Vísir - 06.05.1978, Qupperneq 6

Vísir - 06.05.1978, Qupperneq 6
6 Laugardagur 6. mal 1978 vism lega 14-2 landsleikurinn við Dani. Eftirá er gaman að hafa tekið þátt i honum. Auk þess sem ég skoraði helminginn af mörkum okkar! Það var sér- stakur leikur. Við vorum með ungt lið og ómótað. Fyrr um vorið höfðum við unnð Norð- men'n, en tapað naumlega fyrir Svium i þriggja landa móti hér heima. Siðar lékum við á móti Spánverjum tvisvar, gerðum jafntefli i öðrum leiknum en töpuðum hinum, aðallega vegna ofboðslegrar hitabylgju. Þetta liö var látið spila við Danina. Ef við hefðum haft með okkur reynda menn, eins og t.d. Arna Njáls og Ellert Schram hefðum við aldrei tapað nærri þvi svona stórt. Það vantaöi kjölfestuna i liöið. Það spilaði lika inni að is- lenska sjónvarpið var nýlega komið á legg, og við vorum - óskaplega svag fyrir þvi. Það var landsliösnefndin einnig, og þvi var ákveðið að leika sóknar- leik fyrir islenska sjónvarps- áhorfendur. Hækkuðu verðið á danskinum „Útkoman var þannig að ég hef aldrei tekið þátt i öðrum eins leik. Þetta danska lið var lika hálfgert undralið. Þeir höfðu nýlega unnið Norðmenn 5-0 i Ösló og Hollendinga 3-2 i Hol- landi. Þar var valinn maður i hverju rúmi. 1 leiknum var það lika þannig að ef þeir skutu á markið fór boltinn i stöngina og inn, eða efst i markhornin. Þetta var allt meira og minna óverjandi. Þetta var einn af þeim leikjum, þar sem allt tekst hjá öðru liðinu, en ekkert hjá hinu. Það kemur reyndar oft fyrir i iþróttum. Fljótlega eftir þennan leik var danska liðið selt eins og það lagði sig. t hófi eftir leikinn voru þeir allir mjög vinsamlegir við okkur, og vildu allt fyrir okkur gera. Það var ekki fyrr en seinna að við áttuðum okkur á að það væri vegna þess að við höfðum hækkað verðið á þeim svona mikið! Þessi leikur og landsleikurinn gegn Norðmönnum 1970 þegar mér tókst að pota báðum mörkunum i leiknum eru minir minnisstæðustu leikir.” „Röddin skiptir engu máli" „Hermann hefur gert meira en að „leika sér” i iþróttum. Hann var blaðamaður á Visi á sinum tima, áður en hann fór til Austurrikis 1969. Eftir heim- komuna réði hann sig sem þjálf- ara norður á Akureyri, og eftir um ársdvöl fyrir norðan byrjaði hann hjá skattinum hérna i Reykjavik og vann þar þangað til hann hóf «törf hjá útvarpinu. Og a meðan hann var i blaða- mennskunni sá hann um Lög unga fólksins i útvarpinu. Við spyrjum hvort það hafi ekki verið skemmtilegt. „Það var mjög spennandi”, segir Hermann. „Bergur Guönason, vinur minn, haföi haft umsjón með þessum þætti og þegar hann varð að hætta gekk ég inn i þetta. Bergur hefur mjög ráman málróm og ég man þegar verið var að ganga frá þessu að við töluðum við Guðmund Jónsson, fram- kvæmdastjðra útvarpsins og söngvara. Hann spurði hvort ég væri sæmilegur i islensku. Ég sagðist halda það. „Þá ertu ráðinn”, sagði Guðmundur, „þvi eins og þú veist þá skiptir röddin engu máli”, sagði hann og leit á Berg!” Redda stelpu fyrir Jóa „Þau voru mörg góð bréfin sem ég fékk. Iðulega sendu krakkarnir mér karamellur eða súkkulaði og allskonar gjafir i bréfunum, svona rétt til að leggja áherslu á kveðjuna. Svo var ég oft beðinn um að vera einskonar miðlari. Að redda stelpu fyrir Jða, 14 ára. Þetta var ljómandi skemmtilegt stundum. Mér fundust lögin lika skemmtilegri en núna. Þetta var á árunum 66 til 69, og þá var tónlistin mun léttari og aðgengi- legri en mér finnst hún vera núna. En islenskum tónlistar- mönnum hefur farið fram”. Það var sjálfgert hjá Hermanni að hætta i poppinu, þegar hann fór út til Austurrikis i atvinnumennsku i knatt- spyrnu. Hann var þriðji Islend- ingurinn sem lagði út á þá hálu braut, á eftir Albert Guðmunds- syni og Þórólfi Beck. Þaö versta og besta i atvínnumennsku „Ég lærði geysilega mikið á þeim tima sem ég var þarna úti”, segir Hermann. „Þetta varð með þeim hætti að þjálfari að nafni Pfeiffer sem hafði verið hér i tvö ár með KR og landsliðið var nú orðinn þjálfari fyrstu deildarliðs i Austurriki. Þegar keppnistimabilið 1969 var nýbyrjað hér heima, kemur Pfeiffer aftur og vildi eindregið að ég kæmi meö sér i atvinnu- mennsku. Það var enginn timi til að segja nei, svo ég dreif mig bara með. Liðið er frá mjög fallegri borg sem heitir Eisenstadt. Það var býsna gott hjá Pfeiffer að hafa komist þarna að sem þjálfari vegna þess að Austurrikismenn hafa á að skipa einhverjum bestu þjálfurum heimsins. Þeir voru yfirburðaþjóð i knatt- spyrnu fyrir siðari heimsstyrj- öldina og flestir leikmennirnir i þvi landsliði fóru út i þjálfun. Maður sér lika núna að austur- riskir þjálfarar eru i topp- stöðum i Vestur-Þýskalandi og á Spáni og samkeppnin er mikil i Austurriki. En þetta var nú útúrdúr. A þeim tiltölulega stutta tima sem ég var þarna, kynntist ég atvinnumennsku i knattspyrnu eins og hún gerist skemmtileg- ust og einnig eins og hún gerist verst. Þetta var stórkostlegur timi til að byrja með. Við ferð- uðumst mikið, vorum i æfinga- búðum og allt gekk eins og i sögu. Okkur gekk vel i fyrstu leikjunum, en svo töpuðum við tveimur leikjum i röð og meira þurfti ekki. Pfeiffer var sparkað, og eftir fráhvarf hans kom mikil upplausn i liðið.” Allir i fýlu „Launin byggðust mikið á bónusgreiðslum, sem fengust fyrir unna leiki eða jafntefli. Þegar illa fór að ganga fengust engir bónusar. Þá var þetta orðið þannig að menn kenndu hvex öðrum um, og komu á æfingar, lögðu sig litið fram, töluöust alls ekki við, og allir voru i fýlu. A þessu hafði ég ekki nokkurn áhuga. Ég hafði fengið tilboð frá Viener Sportklub, sem þá var i öðru sæti i fyrstu deild- inni, og ætlaði út aftur, eftir að ég kom heim i jólafri. En það varð aldrei úr aö ég færi. Senni- lega hafa það veriö bitrar minr.- ingar sem ollu þvi að ég ákvað frekar að fara til Akureyrar. Atvinnumennskan er ákaf- lega margslungið fyrirbæri og miklu meira en að leika sér i fótbolta fyrir peninga. Leik- mennirnir eru sifellt að reyna að fá sem mesta peninga fyrir sem minnsta vinnu, og félögin reyna að fá sem mesta vinnu út úr leikmönnunum og borga þeim sem minnst. Það er þvi eilif togstreita þarna á milli. Allir sem áhuga hafa á at- vinnumennsku eiga að kynna sér hvernig málum er háttað i Frá blaðamennskuárunum. Þessi mynd var tekin skömmu fyrir leikinn fræga milli Vals og Benfica. Þá var hér i viku fyrir leikinn „portúgalskur blaöamaður sem fylgdi Hermanni hvert sem hann fór i vinnunni. Það þótti óskaplega skritíð úti Portúgal að fyrirliði liðs i Evrópukeppni skyldi stunda aöra vinnu á daginn en að leika knattspyrnu! „Aðdáendamynd” frá árunum i Austurriki. Félag Hermanns lét útbúa inyndir eins og þessa af öllum leikmönnum liðsins og þær voru siðan áritaðar af leik- in önnunum. Það er ekki á ailra vitorði að Hermann lék 1972 nokkra leiki með Val i körfuknattleik og stóð sig með prýði. Þessi mynd er reyndar úr leik millli blaða- manna og gamalla landsliðs- manna og ekki ber á öðru en að Hermann kunni tökin á körfu- boltanum. íslenska liðið myndar heiðursvörð eftir leik gegn Spánverjum. 1967. Til hægri á myndinni má þekkja Arna Njálsson og Ellert Schram sem settir voru út úr liðinu siðar um sumarið þegar leik- ið var við Dani i Idrætsparken. Síöari árin i handboltanum lék Hermann einkuin stöðu horna- manns. Hér hefur hann snúið á Ingólf Óskarsson i leik gegn Fram og er á leiðinni inn i teig- inn. a.m.k. tvo eða þrjá mánuði áður en þeir binda sig einhvers- staðar. Þetta er ekki bara barátta um sæti i liðinu og fljót- fengnar milljónir.” Þessir miklu kappar Hermann er á þeirri skoðun að miklar framfarir hafi orðið i knattspyrnunni hér á siðustu árum, en hann er ekki jafn hrifinn af þeirri þróun sem orðið hefur i handboltanum. „Ég er á þeirri skoðun að handboltalandsliðið fyrir 10 eða 12 árum hafi ekki verið lakara en liöiö sem leikur i dag. Þá var alltaf hægt að ná upp góðu liði, fullu af krafti, og einstaklingum sem þorðu og gátu gert óvænta hluti. Þessir miklu kappar eins Framlina B-landsliös sem lék á móti Pressuliði þegar Hermann var 16 ára. „Þetta var skemmti- legur leikur” segir Hermann. „1 þessu liði voru reyndir kappar og ég man að áður en leikurinn byrjaði sagði Nunni við mig: „Vertu alveg rólegur. Gefðu bara alltaf á mig og þá verður allt i lagi.” Gunnar Guðmanns- son (Nunni) er i fremsri röö til vinstri og við hlið hans Skúli Hákonarson. Vinstra megin við Hermann er svo Steingrimur llelgason og örn Steinsen hægra megin. og Ragnar Jónsson, Ingólfur, Gunnlaugur, Karl Jóhannsson og Guðjón Jónsson, sem mér fannst alltaf best að spila með. Undanfarin ár hefur litið borið á islenskum stórskyttum, og það hefur verið undir hælinn lagt hvort þær sem við eigum núna, hafi fengið að njóta sin. Það er rauninni grátlegt hvað við erum staðnaðir i handboltanum. Menn sem gætu gert stóra hluti i landsleikjum, eins og Geir, Axel og Einar eru rigbundnir i leik- kerfi. Slikur handbolti er einnig leiðinlegur á að horfa. Fólk vill sjá óvænta hluti, ekki eitthvað sem hægt er að stilla upp heima i stofu.” Atvinnumennskan mál málanna „Annars er það mál málanna i iþróttunum hérna að minum dómi að byrja einhverskonar atvinnumennsku. Það er tómt mál að tala um að ætla að keppa við erlendar þjóðir nema að við getum búið við svipaðar aðstæður og þær. Ef ekki verður eitthvað gert i þeim málum verðum við orðnir áhorfendur aðeins eftir nokkur ár. Og þjóðarrembingurinn er svo mikill hér að það viljum við ekki. Æfingaálagið á okkar bestu iþróttamönnum er orðið slikt að það er ekki hægt að ætlast til að neinn standi undir þvi til lengd- ar. Nú þegar erum við farnir að missa leikmenn i knattspyrnu og handknattleik út, jafnvel i þriðjudeildarlið i Danmörku. Það þarf enginn að segja mér að slik félög hafi meiri tekjumögu- leika en okkar bestu félagslið. Það er hægt að fá fyrirtæki til að taka þátt i fjármögnuninni, jafnvel til að borga einum eða tveimur leikmönnum hálfs- dagslaun. Ég er sannfærður um að þetta er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Nú þegar eru t.d. FH-ingarnir farnir að greiða - leikmönnum vinnutap, og önnur lið hreinlega verða að fylgja á eftir, ef þau eiga ekki að missa af lestinni.” Bensínafgreiðslu- menn frá Englandi „Ég er sannfærður um að þegar þetta verður gert þá batni árangurinn að sama skapi. Við þurfum ekki annað en að lita á Hrein Halldórsson til að sjá það. Hann ók strætisvagni 8 eða 10 tima á dag og barði bauk. Svo þegar honum er veitt fri á launum svarar hann með þvi að verða einn albesti kúluvarpari f heimi. Hitt er svo annað mál að framfarirnar hjá Landsliðinu i „Bless Jóhannes”, gæti þessi mynd heitið. Hermann virðist þarna gefa fyrrum félaga sínum úr Val og góðum vini Jóhannesi Eðvaldssyni óþyrmilega undir afturendann i leik Celtic og Vals i Evrópukeppni. knattspyrnu hafa orðið miklar á siðustu árum. Félagsliðin hafa fórnað milljónum i erlenda þjálfara, milljónum sem ég tel að ekki ætti siður að fórna i islenska leikmenn og islenska þjálfara. Þá þarf að senda út og gefa þeim tækifæri til að læra sitt fag. Það er engin lausn að fá hingað bensinafgreiðslumenn frá Englandi. Og það er engin patentlausn að ráða þjálfara fyrir 3 eða 4 milljónir til að vera með landsliðið i 2 til 3 daga fyrir leiki og fara siðan utan eftir sumarið án þess að skilja eftir þekkingu. Landsliðið sem við eigum núna og hefur staðið sig svo vel að undanförnu hefur verið að þróast i langan tima. Leikmennirnir þekkja hvern annan orðið vel og hafa gaman af að leika saman i landsliði.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.