Vísir - 06.05.1978, Side 2

Vísir - 06.05.1978, Side 2
Laugardagur 6. mai 1978 VISIR iKIPTAR SKOÐAKIR SKIPTAR SKOÐAKIR SKIPTAR SKOÐAKIR SKIPTAR SKODAKIR Hér hefur göngu sína nýr þáttur í Vísi er hefur hlotið nafnið skiptar skoðanir. Ráðgert er að í hann veljist þau mál er hátt bera hverju sinni og menn eru ekki á eitt sáttir um. Skiptar skoðanir i dag hafa þeir Vilmundur Gylfason menntaskóla- kennari og ólafur Ragnar Grímsson prófessor. Eflaust er lesendum aðeinhverju leyti kunn ágreiningsmál þeirra á opinberum vettvangi. ólafur hefur haldið því framaðhinir nýju menn i Alþýðuflokknum sem nú skipa baráttusæti þar séu fulltrúar ættarvaldsins i flokknum og að rannsóknarblaðamennska Vilmundar beri keim af pólitískum áróðursskrifum. Vilmundur hefur sitthvað við þetta að athuga og tel- ur m.a. að Alþýðubandalagið sé á kafi í samtryggingunni og beri ekki skyn á lýðræðisleg vinnubrögð. —KS ## Flokkoflakkarar sem reyna að yfirbjóða samherjana" • Vísir rœðir við Vilmund Gylfason „Það er venja meö svona flokkafla kkara þegar þeir koma i nýja flokka, og Ólafur hefur gert mikiö af þvi, að þeir þurfa gjarnan að yfir- bjóða þá sem eru fyrir i flokkunum með miklum kjafti til aö sanna að þeir dugi f baráttunni”, sagði Vilmundur Gylfason við Visi er hann var spuröur að þvi hvort hann kynni einhverja skýringu á rit- deilu hans og ólafs Ragn- ars. „Með breyttum vinnu- brögðum og aö verulegu leyti nýskipan sinna innri mála hefur Alþýðuflokk- urinn verið að öðlast nýtt og rismikið hlutverk”. sagði Vilmundur „Meðal annars með þvi að brjót- ast út úr þessu samtrygg- ingarkerfi sem stjórn- málaflokkarnir allir sem einn hafa átt mikinn þátt í að skapa. Nú s.l. fjögur ár hefur veriö bent á hvert málið á fætur öðru: Ar- mannsfellsmál, Kröflu- mál, dómsmálahneyksli Framsóknarflokksins og loks Alþýðubandalagið: þáttur þess i bönkum og nú siðast þetta Rafafls- mál. Það sem augljóslega fer fyrir brjóstið á svona komma strákum eins og Ólafi Ragnari er að bent hefur verið á með hverj- um hætti kommar hafa þvælst inn i samtrygging- una: það hafa þeir gert með þvi að Ragnar Arn- alds situr i Kröflunefnd og það hafa þeir gert i sambandi við Rafafl, svo aö tvö dæmi séu nefnd. Greinar Ólafs eru ekkert annað en heiftúöug gagn- sókn, engin rök heldur bara upphrópanir af held- ur óskemmtilegu tagi. Ólafur Ragnar er sendur til aö klórai bakkann. Það sem hann finnur út er tíl aö mynda að ég skuli vera sonur föður mins sem til sanns vegar má færa. Þegar þetta er orðið höfuö inntak röksemda- færslu, þá er lágt lagst. Ef einhver fbkksklika i Alþýðuflokknum hefur veriö að hampa mér, þá giltu þessi rök. En þegar ég hef gengið i gegnum prófkjör og hlotið stuðn- ing nær 4000 Reykvikinga eru þetta langt sótt rök. Það sem kemur i ljós er einfaldlega að gamla þreytta Alþýöubandalag- ið er á kafi i samtrygg- ingunni og málf lutningur minn kemur viö kaunin á þvi.” „Kiddafinnbogar allra tíma” Hverju viltu svara þvi að þú sért nú hættur rann- sóknarblaðamennsku og skrif þin séu sprottin af pólitiskum rótum? „Það er út af fyrir sig alvegrétt að sem fram- bjóðandi og seinna sem þingmaður hefur rann- sóknarblaðamennska min ekki sama vægi og áður. Ég get ekki vænst þess að mér sé trúað og treyst eins og áöur var og Vilmundur Gylfason ég óska eindregiðeftir þvi að blaðamenn taki upp þetta merki og keyri það áfram á fullri ferð. Stjórnmál eru þeim annmörkum háð að mönnum er brygslað um ýmsar annarlegar hvatir stundum með réttu og stundum með röngu. Hins vegar er fáránlegt að halda þvi fram að grein- arnar um Rafafl séu sprottnar af pólitiskari rökum heldur en fyrri greinar. Og kiddarfinn- boga allra tima segja ein- faldlega: það er ágætt að ráðast á alla hina bara ekki mig. Eins og Klúbb- málið var satt og rétt á sinum tima þá er Rafafls- málið satt og rétt nú.” Þú hefur þá ekki beytt öðrum vinnubrögðum við skrifin um Rafafl en önn- ur mál m.a. látið hjá liða að afla þér nógra heim- ilda? „Það er hrein lygi. Ég biöst ekki afsökunar á neinu, skrifin standast fullkomlega.” Hvað viltu segja um þá kenningu að nýju menn- irnir i Alþýðuflokknum séu eingöngu fulltrúar gamla ættarvaldsins f flokknum? „Að einu leyti virðist Óli karlinn vera orðinn virkilegur kómmi, hann skilur ekki lýðræði. Ef lýðræðislegar leikreglur eru fýrir hendi þá skil ég ekki að það skipti nokkru máli hverrarættar þú ert. Sértuhins vegar valinn af kliku þá skiptir það máli. Þetta er svoleiðis bull í honum að það tekur engu tali”. Alþýðubandalagið má þróast i Fram- sókn En hvað um kenningu Finns Torfa um nýju mennina i Alþýðubanda- laginu? „Hún er rétt. Það leynir sér ekki að Alþýðubanda- lagið er ekki komma- flokkur lengur. Sumir bundu vonir við aö Alþýðubandalagið myndi þróast yfir i heiðvirðan krataflokk. En það hefur þróast úr gamla flokkn- um sem varði hreinsanir Stali'ns yfir i það að verða einhvers konar Fram- sóknarflokkur. Ekki þarf annaðen ( benda á fundi sem Lúðvik er að halda um allt land með bændum þvi tíl stuönings.*' Ólafur Ragnar heldur þvi fram i' grein sinni aö skrif þin i' gegnum árin hafi orðið til þess aö festa þá I sessi sem þú hefur gagnrýnt? ,,Mér urðu það von- brigði að dómsmálaráð- herra með feril Ólafs Jó- hannessonar skuli fá svona glimrandi kosningu i prófkjöri fyrir norðan. Mér þykir það ekki vera þvi fólki til hróss sem kaus hann, en framsókn- arfólk er nú einu sinni framsóknarfólk.” Alþýðuflokkurinn og Alþýðubandalagið eru báðir verkalýösflokkar. Hvor heldur þú að eigi meiri hljómgrunn hjá verkalýðnum um þessar mundir ? „Sannleikurinn er sá að kommúnistablandaðir flokkar fá mest 20% fylgi i lýðræðislegri Evrópu. Það er þeirra stöðvunar- mark. Það sem meira er eins og öfgar gera alltaf, þeir tryggja andstæðing- inn i sessi. Við höfum dæmin fyrir okkur i nýaf- stöðnum kosningum í Frakklandi. Franski kommúnistaflokkurinn hefur tryggt varanleg völd peningaaflanna i Frakklandi frá striðslok- um. Nú eru franskir jafn- aðarmenn að vaxa kommúnistum yfir höfuð og ég held að svona þróun eigi sér stað hér á landi. Ég hygg að það skipti raunverulegu máli að Alþýðuflokkurinn taki við þvi forystuhlutverki sem Alþýðubandalagið hefur gegnt of lengi”. Samstarf undir forustu Alþýðu- flokksins. Ólafur Ragnar segir að þú hafir afneitað verka- lýðshreyfingunni og viljir slita tengsl Alþýðuflokks- ins við hana? „Það er bull og lygi og hann veit það manna best sjálfur. Hluturinn er sá að éghef gagnrýnt feykilega margt i fari verkalýðs- hreyfingarinnar i stjórn- un og uppbyggingu en gagnrýni er allt annað en afneitun.” Er ekki æskilegt að þessir flokkar starfi sam- an og hverjir eru mögu- leikarnir á þvi með hlið- sjón af þeim deilum sem hafa verið milli einstakra flokksmanna undanfarið? „Það eru miklir mögu- leikar á þvi og getur vel svo farið að við vinnum með Alþýðubandalaginu. En ég hlýt að segja það sem jafnaðarmaður að i þvi samstarfi viljum við hafa forystu bæði að þvi er varðar utanrikismál og skynsamleg vinnu- brögð á launþegavæng is- lenskra stjórnmála. Ég held að vinnubrögð eins og ólögleg verkföll séu iaunþegum ekki til fram- dráttar. .ks Rannsóknarblaðamennsku fórnað ó kosningaaltari Alþýðuflokksins' • Vísir rœðir við Ólaf Ragnor Grímsson „Forsendan er sú að einn mest áberandi frambjóö- andi Alþýðuflokksins, Vil- mundur Gylfason, hefur kosið að hefja árásir á Al- þýðubandalagið. Við höfum lagt á það rika áherslu að viö vildum eiga Alþýðu- flokksmenn að banda- mönnum. Einnig var mér dálitið annt um þessa til- raun Vilmundar á sinum tima að breyta Islenskri blaðamennsku og ég vil ógjarnansjáhenni fórnað á kosningaaltari Alþýðu- flokksins”, sagði ólafur Ragnar Grimsson er hann var inntur eftir skýringu á þeim hnútum sem gengið hafa á milli hans og Vil- mundar i blöðum undan- farnar vikur. „Ég skrifaði fyrir nokkr- um vikum siðan grein þar sem ég sýndi fram á aö kenning Vilmundar og ann- arra um að það væru allt i einu komnir nýir menn i Alþýðuflokkinn væri ærið hæpin” sagði Ólafur Ragn- ar. „Athugun sýndi aö allir þeir ungu menn sem koma til framboðs fyrir Alþýöu- flokkinn i efstu sætum i þessum kosningum eru synir þeirra manna sem hafa ráðið flokknum sið- ustu áratugi: Vilmundur Gylfason i Reykjavik, bræðurnir Finnur Torfi og Gunnlaugur Stefánsson, Sighvatur Björgvinsson og fleiri. Siðan eru tveir aörir menn þeir Arni Gunnars- son og Eiður Guðnason sem eru alls ekki nýir i Alþýöu- flokknum heldur gegndu þar trúnaðarstörfum fyrir tæpum 20 árum siðan. Þessari grein hefur ekk- ert verið svarað. Það hefur enginn mótmælt henni, hún stendur alveg óhögguð. Al- þýðuflokkurinn hefur ját- ast undir þetta með þvi að svara þessu ekki einu oröi. Ég skrifaöi svo aöra grein i siöustu viku sem tók fyrir þessa furðulegu herferð Vilmundar, i garð Alþýðu- bandalagsins og Þjóðvilj- ans og núna siðast samtaka ungra iðnaðarmanna og Iðnnemasambandsins. Vil- mundur hefur svarað þess- ari grein með örstuttum pistli. Ég vil ekki segja að andsvörin við þessum greinum minum hafi verið það burðug að það beri aö kalla þetta ritdeilur.” Fulltrúar ættar- valdsins Telur þú að þessir nýju menn i Alþýðuflokknum komi þar fram sem fulltrú- ar ættarvalds? „Ættaáhrif i islenskri pólitik er ekkert nýtt fyrir- bæri. Sérstaklega var það skýrt einkenni á islenskum stjórnmálum fyrir mörg- um áratugum. Hitt er svo athyglisvert að þegar þessi tök ættarveldisins i ýmsum öörum stjórnmálaflokkum hafa smátt og smátt farið minnkandi á siðustu árum. Þá skýtur þessu nú upp kollinum i Alþýðuflokkn- um. Þannig að þessu ieyti svipar hann einna helst til einkenna islenskra stjórn- mála fyrir hálfri öld siðan. Nú hefur Finnur Torfi komiö fram með kenningu á móti um nýju mennina I Alþýðubandalaginu. Hann segir þá eiga þaö sam- merkt aö þeir séu róman- tiskir menntamenn sem séu á móti framförum og komi yfirleitt úr Fram- Ólafur Ragnar Grimsson sóknarflokknum sem hafi allra flokka minnst tengsl við verkalýðshreyfinguna. Hverju viltu svara þvi? „I fyrsta lagi er þessi kenning Finns Torfa litt rökstudd. Hann nefnir aö- eins nokkra einstaklinga, mig og aðra, þessu dæmi til sönnunar. Sem betur fer hafa hundruöir annarra komið til liös við Alþýðu- bandalagiö, þannig að ekki er gagnasöfnunin mikil. Kjarni málsins er hins vegar sá að það sem Finn- ur Torfi kallar rómantfk og náttúrudýrkun er einmitt sá grundvöllur i stefnu Al- þýðubandalagsins sem felst i þvi að vernda efna- hagslegt og pólitiskt sjálf- stæði Islendinga. Hvað snertir skort á tengslum við verkalýös- hreyfinguna er þvi varla svaravert. Vilmundur hef- ur t.d. gert það að höfuð- stefnumáli sinu aö Alþýöu- flokkurinn eigi að slita tengslin við verkalýðs- hreyfinguna og lagði það til i stefnuskrárundirbúningi flokksins aö það yrði skýrt tekiö fram að Alþýöuflokk- urinn væri ekki verkalýðs- flokkur.” Prófsteinninn á Vilmund Er Vilmundur aö þinu mati þá aöeins liðtækur rannsóknarblaðamaður þegar hann beinir spjótum sinum að Framsóknar- flokknum en ekki þegar hann skrifar um mál sem tengjast Alþýöubandalag- inu? „Ég hef hvergi sagt það aö Vilmundur væri þá að- eins liðtækur rannsóknar- blaðamaður þegar hann réðist á aðra heldur en Al- þýðubandalagið og Þjóð- viljann. Hins vegar lagði ég á það höfuðáherslu að þessi skrif hans undanfarið hafi magnað upp verstu gallana sem voru á rannsóknar- blaðamennsku hans hér áö- ur fyrr. Galla sem eru i fyrsta lagi þeir að kynna sér ekki itarlega málið áð- ur en skrifað er um þaö. Og kynna sér það ekki frá öll- um hliðum heldur gripa að- eins sjónarmiö eins aöilans sem i dæminu um Rafafl eru rafverktakar sem eru keppinautar þess. I öðru lagi þegar honum er sýnt fram á að hann hafi rangt fyrir sér þá viöurkennir hann það ekki heiðarlega en heldur áfram að endur- taka vitleysuna. Þegar Vilmundur rak sina rannsóknarblaða- mennsku hér áður fyrr, sem ég taldi að ýmsu leyti merk nýmæli, þá er mér kunnugt um að hann vand- aði sig nokkuð vel við að afla sér gagna. Aftur á móti nú upp á siökastið virðist hann stunda þetta af meira kappi en forsjá. Það er kannski nauðsynin á þvi að reka rannsóknarblaöa- mennskuna i pólitiskum tii- gangi, sem knýr á um þaö. Hann hefur skrifað fjöld- an allan af greinum sem reynast nú vera staðleysur t.d. um Alþýðubandalagið og Þjóðviljann og hand- tökumálið. Prófsteinninn á Vilmund sem heiðarlegan rannsókparblaðamann er hvort hann nú biðst afsökunar á þessum skrif- um sinum.” Alþýðuflokkurinn leitar að Glistrup- fylgi Nú er hér sprottinn upp visir aö ágreiningi milli verkalýðsflokkanna. Hvor heldur þú að eigi meiri fylgi að fagna hjá verka- mönnum? „Það er alveg á hreinu að Alþýðubandalagið hefur bæði meira fylgi meðal fjölmennari hópa launa- fólks en Alþýðuflokkurinn og i forysturöðum Alþýðu- bandalagsins eru fjölmarg- ir áhrifamenn i verkalýðs- hreyfingunni. Það er ótvi- ræð stefna Alþýðubanda- lagsins aö berjast fyrir hagsmunum verkalýös- stéttarinnar. Hinir nýju menn svokölluðu i Alþýðu- flokknum með Vilmund i broddi fylkingar hafa hins vegar aö stefnuatriði aö rjúfa tengsl flokksins við verkalýðshreyfinguna. Sem dæmi má nefna afneit- un Vilmundar fyrir tveim árum á stefnuræðu forseta Alþýðusambandsins i grein er hann nefndi „Alþýðu- völd — nei takk”. Þessir menn telja það vænlegast fyrir flokkinn að berjast gegn þeim áhrifamönnum i flokknum sem eru úr verkalýðsstétt og höfða fyrstog fremst til þess hóps af fólki sem svon svona i daglegu tali hefur verið kallað Glistrup-fylgi, frek- ar efnaöra milli-stéttarfólk sem er ekki i beinum tengslum við verkalýðs- hreyfinguna.” En þrátt fyrir þessa stöðu Alþýðuflokksins að þinum dómi, telur þú hugsanlegt aö Alþýðu- bandalagið gengi til stjórnarsamstarfs við hann eftir kosningar? „Já, vissulega er það hugsanlegt. Sem betur fer eru þessir ungu fullhugar ekki einir i Alþyðuflokkn- um og ennþá eru i honum fólk sem telur rætur sinar vera i verkalýðshreyfing- unni. Ég hefði satt að segja vonað að þeir skildu að það væri söguleg nauðsyn að koma á nánu samstarfi gegnum verkalýðs- hreyfinguna milli flokk- anna og að þpssir tveir verkalýðsflokkar, sem ég vil ennþá kalla Alþýðu- flokkinn, eigi að standa saman. Þegar svo siðustu vikurnar eru linnulausar árásir i Alþýðublaðinu og i skrifum þessara manna i siðdegisblöðunum á Al- þýðubandalagið þá virðist það gefa til kynna að þeir viljifrekarstefnaað öðrum bandamönnum.” — KS SKIPTAR SKOÐAKIR SKIPTAR SKOÐAKIR SKIPTAR SKODAKIR SKIPTAR SKOPAKIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.