Vísir - 06.01.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 06.01.1978, Blaðsíða 11
VTSIR Föstudagur 6. janúar 1978 11 margumræddan rekstrargrund- völl. Uppfærsluleiðin er hins vegar kurteislegt orð fyrir gengisfell- ingu. Tekjuverðlag allra út- flutningsgreina er hækkað með almennri gengislækkun eða hlið- stæðri ráðstöfun. Þannig eru tekj- ur útflutningsatvinnuveganna auknar til að mæta auknum til- kostnaði innanlands. Þriðja leiðin er af öðrum toga spunnin. Hún felst i niðurfærslu kaupgjalds og verðlags i landinu. Þar er þvi um að ræða beinar að- gerðir til að lækka vöruverð og kaup og reyna þannig að hamla gegn verðbólgunni og bæta kjör útflutningsatvinnuveganna. Mjög sjaldgæft er, að aðgerðir i þessa átt séu reyndar hér á landi. //Aö undirbúa næstu sókn" Geir Hallgrimsson, forsætis- ráðherra, sagði um áramótin, að nú yrði að undirbúa næstu sókn gegn verðbólgunni. „Hefðbundnu vopnin eru fjög- ur”, sagði hann. „Tveimur hefur verið beitt, rikisfjármálunum og vaxtaákvörðuninni, en vextir eru i tengslum við verðþróunina. Eftir standa tekju- og launa- ákvarðanir og gengisákvarðanir eða samsvarandi ráðstafanir”. Geir benti á, að auðvitað þyrfti að leggja áherslu á að auka fram- leiðslu, fjölbreytni og framleiðni og draga úr kostnaði, hvar sem þvi væri við komið. Stefna yrði að meiri vörugæðum og markaðsöfl- un, sem leitt gæti til hærra sölu- verðs framlei.ðslunnar. Einnig yrði að nýta auðlindir til lands og sjávar á sem hagkvæmastan hátt með tilliti til afraksturs og vernd- unar i bráð og lengd. „Dugi þessi ráð ekki”, sagði forsætisráðherra,” eru auðvitað hin hefðbundnu úrræði, sem öll hafa verið reynd: Að hækka krónutölu i islenskri mynt, sem fæst fyrir útflutningsvörur með gengislækkun eða gengissigi: aö draga úr eða fresta kauphækkun- um innanlands og vöruverðs- hækkunum með samkomulagi — eða lögbindingu: að styrkja út- flutningsatvinnuvegina með fjár- framlögum af almannafé sem fengið er með skattlagningu á alla landsmenn”. Forsætisráðherra sagði lika, að launa- og tekjuákvarðanir hlytu áfram „að vera að meginreglu i höndum samtaka launþega og vinnuveitenda”. I ummælum forsætisráðherra er ekki að finna ábendingar um, að nýjar leiðir verði farnar. „Aöhald í verðlagsmál- um" Aðrir ráðherrar hafa ekki heldur gefið tilefni til að ætla, að eitthvað nýtt sé á döfinni. Olafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, sagði um áramótin, að þörf væri „frekari og skilvirkari aðgerða” til að veita viðnám gegn verð- bólgu og leysa rekstrarvandamál atvinnuveganna. Hann tók jafn- framt fram, að hann teldi það „hlutverk rikisstjórnar að beita sér fyrir nauðsynlegum ráðstöf- unum”. Hins vegar gerði hann ekki nánari grein fyrir þvi, hvaða ráð- stafanir hann hefði i huga. Þó tók hann fram, að hann teldi nauð- synlegt ,,að ströngu aðhaldi sé beittvið verðlagsákvaröanir”, og i þvi efni gagnrýndi hann sérstak- lega hækkanir á ýmissri opin- berri þjónustu. Til umræöu á næstu vikum Ölafur Jóhannesson hefur lýst þvi yfir, að hann telji að rikis- stjórnin eigi að „beita sér fyrir viðeigandi viðnámsaðgerðum fyrir kosningar”. Af orðum hans verður ekki annað ráðið, en að hann eigi þar við viðtækar ráð- stafanir til að draga úr verðbólgu, en ekki aðeins bráðabirgðaráð- stafanir vegna útflutningsat- vinnuveganna. Eins og áður segir mun „verð- bólgunefndin” skila áliti sinu i næsta mánuði, en forsætisráð- herra hefur sagt, að aðgerðir i efnahagsmálum verði til sér- stakrar athugunar nú á fyrstu vikum þessa árs. Bæði Geir og Ölafur hafa lýst þvi yfir, að samráð við aðila vinnumarkaðarins um efnahags- ráðstafanir séu eðlilegar. Allt þetta bendir til þess, að nokkuðsé i, að þessar ráðstafanir sjái dagsins ljós. Sennilega verða einhverjar aðgerðir ákveönar i tengslum við fiskverðsákvörö- unina, en ráðstafanir gegn verð- bólgunni muni hins vegar að öll- um likindum dragast nokkuð fram á nýja árið. —ESJ. NMÁLS NEÐANMÁLS NEÐANMÁLS NEÐANMÁLS g Eysteinn er minnst hér aðeins vegna þess að dæmið sýnir að stjórnmála- menn voru ekki að halda út i neina ævintýramennsku með op- inberum aögerðum á krepputim- um, heldur bregðast við vanda- málum með þeim opinberu tækj- um sem fyrir hendi voru. Það var allt og sumt. Eysteinn datt ofan á „hina leiðina" í þingræðu Hannes vikur að „Hinni leið- inni”, sem varð þekktur frasi á siðari tima stjórnarsamstarfs Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks árin 1959-1971. Eysteinn datt ofan á þetta orðalag i þingræðu að mig minnir 1968 og ætlaði þvi ekki þau ósköp, sem úr þvi urðu. Stjórnar- liðar gerðu mikið veður úr hinni leiðinni og töldu að þar væri aft- urgengin kreppustefnan frá 1934- 1938. Hin leiðin boðaði öflugri for- ustu rikisvaldsins en i nánu sam- starfi við einstaklinga og félög. Þegar svo vinstri stjórnin var mynduð 1971 gerðist Eysteinn guðfaðir hennar og átti þátt i að semja stjórnarsamninginn, sem einhver varð siðar til að lýsa yfir að væri lesinn kvölds og morgna. Þessi samningur vinstri stjórnar- innar var „hin leiðin” i fram- kvæmd. Hann miðaði að nýtingu og yfirráðum fiskimiðanna við landið i stærri mæli en menn hefði dreymt um áður og aukningu fiskveiðiflotans. Aö sjá um sína en láta fjandann hirða hina Það var haft i huga að ekki var sama hvernig fiskiskipunum var dreift á ströndina. Fólk i litlum sjávarplássum sem hafði búið við Taugvarandi atvinnuelysi á liðn- um áratug, þegar svonefndur markaðsbúskapur hafði verið tekinn upp, frétti nú allt i einu af þvi að þvi var ætlaður togari. Þessi breyting hafði umbyltingu i för með sér hvað atvinnulif snerti almennt, en henni var auðvitað ekki náð fram með markaðsbú- skap, vegna þess að seint hefðu litlu sjávarplássin haft bolmagn til að ráðast i skipakaup ein og ó- studd. Það sýnir svo hve sterklega •þessi stefna var tengd kjörbarni Framsóknar, byggðastefnunni, að Suðurnes og Reykjavik viröast hafa orðið útundan þegar nýja at- vinnustefnan var tekin upp i plássunum. En kenning Fram- sóknar hefur oftast verið sú að sjá um sina og fjandinn geti hirt hina. Þótt byggðastefna Framsóknar eigi marga kosti verður hún varla kennd við landsstefnu og lands- málaflokk fyrst svona fór um Suðurnes i fiskiskipaflóðinu mikla. Nær að líkja stefnunni við kálfa en kreppupólitík Stjórnarandstaðan 1959-1971 var Framsókn erfið. Undir lokin NEÐANMÁLS NEÐANMÁLS Eysteinn er H^SInýtinn á rœður (---------y \ I Hannev H Givwr*r\an | , taldi Eysteinn aö vert væri að leyfa öðrum að spreyta sig i for- ustu fyrir flokknum. Um það voru engin átök. Varaformaðurinn tók einfaldlega við og var forsætis- ráðherra eftir kosningarnar 1971. En það var stefna Eysteins Jóns- sonar frá stjórnarandstöðutiman- um, sem réði miklu um gerð og innihald stjórnarsamningsins. Fráleitt er að kenna þann samn- ing við afturhald og kreppupóli- tik. Miklu nær væri að lýsa honum og ráðherrunum, sem áttu að framfylgja honum, við kálfa, sem hleypt er út á vorin. Þegar vinstri stjórnin skilaði af sér var komin 54% verðbólga og núverandi rikisstjórn hefur eytt mestu af tima sinum i viðureign við þá verðbólgu án sýnilegs árangurs. Þannig er hægt að fara of geyst, jafnvel þótt það verði aldrei af vinstri stjórninni skafiö, að hún hóf viðtæka atvinnuuppbyggingu. stuöning rikis við verklegar framkvæmdir og atvinnuvegina. Hann er að visu formaður stjórn- ar Sambands islenzkra sam- vinnufélaga, og heldur þar i höndum sér ekki ófáum fjöreggj- um Framsóknarflokksins, en völd hans i flokknum að öðru leyti bú- in. Þetta kom gleggst i ljós á fundi fulltrúaraðs Framsóknar i Reykjavik á liðnum haustdögum, þegar honum fannst að ekki áraöi svo i flokknum að hættandi væri á prófkjör i Reykjavik. Þar var hann borinn ofurliði með miklum atkvæðamun, þótt fundarmenn klöppuðu fyrir honum að ööru leyti. Þar réði rikjum hið nýja liö Ólafs Jóhannessonar, smábiss- nessfólk, sem eflaust trúir á markaðsbúskapinn, en Eysteinn hleypti aldrei feti framar en hon- um sýndist, mest að hann hefði útvegað þvi jeppa á skömmtunar- árunum. Og núverandi rikisstjórn telur það helzt sér til gildis, að hægt hefur verið að halda atvinnunni i jöfnu horfi — minnug þess að at- vinna heyrir til mannréttinda. Mest haföi hann útvegað því jeppa á skömmtunar- árunum Það er mikill misskilningur, þegar þvi er haldið fram ,að stjórnmálastörf Eysteins Jóns- sonar hafi einkennst af ihalds- semi. A kreppuárunum var stjórnin, sem hann sat i, oftar en hitt kennd við bolsa af þeim, sem trúðu á markaðsbúskapinn, og þá ekki i þeirri merkingu um ihald i- halda sem kommúnisminn er. Eysteinn Jónsson situr nú á frið- arstóli og er hættur að boða Eysteinn er ekki nýtinn á ræöur Eysteinn er ekki nýtinn á ræður sinar, en hann hefur verið tals- maður þess Janga stjórnmálaævi, að nota opinbera fjármuni til að létta undir með landsmönnum i lifsbaráttunni. Hafi tækin og gögnin verið smá á kreppuárun- um, þá voru þau það vegna ytri aðstæðna. Hafi verið stigið of stórt skref i atvinnuátt á timum vinstri stjórnarinnar, þá veröur það ekki kennt ihaldssemi. Þess vegna fer bezt á þvi að stjórn- málaferill og stefnumið Eysteins Jónssonar sé skoðað af gætni og þvi hleypidómaleysi, sem hæfir þeim sem stiginn er út af sviðinu — næstum þvi. IGÞ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.