Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 14

Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 14
14 Sunnudagur 27. nóvember 1977 "N. - RÆTT VIÐ GISLA RUNAR JON Viðtal: Póll Pólsson Myndir: Jón Einar Guðjónsson og Kristinn Ólafsson Á dögunum gáfu S.G.- hljómplötur út langspil með Gisla Rúnari Jóns- syni. Nefnist platan Blessað strfðið sem gerði syni mína rika. Þar f jall- ar Gísli Rúnar á léttan og skemmtilegan hátt um hin viöburðarríku ár seinni heimsstyrjaldar- innar og hin örlagaríku spor sem þau mörkúðu í islenskt þjóðlif. Allt efni er samið og sungið af Gisla Rúnari, en einnig leggja fram raddir sínar Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) í Verðlaunalagi Ríkisút- varpsins og eiginkona og dóttir Gisla, Edda Björg- vinsdóttir og Eva Dögg, í Útlegð í Síberíu, Saknað- arsöngur og Þetta er in- dælt strið. Lög plötunnar eru öll erlend og er hljóm- sveitarstjórn og útsetning þeirra verk Magnúsar Ingimarssonar. Hljóðrit- un og hljóðblöndun fór fram í Tóntækni h.f. í júní-júlí 77. Helgarblaðið heimsótti Gísla Rúnar fyrir skömmu, renndi með honum i gegnum plötuna og átti við hann eftirfar- andi viðtal. — Hver er aödragandi plötunnar? Gisli: Ég hafði hugsað mér að gera plötu á þessu ári. Hugmyndir um efnis- val lágu fljótlega fyrir eða i lok janúar. Hins vegar var ég um þær mundir að setja upp leik- rit fyrir M.T. sem haml- aði frekari vinnslu þar til i aprilbyrjun. Þá hófst undirbúningsvinnan sem var i fyrstu fólgin i dag- blaðalestri. Ég renndi i gegnum dagblöð striðsár- anna niðr’á Landsbóka- safni og sat þar að meðal- tali annan hvern dag i u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Einnig las ég bækur sem fjölluðu um timabilið og spjallaði við fólk sem upplifði ástand- ið, en mér til furðu reynd- ist afar erfitt að fá það til þess að leysa frá skjóð- unni og segja eitthvað af viti. Annað hvort vissi það ekki neitt eða var of flækt i málið til þess að vilja nokkuð um það segja. Ég lagði mig mikið fram við að kanna málin til hlitar, þvi ég vildi vera viss um að ég væri ekki að fara með neitt fleipur. Þó ber ekki að lita á plötuna sem sagnfræðilega heim- ild, heldur styðst hún við sannsögulega atburði sem færðir eru i stilinn. 800 plötur Siöan valdi ég tónlist- ina, sem var heilmikið verk. Ég hugsa að það láti nærri að ég hafi hlust- að á 800 plötur i þessum tilgangi. Flestar voru 78sn. plötur sem ég fékk lánaðar á óliklegustu stöðum. Ég hlustaði á allrahanda listamenn t.d. Ink Spots, Mills bros. og Lauriel and Hardy, sem Danskurinn kallar Gög og Gokke, eiga tvö lög á plöt- unni. Valið var ekki auð- velt að þvi leyti, að flest lög þessara ára eru hug- ljúfar og rómantiskar stemmningar, sem virka heldur væmnar á okkar dögum. Það var aðallega hjá A1 Jolson og Spike Jones sem ég fann þann hressileika sem ég sóttist eftir. Ég geri einnig mikið af þvi að skeyta saman lagstúfum. Ekki Ijóðskáld — Ég sé að þú kallar textana leir en ekki ljóð, — hvernig stendur á þvi? Gisli: Ég lit ekki á mig sem ljóðskáld, heldur nokkurs konar leirbera, ef svo má að orði komast. Hið háttbundna form ljóðlistarinnar er látið lönd og leið og rimi bregður fyrir nánast af tilviljun. Astæðan fyrir þessu er sú að textunum er fyrst og fremst ætlað að vera fyndnir og skemmtilegir. Það er ákaflega hæpið, að minu áliti, að hinn hefðbundni still rúmi nútimahúmor án þess að stemmningin verði of hátiðleg og missi þ.a.l. marks. Skemmtileg albúrru- vinna Að undirbúningsvinnu lokinni og eftir að frum- drög leirsins lágu fyrir, hófst geysileg vinna við gerð umslagsins, en hverju atriði plötunnar, sem eru 31, fylgir mynd á albúminu. Finna þurfti góða staði til ljósmyndun- ar, gera búninga, fá lán- aða bila, húsnæði o.fl. i þeim dúr. Ég vann þetta að lang mestu leyti sjálf- ur t.d. öll andlitsgervin og hafði mikla ánægju af. Tragedía stríðsár- anna Lestur minn um um- rætt timabil opnaði augu min fyrir þvi, hvað þetta var i rauninni mikil tragedia fyrir íslendinga, en ekki huggulegur Charleston einsog sumir virðast halda. Ég get nefnt sem dæmi að skips- skaðar voru tiðir á þess- um árum, en margir voru skotnir niður á ferðum sinum um viglinuna. Sjó- mennirnir fengu enga áhættuþóknun eða trygg- ingu framanaf. Ráða- menn brugðust hinir verstu við ef þetta var fært i tal, t.d. kallaði Jón- as frá Hriflu það „hræðslupeninga” og brigslaði farmönnunum um ragmennsku og hæddi þá á alla lund. Bretar buðu okkur hervernd, en hertóku landið er hún var afþökkuð. Svo kom Kan- inn og átti að leysa Bret- ana af. Báðir lofuðu að fara að loknu striði, en okkur hefur gengið nokk- uð erfiðlega að fá Kanann til að efna það heit. Einn- ig var mikið tragedia i bæjarlifinu. A ég þar við hæ þu... Hæ þú

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.