Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 06.05.1978, Blaðsíða 4
4 Stef án og Jóhanna voru meö hlaupabóluna. Þau voru ekkert mikið veik, en þau klæjaði í bólurnar. Þið megið ekki klóra ofan af bólunum, sagði mamma. Það er svo erfitt að gera það ekki, sagði Jó- hanna. Sérstaklega, þegar við höfum ekkert að gera, sagði Stefán. AAamma hugsaói sig aðeins um. Svo tók hún bók, sem lá á rúminu. Bókin hét: Ævintýri Péturs og Pálínu. Við höfum lesið hana, sagði Jóhanna. Meira að segja tvisvar sinnum. Ég veit það, ságði mamma. Svo fór hún út úr her- berginu og tók bókina með sér. Jóhann og Stefán voru að hugsa um, hvað hún væri að gera. Þegar hún kom aftur sýndi hún þeim tvær dúkkulísur, sem hún hafði teiknað og litað og þær voru næstum alveg eins og Pétur og Pálína. AAamma náði svo i pappir, skæri og liti og setti hjá rúminu. — Aumingja dúkkulís- urnar eiga engin föt, sagði mamma. Nú verðið. þið að klæða þær i. — Hvernig? spurði Jó- hanna. Þá sýndi mamma Stefánj og Jóhönnu, hvernig hægt var að teikna dúkkulisuföt á pappirinn. Svo litið þið fötin, sagði mamma og klippið þau siðan út, en munið að hafa litla takka á þeim, svo að þið getið fest fötin á dúkkulísurnar. AAamma fór svo niður og Jóhanna og Stefán fóru að teikna dúkkulisu- föt. — Ég ætla að gera ball- kjól, sagði Jóhanna og setti heilmikið af blúnd- um á pilsið. — Pétur er að fara í fótbolta, sagði Stefán og bjó til æfingabúning fyrir Pétur. Þetta var ofsalega gaman. Þau bjuggu til alls konar föt, leikföng, hjól og jafnvel flugvél. Pétur átti fínan kapp- akstursbil og Pálína átti bát. Og þau voru svo upptekin við að teikna og lita og klippa, að þau gleymdu alveg öllum hlaupabólunum sínum. Laugardagur 6. mal 1978 VÍSIR „FIMICIKAR OG ABBA HtlSTUÁHUGAMÁLIN" HÆ KRAKKAR'. ms jón: íinna Brynjúlfsdóttir Þekkið þið þessa stelpu? Jú, ég er viss um, að þið þekkið hana. Þetta er hún Hanna Stina, sem þiðsjáið í Stundinni ykk- ar í sjónvarpinu. Hanna Stina heitir annars Jó- hanna Kristín Jónsdóttir og er 11 ára. Hún á af- mæli 14. júní og er i 12 ára bekk í Vogaskóla. Ég fór í heimsókn i upp- tökusal sjónvarpsins ný- lega og fylgdist þar með Hönnu Stínu, þegar ver- ið var að taka upp kynn- ingar í Stundina. Ég rabbaði líka svolítið við hana. Aðaláhugamál Hönnu Stinu eru fimleikar, en hún náði mjög góðum árangri á síðasta ís- landsmóti og svo sagðist hún eiga annað áhuga- mál, sem væri Abba. Hún er sem sagt mikill aðdáandi þeirra. Ég spurði Hönnu Stinu, hvað henni fynd- ist um sjónvarpsefni fyrir krakka og þetta sagði hún: AAér finnst ekki nóg efni fyrir krakka í sjónvarpinu. Stundum langar mann til að horfa á sjónvarpið eftir fréttir og þá er ekkert skemmtilegt i því. Þá væri gaman ef það væru teiknimyndir, t.d. bleiki pardusinn eins og var stundum einu sinni eða bara ein- hverjir skemmtilegir þættir, sem krakkar hefðu gaman af. AAér f innst gaman að þáttun- um, sém eru fyrir krakka á miðvikudög- um, sérstaklega ,,Hér sé stuð". Og að lokum Hanna Stina. Hvað ætlarðu að verða, þegar þú verður stór? Ja, kannske hjúkr- unarkona eða leikari. Ég lék íkorna í Dýrunum í Hálsaskógi og það var skemmtilegt. Hanna Stina og Asdís Emilsdóttir, um- sjónarmaður Stundarinnar okkar undirbúa upptöku. Ásdis hefur lokið BA-prófi í guðfræði, uppeldisfræði og islensku við Háskóla islands, og hefur starfað mikið með börnum, m.a. í sumarbúðum KFUK í Vindáshlið. (Ljósm. AKB) I skólanum finnst Hönnu Stinu mest gaman að læra biblíusögur, en ekki gaman að dönsku og ensku. Hún les mikið allskonar barnabækur og auk þess hefur hún gaman að bókum um dulræna reynslu. Einu sinni voru kóngur og drottning i ríki sínu. Þau áttu sér eina dóttur, sem Armandína hét og átti hún töfrastein. Alltaf þegar töf rasteinninn var i góðu skapi, sagði hann skrýtlur og söng og söng. Það var eitt kvöld, þeg- ar Armandína átti að fara að sofa, þá byrjaði töf rasteinninn aðtala við sjálfan sig og segja skrýtlur. Þá varð Armandína reið.Hún batt þá um munninn á töfra- steininum og þá þagði hann og var góður. Jóhanna Kristín, 7ára. Hanna Stína er mikil fim- leikakona. Hún æfir hjá Ármanni og hefur hlotið fimmtu gráðu á tvislá, fimmtu gráðu í stökki, ní- undu gráðu á slá og átt- undu gráðu í gólfæfing- um. (Ljósm. Jens) I siöustu barnasíðu komst prentvillupúkinn í vísu eftir Ivar í Snæ- landsskóla. Rétt er vísan svona: Litli Skjóni leikur sér lipurt hefur fótatak, Pabbi góður gaf hann mér, gaman er að skreppa á bak. — segir Hanna Stína, sem allir krakkar þekkja sem kynni í Stundinni okkar í sjónvarpinu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.