Vísir - 09.12.1977, Blaðsíða 5

Vísir - 09.12.1977, Blaðsíða 5
réttar rikisins á rekstri útvarps hefur hlotið fylgi i öllum flokk- um. Mynduð hafa verið samtök heirra, sem fylgjandi eru frjáls- um útvarpsrekstri, — undir for- | ystu eins frammámanna i flokki I Giscard D’Estaings forseta. Gaullistar eru að þvi er virðist fylgjandi frjálsari afnotum á öldum ljósvakans. En þeir mundu þó krefjast þess, að haft yrði tæknilegt eftirlit með þvi, að ekki yrði alltof mikill erill i ! loftinu. Lýðveldissinnar vilja gefa út- varpsrekstur frjálsan. Mið- flokkarnir eru á þvi, að timi einkaréttarins sé útrunninn, þar sem hann hafi gert sitt gagn. Socialistar vilja gjarnan, að byggðarlöginkomisér uppeigin heimaútvarpsstöðvum. Og kommúnistar hafa lengi verið andvigir einkaréttinum. Meðal fyrstu umbótanna, sem D’Esaing forsetibeitti sér fyrir, þegar hann náði forsetakjöri fyrir þrem árum, var skipta rikisútvarpinu upp i fimm sjálf- stjórna deildir. Þrjár sjón- varpsstöðvar með eigin rásir, hljóðvarpið og TDF, sem býr til dagskrár fyrir hina. Hugmyndin var sú, að þetta nýja skipulag mundi vekja upp samkeppni milli deildanna, án þess að grafa undan rikiseinka- réttinum. Reyndin varð hins- vegar sú, eins og sýndi sig i um- ræðum i franska þjóðþinginu i siðasta mánuði um fjárveiting- ar til útvarpsmála, að allir ilokkar af ýmsum ólikum ástæðum eru mjög óánægðir með þetta skipulag. Niðurstöðunni i máli Radio Fil Bleu hefur verið vel fagnað if ýmsum, sem rekið hafa smá- itöðvar, eins og til dæmis hópar jfgasinnaðra vinstrimanna, itúdentar. og fleiri. Slikar stöðv- ir hafa sent út af og til allt þetta ir. Það er ein starfandi á Mont- nartre i Paris, önnur er i Lille og hefur sent út hamingjuöskir ilRadioFilBleu), ogaf sölu lit- lla senditækja, sem kosta 240 júsund krónur, má vænta að 'leiri smástöðvar séu i uppsigl- ngu. Jean Autin, formaður út- /arpsráðs (TDF), lét eftir sér íafa um helgina, að þetta kynni ;kki góðri lukku að stýra. Taldi aann hættu á þvi, að endurtæki sig i Frakklandi sama sagan og gerðist á ttaliu. En þar eru i gangi um 2,000 sjóræningja- stöðvar. S.Þ. for- dœma morðið á Biko Allsher jarþingið for- dæmdi harðlega i gær- kvöldi //ólöglega handtöku/ varðhald og pyndingar# sem leiddu til morðs" á Stephen BikO//af erindrek- um minnihlutast jórnar kynþáttahatara í Suður- Afríku". í ályktuninni, sem samþykkt var, var jafnframt krafist þess að ..minnihluta aðskilnaðarstjórn- in” léti lausa alla pólitisk? fanga skilyrðislaust, og aflétti öllum bönnum og stofufangelsunum andstæðingá aðskilnaðarstefn- unnar. Ennfremur að þegar yrði bundinn endi á „ofbeldisaðgerðir gegn friðsamlegum mótmælum gegn aðskilnaðarstefnunni og ei- lifum pyndingum á pólitiskum föngum”. Sú sannfæring kom fram i ályktuninni. að ..pislarvætti Step- hen Biko og annarra þjóðernis- sinna, sem myrtir hefðu verið i fangelsum Suður-Afriku” og þær hugsjónir, sem þeir hefðu barist fyrir, mundu efla ibúa Suður- Afriku og annars staðar i heimin- um i baráttu þeirra gegn að- skilnaðarstefnunni og fyrir jafn- rétti kynþáttanna. Norðmenn reka útlenda togara úr Barentshafí Breskum togurum var fyrirskipað i gær að verða á brott úr norska hluta Barentshafsins, og hafði þó EBE áður sagt þeim, að Norð- menn hefðu fallist á, að þeir mættu veiða þar áfram. „Þetta er rétt eitt klúðrið enn hjá þeim i skrifstofunum i Brússel,” sagði talsmaður breskra útgerðarmanna við Reuter i Hull. Útgerðarmenn i Hullsegja, að milli fimmtán og tuttugu togar- ar séu verkefnalausir eftir þessa ákvörðun Norðmanna, og kosti það útgerðhvers skips um 2.000 sterlingspund á dag. Norðmenn létu hætta veiðum i Barentshafi 1. nóv., þegar þeir sögðu að fiskveiðiþjóðir EBE hefðu fiskað upp i kvóta. Siðar sögðust Frakkar hafa misreikn- að afla sinna skipa, svo að Norð- menn leyfðu veiðar að nýju (allt að 2.650 smálestum) með þvi skilyrði, að ekki yrði sótt á mið- in við Spitzbergen og Bjarnar- eyju. Frakkar afþökkuðu sinn hluta af kvótanum og var hon- um þá skipt milli Bretlands og V-Þýskalands. Hartling yfírmaður fíótta- manna- hjálpar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi i gær Poul Hartl- ing, fyrrum forsætisráðherra Dana, til þess að gegna næstu fimm árin embætti yfirmanns flóttamannahjálparinnar. Tekur hann við starfi 1. janúar. Það var Kurt Waldheim fram kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna sem stakk upp á Hartling til embættisins. Hartling leysir af hólmi Sadruddin Aga Khan, prins sem gegnt hefur þessu embætti siðan 1966. — Aðalskrifstofur flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru i Genf. Soares Ijœr ekki máls á nýrri stjórn fyrir sig og ríkisstjórn sina hjá Eanes forseta Portúgals i gær. Eanes ráðfærði sig við leið- toga þriggjá stærstu stjórnar- andstöðuflokkanna i gær, en þeir felldu traustsyfirlýsingu til handa stjórninni á þingi i fyrra- dag, og bundu þannig enda á stjórnarferil sósialista. Dr. Soares féllst á, að fara með stjórn áfram, þar til ný rikis- stjórn hefði verið mynduð. Hann sagðist ekki mundu taka boði um að mynda aðra rikisstjórn sjálfur, fyrr en stjórnartilraunii annað hvort hægri-manna eða kommúnista hefðu mistekist. Og þá mundi hann þvi aðeins taka slikt að sér, að hann gæti reitt sigá stuðning þingsins við þær sparnaðarráðstafanir, sem hann og stjórn hans höfðu á prjónunum. Mario Soares for- sætisráðherra lagði fram lausnarbeiðni Mario Soares forsætisráöherra kunngerir afsögn sina, en fer áfram með stjórn til bráða- birgða. COLOMBO GIFTUR Eins og skýrt var frá í fréttum/ gekk leikarinn Peter Falk (aöalhetja Colombo-leynilögregluþátt- anna) aö eiga leikkonuna, Shera Danese, á dögun- um. — Myndin hér var tekin, þegar þau voru á leið út úr kirkjunni í Beverly Hills að lokinni vígsluat- höfninni. Er nó dýfing- armeistari Sergei Nemtsanov, ungi rússneski dýfingar- meistarinn, sem vakti heimsathygli á ólympíu- leikunum í Montreal ’76 þegar hann strauk, en snéri svo heim til Sovét- rikjanna aftur, ávann sér i fyrradag meistara- titil Sovétrikjanna i dýfingum. Timaritið SovétSportskýrir frá þvi að Nemtsanov, sem nú er átján ára, hafi unnið sovéska meistaramótið i dýfingum i Elektrostal (skammt austur af Moskvu). — Ekkert var minnst á brotthlaupið i Montreal. Þegar Nemtsanov snéri á sin- um ti'ma aftur til Sovétrikjanna, sex vikum eftir að hann strauk Ur búðum sovésku iþróttamannanna og bað um landvist i Kanada, sögðu sovéskir embættismenn að honum yrðu veittar ákúrur en ekkert alvarlegra mundi gerast. Hér birtist síöari hluti hins mikla ritverks um sævík- inga fyrri tíma viö Breiöa- fjörð, sannar frásagnir mikillar sóknar á opnum bátum við erfiðar aðstæður, sem stundum snerist upp í vörn eða jafnvel fullan ósig- ur. Nær hvert ár var vígt skiptöpum og hrakningum, þar sem hinar horfnu buðu óbliðum örlögum byrg inn, æðru- og óttalaust. Afl- raunin við Ægi stóð nánast óslitið árið um kring og þessir veðurglöggu, þraut- seigu víkingar, snillingar við dragreipi, tóku illviðrum og sjávarháska með karl- mennsku, þeir stækkuðu í stormi og stórsjó og sýndu djörf- ung í dauðanum, enda var lif þeirra helgað hættum. — Um það bil 3000 manna er getið i þessu mikla saf ni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.