Vísir - 11.02.1978, Page 10

Vísir - 11.02.1978, Page 10
10 Laugardagur 11. febrúar 1978 VÍSIR utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjori: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritstjornarlulltrui: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundur G. Petursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þorarinsson. Blaðamenn: Edda Andresdottir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jónina Michaelsdottir, Katrin Pálsdottir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefansson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Biöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljosmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnus Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánssor Dreifingarstjóri: Sigurður R Pétursson Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 sími 86611 Ritstjórn: Siðumula 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 á mánuði innanlands. Verð i lausasolu kr. 90 eintakið. Prentun Blaöaprent h/t. Allt undir framhaldinu komið Rikisstjórnin hefur nú ákveðið brýnustu aðgerðir í því skyni að treysta rekstur útflutningsat- vinnuveganna og hamla gegn frekari verðbólgu. Hér er um óhjákvæmilegar ráðstafanir að ræða, sem í öllum aðalatriðum miðaí rétta átt. Þær eru viðbrögð við afleiðingum ringulreiðar- verðbólgu, en höggva ekki að rót- um hennar. Með þessum ráðstöfunum er aðeins tjaldað til einnar nætur. Brýnt er því að þegar í stað verði lagt á ráðin um aðgerðir, er miði að því að koma á varanlegu jafn- vægi í þjóðarbúskapnum. I greinargerð verðbólgunef ndar- innar má f inna ýmsar leiðir, sem unnt er að fara í þessu skyni. Ef ekki á að síga á ógæfuhliðina á nýjan leik, þurfa stjórnmála- flokkarnir og ríkisstjórnin að svara spurningunni um næsta leik án tafar. Þó að hliðarráðstafanir ríkis- stjórnarinnar með gengislækk- uninni miði að því að koma verð- bólgunni rétt undir 40% á þessu ári að meðaltali, sjást samt sem áður engin merki þess að hverfa eigi frá ríkjandi verðbólgustefnu í þjóðfélaginu. Hún verður rekin áfram á flestum sviðum. i fyrsta lagi er Ijóst, að for- ystumenn verkalýðsfélaganna ætla að halda áfram þeirri verð- bólgustefnu, sem þeir hafa fylgt í kjaramálum. Ýmislegt bendir jafnvel til þess að þeir muni á næstu mánuðum fylgja verð- bólgustefnunni fastar fram en oftast nær áður. Krafa þeirra er enn sú, að laun verði greidd með verðbólgukrónum, sem eru einskis virði, og verðbólgunni verði viðhaldið með vísitölukerf i. [ öðru lagi er á það að líta að ekkert hefur komið fram, sem bendir til þess að þingmenn ætli aðhverfa frá ríkjandi verðbólgu- sfefnu í f járfestingarmálum. En öllum er Ijóst, að svigrúm til kjarabóta á síðustu árum hefur verið minna en ella fyrir þá sök, að fjárfesting hefur farið langt fram úr aukningu þjóðartekna. Loks er á það að líta, að með föstu gengi og tæplega 40% verð- bólgu verður ekki séð að Verð- jöfnunarsjóði verði á næstunni beitt að nokkru marki í þvi skyni að draga úr áhrifum verð- sveiflna á erlendum mörkuðum. Virk beiting jöfnunarsjóða er þó ein af forsendum þess að takast megi að koma á jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Rikisstjórnin hefur nu ‘hvað sem öðru líður brugðist nokkuð skynsamlega við afleiðingum verðbólgunnar síðustu mánuði. Veiki hlekkurinn er e.t.v. sá, að gengið hafi verið of langt í mild- andi ráðstöfunum af hálfu ríkis- sjóðs. Veruleg hæta er því á hallarekstri ríkissjóðs á þessu ári, þó að dæmið gangi upp á paapírnum nú. Verðbólgunef ndin sá sérstaka ástæðu til að vara við því að gengið yrði of langt í þessu ef ni. I framhaldi af þessum aðgerð- um skiptir mestu máli að knýja þingmenn og verkalýðsforingja til að hverfa frá ríkjandi verð- bólgustefnu. Gerist það ekki fer allt á hausinn á nýjan leik. Þær aðgerðir, sem nú hafa verið ákveðnar, opna hins vegar mögu- leika til endurreisnar efnahags- lífsins í því skyni að koma á varanlegu jafnvægi. En vandséð er að endurreisn- araðgerðir af því tagi hefjist fyrir kosningar. Stjórnmálabar- áttan næstu mánuði mun því örugglega snúast að einhverju leyti um ólikar hugmyndir flokk- anna til þess að koma á varan- legu jafnvægi. En því miðursýn- ist flest benda til þess, að verð- bólgustefnan verði ríkjandi í kosningabaráttunni bæði af hálfu þingmanna og forystu- manna verkalýðsfélaganna. Ef vel ætti að vera þyrfti að ákveða næsta leik endurreisnar- aðgerðanna fyrir kosningar. Þessar ráðstafanir duga skammt verði verðbólgustefnunni fram- haldið í f járfestingar- og launa- málum eins og flest bendir til. Ríkisstjórnin hefur að vísu reynt að takmarka verðbólgustefnu verkalýðsforingjanna með vísi- töluskerðingunni. Það er skref í rétta átt. En eftir sem áður er allt undir framhaldinu komið. EITT 1 EINU 1 eftir Steinunni Sigurðardóttur AÐ HALDA MEÐ Skoöanir eru alls staöar og á öllu. Þeir eru ekki ófáir sem ,,mundu nú segja það” eða jafn- vel ,,telja” og „hyggja” þegar málin ber á góma. Jón þjónn og Guðnín fræðingur eru til dæmis vis með að hafa bullandi skoðanir á húllsaumi og spiritisma. Og hvaðan skyldu svo skoðanirnar koma og byggjast á hverju? Þar fór í verra, þvi þær eru sjaldnast byggöar á heil- brigöri skynsemi og úthugsun, heldurá einhverri tilfinningu úti i bæ, sem siast hefur inn i viðkom- andi af aðskiljanlegum ástæðum, oft vegna þess að einhver nákom- inn annað hvort hefur þessa skoð- un eöa hefur hana ekki. Óháðir og þaulhugsaðir dómar um hvað sem vera skal eru mjög sjaldgæf- ir og út af fyrir sig efunarmál, hvortþeirerubaranokkuð til. Við skyldum reyna að hugsa okkur óháöan dóm um trúmál, stjórn- mál, bjórinn, herstöðvamálið, fæöingar, támjóu tiskuna. Sú var tiöin að allir gengu i tá- mjóum skóm. Ef það kom ekki til af öðru, þá þvi, að öðru visi skór fengust ekki. — Þetta þótti manni fallegt, örmjóar skótær, sem hlykkjuöust um sali. Og ekki var núsútað, hversu óþægileg blessuð farartækin voru — sumar eru meö ónýtar lappir fyrir lifstiö — hiá öörum aflöguðust kannski bara eitt bein eöa tvö — Eítir aö feitu skórnir komu var ekki til neitt hallærislegra en mjóir skór og þegar maður er loks orðinn öruggur um sig og sina skoöun, faratámjóirskóraftur að hlykkj- ast um sali og pinnahælar skrúfa sig á ný tigulega oni parket og gólfdúka, og verða jafnvel eftir i heilu lagi. Þessuhefði maður ekki trúað árum saman, og hneykslast yfir þvi að þessi óheyrilega tiska er aftur komin; samt mun maður sjálfur ganga i ormaflokkinn á næstunni. Eöa þá fæðingar. Fyrir nokkr- um árum þótti fráleitt og var jafnvel bannað! þótti að minnsta kosti bera vott um undarlegheit ef feður vildu vera viðstaddir fæð- ingu (sinna eigin barna). A þeim árum var það einnig svo, að kon- ur urðuaðkomai sjúkrabil til at- hafnarinnar, það var jafnákveðið og það aö innanbæjarliki er ekiði likbil til og frá hinstu kveðju, en ekki I fólksvagni. — Nú mega konur koma i strætó á fæðingar- deildina, i leigubil eöa á hjóli. Og nú er fæðing annars flokks ef faðirinn er ekki nærri, og talinn ræflarokkari fyrir vikiö. — Herstöövamálið. Ég þekki eng- an, sem hefur myndað sér óháða og skynsamlega skoðun á þvi, en það er kannski afsakanlegtj óvist aðslik skoðun á herstöðvamálum sé yfirleitt hugsanleg. Trúmálin. Ekki er maður nú Lúterstrúar af þvi maður hafi viðaö að sér materiali um helstu /,Og nú er fæðing annars f lokks ef faðirinn er ekki nærri, og talinn ræflarokkari fyrir vikið." trúarbrögð heims og vinsað úr þau bestu. Maður er bara fæddur hérna. Stjórnmálaskoöanir eru fengn- ar á svipaðan hátt og aðrar skoðanir. Margir voru arfleiddir aöþeim, aðrir geröu kannski upp- reisn gegn skoðun heimilisins. enn aðrirgátu ekki annað en haft sömu skoöun og kunningjahópur- inn. — Þetta er sama sagan og h já svindlurunum i barnaskóla. Þeir kiktu fyrst i svörin og reiknuöu svo dæmin út frá þeim. Hér er fólki ekki boriö á brýn, að þaö hugsi ekki um stjórnmál, það gera margir, sumir lesa meira að segja þykkar bækur og eyða tima i málefnalegar umræö- ur (við skoðanabræður sina og systur) Gallinn er semsagt sá ao fóik hugsar með flokknum sinum, ekki óháð, það les blaöiö sitt, en ekki önnur, þaö lætur sannfærast, en af hlutdrægni, og sannfæring þess er ekki nokkurs viröi. Það kemur Saman meö flokknum sin- um, eránægt meö viðurkenningu flokksins, og fer þangað sem flokkurinn fer með það, hvort sem það er rétt eða rangt. Það verður nú einu sinni ekki af fólki skafiö að þaö vill vera vel liðið, og fá uppörvun frá öðrum. Þessari tilfinningu má likja við áfengisböliö, hún er svo sterk, að hún verður að hafa sinn gang.AÖ ekki sé minnst á öryggisþörfina sem er af svipuðum toga — það er þægilegt að tilheyra, og vera ekki einhvers staðar einn á báti (með skoðun). Þessi þörf hefur rekið marga að landi. Það er raunar þvi likast sem háttvirtir kjósendur haldi með stjórnmálaflokkum á sama hátt og menn halda með fótboltalið- um. Aödáendur Fram fara ekki að breyta um liö, þótt Fram sé burstað i hverjum leiknum eftir annan. Það svissar enginn yfir nema fótboltastrákarnir sjáifir, og stjórnmálamennirnir. En skoöanir áhangendanna eru nokkuð óumbrey tanlegar. A sama hátt og menn hætta ekki að halda með liði, þótt það falli i aöra deild eöa þriðju, hættu , endur ekki að halda með flokki, þótt hann værifailinn i aðra deild, ef hann væri fótboltaliö. Þess vegna er hvaða stjórn sem er óhætt aö gera hvaö sem er, nema það eitt aö hlaupa i sjóinn og hengja sig. Það breytti engu um skoðanir kjósenda, þótt stjórnin léti taka gengið af lifi og fýrir- skipaði aö Dalvikingar skyldu siga um 140 prósent á einum degi (álikamikiöogkrónanhefur sigið siðan 1974). Þess vegna mætti alveg eins prenta Fram, KR og fleiri góð liö á kjörseðlana. Kjósendur yrðu bara að varast að skrifa Afram Island á seðlana. Bæði er nú, að það væri kannski ekki viðeigandi, eins ogstaðaner i þessum leik, og svo, að þá yrði seðillinn ógildur. Stærsti leyndardómurinn, Skoðun Fólksins, er ótalin. Al- menningsálitið. Hvað er það? Er það ýtustjóri i vesturbænum eöa húsmóðir við Tjörnina? Nei það er hinn mállausi meiri hluti, og hvað hann hugsar, veit enginn, nema sá sem kann fingramál.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.