Vísir - 10.02.1978, Qupperneq 3
VISIR Föstudagur 10. febrúar 1978
v
3
„Gráa skýrslan", tillðgur fiskifrœðinga:
HÁMRKSAFLI VERÐI 270
ÞÚSUND TONN ÁRIÐ1978
Skyndilokanir ef 20% aflans er undir 58 sm
„Erfiðasta vandamál okkar I
dag er ofnýting þorskstofnsins,
en veiöin á s.l. a'ri fór langt fram
úr tiilögum stofnunarinnar. Af
þeim sökum verður að ieggja til
frekari takmörkun þorskaflans
á þessu ári og því næsta, til þess
að byggja upp hrygningarstofn-
inn”, segir Jón Jónsson for-
stöðumaður Hafrannsóknar-
stofnunarinnar i formála
skýrslu stofnunarinnar um á-
stand nytjastofna á islandsmiö-
um og aflahorfur árið 1978.
1 skýrslunni er bent á að við
séum nú svo til einir um að nýta
efnahagslögsögu okkar en við
verðum þó að fara aö öllu með
gát þvi náttúran sjálf réði miklu
um sveiflur i aflabrögðum. Það
sé nauðsynlegt að vera vel á
verði og endurmeta stöðuna á
hver ju ári og jafnvel oftar.
Tillaga stofnunarinnar um
hámarksafla á þorski á árinu
1978 er 270 þúsund ton n o g er þaö
20 þúsund tonnum hærra en
meðalafli íslendinga á siðast-
liönum h'u árum en hins vegar
er áætlaöur þorskafli á árinu
1978 að óbreyttri sókn 350 þús-
und tonn eða 80 þúsund tonnum
meira en Hafrannsóknarstofn-
unin leggur til.
Lagt er til að hámarksafli á
ýsu á árinu 1978verði 40 þúsund
tonn en i lok nóvember s.l. nam
ýsuafli okkar tæpum 33 þúsund
tonnum. Að þvi er varöar sild-
veiðar þá er lagt til að hámarks-
veiði verði 35 þúsund tonn á
þessu ári og yrði það 6 þúsund
tonna aukning frá veiðinni á s.l.
ári. Þá er lagt til að hámarks-
aflinn á loðnu fari ekki yfir eina
milljón tonna.
Skyndilokun ef smá-
fiskur
fer yfir 20% aflans
Heildarþorskstofninn hefur
minnkaö úr 2.6milljónum tonna
árið 1955 i 1.2 milljónir tonna ár-
ið 1978. Hrygningarstofninum
hefur hrakað enn meira eða úr 1
milljón tonna árin 1957—59 i 180
þúsund tonn áriö 1978.
I skýrslunni er gert ráð fyrir
eins og fyrr segir að aflatak-
mörkinverði 270 þúsund tonn á
þessu ári. Tilgangur þess er að
vernda þá árganga sem eru i
uppvextisvo þeir geti byggt upp
hrygningarstofninn á allra
næstu árum og ennfremur þurfi
að tryggja með áframhaldandi
friðunaraðgeröum enn frekari
stækkun hrygningarstofnsins.
Ef þessum ráðum yröi fylgt eft-
ir yrði stofninn kominn i 400
þúsund tonn i ársbyrjun 1980.
Arið 1977 giltu þau viðmiðun-
armörk við friðunina aö gripiö
var til skyndilokunar svæöis
þegar 40% af fjölda þorska I afla
var undir 58 sm að stærö. Var
gert ráð fyrir þvi að ný við-
miðunarmörk giltu frá 1. júli en
Sjávarútvegsráðuneytið ógilti
þau mörk þannig að upphafleg
mörk giltu allt árið 1977.
Nú er gert ráö fyrir þvi i
skýrslu Hafrannsóknastofnun-
arinnar aö ný viömiðunarmörk
verði þannig að gripið veröi tíl
skyndilokunar ef 20% af afla er
undir 58 sm fram til 1. júli en ef
20% af afla er undir 62 sm það
sem eftir er ársins.
—KS
Beðið við búðardyr eftir að komast að til að syngja. (Vfsism. Matt-
hfas Gestsson).
Öskudagur er dagur
barnanna á Akureyri
öskudagurinn er dagur barn-
anna á Akureyri og er þá mikið
um dýrðir. Börnin fara á fætur
fyrir allar aldir, klædd litrikum
búningum og máluð i andliti.
Kötturinn er sleginn úr tunnunni
við hátiðlega athöfn á Ráðhús-
torgi.
Þessu erlokiö um það leyti sem
verslanir og fyrirtæki eru opnuð
og nú fara öskudagsflokkar i
heimsóknir þangað. Allir ösku-
dagsflokkar sem taka daginn al-
varlega hafa komið saman
nokkrumsinnumogæftsöng fyrir
þennan merkisdag og lögin eru
flutt af innlifun í búðum og stofn-
unum. Að launum fá börnin sæl-
gæti eða peninga sem oft eru þá
gefnir Rauða krossinum.
Á hádegi fer lif að færast I eðli-
legt horf á nýjan leik eftir að
börnin hafa ráöið rikjum i miðbæ
Akureyrar um morguninn. Marg-
ir fullorðnir eiga ljúfar bernsku-
minningar fra þessum degi og
hafa jafnan mikla ánægju af að
fylgjast með búningum barnanna
á öskudaginn. Myndirnar tók
Matthias Ó. Gestsson á Akureyri
á miðvikudaginn þegar öskudag-
urinn var haldinn hátiðlegur.
—SG
Bannið á „Veldi tilfinninganna"
fréttaefni dagblaða í París:
Thor mótmœlir
ákvörðun fram-
kvœmdanefndarinnar
Á fundi fram-
kvæmdanefndar lista-
hátiðar i gær lýsti Thor
Vilhjálmsson rithöf-
undur, sem á sæti i
nefndinni,þeirri skoðun
að hann væri algjör-
lega mótfallinn þeirri
ákvörðun nefndarinnar
að hætta við sýningar á
„Veldi tilfinninganna”.
Thor mótmælti og kraföist
þess að ákvöröuninni yrði rift,
en tillaga hans um það efni var
felld með öllum greiddum at-
kvæðum gegn einu.
Dagblöð i Paris hafa nú birt
frétt þess efnis að myndin hafi
veriö bönnuð á kvikmyndahá-
tiðinni, en hún er einmitt komin
hingað til lands fyrir milligöngu
franska menntamálaráðuneyt-
isinsog franska sendiherrans á
tslandi.
„Með þvi aö banna myndina
sem klám”, sagði Thor „þá eru
yfirvöld ekki aöeins aö segja að
aðstandendur hátfðari- ar séu
klámhundar, heldur er sömu
skoðunlýstá menntamálaráðu-
neytinu franska og franska
sendiherranum”.
Thor sagði ennfremur, að ef
það væri ekki framkvæmda-
nefndar listahátiðar að láta
reyna á hvort kvikmyndir væru
bannaðar á hátiðum hér, þá
vissi hann ekki hverra það væri.
,,Ef þetta er réttarriki, þá er
það dómstólanna að ákveða um
þessa hluti”, sagöi Thor. —GA
Sólargeis/inn frá Fiorida
ER ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA
Miðbænum er lokaö fyrir bilaumferð meðan hátiðin stendur og nú var blfðskaparveður og mikill mann-
fjöldi á ferli.