Vísir - 11.02.1978, Page 5

Vísir - 11.02.1978, Page 5
áppgplpg Ellefu vikTía fóstur Ljósm. Lennart Nilsson r/Aukning fóstureyoinga er alveg hrollvekjandi" — segir Hulda Jensdóttir forstöðukona Fœðingarheimilis Reykjavikur ,,Þegar rætt er um fóstureyöingar, vil ég taka þaö fram aö frjóvgun er oft óvelkomin, ef hún hefur oröiö fyrir slysni, en barn er mjög sjaldan óvelkomiö,” sagöi Hulda Jensdóttir for- stöðukona Fæðingarheimilis Reykjavikur. Hulda mælti á sfnum tíma mjög gegn frjáisum fóstureyð- ingum, þegar tillaga um þær kom fram hjá nefnd þeirri sem vann aö undirbúningi lagafrumvarps um þetta efni. Hún sagði hins vegar að lögin, eins og þau voru i endanlegri gerö, væru ágæt sem slik. „Það er geysiiegur mismunur á þvi hvort fóstureyöingar eru frjálsar eða eins og þær eru meö þessum lögum, þaö er aö segja aö þær séu einungis leyföar þegar um gilda ástæöu er að ræða,” sagöi hún. „Aðalatriðið er þó ef til vill ekki hvernig lögin eru orðuð, heldur hvernig á þeim haldið. Gömlu lögin voru ágæt að mörgu leyti og það kom i ljós að fóstureyðingum fjölgaði áður en þau féllu úr gildi, ekki vegna þess að þau hefðu breyst, heldur vegna þess hvernig að þeim var staðið. Helsta breytingin frá gömlu lögunum og þeim, sem nú eru i gildi, liggur fyrst og fremst i þvi að félagslega hliðin var tekin meira inn í málið en áður var. Nú þarf konan annað hvort aö ræða við tvo lækna eða lækni og félagsráðgjafa áður en leyfi fæst til fóstureyðingar.” Félagslegar ástæður teygjanlegar — Telur þú að lögin séu að einhverju leyti misnotuð? „Aukningin á fóstureyðingum á siðustu árum er frá minu sjónarmiði séð alveg hrollvekj- andi. Og óhjákvæmilega verður þessi aukning til þess að sú spurning vaknar, hvort lögin séu mistúlkuð eða misr^tuð. Félagslegar ástæður er hægt að teygja i það óendanlega. Annars virðist það vera að verða rikjandi skoðun hér á landi að til þess að koma börn- um sómasamlega til manns, megi þau helst ekki vera fleiri en tvö. Það er áberandi að þannig talarfólk, sem hefur efni á þvi að ala upp fleiri born. Þetta er notað sem afsökun, en við vitum að fjölmörgum Hulda Jensdóttir: „Sú spurning hlýtur að vakna, hvort lögin séu mistúlkuð”. hefur tekist með ágætum að koma upp stórum barnahópum. Með þessu er ég ekki að mæla með þeim stóru barnahópum sem ti'ðkuðust i gamla daga, en það má nú kannski á milli vera.” — Hver heldur þú að sé helsta ástæöan fyrir þessum þungun- um, sem ekki er óskað eftir? ,,Ég er ekki i vafa um að kæruleysi er stór þáttur i þessu og það er ófyrirgefanlegt ábyrgðarleysi.” velt mál,” sagði Svava. „Þetta er neyðarúrræði. Fóstureyöing er andleg og likamleg röskun fyrir konuna og er auk þess áhættusöm aðgerð. Ég held að ekki sé hægt að fara tilfinninga- laust i gegnum þetta.” t lögunum frá 1975 um fóstur- eyðingar og ófrjósemisaögeröir er sett það skilyrði, að þeir sem óska slikra aðgerða tali viö félagsráðgjafa og lækni. „Ætlunin með þessu ákvæði var aö gengið yrði úr skugga um það hvort fóstureyðing sé eina úrræðið,” sagði Svava. „Þaö getur gripið konur örvænting i byrjun, en svo þegar málið er athugað nánar, kemur kannski fram að aðstæður séu ekki svo voðalegar. Oft þurfa konur hreinlega að koma og tala um vandamálið. Á eftir finnst þeim þær svo ráða betur við erfiðleik- ana og komast svo kannski að þvi að innst inni langi þær til að eiga börnin”. Sjá ekki eftir þvi — Er mikið um aö konur skipti um skoðun eftir að hafa rætt við þig? „Það er alltaf eitthvað um það og ég hef ekki orðið vör viö það að þær sjái eftir þeirri ákvörðun. Ég hef oft samband við konurnar allan meðgöngu- timann svo ég held að ég ætti að verða vör við eftirsjá ef hún væri fyrir hendi”. — Er reynt að hafa áhrif á konu sem óskar eftir fóstureyð- ingu? „Samkvæmt lögunum á að veita rágjöf á óhlutdræg hátt og konan er látin sjálf um að taka sina ákvörðun. Ég held að ákvæðið um ráðgjöf sé mjög mikilvægt. I samtölum getur komið í ljós viss þrýstingur frá aðstandendum konunnar eða barnsföður. Það er mjög- slæmt að fóstureyðing sé framkvæmd strax, eins og er viða erlendis, þar sem fóstureyðingar eru frjálsar. Þá fær konan ekki tækifæri til að ræöa sínar til- finningar og getur þvi vaðið út i eitthvað sem hún seinna sér eft- ir. Hér ræðir konan alltaf viö lækni og félagsráðgjafa og i mörgum tilvikum hefur hún þegar rætt við lækni utan stofn- unarinnar og oft félagsráðgjafa lika og ætti þvi að vita vel út i hvað hún er að fara.” Verða að ákveða sig sjálfar — Verðið þið vör við að konur vilji stundum láta taka þessa ákvörðun fyrir sig? „Stundum eru konur óákveðnar, en þær sem vilja láta taka ákvörðunina fyrir sig, geta ekki komist upp með það. Það er heldur ekki gott fyrir þær. Hins vegar er hægt að veita konunni stuðning þegar hún er búin að taka sina ákvörðun i hvora áttina sem hún er.” Hörð lifsbarátta Hvaða ástæður eru algengast- ar fyrir beiðni um fóstureyð- ingu? „Mér virðist að hin harða lifs- barátta sem er i dag sé oft ástæðan. Mörgum konum finnst erfitt að vera einar með fleiri en eitt barn. Hjá giftum konum koma lika oft efnahagsástæður til. Bæði hjónin þurfa að vinna úti og eins hafa margir varla efni á þvi að vera með mörg börn. Framtiðarhorfur konunnar varöandi nám og starf er stund- um ástæðan. Ungum konum finnst slæmt að þurfa að hætta námi og aðrar hafa áhuga á starfi sinu og vilja ekki þurfa aö hætta þvi. Samband við barnsföður hef- ur mikið að segja. Ef engin tengsl eru við hann eiga margar erfitt með að sætta sig við þungunina. Annars er þetta af- skaplega einstaklingsbundið, en einhvers konar félagslegar og persónulegar aðstæður eru al- gengastar sem ástæða. Við reynum að ræða við manninn lika. Afstaða hans hef- ur mikið að segja. Ég held aö tilfinning hans fyrir ábyrgð aukist við það. Hann gerir sér þá grein fyrir aö þetta er tals- vert stór ákvörðun sem konan er að taka. Viðhorf karlmanna hafa lagast á siðustu árum, en margir þeirra eru enn óskap- lega kærulausir. Þeim finnst konan bera ábyrgð á getnaðar- vörnunum og finnst þungunin þvi ekki koma þeim mikiö við.” Færri börn — Telur þú að auknar fóstur- eyðingar séu ástæðan fyrir fækkun fæðinga hér á landi? „Þær eru aðeins brot hennar. Fólk gerir aðrar kröfur til lifs- ins en áður var og þvi eru marg- ir ákveðnir i að eiga aðeins 2-3 börn og gera fyrir þau það sem hægt er. Hins vegar tel ég að við séum barnaþjóð að þvi leyti að mörg börn eru enn stöðutákn hjá þeim sem eru vel stæðir. En það er viss hópur sem vill takmarka viðsig barneignir og það endur- speglast lika i gifurlegri fjölgun ófrjósemisaðgerða. Langal- gengast er að konur óski eftir þeim og þær eru allt niður i 25 ára. Þó er ófrjósemisaðgerð á karimönnum mun einfaldari aðgerð. Samkvæmt nýju lögunum eru ófrjósemisaðgerðir leyfðar að ósk viðkomandi, ef hann hefur náð 25ára aldri. Þó er það bund- ið þvi skilyrði að rætt sé við lækni eða félagsráðgjafa. Fólk veröur aö vita út i hvað þaö er að fara. Það er ekki algengt að konur óski ófrjósemisaðgerðar svona ungar, en þó eru nokkrar innan við þritugt. Oftast er það þá vegna heilsufarsástæðna.” Ekki getnaðarvörn — Hefurðu orðið vör við að konur noti fóstureyðingu sem getnaðarvörn? „Nei, þaö get ég fullyrt. Það er ekki algengt að sama konan komi oftar en einu sinni, þótt þaö komi fyrir. Þegar svo er, er það afskaplega slæmt. Fóstur- eyðing verður aldrei annaö en neyöarúrræði. Oftast er um að kenna kæruleysi eða einstakri óheppni, þegar sama kona þarf oftar en einu sinni fóstureyð-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.