Vísir - 21.04.1978, Page 13
vism Föstudagur 21. apríl 1978
13
Unnið við viðgerð á vinvláklæði.
Nú er hœgt að gera við
skemmdir á tramrúðum
bíla og á sœtaáklœði
Skemmdir á framrúð-
um bifreiða eru mjög al-
gengar hérlendis og þá
ekki síst af völdum stein-
kasts. Nú hefur Ventill
hf. fengið einkaleyfi á
nýrri aðferð til viðgerða á
sprungum í framrúðum
og er nú hægt að gera við
rúmlega helming þeirra
skemmda sem algengast-
areru á framrúðum/ með
þessari aðferð.
Það er bandariska fyrirtækið
NOVUS Inc. sem fann upp þessa
aðferð. Hún er fólgin i þvi að
tæki með sogskálum er sett á
rúðuna og yfir skemmdina
leggst þá hringlaga stykki með
gati í gegn. Um þetta op er
sprautað sérstöku fljótandi efni
sem þrýstist inn i sprunguna og
verður glerið sem óskemmt á
eftir og styrkur hinn sami og i
nýrri rúðu. Viðgerðin tekur að
jafnaöi aðeins um klukkustund
og þarf ekki að taka rúðuna úr á
meðan.
Kostnaður við viðgerðina er
frá sjö þúsund krónum og hefur
þessi aðferð verið viðurkennd af
tryggingafélögum og bifreiða-
stofnunum i Bandarikjunum og
einnig hefur norska bifreiðaeft-
irlitið viðurkennt hana.
Þá hefur Ventill hf. einnig
fengið umboð fyrir nýja aðferð
til að gera við skemmdir á
vinyláklæðum i bifreiðum og
eða öðru sem klætt er vinyl.
Fram til þessa hefur verið fátt
til ráða þegar áklæðið hefur
rifnað eða skemmst á annan hátt
en nú býðst Ventill til að fram-
kvæmda viðgerð á fljótan og ör-
uggan hátt svo ummerki verða
engin. Hefur þessi aðferð verið
viðurkennd af norska Bilskade-
instituttet A/S.
Framkvæmdastjóri Ventils
h.f. Ármúla 23 er Jóhann Jó-
hannsson en umboð á Akureyri
hefur Bifreiðaverkstæði Bjarna
Sigurjónssonar.
—SG
Jóhann Jóhannsson framkvæmdastjóri Ventils gerir við skemmd á
rúðu.
BILAVARAHLUTIR
PEUGEOT 204 ARG. '69
FIAT 128 ÁRG. '72
FIAT 850 SPORT ÁRG. '72
BENZ 319
BÍLAPARTASALAN
Hofðatuni 10, simi 11397.
Opið fra kl. 9-6.30. laugardaga
kl. 9-3 oy sunnudaqa kI 13
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
VISIR
H: 1550 mm
B: 595 mm
D: 595 mm
Kæliskápur RP 1180
sparió
70.000. -
Vegna hagstæðra samninga getum við boðið
takmarkað magn á þessu ótrúlega verði.
Þessi Electrolux kæliskápur er
til á lager á þessum útsölustöð-
um:
Akranes: Þórður Hjálmarsson,
Borgarnes: Kf. Borgfirðinga,
Patreksfjörður: Baldvin
Kristjánsson,
Isafjörður: Straumur hf.
Blönduós: Kf. Húnvetninga,
Sauðárkrókur: Kf. Skagfirð-
inga,
Siglufjörður: Gestur Fanndal,
Ölafsf jörður: Raftækjavinnu-
stofan sf.
Akureyri: K.E.A.
Húsavik: Grimur og Arni,
Vopnafjörður: Kf. Héraðsbúa,
Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa,
Eskifjörður: Pöntunarfélag
Eskfiröinga,
Höfn: KASK,
Þykkvibær: Friðrik
Friðriksson,
Vestmannaeyjar: Kjarni sf.
Keflavik: Stapafell hf.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 \
Sími SI1117