Vísir - 07.01.1978, Page 3
vism Laugardagur 7. janúar 1978
3
4
£, * «
IÞROTTIR
UM HELGINA
Laugardagur:
KÖRFUKN ATTLEIKUR:
iþróttahús Hagaskólans kl. 14,
1. deild karla ÍR:Þór, kl. 15.30 1.
deild karla Ármann:Fram, og
siðan leikir i yngri aldursflokk-
um. iþróttahúsið f Njarðvik kl.
14, 1. deild karla UMFN-Valur
og siðan 2. deild karla
UMFG :KF1, íþróttahúsið I
Iiafnarfirði kl. 14, 2. deild karla
Haukar-iV, og siðan leikir i
yngri flokkum.
HANDKNATTLEIKUR:
iþróttahúsið á Akureyri kl. 15, 1.
deild kvenna Þór-Valur og sfðan
2. deild karla Þór-Leiknir.
iþróttahúsið i Vestmannaeyjum
ki. 13.30, leikir i yngri flokkum
og kl. 14.40 3. deild karla Þór-
Breiðablik. iþróttahúsið á
Akranesi kl. 13, leikir i yngri
flokkum og kl. 14.50 3. deild
karla 1A-UMFA. Laugardais-
höll kl. 15.30, 2. deild kvenna ÍR-
KA og Þróttur-ÍBK og kl. 17.30,
1. deild kvenna Vikingur KR.
Sunnudagur:
KÖRFUKNATTLEIKUR:
iþróttahús Hagaskólans kl.
1330. leikir i yngri flokkum,
iþróttahúsið á Seltjarnarnesi kl.
20, 2. deild Breiðablik — KFÍ.
iþróttahúsið i Njarðvfk kl. 14,
leikir i yngri fiokkum.
JUDÓ: iþróttahús Kennara-
skólans kl. 14, Sveitakeppni
Júdósambands islands, keppt i
7 manna sveitum.
HANDKNATTLEIKUR:
iþróttahúsið á Akureyri kl. 14, 2.
deild karla KA-leiknir. iþrótta-
húsið I Vestmannaeyjum kl.
13.30, 3. deild karla Týr-Breiða-
blik. Laugardalshöll kl. 14, deild
kvenna Fram-Armann og sfðan
leikir i yngri flokkum.
Borgin afhendir
Fylki nýtt hús
til afnota
Birgir isleifur Gunnarsson af-
henti f gær Hjálmari Jónssyni,
formanni Fylkis, lykla að nýju
húsi við iþróttavöll félagsins f
Arbæjarhverfi.
Húsið er aðallega hugsað fyrir
búningsaöstööu, böð og þurrk-
herbergi fyrir íþróttamenn, en
þar eru einnig geymslur fyrir
áhöld sem nota þarf við æfingar
og til viðhalds vallarins og svo
og snyrtiaðstaða fyrir áhorfend-
ur að leikjum. Loks er I húsinu
salur fyrir samkomur þar sem
er aðstaða fyrir kaffiveitingar.
Húsið er 270 fermetrar að
stærð, og mun Fylkir sjá um
rekstur þess i framtiöinni.
Borgarstjóri afhenti Hjálmari
lyklana i hófi sem haldið var I
tilefni dagsins, aö viðstöddu
mörgu merkisfólki. Hjálmar
þakkaði siöan lykilinn með
stuttri ræðu þar sem fram kom
að Árbæingar vonast til að
Iþróttahús verði byggt við bún-
ingsklefana áður en langt um
liður.
—GA
Eftir að borgarstjóri hafði afhent Hjálmari lyklana var fáni félags-
ins hengdur upp á vegg. Visismynd JA
Sjómannafélag ísfirðinga:
Tekjurýrnun sjó-
manng verði bœft
með skattoívilnun
Segja hallarekstur fiskvinnslustöðva oft
vegna óstjórnar
Sjómannafélag isfirðinga tel-
ur að aðgerðir i fiskverndunar-
málum þýði verulega tekju-
rýrnun fyrir sjómenn og vill að
veiöitakmarkanir verði fram-
kvæmdar i samráði viö sjó-
menn.
Þetta kemurfram i ályktun er
Sjómannafélag Isfirðinga sam-
þykkti einróma nú fyrir
skömmu. I ályktuninni segir að
þar sem friöunaraðgerðir þýði
verulega kjaraskerðingu til
handa sjómönnum vilji þeir að
sjónarmið starfandi sjómanna á
Vestfjörðum og annarsstaðar
fái að koma fram og fyrirsjáan-
leg tekjurýrnun verði bættt i
formi skattaivilnanna eða á
annan hátt.
Fundarmenn voru fylgj-
andifiskverndunaraögerðum
undir yfirstjórn stjórnvalda en
vildu að þær yrðu gerðar meira i
samráði við sjómenn. Þeir
bentu á að algjör veiöistöðvun
geti i sumum tilvikum verið
betri lausn en timabundnar
veiðitakmarkanir.
Samþykktar voru yfirlýsingar
um fyllsta stuðning við afstöðu
sjávarútvegsráöherra til flot-
vörpuveiða enda sú veiðiað-
ferð hagkvæmust og skili jafnan
besta hráefninu með minnstum
tilkostnaöi. .
I lok ályktunarinnar segir aö
þar sem þorskverð hafi yerið ó-
breytt siðan 30. júni s.l. sé það
krafa sjómanna að annarleg
röksemdafærsla ýmissa hags-
munaaöila fiskiðnaöarins veröi
eigi höfð að leiðarljósi við á-
kvöröun fiskverös. Vilji þeir i
þvi sambandi benda á að halla-
rekstur fiskvinnslustöðva i viss-
um landshlutum sé óumdeilan-
lega fyrst og fremst rakin til ó-
stjórnar og óhagkvæmni i
rekstri en ekki að hlutur sjó-
manna sé of mikill. —KS
GREIÐENDUR
vinsamlega veitið eftirfarandi
erindi athygli:
Frestur til að skila launamiðum
rennur út þann 19. janúar.
Það eru tilmæli embættisins til
yðar, að þér ritið allar upplýsingar
rétt og greinilega á miðana og
vandið frágang þeirra. Með því
stuðlið þér að hagkvæmni í opin-
berum rekstri og firrið yður
óþarfa tímaeyðslu.
RÍKISSKATTSTJÓRI