Vísir - 15.02.1978, Side 3

Vísir - 15.02.1978, Side 3
æ:} visih Miðvikudagur 15. febrúar 1978 Reglugerð sjóvarútvegsráðuneytisihs um takmarkanir á þorskveiðum: „Það var ekki farið að tillðgum okkar" — segir Ingólfur Ingólfsson formaður Farmanna- og fiskimannasambands íslands ,SJOMENN TAPA FÆRRIVINNUDÖGUM' — segir Jón Arnalds ráðuneytisstjóri „Það var haft samband við alla aðila sem hafa hagsmuna að gæta i sambandi við reglu- gerðina um takmarkanir á þorskveiðum en vissulega var ekki hægt að fara eftir tillögum þeirraallra” sagði Jón Arnalds ráðuneytisstjóri i sjávarútvegs- ráðuneytinu við Visium athuga- semd Sjómannasambands Is- lands og Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. „Ég tel að sjómenn tapi færri vinnudögum ef þorskveiðibann- ið verður um páskana heldur en i lok vertiðar”, sagði Jón. „Þá má deila um það hvor timinn sé betri frá fiskifræðilegu sjónar- miði en ég hygg þó að friðunin um páskana komi að meira gagni. I þessari reglugerð voru sett- ar þær reglur að stærstu loðnu- veiðiskipin verða ekki með og geta ekki fengið greiðslur úr aflatryggingarsjóði”. — KS „ Sjávarútvegsráðu- neytið hafði að engu til- lögur Sjómanna- sambands tslands og Farmanna- og fiski- mannasambands ís- lands um timasetningu og framkvæmd reglu- gerðar um takmörkun á þorskveiðum”, sagði Ingólfur Ingólfsson for maður Farmanna- og fiskimannasambands íslands i samtali við Visi. ,,í frétt frá ráðuneytinu er látið að þvi liggja að reglugerð- in sé sett i fullu samráði við hagsmunasamtök i sjávarút- vegi. Ég vil taka það fram”, sagði Ingólfur, „að við lögðum til að þorskveiðibannið yrði i lok vertiðar frá 1. mai til 10. mai eða frá 5. mai til 15. mai. I reglugerðinni er gert ráð fyrir PRENTARAR MOTMÆLA HARÐLEGA SKERÐINGU Fundur i fulltrúaráði Hins is- lenska prentarafélags hgfur samþykkt að mótmæla „harð- lega ákvörðun rikisstjórnarinn- ar um að fella gengi islensku krónunnar og einnig og ekki sið- ur þeim áformum að skerða vfsitöluákvæði kjarasamninga, scm undirritaðir voru fyrir að- eins átta mánuðum.” isamþykktinnisem gerðvari fyrradag vekur fundurinn at- hygli á, ,,að visitöluákvæðin eru eitt af aðaiatriðum siðustu samninga og eiga að virka scm trygging fyrir þvi að kaupmátt- ur launa haldist óbreyttur. Ef slik trygging er ekki lengur fyr- ir hendi hlýtur verkalýðshreyf- ingin að endurskoða afstöðu sina til samninganna. Fundurinn skorar á verka- fyðsfélög að halda vel vöku sinni gagnvart stjórnvöldum og öðr- um, sem sifelit sjá það eina úr- ræði i svonefndum efnahags- vanda, að skerða kjör launþega og ógilda með lögum frjálsa samninga þeirra”. — ESJ VINNINGARIHAPP- DRÆTTIVÍSISRARNA Dregið hefur verið I happ- drætti blaðburðar- og blaðsölu- barna Visis. Vinningar eru sam- tals að vcrðmæti 150 þúsund krónur og eru greiddir með út- tekt i Tómstundahúsinu Lauga- vegi 164. Nú kom 30 þúsund króna vinn- ingur á miða númer 16142 og 20 þúsund króna vinningur á núm- er 14183. Tiu þúsund króna vinn- ungar komu á eftirtalin númer: 14881 — 15018 — 15348 — 16285 — 16541 — 17234 — 17303 — 17597 — 18063. Vinningshafar eru beðnir að koma með miða sina á af- greiðslu Visis þar sem þeir fá úttektarmiða. Axel, Stefnir og Hann- es Hólmsteinn efstir Axel Jónsson alþingismaður og bæjarfulltrúi, Stefnir Helga- son bæjarfulltrúi og Hannes Hólmsteinn Gissurarson for- maður Týs urðu efstir i skoð- anakönnun Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna i Kópavogi vegna prófkjörs til bæjarstjórn- ar 4.-5. mars n.k. Richard Björgvinsson formaður full- trúaráðsins og bæjarfulltrúi hafði tilkynnt að hann gæfi ekki kost á sér í bæjarstjórn. Sjálf- stæðismenn eiga 4 menn I bæjarstjórn. Skoðanakönnunin var gerð á fundi íulltrúaráðsins 9. febrú- ar. 53 greiddu atkvæði, Axel fékk 43 þeirra, Stefnir 39, Hann- es Hólmsteinn 38, Bragi Mikaelsson bæjarfulltrúi 35 og Torfi Tómasson framkvæmda- stjóri 35. Næstir komu Skúli Sig- urðsson, Arni örnólfsson, Grét- ar Norðfjörð, Jón Þorvaldsson, Jón Thorsteinsson og Eggert Steinsen. Nokkrar umræður urðu á fundinum um nýafstaðið prófkjör til alþingiskosninga i Reykjaneskjördæmi og gætti óánægju með hlut Kópavogs. Bent var á að Kópavogur væri næstfjölmennasti kaupstaður landsins og ætti engan fulltrúa i sex efstu sætum listans. Akveð- ið var að hafa prófkjörið öl bæj- arstjórnar opið. -KS þorskveiðibanni i sjö daga um páskana sem i reynd þýðir 10 daga. Við lögðum fram itarlega greinargerð til sjávarútvegs- ráðuneytisins um þessi mál. Við teljum aðþorskveiðibanniö i lok vertiðar hafi marga kosti um- fram reglugerð sjávarútvegs- ráðuneytisins. Með því næst betri friðun hrygningastofnsins en með veiðistöðvun i mars. Ef stöðvað verður i mars missa sjómenn tekjur sínar á meðan en ef stöðvunin verður i lok ver- tiðar geta sjómenn ráðið sig annað eða byrjað að undirbúa aðrar veiðar. Það getur verið að þeir i ráðuneytinu haldi að sjó- menn séu vanir að taka sér páskafri en svo er ekki. Það er annar galli á reglugerð ráðuneytisins sem ég á eftir að vikja nánar að siöar. Sam- kvæmt henni geta loðnuskip stundað netaveiðar eftir að loðnuveiðum likur og eiga kost á styrk úr aflatryggingarsjóði þó að þau séu með tekjuhæstu skip- um á loðnuvertið. Ef farið hefði verið að okkar ráðum hefði þetta verið fyrirbyggt”. — KS „Eg gef kost á mér ef farið verður fram é það", Þetta hefur komið tiUals, en það er ekkertbúið að ganga frá fram- boðslistum ennþá”, sagði Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir formaður Starfsmannafélagsins Sóknar, þegar Visir spurði um hvort hún tæki annað sæti á lista Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á eftirMagnúsi Torfa Ölafssyni við kosningarnar i vor. ,,Ef flokkurinn fer fram á það við mig að ég gefi kost á mér, þá geri ég það”, sagði Aðalheiðúr. -KP. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 44., 47. og 49. tbl. Lögbirtingabiaðs 1976 á hluta á Laugaveg 76, þingl. eign Þóris Þórarinssonar fer fram eftir kröfu Benedikts Sveinssonar hrl. o.fl. á eigninni sjálfri föstudag 17. febrúar 1978 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavlk. Nouðungaruppboð annað og siðasta á hluta i Kötlufelli 7, þingl. eign Sverris Jenssonar fer fram á eigninni sjálfri föstudag 17. febrúar 1978 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. KINAFERÐIR 4 ferðir í samvinnu við Kínversk - ísienska menningarfélagið, KÍM 27. mars: um London-Hong Kong. Stoppað einn dag I hvorri borg. Dvalist i Kina til 19. aprii. Komið heim' 20. april. 16. okt: Sámskonar ferð, komið heim 4. nóv. 1. júni: Um Kaupmannahöfn og Moskvu. Stoppað I báðum þessum borgum. Komið heim 17. júni. 31. ágúst: Samskonar ferð.komið heim 16. sept. Ferða- áætlauir innan Kfna mismunandi.þó komið i Peking i öllum fcrðum. i fyrra seldust ferðirnar á örskömmum tfma. Dragið ekki að panta Tekið á móti pöntunum f skrifstofu okkar. Ferðaskrifstofa KJARTANS ELGASGNAR H.F. Skólavörðustíg 13A Simi 29211 B0K

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.