Vísir - 03.03.1978, Síða 10
10
Utgefandi: Reykjaprenth/f
Framkvæmdarstjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
Olafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð
mundurG. Petursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Bláðamenn:
Edda Andrésdottir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jónina
Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Palsson, Kjartan Stefánsson, Oli
Tynes, 'Sæmundur Guóvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Jon Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón
Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8
simar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur
Frá austri til vesturs
Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra fékk eins
og vænta mátti höfðinglegar móttökur í opinberri heim-
sókn sinni til Ráðstjórnarrikjanna/ sem nú er nýlokið.
Ráðherrann hefur eftir heimkomuna lýst yfir því að
þessi heimsókn hafi bæði verið gagnleg og ánægjuleg.
Ráðstjórnarstjórnvöld hafa lagt á það ríka
áherslu síðustu ár að bjóða íslenskum ráðherrum austur.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra haf a þegar farið
auk sjávarútvegsráðherra og Vilhjálmur á Brekku á
þangað heimboð, sem hann hefur ekki komið við að
þiggja enn sem komið er.
Ekki er nema gott eitt að segja um þessar opinberu
heimsóknir. En eftir heimkomuna frá Ráðstjórnarríkj-
unum hefur Matthías Bjarnason vakið athygli á þeim
viðskiptaörðugleikum, sem við stöndum frammi fyrir
gagnvart þessari gestrisnu þjóð.
Sjávarútvegsráðherra flytur þann boðskap frá Ráð-
stjórnarríkjunum að það sé stef na þeirra að verða sjálf-
um sér nóg varðandi öf lun sjávaraf urða. Þau hafa þegar
gert fiskveiðisamninga við þjóðir, sem fært hafa land-
helgi sína út i 200 sjómilur gegn því að landa þar f iski og
kaupa hann síðan fullunninn.
Þessar aðstæður hljóta að opna augu manna fyrir
mikilvægi þess að leita nýrra markaða, sem smám sam-
an gætu komið i staðinn fyrir kaup Ráðstjórnarríkjanna.
Einsýnt virðist að Ráðstjórnarríkin geta ekki nema í
mjög takmörkuðum mæli boðiðþað verð sem við þurf um
að fá fyrir útflutningsafurðir okkar.
Framleiðsla á Ráðstjórnarríkjamarkað er ekki háð
sömu kröfum og gerðar eru á mörkuðum í Vestun
Evrópu og Ameríku. Ef við byggjum framleiðslu okkar
þannig upp getum við augljóslega staðið frammi fyrir
verulegum viðskiptalegurrrhættum, sem felast í því að
við getum lent í erf iðleikum með að aðlaga okkur að öðr-
um mörkuðum.
Ullariðnaður á Akureyri er t.a.m. kominn undir velvild
Ráðstjórnarríkjanna að miklu leyti. Þannig geta þau
haft afgerandi áhrif á atvinnulíf á Akureyri. Sama er
upp á teningnum að því er varðar lagmetisiðnaðinn.
Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra bendir rétti-
lega á það í viðtali við Vísi sl. þriðjudag, að lagmetisiðn-
aðurinn á nú mest undir útf lutningsmöguleikum til Ráð-
stjórnarríkjanna.
Ýmislegt bendir því til þess aðgera þurf i verulegt átak
í því að opna nýja markaði, bæði fyrir sjávaraf urðir og
ullariðnað. Að því er sjávarafurðirnar varðar er það
ekki einungis lagmetið, sem á í hlut, heldur einnig ný
framleiðsla, er við komum til með að byggja á eins og
t.d. kolmunninn.
Þær hugmyndir hafa verið settar fram, að við freist-
uðum þess að koma fiskafurðum á markað í Vestur
Evrópu, t.a.m. í Þýskalandi, með svipuðum hætti og í
Bandaríkjunum. Ef þannig færi myndum við kaupa olíu
þar sem hagstæðast væri hverju sinni, en ekki binda þau
kaup við Ráðstjórnarríkin.
Vísir hefur áður bent á að þessum málum verður að
gefa gaum. Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra
hefur sagt skýrt og skorinort, eftir heimsókn sina til
Ráðstjórnarríkjanna, að hann telji sjálfsagt að efla við-
skipti okkar við Vestur-Evrópu. Hann hef ur einnig sagt í
viðtali við þetta blað að honum lítist ekki illa á þá hug-
mynd að við reisum f iskvinnslufyrirtæki í Þýskalandi,
en hefur um leið lagt áherslu á að hann vilji ekki síður
auka viðskipti við Holland og Belgíu.
Meginatriðiðer, að Islendingar verða í meiri alvöru en
hingað til hef ur verið gert að auka viðskiptin við Vestur
Evrópu. Við getum eftir sem áður stundað vinsamleg
samskipti við Ráðstjórnarríkin, en megum umfram allt
ekki einangra stóra þætti í framleiðslustarfsemi okkar
við þann markað.
Askríftargjald er kr. 1700 á
mánuði innanlands.
Verð i lausasölu
kr. »0 eintakiö.
Prentun
Blaðaprent h/f.
Föstudagur 3. mars 1978
visir
HÆGT AÐ KOMAI
I VEG FYRI
SJÓFLÓÐATJÓN
• Vísir rteðir við Þórarin Magnússon
verkfrœðing hjó Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins
Þórarinn Magnússon verk-
fræðingur. Visismynd BP
„Við viljum að það verði
settar reglur um skipu-
legar varnaraðgerðir
gegn snjóflóðum hér á
landi til þess að reyna að
koma i veg fyrir að slys
af völdum snjóflóðs á
borð við það sem varð i
Neskaupsstað endurtaki
sig. En slysin vilja
gleymast þegar hjá líður
og mönnum verður
hættan ekki eins ljós og
áður”, sagði Þórarinn
Magnússon verk-
fræðingur i samtali við
Visi.
Þórarinn hefur ásamt Helga
Björnssyni jöklafræðingi og
Magnúsi Hallgrimssyni verk-
fræðingi kynnt sér rannsóknir á
snjóflóðum og vörnum gegn þeim
bæði hér heima og erlendis.
„Fyrsta ferðin utan var farin til
Noregs og Sviss i janúar 1976.
Styrk til fararinnar fengum við
frá Rauða - krossi Islands,
Hjálparstofnun kirkjunnar auk
þess hafa vinnuveitendur okkar
borið hluta af kostnaðinum við
námsferðirnar. Hafa nokkrar
ferðir verið farnar m.a. til
Bandarikjanna og Kanada.”
Varnarvirki ofviða ein-
stökum bæjarfélögum
„Að minu áliti hefur árangur af
þessum ferðum verið góður”,
sagði Þórarinn. „Miklum upp-
lýsingum hefur verið safnað,
mannvirki skoðuð og tengsl hafa
fengist við mjög marga aðila sem
fást við snjóflóðarannsóknir. 1
Noregi var stofnuð sérstök deild
Félagsmálastorfið
er annað og meira
en úthlutun peninga
Umþessar mundir eru
10 ár liðin siðan sam-
þykkt um félagsmálaráð
Reykjavikurborgar tók
gildi, en með henni var
miðað að þvi að sameina
og samræma félags-
málastarf á vegum
Reykjavikurborgar i
einni stofnun, Félags-
málastofnun Reykjavík-
urborgar, undir stjórn
félagsmálaráðs.
I fljótu bragði verður mörgum
hugsað fyrst og fremst til aðstoð-
ar við ýmis olnbogabörn þjóðfé-
lagsins, þegar nafn Félagsmála-
stofnunar ber á góma, en hér er
allt annað og miklu meira á ferð-
inni.
Starf Félagsmálastofnunar
tekur yfir afar vitt svið, nær með-
al annars til heimilishjálpar fyrir
aldraða, starfsemi upptökuheim-
ila og stofnana fyrir börn, rekst-
urs leiguhúsnæðis borgarinnar,
félagsmálaaöstoðarfyrir þá, sem
eru hjálpar þurfi, tómstunda-
starfs aldraðra, og uppbyggingar
og reksturs dagvistunarstofiiana
fyrir börn, svo nokkuð sé talið. 1
vaxandi mæli hefur verið lögð á-
... \
Markús Örn Antonsson«
borgarráösmaöur og I
formaöur félagsmála-
ráðs Reykjavikurborg-
ar skrifar um starf-
semi Félagsmála-
stofnunar Reykjavík-
urborgar og segir m.a.
að aukin áhersla sé
lögö á fyrirbyggjandi
aðgerðir.
'---------Y^----------
hersla á fyrirbyggjandi starf á
vegum Félagsmálastofnunar og
mun starfsemi hennar beinast æ
meir i þann farveg. 1 ljós hefur
komið, að þeim fjölgar hlutfalls-
lega, sem aðeins njóta aðstoðar i
formi leiðbeininga og ráðgjafar,
en fá ekki fjárhagsaðstoð. Er það
mikilsverður árangur i félags-
málastarfinu.
Starfssvið
félagsmálaráðs
Það er félagsmálaráð, sem er
stjórnarnefnd Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkurborgar, og hef-
ur eftárlit með henni og þeim öðr-
um stofnunum borgarinnar, sem
að félagsmálum vinna. Auk þess
að hafa umsjón með starfi þess-
arar stofnunar borgarinnar, er
félagsmálaráð borgarstjórn ráð-
gefandi um ýmsa aðra þætti fé-
lagsmálanna og hefur frumkvæði
aðþviað gera tillögur um nýmæli
á því sviði eða endurskoðun og
endurbætur á gildandi lögum,
reglugerðum eða samþykktum.
Félagsmálaráð er skipað 7 mönn-
um, sem kjörnir eru hlutfalls-
kosningu af borgarstjórn og jafn-
mörgum til vara. Samþykkt fyrir
ráðið tók gildi 1968 og frá sama
tima tók félagsmálaráð við verk-
efnum framfærslunefndar. Siðan
hefur ráðið tekið við verkefnum
barnaverndarnefndar og áfengis-
varnarnefndar að nokkru sam-
kvæmt reglugerðum um verk-
efnaskiptingu milli félagsmála-
ráðs og nefndanna.
Fundir félagsmálaráðs eru
haldnir flestalla fimmtudags-