Vísir - 09.12.1977, Side 3
VISIR Föstudagur 9. desember 1977
3
r NŒG
:FRHnfff
Námsmenn mcft kröfuspjöld sin viö Alþingi í gær. Visismynd ÓT.
Námsmenn herja
á alþingismenn
Stúdentar fyfktu liði
fyrir framan Alþingis-
húsið i gær til að leggja
áherslu á kröfur sinar
um hærri og hagstæð-
ari námslán. Eins og
venjulega fór þessi
kröfuganga stúdenta
friðsamlega fram, þótt
stúdentar tækju sér i
munn orð sem aðrir
borgarar nota sjaldan
um Alþingi.
Þarna voru fluttar nokkrar
ræður og einnig dreift upplýs-
ingablöðum til vegfarenda sem
áttu léið framhjá. Þar var mál-
staður námsmanna kynntur og
segir þar meðal annars:
Námsmenn hafa mjög oft rek-
ið sig á, að hugmyndir almenn-
ings um það, sem fram fer inn-
an veggja framhaldsskólanna,
eru byggðar á miklum misskiln-
ingi.
Sömu sögu er aí segja um hug-
myndir fólks um námslánin.
Meðal annars til að leiðrétta
þennan misskilning gefum við
námsmenn út þetta dreifirit.
Þvi hefur stundum verið hald-
ið fram, að námsmenn geti
fengið ótakmörkuð námslán án
þess að skila nokkrum náms-
árangri. Þetta er alls ekki rétt.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna fylgist mjög náið með
þvi að lánþegar skili fullum af-
köstum i námi og verða þeir að
skila vottorðum um öll sin próf,
annars fá þeir ekki lán.
Tillit tekið til tekna.
Annar misskilningur er sá að
lán séu veitt án alls tillits til
tekna og þannig geti námsmenn
haft ótakmörkuð fjárráð.
Hið sanna i þessu máli er, að
námsmenn mega einungis hafa
100 þúsund krónur i laun á mán-
uði i sumarleyfinu. Hafi þeir
meira dregsthver einasta króna
þar yfir frá láninu.
A þessu sést, að fari náms-
maður yfir lágmarkstekjur i
þjóðfélaginu, er honum refsað
með lægri lánum.
1 dreifibréfinu eru svo nefnd
tvö dæmi um lán til náms-
manna. Hið fyrra er um náms-
mann sem er utan foreldrahúsa
og um hann segir:
Lánasjóðurinn metur fjárþörf
námsmanns á kr. 82.300 á mán-
uði. Af þessari upphæð lánar
hann svo 85 prósent eða kr.
69.955. Ef námsmaöurinn hefur
þrjá mánuði i sumarleyfi og
vinnur sér inn 400 þúsund krón-
ur, fær hann i lán kr. 530.000.
Hann hefur þvi að meðaltali
77.500 krónur til áð lifa af á
mánuði á sama tima og
lágmarkslaun einstaklings eru
talin 100 þúsund kr. á mánuði.
Námsmenn eru sem sagt ekki
taldir hafa sömu fjárþörf og
aðrir.
Enginn forréttindahóp-
ur
Siðara dæmið er um hjón i
námi, með tvö börn. Um þau
segir: Lánasjóðurinn metur
fjárþörf þeirra eins og einstak-
linga, þ.e.a.s. hann lánar þeim
kr. 69.955 á mánuði hvoru um
sig og tekur þar af leiðandi ekk-
ert tillit til barnanna.
Ef þau hafa hvort um sig 4
mánaða sumarleyfi og vinna sér
inn samtals 700 þúsund krónur,
fá þau i kán kr. 1.120.000. A
sama tima er þörf visitölufjöl-
skyldunnar talin kr. 2.225.000.
Þau eru rúmlega visitölufjöl-
skylda, hvernig eiga þau að
brúa bilið, hvar eiga þau að fá
tæpa hálfa milljón?
Siðan segir i dreifibréfinu: A
þessum tveimur dæmum sést
greinilega að námsmenn eru
langt frá þvi að vera for-
réttindahópur i þjóðfélaginu,
enda ætlast þeir alls ekki til
þess.
Hinsvegar ætlast þeir til þess
að þeir geti búið við
mannsæmandi kjör. Við skulum
gera okkur grein fyrir þvi að
námslán eru einu lánin i
þjóðfélaginu, sem eru að fullu
visitölutryggð og greiðast þar af
leiðandi að fullu til baka.
Vinkuðust á
Námslán eru ekki notuð til að
fjárfesta i steinsteypu heldur
eru þau notuð til kaupa á nauö-
þurftum. Þess vegna viljum við
ekki una visitölutryggingunni,
sem er mun hærri en allra hæstu
vixilvextir.
Við viljum heldur ekki una
þvi, að ekkert tillit sé tekið til
barna námsmanna, það kostar
sitt að fæða þau og klæða, eins
og önnur börn. Við viljum þvi að
barnafólk fái hærri lán.
Að lokum viljum við að þarfir
námsmanna séu metnar á við
þarfir annarra þjóðfélags-
þegna. Við lifum ekki á 69.955
krónum á mánuði fremur en
aðrir. Við viljum amk. fá þær
82.955 kr., sem Lánasjóður
telur að við þurfum.
Nokkrir forvitnir þingmenn
kiktu út um glugga þinghússins,
meðan námsmenn héldu þar
ræður sinar, og veifuðu mót-
mælendurnir þá ákaft spjöldum
sinum og rauðum fánum.
Þingmenn voru jafn óræðir á
svipinn og framhlið Alþingis-
hússins.
ÓT.
Norðurlands-
trómet,
þýðing
og formáli eftir
dr. Kristján Eldjárn
Petter Dass (1647-1708) er yfirleitt talinn
höfuðskáld Norðmanna allar götur frá mið-
öldum og fram á 19. öld. Þetta álit á hann mest
að þakka kvæðabálknum Norðurlandstrómet,
sem hann er sagður hafa verið tuttugu ár að
yrkja. Kvæðið er einskonar þjóðarkvæði Norð-
manna. Við Islendingar eigum að vísu ekkert
kvæði, sem samsvari þessari miklu norsku
lands- og þjóðlífslýsíngu, en eins og þýðandi
bendir á í formála eigum við til frá sama tíma
svipaðan skáldskaparstíl, til dæmis í kveðskap
séra Bjarna Gissurarsonar og veraldlegum
kvæðum séra Hallgríms. Þar skiptast á raun-
sæjar lýsingar daglegs lifs og skrautlegar ýkj
ur, hátíðlegar aðfinnslur og stundum galsa-
fenginn húmor. Petter Dass færist miklu
meira í fang í lýsingum sínum en hinir is-
lensku samtíðarmenn hans. Hann var prestur
að Álastarhaugi á Hálogalandi og tekur í
kvæðinu iesandann með sér í kynnisferð um
prestakall sitt og Norður-Noreg allan. Ekki
fer hjá því, að margt í frásögn hans minni oss
Islendinga á eigið líf og sögu. Hann lýsir
landslagi,veðri,gangi sjávar, fuglum, fiskum.
Og ennfremur fólkinu, sem þarna býr, störf-
um þess, bjargræði, mataræði, veislusiðum.
Óll frásögnin ber vott um ást hans á landi og
þjóð og sterka innlifun í daglegt amstur
manna og umhverfi. Honum tekst upp i
lýsingum á stórbrotnu náttúrufari og land-
kostum, hann segir landslýðnum til syndanna
ýmist með kostulegu skopi eða einlægum um-
vöndunum. Hann er skemmtilegastur, þegar
styst er milli öfganna og saman fara vísinda-
legar ályktanir og uppbyggilegar útleggingar,
hraustleg gamansemi og sú nákvæma þjóð-
lifslýsing, sem er uppistaða kvæðisins.
Dr. Kristján Eldjárn hefir þýtt kvæðið af mál-
snilld og fræðimannlegri þekkingu og skrifað
frábæran formála.
Kjartan Guðjónsson myndskreytti bókina af betri list en við eigum
yfirleitt að venjost í bókarlýsingum
Hagleiksverk Hjólmars í Bólu
er falleg gjafabók
HELGAFELL