Vísir - 07.01.1978, Blaðsíða 15
15
VISIR t,augardagur 7. janúar 1978
Hreinn Haildórsson kjörinn
,íþróttamaður órsins 1977'
— Hann hlaut þann titil annað órið í röð og fékk „fullt hús" atkvœða eða 70 atkvœði af 70 mögulegum
Hreinn Halldórsson
var i gær sæmdur titlin-
um ,,íþróttamaður árs-
ins á íslandi 1977”
í hófi Samtaka iþróttafrétta-
manna sem haldið var að Hótel
Loftleiðum var Hreini afhent
stytta sú sem fylgir útnefning-
unni, en Hreinn veitti henni nú
viðtöku annað árið í röð. Það kom
sennilega engum á óvart, og ekki
heldur það að hann fékk nú 70 at-
kvæði af 70 mögulegum.
,,1 raun og veru er óþarfi að
fara mörgum orðum um afrek
Hreins Halldórssonar á árinu”
sagöi Steinar J. Lúðviksson for-
maður Samtaka Iþróttafrétta-
manna sem afhenti Hreini verð-
launin. ,,Þau voru eðlileg þróun
hjá iþróttamanni sem ætlar sér
að ná alla leiðina á toppinn, og
veitaö með elju og ástundum get-
ur hann náð þvi takmarki.
— Hreinn vann mörg afrek á
árinu, en hæst ber að sjálfsögðu
Evrópumeistaratitill hans i inn-
anhússmótinu á Spáni s.l. vor. —•
Að öðrum afrekum hans má
nefna að hann bætti metið utan-
húss úr 20.24 m. i 21.09 m á árinu
sem er frábært afrek. Og senni-
lega gleymir enginn sem á horfði
er hann sigraði flesta af bestu
kúluvörpurum heims tvivegis á
Laugardalsvelli s.l. sumar. —
gk—.
Hreinn fékk
gullpening
í hófi samtaka iþróttafrétta-
manna á Hótel Loftleiðum I gær
kvaddi örn Eiðsson formaður
Frjálsiþróttasambandi tslands
sér hljóðs.
örn kvaðst hafa verið beðinn
um að afhenda Hreini Halldórs-
syni gullpening frá „Stokhoim’s
Stadium” en það er einhver fræg-
asti frjálsiþróttavöllur á Norður-
iöndum. Tilefni þess að Hreinn
fékk þennan gullpcning var það
að nú er unnið að miklum endur-
bótum á vellinum og af þvi tilefni
var ákveðið að allir þeir sem eiga
vallarmet á vellinum skyldu
hljóta um það minjagrip, gullpen-
ing. Afhenti Örn Eiðsson Hreini
siðan þennan gullpening.
Ilreinn setti vallarmetið á Stok-
holm’s Stadium i sumar er hann
kastaði kúlunni 21.09 metra, en
það er jafnframt íslandsmet I
kúluvarpi i dag.
gk —
Hreini boðið
til Svíþjóðar
Ásgeir Gunnarsson forstjóri
Veltis HF á Islandi sem stóö að
hófi þvi er haldið var i gær i sam-
bandi við útnefningu tþrótta-
manns ársins ásamt samtökum i-
þróttafréttamanna flutti ræðu við
þetta tækifæri og bauð Asgeir fyr-
ir hönd Veltis, Hreini Halldórs-
syni „iþróttamanni ársins 1977”
að fara til Sviþjóðar i vor og vera
þar viöstaddur er „íþróttamaður
Norðurlanda verður krýdur, en
Hreinn verður þar i kjöri ásamt
bestu iþróttamönnum hinna
Norðurlandanna.
— Þar sem Hreinn gat ekki
komið þvi við i fyrra aö þiggja
þetta boð Veltis tilkynnti Asgeir
að fyrirtæki hans vildi i staðinn
bjóða konunni hans með nú og var
þvi vel fagnað.
„Ég er ekki með nein met i Halldórsson i viðtali við Visi eftir „íþróttamaður ársins 1977” i þvi að fá mig góðan af meiðslun-
huga á þessu ári” sagði Hreinn að hann hafði verið kjörinn gærdag.—„Ég stefni einungis að um sem ég hef átt við að striða, en
þau hafa hrjáð mig meira og
minna allt árið 1977.
Jú, ég geri mér góðar vonir um
að ég nái mér af þessum meiðsl-
um sem eru i hné, en þetta tekur
mikinn tima að jafna sig nógu
mikið þannig að maður geti farið
að taka á af einhverjum krafti.
Það er svo gifurlegt átak á hnéð i
útkastinu að þetta verður að vera
orðið gott áður en maður fer að
taka verulega á.”
Það er ljóst að Hreinn ætlar
ekki að flana að neinu varðandi
þessi meiðsli sem hann hefur átt
við að striða allt s.l. ár. Það kann
að hljóma undarlega að hann hafi
átt við meiðsli að striða þetta ár
sem hann hefur sett hvert Is-
landsmetið á fætur öðru og náð
Evrópu-meistaratitilinum i kúlu-
varpinu innanhúss, en þetta er
samt staðreynd málsins og talar
skýrustu máli um hverskonar af-
reksmaður er þarna á ferðinni.
—Menn verða þvi að slaka aðeins
ákröfum sinum til Hreins á með-
an hann vinnur að þvi að komast
yfir þessi meiðsli, enda mun hann
örugglega ekki láta sitt eftir
liggja til þess að komast sem
fyrst i keppni við þá bestu á nýjan
leik — með það takmark eitt i
huga að sigra.
gk—•
Ásgeir í 2. sœti og
Vilmundur í 3. sœtinu
— Alls hlutu 26 atkvœði
Knattspyrnumaðurinn Asgeir
Sigurvinsson varð i 2. sæti í at-
kvæðagreiöslunni um kjör
„íþróttamanns ársins 1977”.
Ásgeirernúkominn i fámennan
hóp bestu knattspyrnumanna
sem tsland hefur átt, og hann er
I röðum fremstu knattspyrnu-
manna heimsins i dag.
í 3. sæti varð spretthlauparinn
Vilmundur Vilhjálmsson úr KR.
Vilmundur vann stór afrekjj ár-
inu, margjafnaði islandsmetið i
100 mctra hlaupi og bætti hið
gamla met i 200 metra hlaupi,
hljóp á 21.2 sek. Þar er iþrótta-
maður sem seturmarkiö hátt og
er i mikilli framför.
En röð 10 efstu manna i at-
kvæöagreiðslunni varð þessi:
Hreinn Halldórss., KR ' 70
AsgeirSigurvinss.,Standard 53
Vilmundur Vilhj.s.KR 52
Geir Hallsteinss. FH 39
Gústaf Agnarss., KR 24
Gisli Þorsteinss. Arm. 21
Ingunn Einarsd. IR 20
GuðmundurSigurðss. Arm. 18
Björgvin Þorsteinss. GA 11
Ingi B. Albertsson Val 10
Aðrirsem hlutu atkvæði voru:
Jón H. Karlsson Val, Janus
Guðlaugsson FH, Jóhannes Eö-
valdsson Celtic, Kristinn Jör-
undsson 1R, óskar Jakobsson
ÍR, Skúli Óskarsson ÚÍA, Sig-
urður Jónsson tsafirði, Höröur
.Barðdal IFR, Jón Sigurðsson
Armanni, Gisli Torfason iBK,
Sonja Hreiöarsdóttir Ægi,
Björgvin Björgvinsson Vikingi,
Ilalldór Guðbjörnsson JFR,
Steinunn Sæmundsdóttir Ar-
manni, Berglind Pæetursdóttir
Gerplu og Þórunn Alfreðsdóttir.
Alls hlutu þvi 26 iþróltamenn
atkvæöi, 5 knattspyrnumenn, 4
frjálsiþróttamenn, 3 handknatt-
leiksmenn, 3 lyftingamenn, 2
júdómenn, 2 körfuknattleiks-
mcnn, 2 skiöamenn. 2 sund-
menn, 1 fimleikamaður, 1 golf-
maður og 1 fatlaöur iþróltamað-
ur. Þetta mun vera i fyrsta
skipti sem golfmaður, fatlaður
iþróttamaður og fimleikamaöur
eru á þessum lista. gk-
Þeir voru viðstaddir verölaunaafhendinguna I gær. t fremri röð frá vinstri eru Guömundur Sigurðsson lyftingamaður, Hreinn Halldórsson
„tþróttamaður ársins” og Ingunn Einarsdóttir frjálsiþróttamaður. t aftari röð frá vinstri eru Gisli Þorsteinsson júdómaður, Gústaf Agnars-
son lyftingamaður og Ingi Björn Albertsson knattspyrnumaður. Visismynd: Einar
C|#|#| IMaA I
//EKKI VllvU I nei 1 nuyu
gk —