Vísir - 11.05.1978, Side 2
Fimmtudagur 11. mai 1978.
VISIB
c
í Reykjavík
Langar þig í sumarferð til
Grænlands?
Steinunn Sigurðardóttir, (rétta-
maöur: Ég var einmitt að hringja
i Flugfélagið, til þess að spyrjast
fyrir um Grænlandsflug. „
Sigurður Ólafsson, söngvari: Já
svo sannarlega. Ég hef nú mestan
áhuga á að sjá islenska hesta sem
eru þarna.
Hafsteinn Filippusson, hús-
gagnasmiöur: Þvi ekki það. Mér
hefur reyndar dottið i hug aö fara
þangaö i sumar.
ólafur Guðjónsson, vinnur há
R.R.: Já ég hefði áhuga á þvi ef
timi gæfist til þess og peningar
væru til.
Eggert Jóhannsson, 10 ára: Já,
já. Ég held aö þaö væri gaman aö
koma til Grænlands. Nei, ég hef
aldrei farið til útlanda.
$ varar
i
Benedikt Gröndal, al-
þingismaður og formaður
Alþýðuf lokksins, mun
sitja fyrir svörum á
beinni línu Vísis í kvöld
frá kl. 19.30 til 21.00. Sím-
inn á ritstjórn Vísis er:
86611.
Lesendur hafa kunnað
vel að meta þá nýjung
Vísis að f á f orystumenn í
þjóðfélaginu til þess að
svara spurningum um hin
margvíslegustu málefni
með þessum hætti, en
skýrt verður frá spurn-
ingunum og svörum
Benedikts við þeim í Vísi
á morgun, föstudag.
Benedikt er fjórði maðurinn,
sem mætir á beinu linu Visis.
Hinir eru Garðar Valdimarsson,
skattrannsóknastjóri, Birgir Is-
leifurGunnarsson, borgarstjóri,
og Gunnar Thoroddsen, iðnað-
arráðherra.
Flokkur í sviðsljósi
Vafalaust hafa lesendur Visis
margs að spyrja Benedikt
Gröndal, þvi hann er formaður
flokks, sem verið hefur i sviðs-
ljósinu að undanförnu.
Þannig mun ýmsum leika for-
vitni á að vita álit Benedikts á
þeim nýju mönnum, sem nú
hafa farið i framboð fyrir flokk-
inn, og yfirleitt hvert flokkurinn
stefnir i islenskum stjórnmál-
um.
Einnig munu ýmsir hafa hug
á aö heyra viðhorf Benedikts til
nýsettra laga, sem banna er-
lendan fjárstuðning við stjórn-
málaflokka. I þvi sambandi
munu margir hafa hug á að fá
upplýsingar um fjármál Al-
þýðuflokksins og Alþýðublaðs-
ins, sem ekki hefur komið út nú i
nokkra daga vegna fjárhagserf-
iðleika.
Skammt er nú til kosninga, og
forystumenn Alþýðuflokksins
ætla honum stóran hlut i þeim.
Um þau efni og margt fleira
munu lesendur Visis sennilega
vilja spyrja Benedikt nánar.
Síminn er 86611
Það skal svo aftur minnt á, að
siminn er 86611. Fyrir þá, sem
eiga heima utan Reykjavikur,
hefur Visir tekið upp þá nýjung
að leyfa þeim að hringja á rit-
stjórnina siðdegis i dag,
fimmtudag, og láta skrá þar
nafn sitt og simanúmer. Siðan
verður hringt i þá meðan á
simaviðtalinu við Benedikt
stendur, og geta þeir þá komið
spurningum sinum á framfæri.
Þetta er gert til þess að koma i
veg fyrir, að lesendur utan af
landi þurfi að biða lengi eftir að
komast að, eins og komið hefur
fyrir, en það kostar viðkomandi
verulegar fjárhæðir.
—ESJ.
GUÐMUNDUR J. I FIMMTA SÆTI
Enn bólar ekkert á framboös-
lista Alþýðubanda lagsins - I
Reykjavik við Alþmgiskosning-
arnar i júni næstkomandi. Hef-
ur staðið i löngu þófi milli for-
ustuliðs verkalýðshreyfingar-
innar annars vegar og háskóla-
manna hins vegar um skipan
listans. Upphaflega var ætlunin
að hafa aðeins einn verkalýðs-
foringja i fimm efstu sætum
listans, en brátt kom i ljós að
verkalýðsforustan undi þessu
ekki, og endaði fyrsta lota með
þvi að Snorri Jónsson, varafor-
seti ASt sagði sig úr uppstilling-
arnefnd, þegar Ijóst var að þar
fékkst ekki hljómgrunnur fyrir
framboði Asmundar talnafróða
i fyrsta sæti. En Asmundur
hefur verið duglegur að „reikna
barnið i kerlinguna” fyrir þá
ASt menn, þegar þeir hafa stað-
ið I vinnudeilum.
Þegar Snorri Jónsson var bú-
inn að segja sig úr uppstill-
ingarncfnd mátti með nokkrum
rétti álita, að hann kæmi orðið
til greina sem fulltrúi
verkalýðsins á lista Alþýðu-
bandalagsins við hlið Eðvarðs
Sigurðssonar. En háskólamenn
eru valdamiklir og valdafrekir i
Alþýðubandalaginu.og lengi vel
stóðu dæmin þannig, að líkur
voru til að þcir hefðu fullan sig-
ur i uppstillingarnefnd.
Guðmundur J. Guðmundsson
sinnti þessum framboðsraunum
litið, enda stoð hann i skæru-
hernaði við stjórnvöld og vinnu-
veitendur, boðaði útflutnings-
bann með undanþágum og nú
siðast innflutningsbann á olium,
dustaöi rauða tóbaksklútinn og
manaði lið sitt til samstöðu.
Sjálfur lét Guðmundur ekki
leiða sig út i umræður um hugs-
Guömundur J. Guö-
mundsson
anlegt sæti Snorra Jónssonar á
listanum, mátti raunar varla
vera að þvi að huga um aðrar
uppstillingar en þær, sem
heyrðu til útflutningsbanninu.
Uppstillingarnefnd bandalags-
ins var komin i vanda við brott-
för Snorra Jónssonar, sem var
raunar ekkert annað en stór-
felld árétting þeirrar kröfu, að
verkalýðurinn fengi einn full-
trúa til viðbótar á listann. Þann-
ig var Snorri orðinn áhrifameiri
utan uppstillingarnefndarinnar
en innan hennar.
Fljótt sást að Snorra Jónssyni
var ekki ætlaö sæti á listanum,
kæmi til þeirra kasta að há-
skólamenn létu undan. Brátt
kom til mála að Guðmundur J.
fengi fimmta sætið. Þóttust há-
skólamenn vel bjóða með þeirri
ráðstöfun. För svo eftir nokkurt
Eövarö Sigurösson
þóf, að Guömundur J. lenti i þvi
sæti, og hefur þvi möguleika á
að verða varamaður. Má verka-
lýðshreyfingin sæmilega við
una þau málalok, þótt eflaust sé
hún ekki ánægð fremur en
undirritaður. Snorri Jónsson
hefur unnið þokkalegan sigur I
málinu, þótt hann hafi að likind-
um ekki gertþennan uppstey t til
að auka framavonir Guðmund-
ar J.
Sýnt er af ráðstöfnunum upp-
stillingarnefndar, að flokksfor-
ustan hefúr nú ákveðið, að Guð-
mundur J. verði arftaki Eð-
varðs Sigurðssonar en ekki
Snorri Jónsson. Er svo sem ekk-
ert við það.að athuga. Báðir eru
þeir Guðmundur og Snorri hæfir
til verkalýðsforustu, og munu
rekast svona ámóta vel innan
flokksins. Eini sjáaniegi mun-
urinn á þeim er.að annar tekur i
Snorri Jónsson.
nefið en hinn ekki, og má til
sannsvegar færa, að neftóbakið
hafi orðið Guðmundi J. nota-
drjúgt i viðræðum við eyrar-
kariana um dagana. Hefur dós-
in jafnan verið á lofti, þegar
blása hefur þurft til samstöðu,
og jafnframt hefur sést i horn á
tóbaksklútnum, sem samkvæmt
tviþættu eðli málsins er hafður
rauður.
Þegar klúturinn er dustaður
og strokinn og látinn lafa niður
með lærinu hafa unnist umtals-
verðir sigrar á æviferli Guð-
mundar J. Og þannig stóðu
þessi teikn, þegar Guðmundur
J. gekk upp tröppurnar á Þórs-
hamritil fundar við Lúðvik Jó-
sepsson eitt siðdegið nú i vik-
unni til að taka við fimmta sæt-
mu á lista Alþýðubandalagsins.
Svarthöfði