Vísir - 12.06.1978, Page 4
Mánudagur 12. júni 1978 visra
/Víst förum við stundum í sundlaugarnar að horfa á fólkið".
OHEFT NATTÚRULÍF EÐA
AFTURHVARF í SVAÐIÐ
Lækurinn i Nauthólsvik er nú
enn einu sinni á dagskrá. Telja
margir lækinn aðalsmerki
islensks skemmtanalifs.sem ekki
megi á nokkurn hátt hrófla við.
Hefúr það nokkuð tiðkast, að farið
sé með erlenda gesti i lækinn að
næturlagi i stað þess að fara með
þá á næturklúbba. Ilefur jafnvel
kveðið svo rammt að þessu, að
varla má maður heyrast mæla á
erlenda tungu, að ekki sé hann
dreginn i lækinn.
En ekki eru allir jafn-hrifnir af
fyrirbrigöinu. Erekki laust við að
yrhsum þyki það litt eftirsóknar-
vert að hoppa um berfættir á
glerbrotum og steinnibbum eða
sitja i makindum i' volgum lækn-
um og eiga von á að einhver
drukkinn ofurhuginn stingi sér til
sund yfir hópinn. Dæmi eru þess
aö menn hafi orðiö aö dúsa lang-
timum saman niðri i læknum
vegna þess að föt þeirra hafa
horfiö á dularfullan hátt. Spurn-
ingin er: á að loka læknum?
Lokað um nætur
„Þetta ástand erorðið óþolandi
og brýn nauðsyn að loka læknum
að nóttu til, að minnsta kosti eftir
að dansleikjahaldi lýkur”, sagöi
Emil Guðmundsson, aðstoðar-
hótelstjóri á Hótel Loftleiðum.
„Fólk flykkist hingað á morgn-
ana, þegar við opnum, mismun-
andi illa til reika og oft með stór-
yröi og yfirgang. Viö höf-
um þvi neyðst til að ráöa hér sér-
stakan dyravörö til að bægja þvi
fólki frá, sem bersýnilega á enga
samleið með gestum hótelsins”
sagði Emil. Hins vegar taldi Emil
enga ástæðu til að loka aö degi til,
enda þá allt miklu rólegra og
sjaldan nokkur ölvun.
Úr Veldi tilfinninganna?
L.,.'
mm
„ Er ekki sama verö þótt maður sé f fötunum?'
ólympfuleikarnir til forna.
Bréf tJtideildar til
félagsmálaráðs.
Starfsfólk Otideildar hefur sent
Félagsmálaráöi Reykjavikur br-
éf, þar sem nokkuð kveöur við
sama tón og hjá Emil Guðmunds-
syni.Er þarog bent á þær hættur,
sem eru samfara læknum. Hrein-
lætisaöstaða er þar engin, svæöiö
þakið glerbrotum og mikil slysa-
hætta vegna ofurölvunar. Töidu
þau Stefania Sörheller og
Siguröur Ragnarsson hjá Úti-
deild, að ástandið væri ekki
mjög slæmt fram yfir miðnætti,
en eftir lok dansleikja væri hreint
ófremdarástand og oft horfði til
stórvandræöa við lækinn. Starfs-
fólk Útideildar er á vakt aðfara-
nætur laugardaga og sunnudaga
og sagði Stefania, að fariö væri
a.m.k. tvisyar til þrisvar sinnum
áhverrivakt út i Nauthólfsvik og
heföu þau þvi fylgst gjörla með
þróun mála siðustu mánuöi.
Akstursleið hinna ást-
föngnu.
„Vissulega væri framkvæman-
legt að loka veginum út i Naut-
hólsvik að næturlagi”, sagöi Páll
Eiriksson. varöstjóri hjá lögregl-
unni,” en þar með væri komið i