Vísir - 24.02.1978, Síða 3

Vísir - 24.02.1978, Síða 3
VISIR Föstudagur 24. febrúar 1978 3 Æskilegt oð óbeinir skattar fari út úr verðbótavísi- tölunni — segir í OECD-skýrslunni um ísland Efnahags- og framfara- stofnunin í París telur æskilegt að undanskilja óbeina skatta við útreikn- ing á verðbótavisitölu. Þetta kemur fram i skýrslu stofnunarinnar um þróun íslenskra efnahags- mála 1976 til 1977 og horfur á þessu ári. I skýrslunni segir að torvelt sé að beita rikisfjármálum enn frekar i aðhaldsátt eftir kjara- samningana við opinbera starfs- menn. Við rikjandi aðstæður verði þvi að beita aðgerðum á öðrum sviðum efnahagsmála. Eins og nú hátti til feli verðbóta- ákviæði kjarasamninga i sér, að launþegum séu bættar, með hækkun launa, hækkanir á óbein- um sköttum. Áhrif skattbreytinga á þessu sviði á heildareftirspurn séu þvi næsta litil og af þeim sök- um virðist æskilegt að undan- skilja óbeina skatta við útreikn- ing á verðbótavisitölu. Þá er i skýrslunni lögð áhersla á virkari stefnu á sviði gengis- mála. Stofnunin telur aðgerðir i gengismálum hins vegar haldlitl- ar nema þeim fylgi strangt að- hald á öðrum sviðum efnahags- mála. Bent er á þá leið að skerða verðbótaákvæði kjarasamning- anna með þvi að taka verðáhrif gengisfellingarinnar út úr verð- bótavisitölunni eins og raunar hefði stundum verið gert bæði á Islandi og öðrum löndum. En jafnvel þó að þessi leið yrði farin, væri enn óleystur sá vandi að halda aftur af þeirri hækkun launa, er hlýst af umsömdum kauphækkunum og launaskriði á þessu ári. t skýrslunni segir að einn þáttur i þvi að bæta stöðu landsins út á við felist i auknum sparnaði i hlutfalli við þjóðarframleiðslu. Til þess þyrfti m.a. greiðsluaf- gang hjá rikissjóði 1978. Þá er lögð áhersla á að beita raunhæf- um vöxtum eða verðtryggingu. Bent er á mikilvægi jöfnunar- sjóða i sjávarútvegi og sagt að verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins hafi verið beitt á þann veg að leitt hafi til aukinnar verð- bólgu. Efnahags- og framara- stofnunin telur að við rikjandi að- stæður i efnahagsmálum á Is- landi ætti að gefast tækifæri til að koma á gagngerum breytingum, er varða efnahagsstefnuna til lengdar. t skýrslunni segir að auðveldara yrði að koma á jafn- vægi i efnahagsmálum, ef timi hagstæðs ytra árferðis væri nýtt- ur til þess að bæta hagskipulagið og koma á umbótum i stjórn efna- hagsmála. Ung kona réð manni sínum bana með hnífi Úrskurðuð í 60 daga gœsluvarðhald Ung kona réð manni sinum bana í Reykjavik um siðustu helgi. Er hún nú í gæsluvarðhaldi og er unnið að rannsókn máls- ins. Konan var úrskurðuð í allt að 60 daga gæslu- varðhald og verður látin gangast undir geð>ann- sókn. Maðurinn sem lést, hét Árelius Viggósson. Hann var fæddur 2.10.1955. Kona hans, sem viðurkennt hefur verkn- aðinn, heitir Jenní Grettisdóttir og er fædd 24. mars 1952. Atburðurinn átti sér stað á heimili þeirra við Skólavörðu- stig 21a i Reykjavik aðfararnótt sunnudagsins 19. febrúar. Um kvöldið mun maðurinn hafa farið i veitingahús i Reykjavik og fór konan þangað á eftir honum. Þau fóru heim saman, en stuttu siðar, eða um klukkan 01.30, var sjúkrabill kallaður á staðinn. Hafði þá skorist i odda með hjónunum, greip konan eldhúshnif og lagði til mannsins og kom hnifurinn i brjóst hans. Maðurinn var þegar fluttur í sjúkrahús en lést um klukku- stundu siðar. —EA Fóta- ferðir Nafnið, sem ljósmyndarinn gefur þessari mynd er „Fótaferðir”. Hún er meðal mynda á ljósmyndasýningunni LJÓS, sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum í Reykjavik. Höfundurinn er Kristján B. Kjartansson. Sýningunni lýkur á þriðjudagskvöld, en hún er opin frá klukkan 16 til 22 daglega, að öðru leyti en þvi að um helgina er hún opin frá 14 til 22. Gestur sýningarinnar er hinn kunni ljósntyndari Jón Kaldal. Björn ó sjúkrahúsi Björn Jónsson forseti ASÍ veiktist hastarlega á laugardaginn og hefur leg- ið á sjúkrahúsi síðan. Ljóst er að Björn mun verða frá störfum um ófyrirsjáan- legan tíma. Við störfum Björns hjá Alþýðusambandi .íslands tók varaforseti sambands- ins, Snorri Jónsson, og sinnir hann störfum for- seta. —SG. Hin fróbœra (THEALBUM) er komin aftur í verslanir vorar FALKIN N Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24. Vesturveri.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.