Vísir - 12.12.1977, Page 3

Vísir - 12.12.1977, Page 3
vism Mánudagur 12. desember 1977 3 FÆR KÍRÓPRAKTORINN NÚ LÆKNINGALEYFI? „Það má vera að um- ræður um kiropraktor- inn hafi orðið til að ýta á eftir frumvarpinu, en það er ekki lagt fram vegna hans”, sagði Ólafur ólafsson land- læknir i samtali við Visi. Akvæði um takmarkað lækn- ingaleyfi féll af slysni ilt úr læknalögunum, þegar þau voru endurskoðuð fyrir þrem árum. Nú hefur verið lagt fram á Al- þingi frumvarp þar sem þetta ákvæði er tekið inn aftur. Eins og kunnugt er var farið fram á það við ungan kfróprakt- or, sem hóf störf i haust, að hann hætti starfsemi sinni, þar sem ekki var hægt að veita honum takmarkað lækningaleyfi. Varö hann þegar við þeim tilmælum. Ólafur ólafsson sagði að upp- taka ákvæðisins þýddi ekki aö kirdpraktorinn fengi takmarkað lækningaleyfi. Hins vegar væri slæmt að geta ekki notað þetta ákvæði um nýjar stéttir innan heilbrigðiskerfisins á meðan verið sé að ganga úr skugga um það hvernig þær reynast. Til dæmis væri aö koma heim fólk, sem hefði lært sjúkraflutninga og samkvæmt núgildandi lögum væri erfitt að meta hvað ætti að gera I sambandi við það. Meöan ákvæði um takmarkað lækningaleyfi er ekki í læknalög- um, þarfað setja sérstök lög fyrir hverja nýja stétt aö óreyndu, en áöur haf a slik lög diki veriö gefin út fyrr en reynsla hefur komið á störf viökomandi starfsstétta. Akvæöi sem þetta eru yfirleitt i læknalögum nágrannaþjóöa okkar. —SJ Vilja talstöðv- ar fyrir fatlaða Félagsfundur Sjálfsbjarg- ar, félags fatlaðra i Reykja- vik sem nýlega var haldinn, beinir þeim tilmælum til hæstvirts Alþingis, að unnið verði aö þvl, á þessu Alþingi sem nú situr, að mikið fatlaðir ökumenn fái tal- stöðvar i bifreiðar sfnar, þeim að kostnaöarlausu. Heims um ból sungið af 18 ára Reykjavíkurmœr Þaö koma út fleiri hljóm- plötur núna fyrir jólin en þær sem popphljómlistarmenn leika á. Elsa Waage heitir 18 ára Reykvikingur sem sung- ið hefur nýlega inná tveggja laga hljómplötu með lögun- um Heims um ból og Nýárs- sálmur. Plata þessi er til orðin með nokkuð óvenjulegum hætti. Fyrir nokkrum mánuðum var staddur hér á landi hol- lenskur maður Louis Schuw- er að nafni. Eftir að hafa kynnt sér að nokkru kristi- legt æskulýðsstarf hér, kviknaði hjá honum sú hug- mynd að gefa Elsu Waage undirleik 30 manna kórs og hljómsveitar. Dóttir manns- ins hafði sungið þessi lög á hollensku, og hugmyndin var að sami undirleikur væri notaður fyrir Elsu. Stakk hann uppá að kristilegt æskulýðsstarf nyti góðs af hagnaði af sölu plötunnar. Hljómplata þessi er ekki til sölu I verslunum i almennum hljdmplötuverslunum heldur af þeim æskulýðsfélögum sem sjálf njóta alls ágóða af sölu hennar. Hún fæst einnig á skrifstofu KFUM og K, Bókabúðinni Grimu i Garða- bæ Kirkjufelli, Ingólfsstræti 6, Bólstrun Ingólfs, Austur- stræti 6 og Skóverslun Steinars Waage Domus Medica. Nokkur fyrirtæki hafa keypt nokkuð magn af plöt- unni til jólagjafa, sér I lagi til erlendra viðskiptavina. Umslagið prýðir litmynd af kapellunni i Vatnaskógi og litil mynd af Elsu. A bakhlið eru textar laganna á is- lensku. — GA Lœkurinn góði ekki eins vinsœll og óður Lækurinn I Nauthólsvik virðist hafa misst aödráttaraf! sitt að miklu leyti. Að minnsta kosti hef- ur aösókn I lækinn minnkað að miklum mun eftir að breytingarnar voru gerðar við hann. Vel má vera að veöráttan eigi þarna nokkra sök. Páll Eiríksson aðalvarðstjóri hjá lögrcglunni sagði Isamtali við blaðið að svo virtist sem öllu frið- samara fólk baðaði sig i læknum nú en fyrir breytinguna, og lög- reglan hefur litil sem engin af- skiptiþurft að haf a af gestum þar eftir að dansleikjum lýkur, eins og svo oft vildi brenna við áður fyrr. Stereo plötuspilari með magnara og 2 hátölurum. Margar gerðir. Ryksugur, 4 geröir Hand- þeytarar með og án stands. 2 gerðir 3ja og 5 hraöa. Klukka og útvarp, sambyggt. 2 geröir. Hárblásarasett 2 gerðir. 800 V Hnifa og skæra- brýni 2 gerðir. Ferðaútvarpstæki fyrir rafhlööur og 220 V. Háfjallasól og gigtarlampi sambyggt. 2 gerðir. Kaffi- kvarnir 3 litir. Straujárn 3 geröir Philips kann tökin á tækninni - Næg bílastæöi í Sætúni 8 heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.