Vísir - 24.02.1978, Blaðsíða 20
VÍSIR
Unnið við frágang Visis i prentsmiðju Blaöaprents laust
fyrir hádegiö í dag.
Nýr svipur
Visir kemur í dag út með
nýjum svip og á nýtt fyrir-
sagnaietur einna mestan
þátt i þvi, en auk þess höf-
um viö tekið upp þá ný-
breytni, að setja fréttaefnið
á útsiðunum i sex dálka i
stað fimm dálka, eins og
tiðkast hefur i öllum Is-
lensku dagblöðunum und-
anfarin ár.
Viö væntum þess, að
þessi nýbreytni mælist vel
fyrir og staðfesti að þótt
Visir sé elsta dagbiað
landsins, sé hann siungur.
„Stöndum ekki
lengur undir
hallarekstri "
,,Við reyndum að halda rekstrinum gangandi i lengstu lög. Fiskvinnslan i Vest-
mannaeyjum hefur fengið fullkomna lánafyrirgreiðslu og verulega umfram
það, en það gengur ekki að standa undir hallarekstri með lánumárum saman”
sagði Bjarni Guðbjörnsson, bankastjóri tJtvegsbankans, i samtali við Visi
Útvegsbankinn i Eyjum
hefur sem kunnugt er
stöðvað frekari lánveit-
ingu umfram afurðalán
og viðbótarlán til fisk-
vinnslunnar þar og hafa
forsvarsmenn hennar
sagt að ef ekki rættist úr
og meira fjármagn feng-
ist yrði að segja starfs-
fólki upp. Nefnd frá fisk-
vinnslufyrirtækjum í
Vestmannaeyjum er nú
stödd i Reykjavik til að
ræða vanda Fiskvinnsl-
unnar við stjórnvöld og
aukafundur hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna
verður haldinn kl. tvö i
dag og þar verða þessi
mál rædd meðal annars.
Bjarni Guðbjörnsson
sagði að hann gerði sér
grein fyrir þvi að þessi
stöðvun lána kæmi
harkalega niður á at-
vinnulifi i Eyjum, en
bankinn hafi siðastliðin
tvö ár veitt fiskvinnslunni
öll hugsanleg lán, afurð-
arlán, viðbótarlán og yf-
irdrátt á hlaupareikningi.
Hins vegar væri fisk-
vinnslan rekin með bull-
andi tapi og þetta gengi
ekki lengur og yrði að
leysa rekstrarvanda
hennar á öðrum vett-
vangi. Benti Bjarni á að i
haust hefðu stjórnvöld
lofað fiskvinnslunni i
landinu 500 milljón króna
lán , en ekkert bólaöi á
þvi ennþá. — KS.
Loðnuskipin Erlingur Arnar frá Vestmannaeyjum og
Guðmundur RE lentu i nokkuð hörðum árekstri fimmtán
milur austur af Vestmannaeyjum siðastliðna nótt.
Erlingur er ósjófær á Vestmannaeyjahöfn, en tonrf af loðnu, en ekki
eftir, með gat á stefni, en þar fara sjópróf væntan- fékkst upplýst i morgun á
Guðmundur dældaður á lega fram i dag. hvaða ferð Erlingur var.
bakborðssiðu, á móts við Guðmundur var á —GS, Vestmanna-
brúna. Skipin liggja nú i heimsiglingu meö 700 eyjum/óT
Loðnuveiðin
misjöfn
Loðnuflotinn heldur
sig nú suð-austur af
Iivalbak, en veiðin
hefur gengið misjafn-
lega siðustu dagana.
Mjög góð veiði var
fyrir og um siðustu
helgi og kom þá hver
báturinn af öðrum
drekkhlaðinn til hafna
á Austfjörðum.
t byrjun vikunnar
dró aftur á móti úr
veiðinni, en nú siðustu
daga hefur hún heldur
aukist aftur— eða þar
til í nótt að veður
versnaði á miðunun.
-klp-
Hluti af islensku sendinefndlnni á þingi Norðurlandaráðs I Osló. Myndina tók blaöamað-
ur VIsis, Jtn Einar, af þeim Sverri Hermannssyni, Ragnhildi Helgadóttur og Magnúsi
Kjartanssyni á siðasta degi þingsins.
W.W.V.'AW.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.
>
I
vetrar-
hörkur á sig fá Reykjavíkurmeyjarnar
að undanförnu/ og sótt óspart i baðlækinn
góða í Nauthólsvík.
Nú er reyndar orðið hálfgert vor í lofti
og ekki minnkar aðsóknin við það. Þessi
yngismær var meðal gesta í læknum er
Ijósmyndara Vísis bar að garði, og sagð-
ist hún fremur sækja þennan stað en
sundlaugar borgarinnar.
V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.'.V.'
I
Áreks*ur á loðnw
miðunum í nott
Þing an mik-
illa tíðinda
Stórátakalausu þingi
ósló er nýlokið.
Tryggve Bratteli, forseti
þingsins, sagði m.a. i þing-
slitarræðunni: „Það hefur
verið sagt að þetta hafi
verið tiðindalaust þing og
að blaðamennirnir hafi
ekki fengið hér neinar æsi-
fréttir. Ég ætla að vona að
okkar heimshluti megi sem
lengst vera án æsifrétta”.
Efnahagsmálin og sam-
vinna Norðurlanda á þeim
vettvangi var mikið rædd á
þinginu. Það eru einkum
Norðmenn sem hafa óskað
Norðurlandaráðs i
eftir samstarfi á þessu
sviði. í þeim efnahags-
erfiðleikum sem hrjáð hafa
heiminn hefur samkeppni
Norðurlandanna á erlend-
um mörkuðum harðnað
mjög. Má sem dæmi nefna
að sænsk skipafélög undir-
bjóða norsk félög. Þetta
telja Norðmenn að koma
verði i veg fyrir.
Inn i þessar efnahagsum-
ræður drógust að sjálf-
sögðu oliuauðlindir Norð-
manna. — JEG, Osló
aauglýsing í Visi er engin£^g^0augiýsing
Opiö virka daga
til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
simi
86611