Vísir - 11.01.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 11.01.1978, Blaðsíða 5
vísm Miðvikudagur H. janúar 1978 BQSa CHIRAC ÆFURVEGNA SLETTI- REKUSKAPS CARTERS FORSETA Vítir Carter fyrir íhlutun í innanríkismól Frakka nokkru fyrir þingkosningar Jacques Chirac, leið- togi Gaullista hefur veist að Jimmy Carter Banda- rikjaforseta fyrir að hlut- ast til um innanríkismál Frakklands með því að gangast inn á viðræður við Francois Mitterand, leiðtoga sósialista. í heim- sókn Carters í síðustu viku. Á f undi gaullista í bæn- um Pau í suðvesturhluta Frakklands í gær, sagði Chirac: „Hann (Carter) sletti sér í innanríkismál okkar, án þess að skammast sín hið minnsta fyrir og án þess að nokkur settu út á það hversu ósæmileg slík framkoma var." Chirac, sem er borgar- stjóri Parisar, sniðgekk allar veislur, sem haldn- ar voru til heiðurs Carter vegna þess að Carter rauf þá hefð, að þjóðhöfðingj- ar í heimsókn í Frakk- landi heimsæktu ráðhúsið í París. Chirac sagði i gær: „Hvernig getur erlendur þjóðarleiðtogi vogað sér að leggja dóm á ástandið innanlands hjá þjóð, sem gengur til allsherjarkosn- inga þrem mánuðum síð- ar? — Hvernig getur Carter verið alvara þegar hann segir, að Mitterand gegni hlutverki bjarg- vættar í okkar landi? Og jafnvel þótt herra Carter fyndist slíkt, hvernig vogar hann sér að segja slikt opinberlega?" Kjóllinn hennar Olgu Korbut Loks kom aö þvf aö fimleikadls- in sovéska, Olga Korbut, fengi tilefni til þess aö skrýöast briiö- arkjólnum, sem hún var svo for- sjál aö kaupa, þegar hún heim- sótti Bandarlkin hér um áriö. Brúöguminn á myndinni er Le- onid Borkevich, ein vinsælasta poppstjarna Sovétrikjanna. Þau voru gefin saman á sunnudag. AÐALANDSTÆÐINGUR SOMOZA MYRTUR Ritstjóri eins af dagblöð- I áleiðis til vinnu sinnar. — um Nicaragua var myrtur Ritstjóri þessi hefur í 25 ár i gær, þar sem hann ók | helgað sig baráttunni fyrir HILLIR UNDIR LOK VERKFALLS BRUNAVARÐA Nú horfir til þess að verkfall breskra slökkvi- liðsmanna, sem staðið hefur nær níu vikur, sé senn á enda. pund, meðan iðnaðarmenn hafa um 100 pund á viku. I tilboðinu er gert ráð fyrir að jafna þennan mun fyrir nóvember 1979. því, að Somoza-fjölskyld- unni verði velt úr valda- stóli. Skothrið úr haglabyssum dundi á ritstjóranum, dr. Pedro Joaquin Chamorro (53ára), er hann hafði verið ginntur til þess að hægja ferð bifreiðar sinnar. _Anastasio Somoza De Bayle forseti (siðastur forseta Somoza- fjölskyldunnar, sem stjórnað hefur Nicaragua harðri hendi i 40 ár) hefur fyrirskipað þjóðvarðlið- inu að láta ekkert ósparað til þess að hafa upp á morðingjum Cham- orro. Dr. Chamorro varð ritstjóri La Prensa, sem er i eigu fjölskyldu hans árið 1952, og var útbreiðsla þess þá 3.000 eintök. Blaðið selst i dag i 60.000 eintökum og er það stærsta blað i Nicaragua. — Dr. Chamorro tókst fljótlega að gera blaðið að einu helsta málgagni stjórnarandstæðinga og andófs- manna i Mið-Ameriku og hefur tvivegis orðið að flýja land og fimm sinnum setið i fangelsi. A siðasta ári varð hann forseti UDEL-samtakanna og um leið leiðtogi stjórarandstöðunnar i Nicaragua, þegar neyðar- ástandslögunum var aflétt. Flensa tefur lausn stjórnarkreppunnar Framkvæmdaráð stéttarfélags þeirra hefur mælt með þvi, að tekið verði tilboði um kauphækk- un i þrem áföngum, og verður það borið undir fund félagsins á morgun. Eftir þvi sem komið hefur fram um undirtektir hjá slökkviliðs- mönnum virðist meirihlutinn hlynntur þvi að taka þessu tilboði og hefja störf að nýju á mánudag- inn, hugsanlega — Nokkrar fé- lagsdeildir hafa þó heitið að halda áfram verkfallinu. Þar á meðal er Brunavarðafélagið i London. Launatilboðið, sem slökkviliðs- mönnum hefur verið gert, felur i sér 10% kauphækkun strax, og siðan hækkanir i tveim áföngum fyrir nóvember 1979. Vikukaup slökkviliðsmanna i dag er um 65 Inflúensa hefur tafið fyrir tilraunum Mario So- ares að mynda nýja rikis- stjórn i Portúgal, sem staðið gæti nógu traustum fótum til að takast á við efnahagsvanda landsins. Dr. Soares ætlaði að hitta i gær- kvöldi að máli Diogo Freitar do Amaral, leiðtoga Mið-demókrata, til þess að ganga frá samkomu- lagi, sem hefði getað bundið endi á mánaðarlanga stjórnarkreppu Portúgals. En sósialistaleiðtoginn lagðist þá i flensu. Soares ætlaði að gera Eanes forseta i dag grein fyrir þvi, hvernig stjórnarmyndunartil- raunum hans miðaði, en dráttur verður á þvi, meðan fundi hans við Amaral er frestað. TENGJA RÚSSAR ÞRJÚ GEIMFÖR? Sovétmenn ætla i dag að verða fyrstir til þess að tengja saman þrjú mönnuð geimför úti í geimnum. Reiða þeir sig á geimfar- ana Dzhanibekov og Oleg Makarov, sem skotið var á loft i gær i Soyuz-27 geim- fari til móts við geimstöð- ina Salyut-6. Um borð i Salyut-6 sem svifur á brautu umhverfis jörðina, biða þeir Romanenko og Grechko, sem hafa nú dvalið i geimstöðinni i hartnær mánuð við tilraunir og undirbúning þessarar tengingar. Verði Soyuz-27 jafnlengi að ná geimstöðinni og Soyuz-26, sem flutti Romanenko og Grechko þangað upp, ætti geimfarið að tengjast Salyut-6 um kl. 14 i dag. Það verður þá i fyrsta sinn i geimferðum manna, að þrjú geimför eru tengd saman úti i geimnum. Það vakti athygli við geimskot- ið i gær, að Sovétmenn sýnast mjög vissir um, að þetta muni takast vel. Skýrðu þeir frá þvi fyrir geimskotið, hvert væri tak- markið með þvi, en það hafa þeir aldrei gert fyrir fram döur. Enda ætti það að reynast geim- ■ förunum i Soyuz-27 auðveldara að tepgja Salyut-6, þar sem tveir menn eru til staðar i geimstöðinni sem geta aðstoðað þá við það. Geimskotið tókst vel i gær, og siðustu fréttir i nótt hermdu, að geimfarið stefndi rétta braut. Takist Rússum þetta ætlunar- verk sitt verður það stórt skref i átt til langvarandi rannsókna manna úti i geimnum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.