Vísir - 03.03.1978, Side 28
VÍSIR
Bremsumar frvsu
og bíUinn í sjóinn
Fólksblll dk út af smábátabryggjunni i Bolungarvlk
aðfaranótt iniðvikudags og lenti i sjónum. Einn maður var
i bilnum og tókst honum við iilan leik að komast i land.
Manninum varð ekki meint af volkinu en bfllinn er tals-
vert skenimdur.
Tildrög slyssins voru þau
að maðurinn sem heitir
Elias Ketilsson var á leið
niður bryggjuna að huga að
báti er hann átti. Þegar
hann ætlaði að stöðva bil-
inn voru bremsurnar frosn-
ar fastar og billinn steypt-
ist fram af bryggjunni.
Hörkugaddur var og norð-
austan stórhrið og var sjór-
inn isi lagður. Billinn braut
vök i ísinn og tókst mannin-
um að komast út úr honum.
Það tók hann nokkurn tima
að finna vökina og synda aö
bryggjunni. Þar vildi það
honum til láns að stigi lá
frá bryggjunni niður i sjó
og komst hann upp hann
með naumindum. Enginn
var nærstaddur sem hefði
getaö komið honum til
hjálpar.
—K.L.M, Bolungarvík/KS
MÍSjÖÍFN
ÞÁTTTAKA
Tveggja daga verkfalli nokkurra
stærstu launþegasamtaka i landinu er
nú lokið og er þátttakan i þvi mjög mis-
jöfn, og ber upplýsingum aðila vinnu-
markaðarins ekki saman.
Samkvæmt upplýsing-
um frá Alþýðusambandi
Islands hefur vinnustöðv-
un á Reykjavikursvæðinu
báða verkfallsdagana
verið sem næst alger hjá
þeim tveim félögum, sem
boðuðu formlegar verk-
fallsaðgerðir, en það voru
Dagsbrún og Prentara-
félagið.
Ennfremur hafi þátt-
takan á mótmælaað-
gerðum verið mjög al-
menn úti á landi, á Akra-
nesi, i Borgarnesi og á
Siglulfirði. Á Akureyri
lögðu um 70-80% manna
niður vinnu á félagssvæöi
Einingar. A Neskaups-
stað var algjör stöðvun
báða verkfallsdagana að
þvi er segir i frétt frá ASt.
Þessum upplýsingum
ber ekki saman við upp-
lýsingar atvinnurekenda.
I frétt frá Félagi is-
lenskra iðnrekenda segir
að 80% starfsfólks iðn-
fyrirtækja hafi mætt til
starfa 1. og 2. mars og er
þessi niðurstaða byggð á
könnun sem tók til 30
fyrirtækja af 200 sem
aðild eiga að Félagi is-
lenskra iðnrekenda.
„Þaö voru flest fyrir-
tæki i rekstri en misjafnt
hvernig gekk eftir at-
vinnugreinum”, sagði
Kjartan Jónsson fulltrúi
Vinnuveitendasambandi
íslands viö Visi. Kjartan
sagði að meginþorri
fyrirtækja i málm- og
skipasmiðaiðnaðinum
hefði verið starfræktur i
verkfallinu en hins vegar
hefðu aðeins um 50-60%
mannaflans mætt. Það
virtist sem lögð hefði ver-
ið áhersla á að stöðva
stærri fyrirtækin. Hjá
Eimskip var ekkert unniö
við aígreiöslu og upp-
skipun. í byggingar-
iðnaöinum mættu flestir
múrarar og pipu-
lagningarmenn. Ein-
hyerjar fjarvistir voru
hjá trésmiðum og verka-
mönnum en þó hlutfalls-
lega meiri hjá tré-
smiðum. Kjartan sagði aö
viðast hvar hefði verið
unnið úti á landi.
Samskonar upplýsing-
ar fékk Visir hjá Gunnari
Bjarnasyni hjá Meistara-
félagi byggingarmanna
en hann taldi þó að fljótt á
litið hefði þátttakan ,i
verkf allsa ðgerðum i
byggingariðnaðinum
verið 40-50%.
—KS
Margt góöra manna og kvenna var vibstatt opnunina I gærkvöldi, eins og sjá má á þessari mynd. A litlu mynd-
inni eru þeir Ólafur Laufdal og Baldvin Jónsson að skála fyrir Hollywood. Visismynd BP.
Nú dansa Reykvík-
ingar í Hollywood
Nýr skemm tistaður,
Hollywood, var opnaður
i gærkvöldi með
„grandeur” sem hæfir
nafninu. Fullt var út að
dyrum og margirurðu frá
að hverfa.
Það er ólafur Laúfdal,
fyrrum óöalsbóndi, sem
er aðaleigandi hins nýja
diskóteks, en það er þar
sem áður var Sesar, á
mótum Armúla og
Hallarmúla.
Litlar sem engar breyt-
ingar hafa verið geröar á
húsakynnum staðarins og
eru ekki fyrirhugaðar i
bráð. Starfsfólkið munu
gestir kannast viö úr
Óöali, en það hefur fylgt
Ólafi til Hollywood.
—GA.
Tóku sér stöðu
fyrir framan
Flugfélagsvéi
Dagsbrúnarmenn hindruðu á miövikudaginn eina af
Fokker-vélum Flugfélags tslands i að fara til Vestmanna-
eyja með þvi að leggja við hana bifreiö og standa I hóp
fyrir framan hana.
Einar Helgason yfir-
maður innanlandsflug-
deildar sagði Visi i morgun
að Dagsbrúnarmenn hefðu
sagt þetta löglegt verkfall
boðað i nafni félags sfns og
þvi ekki mætt til vinnu.
Verkstjórar voru þá látn-
ir afgreiða vélarnar en það
sögðu Dagsbrúnarmenn
verkfallsbrot. Einar sagði
aö í venjulegu verkfalli
yrðu verkstjórar aldrei
látnir gegna þessum störf-
um, en þeir hefðu talið að i
þessu tilfelli væri þvi ekki
til að dreifa.
Þegar hins vegar Dags-
brúnarmenn röðuðu sér við
vélina og sögðu hana
hvergi fara var hætt við
flugið og ekki reynt aftur
né heldur siðari verkfalls-
daginn. I morgun var hins
vegar hafið flug eftir þvi
sem veður leyfði. —óT
„Sœkí aftur
um starfið"
— segir Rognar B|örnsson
„Ég héf tekið þá ákvörð-
un að sækja aftur um starf
organista viö Dómkirkjuna
vegna þess að ég tel, að
sem tónlistarmaður á þeim
stað geti ég orðið kirkjunni
og islenskri tónlist að
mestu gagni innan lands og
utan. Kirkjan er stofnun
sem hlýtur að aga sina, en
ekki forherða og er sáttfýsi
þvi ekki minkunn”, segir í
yfirlýsingu frá Ragnari
Björnssyni organista, en
eins og komið hefur fram i
Visi hefur honum verið vik:-
ið úr starfi án nokkurra
skýringa.
Vegna uppsagnar
Ragnars sendu meðlimir I
Dómkórnum bréf til
sóknarnefndar, þar sem
segir að kórinn hafi hætt
störfum meðan ekki verður
breyting á þvi ástandi sem
núer. —KP.
Fáir fjarverandi, segir ráðuneytið
Niargir í verkfalli, segja félögin
,,í stórum dráttum var mætt mjög vel i langflestar stofn-
anir rikisins verkfallsdagana. Fjarvistir voru hvað mestar i
skólum, en mæting var yfirleitt betri seinni daginn”, sagði
Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri i fjármálaráðuneytinu, i
samtali við Visi.
Fjármálaráðuneytið lét
gera yfírlit yfir mætingar
starfsmanna fyrsta verk-
fallsdaginn. Af 159 stofn-
unum voru allir mættir hjá
104. 1 ráðuneytunum voru
yfirleitt allir mættir en þó
vantaði nokkra i einstakar
stofnanir og á vegum
þeirra og að sögn Þorsteins
Geirssonar skrifstofustjóra
I fjármálaráðuneytinu var
yfirleitt litil mæting hjá
íitlum stofnunum.
Upplýsingar frá mennta-
málaráðuneytinu lágu ekki
fyrir þar sem ekki var lokið
könnun á mætingu kennara
iskóla landsins. Vitað er að
sumir skólar störfuðu með
eðlilegum hætti eins og
M.R. og Tækniskólinn, en
hins vegar iá kennsla niðri
eða þvf sem næst i Hamra-
hlið og mörgum deildum
Háskólans.
Þorsteinn sagði að gróft
reiknað, ef skólarnir væru
teknir út úr dæminu, væri
ekki vafi á þvi að mæting i
rikisstofnanir hefði veriö
yfir 90%.
Haraldur Steinþórsson,
framkvæmdastjóri BSRB,
sagði i samtali vð Visi að
þátttaka félagsmanna i
verkfallinu hefði verið um
50%, ef frá eru taldar heil-
brigðisstéttir og þeir sem
þurftu að sinna öryggis-
þjónustu. Ef kennarar við
grunnskóla væru teknir
sérstaklega hefði þátttaka
þeirra verið um 60-70%.
Haraldur sagði, að af um
níu þúsund félagsmönnum
væru i heilbrigðis og
öryggisþjónustu um þrjú
þúsund og um helmingur
þeirra sem eftir væru
mættu ekki til vinnu.
Magnús Skúlason hjá.
BHM sagði i samtali við
Vísi að þeim teldist til að
um 75% félagsmanna heföu
tekið þátt i verkfallinu.
—KS
AEG TELEFUNKEN litsjónvarpstœki
DREGIÐ20.APRIL
Smáauglýsingainöttaka
alla virka daga frá 9-22,
Laugardaga frá 9-15 og
sutinudaga frá 18-22.