Vísir - 07.06.1978, Síða 9
9
HÆPNAR AÐGERÐIR
GEGN ÞÝSKARANUM
Páll Jónsson hringdi:
, ,Ég var að lesa um þýska
fálkaþjófinn i Visi og varð satt
að segja æ meira undrandi eftir
þvi sem ég las meira um þetta
mál allt.
Náttúrufræðingar og lög-
reglumenn elta þennan mann
um hálft landið og láta hann
óáreittan valsa um svæði þar
sem fálkar og ernir verpa en
reyna að halda sig i hæfilegri
fjarlægð.
Loks heldur Þjóðverjinn til
Reykjavikur og það er ekki fyrr
en komið er að borginni sem
hann er stöðvaður og yfir-
heyrður og tekur það margar
klukkustundir. Þá er loks leitað
i bil hans,fundust nokkur lang-
viuegg,og manninum sleppt.
Hver var tilgangurinn með
þvi að láta hann fara að
hreiðrum eins og hann vildi? Ef
hann hefði tekið öll egg sem
hann gat náð til og þau ekki
fundist fyrr en við leit nokkrum
dögum siðar má búast við að
þau hefðu öll eyðilagst og engir
ungar komið úr þeim eggjum.
Varla hefur ætlunin verið sú að
eyðileggja varp fálkans alveg á
þessu vori og kannski arnarins
lika, bara til að geta náð
Þýskaranum og sektað hann um
smáupphæð? Þarna var teflt aö
tæpasta vað og mér finnst þess-
ar aðgerðir vægast sagt mjög
hæpnar.
Þetta minnir hins vegar á að
oft á liðnum árum hefur verið
ráðist á fálkahreiður og stolið
eggjum og ungum. Það hefur
jafnan komist upp af tilviljun.
Nú er kominn timi til að haft
verði eftirlit með þeim mönnum
sem sækja i varpstaði fálkans
og á ég þá bæði við innlenda og
erlenda menn.”
Um beina útsendingu sjónvarpsins á laugardagskvöldið:
Að þröngva Listahátíð upp á fólk
ESSBÉ skrifar:
Ég er alveg bálvond yfir þvi
að láta stela laugardagskvöld-
inu undir beina útsendingu af
jasshljómleikum i sjónvarpinu.
Það er mjög takmarkaður hluti
fólks sem hefur áhuga á þessari
tónlist. Ég held að þetta hefði
getað beðið á myndsegulbandi i
nokkra daga.
Svo vildi ég mega spyrja að-
stendur sjónvarpsins hvort
Dubliners og Smokie verði ekki
gert jafnhátt undir höföi og
þessum tveim jassleikurum
sem voru þarna á skerminum á
laugardagskvöldið. Það er ekk-
ert vafamál að það eru miklu
fleiri sem hafa áhuga á þeim
heldur en þessum jassistum.
Það er algjörlega óverjandi
að leggja besta sjónvarpstim-
ann undir þessi ósköp — þessu
var hreinlega þröngvað upp á
áhorfendur. Eftir þetta laugar-
dagskvöld datt manni i hug að
hugsanagangurinn hjá þessum
listapamfilum væri: það skal
inn i hausinn á lýðnum, hvað
sem tautar og raular.
Og til þess að gulltryggja það
settu spekingarnir Dave Allen á
eftir tónleikunum, þannig að
maður beið eftir honum, þvi
hann er ómissandi. Ekki datt
þejm i hug að setja hann á und-
an þannig að hægt væri að
slökkva á tækinu áður en ósköp-
in dundu yfir.
„Gott siðferði bara fyrir suma"
EKKIBARA ALÞÝÐU-
BANDALAGSMENN
Stefán hringdi: að ekki séu allir templarar huga þegar hann hringdi inn
Ég var að lesa lesendadálkinn Sjálfstæðismenn — eða er það? „hugvekju” sina — eða er þetta
i Visi i dag (mánudag). Þar Helgi heföi getað haft þetta i kannski ööruvisi mál?
hringir einhver Helgi inn bréf
og virðist yfir sig hneykslaður á
þvi að Alþýðubandalagið skuli
nota húsnæði ASl eða Al-
þýðubankans undir kosninga-
miðstöð. Segir hann sem svo, að
ekki séu allir félagar ASl Al-
þýðubandalagsmenn.
Ég veit ekki betur en að i sið-
ustu prófkjörum Sjálfstæðis-
manna hafi þeir notað Templ-
arahöllina við Egilsgötu sem
einn af sinum kjörstöðum. Til
fróðleiks skal og þess getið að á
kjördag 25. mai notuðu Sjálf-
stæðismenn þennan sama staö
fyrir bilamiðstöð sina. Einhvern
veginn læöist sá grunur að mér
GOTT SIÐFERÐI
BARA FYRIR SUMA
Helgi hringdí:
„Hvernig | ósköpunum
stendur ð þvi að Alþýöubanda-
lagiö i Reykjavik getur notaö
húsnæöi i eigu Alþýðusambands
tslands,eða Alþýðubankans, við
Grensðsveg og húsnæöi
Dagsbrúnar og Verka-
mannasambands tslands við
Lindargötu, sem kosningamið-
stöðvar sinar, svo sem það
geröi I borgarstjórnarkosning-
unum?
Hver hefur vald til að leyfa
sllkt?
Ég hélt aö fleira fólk v*ri I
þessum samtökum launafólks
heldur en bara Alþýöubanda-
lagsfólk. Hvað heföu Alþyðu-
bandalagsmenn I Reykjavlk
sagt ef Sjðlfstcðisflokkurinn
heföi notfært sér aðstööu versl-
uparmannafélagsins, eða þa
hreinlega borgarstjórnarskrif-
stofurnar sjðlfar, sem kosn-
ingamiðsvöðvar fyrir sig? Þð
hefði örugglega heyrst hljóð Ur
horni. En það er eins og sið-
ferðið sé bara fyrir suma en
öðrum se allt leyfilegt"
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 5., 7. og 10. tbl. Lögbirtingablaðs 1978 á
Asparfelli 12, þingl. eign BSAB fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar I Keykjavlk á eigninni sjálfri föstudag 9. júnl
1978 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 5., 7. og 10. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
húseign v/Artúnshöfða talin eign Þrastar Eyjólfssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni
sjálfri föstudag 9. júni 1978 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðsta á m/s Björgvin 1S-301 þingl. eign Björg-
vins h.f. fer fram við eða á skipinu I Reykjavikurhöfn
föstudag 9. júni 1978 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
e^ager^y
æg
Eyjagötu 7, Örfirisey
Reykjavik . simar 14093—13320
HUSTJOLD - TJALDHIMNAR
SÓLTJÖLD, TJÖLD, TJALDDÝNUR.
Framleiðum allar gerðir af tjöldum á hag-
stæðu verði m.a.
5 — 6 manna
3 manna
Hústjöld
5 gerðir af tjaldhimnum.
kr. 36.770.
kr. 27.300.
kr. 68.820.-
— Seljum einnig ýmsan tjaldbúnað t.d.
— Sólstóla, kælibox, svefnpoka og leiktjöld
Komið og sjáið tjöldin uppsett i hinum nýju
glæsilegu húsakynnum að Eyjagötu 7 Örfirisey.
Póstsendum um allt land.
10 í L A S T
ö
4/
ÞRfiSTUR
85060
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA B0RGINA