Vísir - 11.01.1978, Blaðsíða 1
Loðnuflotinn kominn í höfn til að mótmœla loðnuverðinu:
hundruð loðnusjómenn
ó Akureyri
Rmm
þinga
,,Það er ekki neinn hiti í
mönnum, en það eru allir
mjög óánægðir og jafn-
framt undrandi á þessu
loðnuverði, sem við feng-
um í gær," sagði Baldvin
Þorsteinsson skipstjóri á
Súlunni EA, er við náðum
í hann í morgun, en Súlan
var með f yrstu bátum inn
til Akureyrar eftir að
loðnuflotinn ákvað að
halda af miðunum í gær-
kvöldi.
„Það hefur sjálfsagt ekki
heldur bætt úr skák, að loðnu-
verðið hjá Færeyingum sem er
miklu hærra var gefið upp um
leið — en þeir veiða ur sömu
torfum og við og selja á sama
markaði”, sagði Baldvin.
„Það leið ekki klukkustund
frá þvi að við heyrðum loðnu-
verðið, og þar til allir voru sam-
mála um að sigla i land og halda
fund. Hann verður i dag — lik-
lega klukkan fjögur — og þá
annað hvort i Sjálfstæðishúsinu
í dag
eða i tþróttaskemmunni. Það
eru einu húsin hér, sem geta
rúmað þennan fjölda. Þarna
verða sjálfsagt um 500 manns.
Það hefur ekkert verið rætt
um það hvaða verð við viljum
fá. Það kemur fram á fundinum
i dag. Það eina er, að þetta verð
er allt of litið, og um það erum
við allir sammála”.
Snorri Gestsson á Hrafni
Sveinbjarnarsyni var alveg á
sama máli og Baldvin, er við
náðum i hann i morgun, en þá
var hann með þeim siðustu
að sigla inn Eyjafjörð.
„Við förum allir i land, það eru
30-40 skip og þar á meöal er
danska skipið tsafold sem er
með islenska áhöfn. Þaö er mik-
il samstaða meðal loðnusjó-
manna i þessu máli, en fundur-
inn i dag, sker úr um framvindu
þess”, sagði Snorri, sem gerði
ráð fyrir að verða kominn til
Akureyrar um klukkan tvö i
dag...
—klp—
öll viðskipti
óbyrgðadeild-
ar rannsðkuð?
Mun rannsókn Lands-
bankamálsins einskorö-
ast viö þau kæruatriði,
sem upphaflega voru sett
fram, eða verður öll
starfsemi ábyrgða-
deildar bankans skoðuð?
Þetta er spurning, sem
margir hafa velt fyrir sér og
Visir bar hana i morgun undir
Hallvarð Einvarðsson,
rannsóknarlögreglustjóra rikis-
ins.
„Gangur mála er þannig, að
þegar kæruatriði eru sett fram
þá hefst rannsókn samkvæmt
Meðalaldur blósar-
anna aðeins 10 ár
Þessi blásari á myndinni er einn þeirra,sem skipa
skólahljómsveit Laugarnesskólans, en það er
merkilegt við þessa hljómsveit, að meðalaldur
þeirra sem þar leika er aðeins 10 ár.
Guðjón Arngrímsson, blaðamaður, og Jens
Alexanderson, Ijósmyndari, heimsóttu blásarana á
æfingu i skólanum og segja frá því, sem þeir urðu
vísari, á blaðsiðu 10.
kæruefnum”, sagði Hallvarður.
„Komi eitthvað annað eða
meira i ljós, eða takmarkist eða
vikkist viðfangsefnið, þá er það
embættisskylda rannsóknar-
aðila að rannsaka það eins og
efni standa til”.
Um rannsókn málsins sagöi
Hallvarður, að henni miðaöi vel
áfram.
Ólafur Nilsson, fyrrverandi
skattrannsóknastjóra, hefur að
beiðni Landsbankans verið faliö
sem óháðum endurskoðanda^að
hafa yfirumsjón með rannsókn
málsins innan bankans, og mun
hann hefja störf i vikunni.
—ESJ.
Beint samband við skattrannsóknqrsljóra
rítsljórn Vísis annað kvöld í síma 86611
SJÁ NÁNAR BLS. 2