Vísir - 06.01.1978, Blaðsíða 24
VfSIH
Smáauglýsing í Vísl er enginciift Óauglýsing
OpTív.rkadaga.Hki.«.00 Ol I ld " 86611
rn
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
Hálkan segir til sín:
5 ÁREKSTRAR
Á KLUKKUTÍMA
Fimm árekstrar uröu á
klukkutíma í Reykjavík í
morgun. Mikil hálka var
viða í borginni. Enginn
þessara árekstra var al-
varlegur.
I gærdag varð talsverður
fjöldi árekstra i Reykjavik. Alls
uröu þeir tuttugu og fimm en
enginn þeirra var mjög alvar-
legur og ekki var vitað um að al-
varleg slys hefðu orðið á fólki.
A slysadeild Borgarspitalans
fékk Visir þær upplýsingar i
morgun að mikið hefði verið um
það tvo til þrjá siðustu daga að
fólk hefði komið þangað eftir
byltur.
—EA
Mikið er um árekstra i hálkunni og tók Jcns þessa mynd á Kringlu-
mýrarbraut i morgun þar sem árekstur hafði orðið.
Nú verður að lœgja í Eyjum!
Tólf vindstig voru i Vest-
mannaeyjum i morgun, en
menn gera sérsamt vonir um að
halda megi þrettándann þar
hátiðlegan eins og venja er.
Mun veðurstofan hafa spáð þvi i
morgun að veður lægði.
Það er iþróttafélagið Týr sem
sér um að gera þrettándann lif-
legan i Eyjum. Verður hafist
handa klukkan átta i kvöld og þá
kveikt i nafni Týs á svokallaðri
Há i Eyjum. Logar siðan nafnið
fram yfir miðnætti að venju, en
á meðan skemmta Eyjamenn
sér með Grýlu og Leppalúða,
álfum, púkum og öðrum forynj-
um og dansa og syngja jólin út.
Ljósmyndari Visis i Eyjum,
Guðmundur Sigfússon, tók
þessa mynd þar i gær. Þá voru
Týrarar að oliubleyta blysin
sem jólasveinar munu vera um
bæinn I kvöld. Gö/EA
SÉRKJARASAMNINGARN■
IR FYRIR KJARANEFND
Enginn árangur hefur
oröiö af viöræöum aðildar-
félaga BSRB viö rikisvald
og bæjarfélög um sér-
kjarasamninga nema á
Akureyri, þar sem sam-
komulag hefur tekist.
Sérkjarasamningarnir koma
þess vegna til meðferðar Kjara-
nefndar, sem hefur siðan 45 daga
frest til að kveða upp úrskurð i
málunum. Sérkjarasamningar
ættu þvi að liggja fyrir um miðjan
febrúar.
Guðmundur Skaftason, sem
verið hefur formaður Kjara-
nefndar, hefur nú látið af þvi
starfi að eigin ósk, og hefur Bene-
dikt Blöndal tekið við þvi starfi.
— ESJ.
Vandrœði með
útburðinn:
Dreifing Visis til áskrifenda
er miklum erfiðleikum bundin
þessa dagana, sökum þess að
útburðarfólk vantar á allmörg
dreifingarsvæði. Dreifingar-
deild blaðsins biður áskrifend-
ur velvirðingar á þvi, hve
seint sumir þeirra fá blaðið.
Um leið og þakkað er fyrir
þolinmæðina eru áskrifendur
beðnir að vera ekki feimnir
við að hringja og kvarta, er
þeir fá ekki blaðið.
„Þetta verður ekki
bœtt á nœstunni"
— segja ung
hjón sem misstu innbú sitt í íkveikju í Breiðholti
Ung hjón misstu nær
allt sitt innbú þegar
kveikt var i geymsl-
unni að Hjaltabakka 12
i Breiðholti á miðviku-
dagskvöldið. Þau eiga
eigin ibúð i smiðum en
búa hjá móður hans á
meðan og fengu að
geyma húsbúnað sinn
og annað dót i geymslu
i kjallaranum.
Þau heita Kristjana Stein-
þórsdóttir og Indriði Ivarsson.
„Við bætum þetta tjón varla i
bráð”, segir Indriði. „Allir okk-
ar peningar fara 1 nýju ibúöina
og þetta var ekkert tryggt.
þannig að við veröum að blða
betri tima.”
„Það er allt ónýtt sem i
geymslunni var,” segir
Kristjana. „Frystikista full af
mat, barnavagn, svefnsófi,
bækur, föt, ryksuga, nýtt tjald
og svo ýmiskonar heimilisáhöld
og aðrir dýrir munir, þvi að við
geymdum flestar brúöar-
gjafirnar okkar þarna”.
„Lögreglan telur að þetta hafi
verið íkveikja og okkar eina von
er að náist i þá sem þar voru aö
verki og þeir látnir greiða
skaðabætur. Annars verðum við
bara að sætta okkur við þetta
tjón, en þaö nemur hundruðum
þúsunda.”
Þetta er fjórði geymslubrun-
inn sem verður í Breiðholti á
skömmum tíma,þótt þarna hafi
orðið mest tjóniö.
Rannsóknarlögreglan telur að
allir þessir eldar hafi verið
ikveikjur og telur liklegast að
þar hafi börn verið að verki.
Ekki hefur tekist aö hafa uppá
skaðvöldunum ennþá.
Vart varö við brunann að
Hjaltabakka kl. um niu um
kvöld. en eldur þarna gæti haft
mjög alvarlegar afleiðingar ef
hann yrði að nóttu til og upp-
götvaðist ekki fljótlega.
Þarna er mikiö af innrétting-
um og skilveggjum Ur tré, milli-
hurðir milli stigaganga eru tré-
þil og einangranir á leiðslum i
lofti eru úr plasti og svampi.
Þá eru loftrásir nægar fyrir
eldinn aö berasteftir þvi að viöa
eru rimlar i staðinn fyrir dyr
eða skilveggi. Krakkar sem eru
að fikta meö eld eða kveikja I aö
gamni sinu, stefna þvi bæði
mannslifum og stóreignum i
hættu.
—ÓT
Kristjana og Indriöi I geymslunni. Frystikistan haföi sprungiö upp
og var ónýt eins og allt annaö. Vlsismynd — JA.