Vísir - 06.05.1978, Page 8
8
Laugardagur 6. mai 1978 vism
r ELDHdSINU
u m s j o n :
Þárunn I. Jónatansdóttii
4 dl SOÖ
1 lárviðarlauf
1 græn paprika
1 rauð paprika
1 dós sveppir
1/2 búnt steinsel]a
Skerið kjötið i meðal-
stóra teninga og baconið í
Nautasmásteik með sveppum og papriku
Uppskriftin er fyrir 5-6
750 g innanlærisvöðvi eða
klumpur
75 g bacon
3 laukar
lm sk tómatkraftur
salt
pipar
allrahanda
1 msk hveiti
2 1/2 dl rauðvin
minni teninga. Smásaxið
laukinn.
Steikið baconið í potti,
setjið kjötið saman við og
steikið um stund. Brúnið
smásaxaðan laukinn.
Setjið þvinæst tómat-
kraftinn út i. Kryddið
með salti, pipar og allra-
handa. Dreifið hveitinu
yfir og þynnið smám
saman með rauðvini og
soði. Setjið lárviðarlaufið
út i og sjóðið réttinn við
vægan hita.
Hreinsið paprikuna og
skerið i strimla. Sjóðið
paprikuna með síðustu
mínúturnar. Bætið að
lokum i sveppasneiðum
og saxaðri steinselju.
Berið með laussoðin
hrísgrjón, grænar ertur
eða hrásalat.
STDÖRNUSPfi
Kona i Nautsmerki
Að mörgu leyti er kona i Nautsmerki salt jarðar og
sameinar f lesta þá kosti sem karlmenn sækjast eft-
ir hjá konum.
Þó hún hafi vissulega mikið skap er umburðar-
lyndi hennar með ólikindum og þú verður ekki var
við skapsmuni hennar nema þú gangir verulega
fram af henni, en þá gleymirðu því heldur ekki
næsta kastið. Skynsemi og heiðarleiki eru hennar
aðalsmerki og hún er laus við alla tilgerð og kven-
lega klæki. Hún hefur andlegan styrk á við hvaða
karlmann sem er, en þú mátt gjarnan vera sterkari
aðilinn í sambandinu ef þú hefur áhuga. Hún er
ekki i neinni samkeppni við þig.
Hún tekur fólk eins og það er og hún er vinur vina
sinna gegnum þykkt og þunnt. Ef hún hittir ein-
hvern sem henni fellur ekki við, gerir hún ekkert
veður út af þvi, hún sniðgengur bara viðkomandi.
Hún hefur smekk fyrir viðhöfn, failegum hlutum
og góðum mat. Ef þú býður henni út, skaltu fara
með hana á góðan matstað — ekki hamborgara-
sjoppu. Hún sér líka á augabragði hvort fatnaður er
„gott merki'' eða ekki. Gættu >ess að segja henni
ekki fyrir verkum — sist af öllu i viðurvist annarra.
Og ef það er eitthvað sem hún þolir ekki, þá er þaö
að rekið sé á eftir henni.
Hvað börnin hennar áhrærir, þá er hún um-
hyggjusöm móðir, góður félagi, en sér rautt ef þau
ganga illa um og ganga ekki frá eftir sig. Það er
nánast þaö eina sem hún liður þeim ekki.
llrúturinn,
21. mars — 20. april:
Ef þú heldur fram skoð-
unum þinum af miklu
of forsi máttu búast við að
vinur þinn gleymi því
ekki í bráðina. Sýndu
háttvísi. Það er mun
heillavænlegra.
Nautift,
21. april — 21. mai:
Þetta virðist ætla að
verða annasamur dagur.
Ekki er þó útlit fyrir að
þú munir hitta margt
fólk. Þú verður mjög
ánægð(ur) með eitthvað i
kvöld.
Tviburarmr,
22. mai — 21. júni:
Láttu það eftir þér að
hitta ýmsa vini og kunn-
ingja i dag. Þú sérð ekki
eftir þvi. Stutt ferðalag
mundi hafa mjög góð
áhrif á þig.
Krabbinn,
22. júni — 23. júli:
Það lítur út fyrir að maki
þinn eða samstarfsmaður
verði óvenjulega hjálp-
legur við þig í dag. Þetta
gerir það að verkum að
fjármálin taka óvænta
jákvæða stefnu.
Ljónift,
24. júli — 23. ágúst:
Vertu sérlega gætinn
gagnvart þeim sem þú
umgengst í dag. Ekki láta
blekkjast af fagurgala.
Vertu raunsæ(r) þó það
sé erfiðara. Þú kannt að
dragast inn i vandamál
annarra.
Meyjan,
24. ágúst — 23. sept:
Einhver vandamál kunna
að koma upp á heimilinu
fyrri hluta dagsins. Þú
átt erfitt um svefn og
hefur miklar áhyggjur.
Vertu samvinnuþýð(ur).
Þú hefur einhver sam-
skipti við fólk. í dag sem
er mjög hörundssárt.
Vertu sérstaklega orð-
vör(var) og forðastu að
særa vini þína.
Drekinn.
24. okt. — 22. nóv.:
Vertu raunsæ(r).Gerðu
þér ekki hærri vonir en
efni standa til. Ahrifa-
mikill vinur þinn mun
vera þér hjálplegur.
Gættu heilsunnar.
Hogmafturinn,
23. nóv. — 21. des.:
Smá ágreiningur við
samstarfsmenn þína
kann að gera þig niður-
dreginn . Léttu ekki
hugfallast. Nágranni
þinn sýnir eitthvað af sér
sem kemur þér mjög á
óvart.
Steingeitin,
22. des. — 20. jan.:
dag skaltu ekki gera
nein viðskipti og ekki
blanda saman f jármálum
og vináttu. Þú munt sjá
eftir því siðar.
/’jy % Vatnsberinn,
' 21. jan. — 19. feb.:
Þetta er góður dagur til
að hrinda i framkvæmd
ýmsu þvi sem alltof lengi
hefur legið á hillunni.
Skammtilegar samveru-
stundir með fjölskyld-
unni.
Fiskarnir,
20. feb. — 20. mars:
Nú ferðu að sjá árangur
verka sem þú hefur lengi
verið að vinna að. Þú
færðhrós sem mun gleðja
þig mjög. Gleymdu samt
ekki skyldum þínum.