Vísir - 15.02.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 15.02.1978, Blaðsíða 11
VISIR Miðvikudagur 15. febrúar 1978 n Frá ráðstefnunni um Alþjóðabankann. Sitjandi frá v. eru m.a. Baldvin Tryggvason, formaður Félags SÞ á tslandi, Jón Sigurðsson, for- stjóri, sem stjórnaði ráöstefnunni, Einar Magnussen, fulltrúi f stjórn Alþjóöabankans, Leif Christofferson og Odd Myhrer, starfs- menn bankans, Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytisstjóri og Jón Skaftason, alþingismaður. — Visismynd: JA hvað þessar tölur þýða i reynd, sagði Einar Magnússon, að um aldamótin siðustu heföu þjóðar- tekjur á mann i Noregi verið um 1000 dalir. Meira tUlit til félagslegra sjónarmiða Einar Magnússon nefndi nokkuð þá gagnrýni, sem lent hefur á Al- þjóðabankanum á liðnum árum. Einkum fjallaði hann um þá gagnrýni, að framkvæmdir, sem bankinn hefi lánað fé til, hefði ekki komið fátækustu ibúum viö- komandi landa til góða. Haiíji sagði það rétt vera, að marghátt- uð fjárfesting, sem bankinn hefði átt aðild að i þróunarrikjunum, hefði vissulega orðið til þess aö breikka bilið milli fátækra og rikra i þróunarlöndunum og þar með gert stöðu hinna fátækustu enn verri. Þetta væri viðurkennt innan Alþjððabankans, og hefði skýrt komið fram i ræðum McNamara, forseta Alþjóða- bankans, siðustu ti'u árin. ,,0g þetta er ekki bara i orði. Þessi viðurkenning kemur i vax- andi mæli fram i starfsemi bank- ans” sagði hann. Hann sagöi, að Norðurlönd legðu mikla áherslu á það innan Alþjóðabankans, að lán hans til þróunarlandanna ættu fyrst og fremst aö fara til fátækustu land- anna, og fátækustu ibúanna innan þeirra, og vaEri vaxandi fylgi við þessa skoðun. Bankinn yrði hins vegar að fara það varlega i sak- irnar að samstaða þeirra landa, sem aðild eiga að honum, héldist. Þessi breytta stefna kæmi m.a. fram i þvi, að nú væri aö mörgu leyti lánað tfl annars konar fram- kvæmda en áður. Bankinn hefði fyrrum lagt megináherslu á lán til virkjana, samgöngutækja, iðn- aðar og landbúnaöar, sem gæfi öruggan arð. A árunum 1965—1968 hafi t.d. um 98% af lán- um bankans farið til slikra verk- efna. Nú væri þetta breytt. Farið væri t.d. að lánamun meira til landbyggðarþróunar, þar sem á- hersla væri lögð á að hjálpa fá- tækum bændum, til uppbyggingar i fátækrahverfum stórborganna, til menntunar, heilbrigðismála, næringarmála og fjölskyldu- skipulagningar. Fyrir árið 1970 hefði litið af lánum bankans fariö til slikra hluta, en á árunum 1975—1977 hafi hins vegar um 45% af heildarútlánunum farið til þeirra, og sýndi þetta þá miklu breytingu, sem orðið hefði. Bandarikin hafa mest atkvæðamagn Einar Magnussen fjaUaöi einn- ig um, hvernig valdahlutföll væru i Alþjóðabahkanum og hvaða möguleika Norðulönd hefðu á að koma sinum sjónarmiðum fram. 1 Alþjóðabankanum eiga um 130 rilci sinn hlut, og á ráðherra frá hverju aðildarrikisæti I aBðstu stjórn bankans, en hún kemur saman einu sinni á ári. Fulltrúi Islands nú er Ólafur Jóhannes- son, viöskiptaráðherra. Atkvæðamagn fer eftir hluta- fjáreign. Bandarikin hafa þyngst atkvæði, eða 21.75% allra atkvæð- anna, en t.d. V-Þýskaland hefur 5%. Norðurlöndin öll hafa 3.41%. Iðnþróuðu rikin hafa samtals um 61% atkvæðanna, ofluútflut- ingsrikin 9% og önnur þróunar- riki 31%. Ráðherrarnir veita sérstakri 20 manna bankastjórn mikinn hluta valds sins. Þessir bankastjórar eru i föstu starfi hjá bankanum i Washington, og er McNamara, forseti bankans, formaður banka- stjórnarinnar. Þar eiga Norður- lönd einn fulltrúa. Fimm ríki — Bas.darikin, Bretiand, V-Þýska- land, Frakkland og Japan — hafa hvertum sig einn bankastjóra, en hin 125 rikin verða aö sameinast um þá 15, sem eftir eru, og skipta sér niöur i hópa i þvi skyni. Hver hinna 15 bankastjóra er þvi i reynd fulltrúi margra landa, og eiga þeir þvi stundum erfitt um vik. Lögð er mikil áhersla á að ná samkomulagi innan bankans um ákvarðanir. Ljóst er, að æðstu embættismennirnir, og þá sér- staklega McNamara, hafa gifur- leg áhrif á niðurstöður mála. Mikilvægt er að hafa áhrif á gang mála áður en þau koma fýrir fundi bankastjórnar, þvi eftir að þangað er komið verður litlu breytt. Alþjóðabankinn og fjölþjóðleg fyrirtæki Á ráðstefnunni urðu nokkur orðaskipti um samskipti Alþjóða- bankans við fjölþjóðleg fyrirtæki. Elias Daviðsson, kerfisfræðingur, taldi, að Alþjóðabankinn hefði þrjú meginmarkmið: „að finna hagvænleg fjárféstingartækifæri fyrir eigendur fjölþjóðafyrir- tækja, að auka hagkvæmni og arðsemi þeirra fjárfestinga, sem fjölþjóða fyrirtæki leggja i, i ein- stökum löndum, og að tryggja réttarstöðu fjölþjóðafýrirtækja gagnvart þjóðrikjum”. Talaði hann um Alþjóðabankann sem „erindreka fjölþjóðafyrirtækja”, og sagði, að bankinn neitaði að lána þeim þjóðum, sem höfnuðu I- tökum fjölþjóðafyrirtækja, á meðan „gerræðisstjórnir, t.d. i Chile”, fengju fyrirgreiðslu. Einar Magnussen sagði gagn- rýni þessa fjarri lagi. Það væri auðvitað rétt, að f jölþjóðleg fyrir- tæki ættu aðild að ýmsum verk- efnum, sem Alþjóðabankinn lán- aði til, enda væri það þá að vilja þeirra rikja, sem lánin fengju. Hins vegar væri gjörsamlega út i hött að fullyrða, að Alþjóðabank- inn væri erindreki fjölþjóðlegra fyrirtækja. Um þá fullyrðingu, að Alþjóða- bankinn lánaði ekki löndum, sem höfnuðu itökum fjölþjóðlegra fyr- irtækja, sagði hann, að hún væri byggð á mikilli vanþekkingu eöa öðru verra. Alþjóðabankinn lán- aði til landa án tillits til sliks. Sem dæmi um, hversu fáránleg full- yrðingin væri, mættí nefna, að Al- þjóðabankinn lánaði til Tanzaniu, Rúmeniu, Júgóslaviu og Laos, og fyrir dyrum stæöi lánveiting til Vietnam. „Varla verðurþvi hald- ið fram, að þessi riki séu undir á- hrifum fjölþjóölegra fyrirtækja”, sagði hann. —ESJ Páll Bergþórsson segir aö langflestir greind- ari og gætnari bændur séu komnirá þá skoðun að rétt sé að draga úr útflutningi á búvörum þvert ofan i barnaskap sauðf jármálaráðherr- ans okkar Halldórs E., sem ár eftir ár hafi haldið því fram, að vaxtarbroddur land- búnaðar lægi i útflutn- ingi búvöru. um er ég samþykkur. Og svo vill nú til að langflestir greindari og gætnari bændur eru komnir á þessaskoðun, þvertofan i barna- skap sauðfjármálaráðherrans okkar, Halldórs E, sem hefur haldiö því fram ár eftir ár að vaxtarbroddur landbúnaöar lægi i útflutningi búvöru. Hér má minna á ágæta grein Hjartar E. Þórarinssonar i Timanum fyrir skemmstu, þar sem hann telur of- framleiðsluna staðreynd og legg- ur á nokkur ráð um það, hvernig við skuli bregðast. Hann vill eink- um takmafka mjólkurframlejðsl- una algerlega við innlendar þarf- ir. Hann bendir á, að þau 40 þús- und tonn af erlendu kjarnfóðri sem nú eru flutt inn, svari fræði- lega til nálega allrar mjólkur sem til samlags berist á landinu. Þessa hringavitleysu sem ég leyfi mér að kalla svo vill Hjörtur tak- marka með nægjanlega háum kjarnfóðurskatti eins og hyggnari leiðtogar bænda hafa lagt til. 1 augnablikinu er þetta útlenda kjarnfóður ódýrt og freistandi en getur orðið bændum jafn hættu- legt og falleg beita á öngli er fiskinum. Það má sanna að i henni sé mikil næring en mundi ekki meltingin stöövast, þegar þorskurinn er kominn i kösina? Og hér með vil ég leggja til aö kjarnfóðurskatti verði m.a. varið til að lækka verð á graskögglum og öðru innlendu kjarnfóðri eink- um þó meö hagræðingu á fram- leiðslunni. Einnig mætti nota hann tíl að hvetja til votheys- verkunar. Annað er þaö sem Hjörtur bendir á að bændur þurfi að laga framleiðsluna sem mest eftir eftirspurn. Innlendi markaöurinn tæki áreiðanlega við meira kjöti en hann gerir nú ef þaö væri að hæfilegum hluta gott nautakjöt af holdablendingum. Og þó aö kenn- ingar sumra þeirra sem hæst tala um manneldismál séu næsta hæp- in visindi þá sé minnkandi eftir- spurn eftír feitmeti staöreynd sem er óiiklegt að breyting verði á i bráð og við þvi verði bændur aðbregðast á skynsamlegan hátt. Hjörtur gagnrýnir með réttu þá kenningu sem hann segir hafa skotið upp i vinstri herbúðum stjórnmálanna að i rauninni sé engin offramleiösla á búvörum, allt mundi seljast ef kaupgetan væri meiri. Það hefur sýnt sig eftír kauphækkanirnar i haust að þessi kenning stenst ekki vel og ég er ekki einn um þá skoðun á vinstri vængnum þvi að Skúli á Ljótunnarstööum hefur afhjúpað þessa blekkingu i grein i Þjóð- viljanum fyrir skemmstu. Hagræðing i landbúnaði Það sem mér finnst einna at- hyglisveröast i grein Hjartar á Tjörn er að bændur verði nú fremur en nokkru sinni fyrr að beina athygli að hinni hagrænu hlið búrekstursins, minnka til- kostnaðinn án þess að minnka að sama skapi nettótekjur búsins til dæmis með þvi að bæta fóður- framleiösluna og draga úr ofvél- Sauðf jár má laráðher rann Halldór E. hefur í barna- skap haldið því fram, að vaxtarbroddur landbún- aðar lægi í útflutningi bú- vöru. væðingu. Þetta er mál sem ég hef talsvert hugleitt i sambandi við baráttuna við islenskt loftslag. Ef gengið er út frá þvi að bú- vöruframleiðslan sé sem mest takmörkuð við innlendan markað er augljóslega þýðingarmikið að draga sem allra mest úr þeim sveiflum sem á henni verða bæði frá einu ári til annars og ekki siður frá einum áratug til annars. I nýútkomnu riti Landverndar um fæðubúskap Islendinga hef ég sett fram tölulega hvernig töðu- fengur af hektara sé háður fyrst og fremst tveimur þáttum, hita- fari og tilbúnum áburði. Ef alltaf er notaður jafn mikill áburður, hlýtur heyfengur að sveiflast stórlega þegar loftslagsbreyting- ar verða eins og tíl dæmis á kal- árunum fyrir 1970. En með þvi að haga áburðargjöf i samræmi við loftslag á hverjum tima má jafna mjög framleiðsluna. I góöæri á þá aðdraga úr áburði frá þvi sem nú er. Þetta er meinalitið þvi að siðustu skammtarnir af tilbúnum áburði gefa á að giska helmingi minni sprettuauka en fyrstu skammtarnir. Þegar svo harðir vetur og vor koma er rétt að auka áburðinn, en þar sem þá er um að ræða óviðráðanlegar aðstæöur af völdum náttúrunnar, er sjálfsagt að slik áburöaraukning veröi greidd að mestu leyti niður af þjóðfélaginu. Og þá má greiða niður kjarnfóður. Þar með halda bændur bústofni sinum, en neyt- endur fá þær vörur sem annars yrði skortur á. I grein minni i riti Landverndar sem minnst var á, er talið sennilegt, að islensk tún gefiað jafnaði 40% minni heyfeng en friðaðir reitir á tílrauna- stöðvum jafnvel þótt tekiö sé tillit til túnbeitar nautpenings. Svipuð skoðun kemur fram i annarri grein i sama riti eftir Friðrik Pálmason og fleiri búvisinda- menn. Ef bændur gætu dregið úr þessum stórkostlegu afföllum af sprettunni minnkað til dæmis óhagkvæma túnbeit sauöfjár væri hægt að spara áburðarkaup að sama skapi og auka nettótekjur búsins. Gott viðhald þurrkunar i votlendum nýræktum er atriði, sem gætí sparaö áburð. Búfjár- áburð má nýta betur en gert er. Hjörtur nefnir ofvélvæðingu sem vandamálbænda. Mæli hann manna heilastur og þarft væri að Sambandið sneri nú blaðinu við og hvetti bændur til að kaupa slika vöru I hófi. Þaö er kunnugt að til votheysverkunar þarf mun einfaldari vélakost en tíl að þurrka hey, en i leiöinni munu fást miklu fleiri fóðureiningar af hektaranum með súrheysverkun- inni og jafnara fóöur frá ári til árs. Þungar og margar vélar eyða mikiíli orku og skemma viðkvæm gróðurteppi túnanna. Að nota saltarann I upphafi greinar minntist ég á þrjú afbrigði af hinum vonda, kölska gamla sjálfan, verðbólg- una og Jónas ritstjóra. Vist var Satan vondur, en þó girnilegt að fara að dæmi hans i hófi. Verð- bólgan er bölvuð, er getur þó hvatt til framkvæmda og fram- fara sé haldið i hemilinn á henni. A sama hátt getur stefna Jónasar Hjörtur Þórarinsson á Tjörn gagnrýnir réttilega þá kenningu, sem hann segir að hafi skotið upp kolli i vinstri herbúðum stjórnmálanna, að i raun- inni sé engin offram- leiðsla á búvörum, allt myndi seljast ef kaupget- an væri meiri. i landbúnaðarmálum leitt tíl góðs ef menn tempra hæfilega fram- kvæmd hennar. Sem sagt það má hafa gott gagn af óvininum ef við eigum i fórum okkar saltara til að lemja í hausinn á honum á réttum augnablikum, eins og Sæmundur fróði gerði á sinni miklu sundreiö yfir íslands ála. En hvenær sem Jónas verður laminn er þó allra brýnast að bændur keyri saltara sinn þegar i staö i höfuöið á Hall- dóri E. áður en hann lætur stór- auka búvöruframleiðslu til út- flutnings, fyrir spottpris.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.