Vísir - 12.12.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 12.12.1977, Blaðsíða 2
2 Mánudagur 12. desember 1977 VISIR SPEGLAR ÁSTRÍKUR GRUND- VALLAR- BOÐSKAP sér á eigin'spýtur. Þannig sér hinn dæmigeröi Fransmaöur sjálfan sig helst, og það er ein- mitt það, sem útlendingar dá hvað mest i fari hins dæmigerða Frakka. Goscinny brást venjulega hart við og þverneitaði, þegar fólk færði i tal við hann, að það sæi siðapredikanir og pólitiskan boðskap i sögunum um Astrik. ,,Ég er aðeins að reyna að hafa ofan af fyrir fólki,” sagði hann sjálfur. Óvist er þó hvort hann hefði andmælt Alain Peyrefitte, dómsmálaráðherra, i eftirmæl- um um höfund Astriksbókanna, þegar hann sagði að Astrikur speglaði grundvallarboðskap de Gaulle hershöfðingja. Nefnilega að Frakkar verði umfram allt að vera áfram af öllu hjarta Frakkar. DEGAULUE? De Gaulle hershöfðingi sagði eitt sinn að sá eini< sem veitti honum ein- hverja keppni um hylli al- mennings í frönskumæl- andi löndum# væri teikni- söguhetjan Tinni. Þetta var misskilningur hjá Frakklandsforseta. Það var ekki Tinni, þótt frægur væri. Það Var önnur teiknimynda- hetja þó. Lltill skeggjaður Galli með vængjahjálm á höfði, belgiskrar ættar og kallaður Astrikur af milljónum barna um allan heim. Þeir félagar Astrikur og Steinrikur hinn digri vopna bróðir hans, eru nú sennilega á hátindi frægðar sinnar. En i sið- asta mánuði fóru tryggir aödá- endur þeirra að taka eftir þvi við lestur framhaldsteikniþátt- anna i blöðum álfunnar að það var eins og skærasti neistinn hefði slokknað i ævintýramynd- unum, sem á tæpum tuttugu ár- um hafa áunnið sér sess við hliðina á Mikka mús, Súper- manni og öðrum hetjum teikni- myndanna. Það lá að. Þeir félagar misstu nefnilega föður sinn og skapara René Gbscinny, i byrjun siðasta mánaðar. Belginn Goscinny fæddist i Paris en var flest ungdómsár sin i Argentinu og Bandarikjun- um. Hann var fimmtiu og eins árs þegar hann lést af hjarta- slagi, þar sem hann var að stiga þrekhjól við lækniseftirlit og heilsugæslu. Skömmu fyrir dauða sinn hafði Goscinny gert samninga um að Astrikur birtist i 115 ame- riskum blöðum, sem eiga sér daglegan lesendahóp nálægt 50 milljónum. í fyrra framleiddi hann sina fyrstu Astrikskvik- mynd. Gefnar hafa verið út tuttugu og þrjár Astriksbækur siðan Giscinny gekk i félag með listamanninum Albert Uderzo árið 1959. Þær hafa verið þýddar á tuttugu tungumál, þar á meðal islensku og japönsku. Hver út- komin Ástriksbók selst i að minnsta kosti l,5milljónum ein- taka i fyrstu útgáfu og allt að þrem milljónum eintaka I endurprentunum. Astrikur og félagar eru allir Gallar sem búa i Gaulverjabæ á Bretaniuskaga eina blettinum á jarðarkringlunni sem hinum sigursælu Rómverjum hefur ekki tekist að leggja undir sig. Þaö er að þakka seiðkarlinum, Sjóðrik, sem lumar á mögnuð- um seið. Kyngimagnaður kjarnadrykkur hans gæðir Gallana slikum fidonskrafti að hersveitir Sesars verða eins og fis i höndum þeirra. Inn i þessar frásagnir frá fornöld fléttaði Goscinny nútimanum með góð- látlegu spéi, sem höfðar jafnt til fullorðinna sem barna. Hvað gerir þennan smávaxna ófriða Galla svona vinsælan? — Þegar René Lévesque, forsætis- ráðherra Quebec, kom i heim- sókn til Parisar fyrir nokkru, kynnti hann sig fyrir franska þinginu sig sem vestanhafs Ást- rik umkringdan enskumælandi hersveitum. — Astríkur hefur á sér hið sjálfsörugga yfirbragð Frakkans sem kann að bjarga ATT ÞU GAMLA MYNDAVÉL? VIÐ SÖFNUM GÖMLUM MYNDAVÉLUM í ÞVÍ SKYNI AÐ KOMA UPP SAFNI SEM SEGIR SÖGU M YNDA VÉLARINNAR Á ÍSLANDI Við bjóðum þér nýja AGFA Autostar instamatic myndavél og fílmu að auki fyrir aðeins kr. 4000, ef þú leggur inn gömlu myndavélina. Hún má vera skemmd og/eða biluð. Keyptu jólagjöfina með mvnrlnvplSnnni Sjónvarpsfœtur SUÐURLAIMDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 - 105 REYKJAVlK

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.