:
— Ég er mjög ánægður með
Andrew Piazza, bæði sem leik-
mann og þá ekki siður sem
þjálfara. Hann hefur aö visu átt
misjafna leiki með okkur, en
sýnt að hann er frábær þjálfari.
bessir menn hafa flutt með sér
nýtt blóð'i körfuboltann hérna ef
svo má segja. Nú er lika að
koma hér upp allt önnur tegund
af körfubolta en var, miklu
meiri hraði og pressuvörn leik-
in, og þetta er skemmtilegasti
körfubolti sem hægt er að leika
fyrir áhorfendur.
begar við réðum Piazza til
okkar var það fyrst og fremst
vegna reynslu hans sem þjálf-
ara. Hann hefur lika sýnt að
hann á eftir að skilja eftir sig
djúp spor hérna hjá okkur, þar
er svo sannarlega á feröinni
maður sem kann sitt fag.
Sigurður bórarinsson formaður
Körfukn. dcildar Vals:
— Ég er sannfærður um aö
þetta er það sem koma skal i
körfuboltanum, enda likar okk-
ur mjög vei við Hockenos, bæði
sem leikmann, þjálfara og fé-
laga. Staðreyndin er sú, að það
hefur reynst mjög erfitt að fá
þjálfara fyrir meistaraflokkslið
okkar undanfarin ár, hvað þá
fyrir yngri flokkana, en þessir
menn þjálfa alla flokka.
Að visu er kostnaðurinn mik-
ill, en miðað við aðra þjálfara,
t.d. i knattspyrnu og handbolta,
er þetta ekki dýrt fyrirtæki.
betta eru peningar sem skila
sér aftur og þessu á skilyröis-
laust að halda áfram. Rick
Hockenos er mjög góður þjálf-
ari og auk þess frábær leikmað-
ur. Hann spilar sem einn af lið-
inu, og litur ekki stðrt á sjálfan
sig. Hann mun án efa rifa körfu-
boltann upp hjá okkur i Val.
Bjarni Gunnar IS:
— Ég hef aldrei farið leynt
með það að það er mikill kostur
að hafa hér leikmenn og þjálf-
ara, jjessir menn flytja með sér
nýtt blóð i körfuboltann hérna.
En það sem skiptir e.t.v. mestu
varðandi veru þeirra hérna er