Vísir


Vísir - 07.06.1978, Qupperneq 11

Vísir - 07.06.1978, Qupperneq 11
visir Miövikudagur 7. júni 1978 bandalagið á ekki fullt traust mikils fjölda vinstrimanna. bess vegna bjóða Samtökin fram. Þau telja stefnu sina eiga erindi, og telja raunhæfa mögu- leika á kjördæmakjöri Magnús- ar Torfa og uppbótarsæti Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur, sem yrði fyrsta konan úr verka- kvennastétt til að ná kjöri til Alþingis. 1 kosningunum má fólk ekki láta persónulega vel- vild til Svavars, Eðvarðs og Svövu villa sér sýn, kosningar eru kjarabarátta og það er ótviræður hagur launafólks að kjósa Magnús Torfa og Aðalheiði á þing. 11 Barnakór frá Akranesi maraþontónleikum Maraþontónleikar á Listahá- tið fara fram á laugardaginn og hefjast með þvi að skólakórar koma fram klukkan 13,38. Þess- ir kórar hafa óneitanlega falliö i skuggann af þeim frægu lista- mönnum sem koma fram á Listahátið en framlag okkar ungu listamanna má alis ekki vanmeta. Vísir kom á æfingu hjá kór Barnaskóla Akraness og kór Gagnfræðaskólans á Selfossi þegar sá siðarnefndi kom til Akraness þar sem samæfingar fóru fram. Börnin i Akranesskórnum hafa undirbúið sig vel undir stjórn söngstjórans , Jóns Karls Einarssonar. En það er meira en söngþjálfun sem þau hafa á sig lagt. Þau héldu kökubasar og hlutaveltu til að afla fjár til kaupa á búningum. Þessi dugnaður vakti athygli heima fyrir og nokkur fyrirtæki sendu þeim nokkra fjárupphæð til styrktar starfinu. Akurnes- ingar eru hreyknir af frammi- stöðu barna sinna og vita að það verður enginn svikinn sem hlýðir á kórinn á Listahátið. All- ir landsmenn þekkja til árang- urs Selforsskórsins og stjórn- anda hans, Jens Inga Sigur- mundssonar, af tónleikum og hljómplötum og án vafa mun kór- inn töfra áheyrendur nú sem fyrr. Með tónmennt i skólum er lagður grundvöllur að tónlistar- lifi þjóðarinnar i framtiðinni og þessu ber að gefa aukinn gaum. Kennsla i nótnalestri og radd- þjálfun sem börn og unglingar njóta nú. veita þá undirstöðu sem siðar má byggja á þegar þessir einstaklingar skila sér i kirkjukóra, samkóra eða karla- kóra. —SG/BP Akranesi ekki. Þeir svara hinni spurning- unni: Hvað á að taka við af þvi? Varla lýðræðisskipulag eins og á Vesturlöndum að mati þeirra. Lausn þeirra á vandanum er: þjóðernisvakning og trúarvakn- ing. Gera á „siðferðilega bylt- ingu”, þvi að dagur ofbeldisins er liðinn og dagur siðferðisins upp kominn. Rússneska þjóðin á að breyta hugarfari sinu, heimta aftur „þjóðarsálina” sem hún missti i byltingunni lifna við. Mestu máli skiptirað sögn þeirra að hún kasti af sér þeim blekk- ingarham sem Kremlverjar hafa komið henni i fái aftur „innra” frelsi hætti að trúa lyginni. Koma máorðum Heilagrar ritningar að kenningu þeirra: Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa! Að lifa við lygina Ein ritgerð Solsjenitsyns i bók- inni er um ágreining hans og Sakharoffs (sem hann lofar mjög þrátt fyrir ágreininginn) önnur um menntamennina, sem lifa af lyginni og við hana. Hann fer hörðum orðum um Vesturlanda- búa en frjálslyndi þeirra er að dómi hansábyrgðarlaus værð. En merkilegasta ritgerð bókarinnar er, held ég, ritgerð stærð- fræðingsins og Leninverðlauna- hafans ígors Sjafarevitsj um samhyggju (sósiaiisma). Hvað ritar hann um hana? Samhyggju- kenningin er jafngömul stjórn- málahugsun mannkynsins. Sam- hyggjumenn nýaldar frá St. Simon til Bresneffs (og Lúðviks Jósepssonar!) eiga marga fyrir- rennara. Platón og fleiri speking- ar fornaldar voru samhyggju- menn. Villutrúarsöfnuðir miðald- ar fylgdu sameignarstefnu. Og kenningin fræðilega hefur viða verið framkvæmd. Samhyggju- kerfið er miðstjórnarkerfið sem var eins með Mesópótamiumönn- um, Inkum og ráðstjórnarþegn- um nútimans. Hugsjón sam- hyggjumanna er tortiming fjöl- skyldunnar, trúarinnar og einka- eignarinnar. Hvöt þeirra er sjálfstortimingarhvötin, þeir vilja tortima öllu, sem gerir manninn að einstaklingi skilur hann frá dýrunun skilur mannlegt skipulag frá býflugnabúi og mauraþúfu. Mergur er i hverri málsgrein ritgerðar Sjafarevitsj, hugsun hanser djúpskörpogskýr. önnur ritgerð hans er um hinn mikla vanda þjóðanna og þjóðflokkanna i Ráðstjórnarrikjunum (sem fáir Vesturlandabúar vita um) hann hvetur til samvinnu þeirra og gagnkvæmrar viröingar. Þriðja ritgerð hans er um framtið Rúss- lands hann væntir „upprisu” þess. Ritgerð stýrifræðingsins Mikhails Agúrskýs er um hag- kerfin tvö markaöskerfið i vestri og miðstjórnarkerfið i austri, hann greinir vel galla mið- stjórnarkerfisins en illa kosti markaðskerfisins, þráir sættir manns og náttúru eins og margir sveimhugar. Ritgerð list- fræðingsins Evgenýs Barabanoffs er um andstæðurnar tvær, veröldina og kirkjuna hann er hófsamari siðbótarmaður en hinir höfundarnir. Ritgerð sagn- fræðingsins Vadims Bórisoffs um þjóðarvitundina og einstaklings- eðliðhann brýnirþað fyrir mönn- um aö þjóðerni sé fremur verð- mæti úr heimi menningar en stjórnmála (þó að greinarmunur þessara heima sé ekki alger). Tveir höfundar rita stuttar grein- ar undir dulnefni annar um „ör- lög Rússlands”, hinn um „stefn- una til framtiðarinnar”. Þörf áminning Bók Solsjenitsyns og skoðana- bræðra hans er ómissandi fyrir þá sem hafa áhuga á rússneskri menningu og þeir sem telja hana til marks um „sótsvart aftur- hald” koma einungis upp um van- þekkingu sina á menningararfin- um sem þessir ihaldsmenn eru að ávaxta — arfi Tolstoys Dostójev- skýs, Berdjajefss, Búlgakoffs og annarra rússneskra hugsuöasem skildu rök tilverunnar djúpum skilningi. Aminning þeirra er þörf: frelsið getur ekki án sið- ferðilegs aðhalds verið það er bæði „innra” frelsi og „ytra” vestræn menning er komin undir kristindómnum mannréttindin eru ekki náttúrleg, heldur yfir- náttúrleg, ekki er hægt að sækja rök fyrir þeim i náttúruvisindin. Vestrænir menn eiga að hlusta á Solsjenitsyn sem rauf þögnina^ sagði þeim frá Gúlageyjunum, rak róttæku vestrænu mennta- mennina, sölumenn notaðra hug- mynda, út úr musteri sannleik- ans. Sakharoff og Solsjenitsyn hafa gripið sitt brotið af sann- leikanum hvort frjálslyndi og ihaldssemi geta farið saman og verða reyndar að fara saman. Sakharoff er þó raunsærri en Solsjenitsyn að minum dómi,hann veit að hugsjónamennirnir verða að gera málamiðlun viö veruleik- ann. Solsjenitsyn og skoðana- bræður hans segja eins og Steinn Steinarr, þegar hannhafði kastað trúnni á Kremlverja og ávarpaði vindmyllurnar: Minn herra léði mér fulltingi sannleikans, hins hreina, djúpa eilifa sannleika en þeir bæta ekki við þriðja visu- orðinu:" sem ég þó aðeins skynja til hálfs Lýðræði er hagfellt vegna þess aðmennirnir skynja aðeins sann- leikann til hálfs. Þekking þeirra er i molum vegna þess verður aö dreifa valdinu á þá. Solsjenitsyn og skoðanabræður hans misskilja vestrænt lýöræði og dulhyggja þeirra á að minu viti ekki heima i stjórnmálum. Lausn þeirra er óraunhæf i stjórnmálum. En ósk- andi er að þeim takist að hleypa grósku i rússneskt þjóölif. Og hugrekki þeirra (sem búa flestir enn i Ráðstjórnarrikjunum) hlýt- ur að vekja óblandna aðdáun. Vesturlandabúar verða að finna aftur þann siðferðilega mæli- kvarða sem þeir misstu i fáti þegar þeir heyrðu öskur Nietzsches: „Guð er dáinn.” Bók Solsjenitsyns og skoðana- bræðra hans er ein varðan á þeim meöalvegi frelsis og siðferöilegs aðhalds sem Vesturlandabúar verða að rata. En dómur Solsjenitsyns um þá er of harður, þótt áminning hans sé þörf. Þeim hefur tekizt margt. Þeir unnu Kalda stríðið, þvi að siðferðilegir og efnahagslegir yfirburðir vest- rænna lýðræðisrikja yfir aust- rænu alræðisrikjunum blasa við öllum sjáandi mönnum. Kreml- verjar hafa einungis vinninginn i vopnabúnaði. Og Islendinga verður að minna á það sem þeir gleyma stundum — að þeir eru Vesturlandabúar. Vilja þeir vera það áfram? Þeir kjósa um það i þingkosningunum 25. júni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.